Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1991, Síða 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 19. NÓVEMBER 1991.
Útlönd
Terry Waite og Thomas Sutherland lausir úr gíslingu mannræningja 1 Beirút:
Biðum hlekkjaðir við
klefavegginn öll árin
góðar likur á að þeim þremur gíslum sem eftir eru verði sleppt á næstu dögum
Terry Waite, sérlegur sendimaður ensku biskupakirkjunnar, hefur látið á sjá í gíslingunni í Beirút. Honum var rænt
i janúar árið 1987 en sleppt í gær ásamt Bandaríkjamanninum Thomas Sutherland. Simamynd Reuter
„í gær sátum við í klefa okkar
hlekkjaðir við vegginn eins og við
höfum verið öll árin í gíslingunni.
Þá kom einn mannræninginn inn og
sagði: „Þið verðið látnir lausir í
kvöld,“ sagði Terry Waite þegar
hann lýsti fyrstu fréttunum sem
hann og Thomas Sutherland fengu
um að gíslingu þeirra væri lokið.
Bæði Sutherland og Waite hafa lát-
ið á sjá í gíslingunni. Sértaklega er
til þess tekið að Waite er orðinn grá-
hærður og hann er mun grennri en
hann var áður. Waite er nú 52 ára
gamall og var í haldi frá því í janúar
1987. Sutherland er sextugur. Honum
var rænt um svipað leyti og Waite.
„Mannræningjarnir sögðu mér að
öllum Bandaríkjamönnunum þrem-
ur yrði slepp fyrir lok mánaðarins.
Joshep Cicippio og Alann Steen losna
sennilega innan fimm daga og Terry
Anderson fyrir mánaðamótin," sagði
Thomas Sutherland þegar hann kom
frá Beirút til Damaskus.
Sutherland er nú á sjúkrahúsi
bandaríska hersins í Wiesbaden í
Þýskalandi og verður þar uns hann
getur haldið heim til Bandaríkjanna.
Terry Waite var í nótt á Kýpur og
er væntanlgur til Bretlands eftir há-
degið í dag. Þá fyrst getur hann hitt
ljölskyldu sína.
Sutherland talaði í gær við Jane,
konu sína, í síma. Hún segir að mað-
ur sinn sé ekki bitur enda hefði hann
einsett sér að taka örlögum sínum
með jafnaðargeði og bíða þess að
sleppa úr prísundinni.
Sutherland segir að mannræningj-
arnir hafi beðist afsökunar á að hafa
rænt honum og öðrum vestrænum
mönnum. „Við viðurkennum að þaö
var rangt og að það hefur engan til-
gang að halda mönnum í gíslingu,"
hafði Sutherland eftir mannræningj-
unum.
Perez de Cuiellar, framkvaémda-
stjóra Sameinuðu þjóðanna, er þökk-
uð lausn gíslamálsins. Hann hefur
frá því í sumar unnið að málinu og
tókst nú í haust að fá mannræningj-
ana til að breyta afstöðu sinni gegn
því að ísraelsmenn slepptu arabísk-
um fóngum.
Reuter
Lokaorrustan um Vukovar er hafin:
Króatísku varðliðarnir
verða þurrkaðir út
Serbneskur sjálfboðaliði kastar handsprengju í lokaorrustunni um Vukovar
sem hófst í gær. Simamynd Reuter
Sovétríkin:
Sovétríkin viðurkenndu í gær
að þau heföu skotið niður sænska
herflugvél af gerðinni DC-3 sem
hvarf yfir Eystrasalti í júnímán-
uöi áriö 1952 og að hún heföi ver-
ið yfir alþjóölegu hafsvæði.
Varnarmálaráðuneyti Sovét-
rikjanna viðurkennir aö framið
hafi verið gróft brot á þjóðarrétti
meö því að skjóta flugvélina nið-
ur. Carl Bildt, forsætisráðherra
Sviþjóðar, sagði að viðurkenning
Sovétmanna hefði jákvæð áhrif á
samskipti þjóðanna.
Bildt sagöi aö skýring Sovét-
manna á atburðinum væri hin
mikla spenna sem heföi ríkt milli
austurs og vesturs á sjötta ára-
tugnum. Svíar höföu lengi reynt
að komast að hinu sanna um ör-
lög flugvélarinnar og var málið
rætt við Gorbatsjov Sovétforseta
þegar hann heimsótti Sviþjóð í
júní í sumar.
Um borð í flugvélinni var átta
manna áhöfn og að sögn sovéskra
stjórnvalda lifði enginn þeirra af.
Herskáir Króatar í Vukovar neit-
uðu að hlýða fyrirskipunum stjóm-
valda um uppgjöf í gær og bjuggu
um sig í Mitnicahverfinu í miðbæn-
um undir linnulausum árásum
skriðdreka og stórskotaliðssveita
sambandshersins.
Fréttamaður Reuters heyrði liðs-
foringja í hernum segja við eftirlits-
mann Evrópubandalagsins að þeir
yrðu þurrkaðir út.
Sjónvarpið í Belgrad sakaði króa-
tíska hermenn, sem ákváðu að flýja,
um að myrða serbneska íbúa borgar-
innar á flóttanum. Sjónvarpið sýndi
myndir af líkum á götum úti, þar á
meðal af líki manns sem búið var að
stinga úr augun.
Þegar sambandsherinn hóf lokaá-
rás sína á Vukovar í gær eftir 86
daga umsátur flúðu um 5000 óbreytt-
ir borgarar. Þeir höföu verið innikró-
aðir í bænum á meðan á umsátrinu
stóð. Rauði krossinn og EB höfðu
umsjón með brottflutningi þeirra.
Margir óbreyttir borgarar yfirgáfu
bæinn með tár í augum og höföu með
sér það sem þeir gátu af eigum sín-
um. „Til fjandans með Vukovar, til
fjandans meö líf mitt,“ sagði ein kona
grátandi. „Ég á ekkert eftir nema
pokann sem ég held á.“
Aðeiris um 150 menn úr króatíska
varðliðinu og lögreglunni hlýddu
fyrirskipunum yfirmanns síns um
að leggja niður vopn frammi fyrir
ofureflinu en hinir fóru allir til
Mitnica. Varðliði, sem gafst upp,
sagði að ógerlegt væri að segja
hversu margir heföu ákveðið að berj-
ast áfram.
ekki gefist upp,“ sagði Andrija He-
bran, heilbrigðisráðherra Króatíu.
Vestur-Evrópusambandið bauðst í
gær tfi að senda herskip inn á Adría-
haf tfi að vemda skip Rauða krossins
sem flytja burtu særða óbreytta
borgara frá Króatíu. Utaiu'íkis- og
vamarmálaráðherrar þjóðanna níu
lögðu áherslu á að vemd yrði aðeins
veitt skipum með óbreytta borgara
um borð.
Reuter
DV
Hænsnaþjófar
skotnirtilbana
Lögregla í Suður-Afríku skaut
tvo menn til bana í gær þegar
þeir reyndu að stela hænsnum
af bóndabýli vestan við Jóhami-
esarborg.
Talsmaður lögreglunnar sagði
að býlið heföi verið undir eftírliti
vegna þjófnaðar á birgðum þar
að undanfbmu. Fyrir dögun á
mánudag sáu lögregluþjónar síð-
an mennina tvo brjótast inn í
hænsnahúsið og troða fugiunum
í poka.
„Mennirnir hlupu í burtu og
lögregluþjónamir sáu fram á að
þeir mundu ekki ná þeim. Þeir
hrópuðu viövörunarorð til þeirra
og skutu viðvörunarskoti sem
mennirnir skeyttu ekki um. Þeir
skutu síðan á mennina og særðu
þá tfi ólxfis," sagði talsmaður lög-
reglunnar.
Stjörnuglópur
hafðibeturen
sérfræðingarnir
Breskur stjörnuspeidngur
hafði betur en allir heimsins hag-
spekingar þegar kom að því að
spá fyrir um verðhrunið sem
varð á hlutabréfamörkuðunum á
Wall Street fyrir helgina.
Graham Bates varaöi við því í
október að viösjárverð afstaða
plánetanna Mars og Plútó um
miðjan nóvember gæti haft alvar-
legar afleiðingar fyrir verðbréfa-
markaði heimsins. Það gerðist
síðan á föstudagsmorgun. Það
var eins og við manninn mælt,
fimmta mesta verðfall sögunnar
varð síðar sama dag á Wall Street
Bates notar tölfræðigreiningu
tfi að færa heim og saman afstöðu
plánetanna og verðbréfamarkað-
arins og hann spáir aö næsti stór-
viðburður á þeim vettvangi verði
þann 4. janúar þegar sólin og
Úranus munu hleypa öllu í bál
ogbrand.
Prins sýknaður
afmorðákæru
Victor Emmanuel, prins af
Savoy og sonur síðasta konungs
Ítalíu, var sýknaður af ákæru um
að hafa drepið þýskan feröamann
fyrir frönskum rétti i gær. Ferða-
maðurinn var skotinn tíl bana
fyrir þrettán árum eftir rifrildi
við prinsinn á Cavalloeyju, und-
an strönd Korsíku.
Prinsinn hafði viðurkennt að
hafa hleypt af byssunni eftír rifr-
ildið við feröamenn sem voru á
seglskútu við eyjuna en lögfræð-
ingur hans hélt því fram að kúl-
unni sem varð Þjóðverjanum að
bana hefði verið skotið úr annars
manns byssu.
Prinsinn var aftur á móti fund-
inn sekur um vopnaburð og var
hann dæmdur í sex mánaða skfi-
orðsbundið fangelsi.
50kflóafkóka-
ínigerðuppfæk
íSvlþjóð
Sænska lögreglan hefur hand-
tekið fjórtán manns í tengslum
við næststærsta kókaínfund í
landinu til þessa. Alls fundust 50
kfió af efninu í síðustu viku.
Rúmlega tíu kíló fundust í húsi í
Bua í Hallandi en afgangurinn
fannst í íbúð í Gautaborg.
Flestir hinna handteknu eru
Kólumbíumenn, ellefti karlmenn
og ein kona. Þá voru tvær sænsk-
ar konur einnig gripnar.
Ekki er Ijóst hvemig kókainið
komst til Gautaborgar, né heldur
hvar átti að selja það. Á götu-
markaði er það metið á um 50
mfiljónir sænskra króna, eða um
hálfan milljarö íslenskra. :
Reuter og TT