Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1991, Page 23
ÞRIÐJUDAGUR 19. NÓVEMBER 1991.
1
23'
Fréttir
Stj ómarformaður Hollustuvemdar harmar vinnubrögð eigin starfsmanna:
Vinnubrögðin einsdæmi í
íslenskri stjórnsýslu
- segir Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson, framkvæmdastjóri Faxamjöls hf.
„Með þessu er formaður stjórn-
arinnar að víta sína starfsmenn
íyrir slæleg vinnubrögð í málinu
og verða við óskum okkar um að
málið fái hlutlæga meðferð. En við
höfum mjög undan þvi kvartað að
þessir starfsmenn Hollustuvemd-
ar, sem eru með málið til meðferð-
ar og eiga að taka það hlutlægum
tökum, komust strax að niðurstöðu
í júní sl. og lýstu henni þá yfir. Það
fannst okkur óþolandi að starfs-
menn stofnunarinnar skyldu strax
í upphafi málsmeðferðar lýsa því
yfir að þeir væru á móti því áður
en öllum gögnum hafði verið safn-
að saman. Ég hygg að þetta sé alveg
einsdæmi í íslenskri stjórnsýslu,
meðferðin á þessu máh, en það er
ánægjulegt til þess að vita að stjórn
Hollustuvemdar hefur áttað sig á
því að svona á ekki að meðhöndla
mál samkvæmt íslenskum stjórn-
arfarsrétti og hefur tekið fram fyrir
hendurnar á þessum tveimur
starfsmönnum sínum,“ sagði
Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson,
framkvæmdastjóri Faxamjöls hf., í
samtah við DV.
Vegna fyrirhugaðrar byggingar
Faxamjöls hf. á fiskimjölsverk-
smiðju í Örfirisey hefur komið til
kasta Hollustuverndar ríkisins.
Formaður stjórnar HoUustuvemd-
ar ríkisins sendi Gunnlaugi Sævari
nýlega bréf þar sem starfshættir
starfsmanna Hollustuverndar eru
harmaðir:
„Það skal upplýst að fram-
kvæmdastjórnin átaldi forstöðu-
mann og viðkomandi sérfræðing
stofnunarinnar á þessi sviði fyrir
að haga ekki málsmeðferð í sam-
ræmi við ákvörðun framkvæmda-
stjórnar á fundi sínum þann 10.
september sl. Stjórn HoUustu-
vemdar ríkisins þykir miður ef
meðferð þessa máls hjá mengunar-
varnasviði stofnunarinnar til þessa
kann að hafa valdið fyrirtæki yðar
óþægindum eða skaða áður en allar
staðreyndir málsins Uggja fyrir,“
segir í bréfinu.
Hermann Sveinbjörnsson, form-
aður stjórnar HoUustuverndar rík-
isins, sagði í samtaU við DV að það
mætti túlka þetta bréf sem afsök-
unarbeiðni en tók jafnframt fram
að orðalagið væri á þá leið að um
beina afsökun væri ekki að ræða.
Hann sagði ennfremur að tekið
yrði til gaumgæfilegrar endurskoð-
unar hvort þessir tveir umræddir
starfsmenn ynnu áfram að máhnu
og einnig að framkvæmdastjórnin
yrði nú meira með puttana í þessu
máli.
-GRS
Jöklakórinn hríf ur
Snæfellinga
Kristján Sigurðssan, DV, Stykkishólmi:
Jöklakórinn, sem er samkór
kirkjukóra á norðanverðu Snæfells-
nesi, hélt söngskemmtun 1. nóv. í
Stykkishólmskirkju sem var mjög
vel sótt og tókst afar vel.
Á efnisskrá voru 17 verk, þ. á m.
Ave verum corpus eftir Wolfgang
Amadeus Mozart, í fjarlægð eftir
Karl 0. Runólfsson og Jarðarfarar-
dagur eftir Þóri Baldursson. Sem
sagt mjög fjölbreytt dagskrá. Áhorf-
endur voru og vel með á nótunum
og kórinn varð að flytja mörg auka-
lög.
Kórinn hafði áður haldið tónleika
á HelUssandi og í Grundarfírði og 2.
nóvember var sungiö í Ólafsvík. Auk
þess voru síðan haldnir tónleikar í
félagsheimiUnu BreiðabUki á sunn-
anverðu Nesinu. Stjórnendur eru
þau Friðrik V. Stefánsson, Helgi E.
Krisjánsson, Jóhanna Guðmunds-
dóttir og Kay W. Lúðvíksson.
Norrænu nemendurnir ásamt jafnöldrum á Akranesi.
Norrænir vinabæjarnemar
í heimsókn á Akranesi
Sigurður Sverrissan, DV, Akranesi:
Átta norrænir nemendur frá vina-
bæjum Akraness héldu héðan fyrir
stuttu eftir að hafa dvaUð hér í hálfan
mánuð hjá jafnöldrum sínum í
Brekkubæjar- og Grundaskóla og
Fjölbrautaskóla Vesturlands. Akra-
neskaupstaður greiddi kostnaðinn
sem hlaust af dagskránni hér en við-
komandi bæjarfélög greiddu ferða-
kostnað sinna nemenda.
Þetta voru fyrstu nemendaskiptin
af þessum toga en stefnt er að því
að mót sem þessi verði haldin þriðja
hvert ár, næst í Bamble f Noregi 1994.
Farið var í nokkrar kynnis- og
skoðunarferðir, m.a. upp í Borgar-
fjörð, á ÞingvöU og að Gullfossi og
Geysi. Einnig fóru krakkamir til
Reykjavíkur og í Bláa lónið. Þá skoð-
uðu þau Akranes í krók og kring og
kynntust hér fólki og atvinnulífi. Þau
kynntu einnig sína heimabæi í skól-
unum með fyrirlestrum og mynda-
sýningum og voru í kennslutímum
með gestgjöfum sínum.
„Það fyndist kannski einhverjum
að krakkamir hefðu fengið of mikið
fijálsræði hér og þurft hefði að setja
ákveðnari reglur. En þeim var sýnt
traust sem þau risu fylhlegu undir,“
sagði Óhna Jónsdóttir, kennari, er
DV ræddi við hana um heimsóknina.
Hún, ásamt þeim Svandísi Péturs-
dóttur og Gyðu Bentsdóttur, hafði
veg og vanda af skipulagningu dval-
arinnar. „Þetta vom upp til hópa
yndislegir krakkar aht saman og ég
held að við getum verið ánægð með
hvernig til tókst á heildina htið.“
Fyrst og fremst
á farmabraut
k
k
k
k
Safnsendingar í flugi
- ódýrari frakt..
/ vuarn
vuaco
FLUTNINGSMIÐUJNTN «*
TRYGGVAGÚTU 26 - REYKJAVÍK - S: 29111 Fax 25590
11 1 < ; I o
;|'ir ' 1'' >']1 ' '•' ■- <