Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1991, Page 25
ÞRIÐJUDAGUR 19. NÓVEMBER 1991.
25
Fréttir
Smábátaeigendur:
Tjón vegna prentvillu
nemur 120 milljónum
Umbjóöendur mínir fjórir hafa
, orðið fyir umfangsmiklu fjárhags-
tjóni vegna ólögmætra skerðinga
veiðiheimilda fyrir tímabilið 1990
fram til haustsins 1991. Tjóniö má
meta upp á 120 milljónir króna, auk
dráttarvaxta og kostnaðar sam-
kvæmt gjaldskrá Lögmannafélags
íslands, segir í bréfi sem lögmaður
íjögurra smábátaeigenda hefur sent
sjávarútvegsráðherra, Þorsteini
Pálssyni.
Er ráðneytinu boðið upp á viðræð-
ur um málið svo að komist verði hjá
málsókn.
Forsaga málsins er sú að prentvilla
slæddist inn í texta frumvarps til
laga um fiskveiðistjórnun Alþingis á
síðasta ári. í upprunalegum texta
frumvarpsins var kveðið á um að
bátar undir 6 brúttórúmlestum gætu
valið um krókaveiðar í stað afla-
marks. Frumvarpið var endurprent-
að og bætt inn í það leiðréttingum
og viðbótum sem komið höíðu fram
í meðferð þingsins en þá urðu þau
mistök að skammstöfunin brl. kom í
stað orðsins brúttótonn sem er önnur
mælieining. Fór frumvarpið þannig
í gegnum þingið. Prentvillan var síð-
ar leiðrétt í Alþingistíðindum.
Sex smábátum, sem árið 1990 voru
skráðir minni en 6 brúttólestir en
mælast 8 til 13 brúttótonn samkvæmt
brúttótonns mælieiningunni, var
samkvæmt frumvarpinu úthlutað
16,5 tonna kvóta hveijum samkvæmt
meðalkvóta 5 til 6 brl. báta í afla-
markskerfinu. -
Fjórir smábátaeigendur, sem áttu
funm trillur, voru ekki sáttir við
þessi málalok og leituöu til umboðs-
manns Alþingis. Álit hans var að
bátarnir ættu rétt á að vera á króka-
veiðum og rökstuddi hann það meðal
annars með því að þótt orðið brúttó-
tonn væri komið inn í prentaða út-
gáfu Alþingistíðinda léki vafi á því
að dómstólar teldu það hafa lagagildi.
Sjávarútvegsráðuneytið ákvað svo
á grundvelli úrskurðar umboðs-
mannsins að smábátaeigendurnir
mættu velja á milli þess að fara á
krókaveiðar í stað aflamarks og var
það nú á haustdögum sem þeir gátu
hafið krókaveiðar.
Smábátaeigendurnir eru hins veg-
ar ekki sáttir viö þessi málalok og
telja sig hafa orðið fyrir miklu fjár-
hagstjóni vegna prentvillupúkans,
þeir kreíja því sjávarútvegsráðu-
neytið um bætur og er þess krafist
að ráðuneytið gefi svar fyrir 20. þessa
mánaðar.
-J.Mar
Hörkurekstur hjá
Skagstrendingi
Minni útf lutningur á steinull
Þórhallur Ásmundsson, DV, Sauðárkróki:
Útlit er fyrir að áætlanir um sölu
á steinull á innanlandsmarkaði á
þessu ári standist en hins vegar er
ljóst að útflutningur einangrunar
verður ekki jafnmikill og gert var ráð
fyrir. Fyrstu 10 mánuði ársins nam
salan innanlands 2520 tonnum en
gert var ráð fyrir 3000 tonna árssölu.
Á sama tíma höfðu 1800 tonn verið
seld úr landi en áætluð árssala var
2500 tonn.
Einar Einarsson, framkvæmda-
stjóri Steinullarverksmiðjunnar hér
á Sauðárkróki, segir ástæöuna sam-
drátt á byggingarmörkuðum og
aukna samkeppni í framleiðslu ein-
angrunar. Fljótlega verði hafist
handa við að áætla sölu næsta árs
og varlegt sé að gera ráð fyrir sam-
drætti á innanlandsmarkaði en enn-
þá sé ekki vitaö hvemig landið liggi
í útflutningnum.
Þórhallur Ásmundsson, DV, Norðl. vestra:
Rekstur Skagstrendings kom
verulega betur út fyrstu sex mán-
uði ársins 1991 en á sama tíma 1990.
Hagnaður varð 32,6 millj. króna
fyrir skatta sem er 37,4% aukning
milli ára.
Eigið fé er orðið 661 milljón króna
og hefur aukist mikið, enda var
fyrr á árinu farið út í hlutafjár-
aukningu að nafnvirði 50 millj.
króna. Sölugengi bréfanna var
4,8-5,1 sem þýðir rúmlega 200 millj.
króna raunvirði þeirra. Það verður
því ekki annað sagt en Skagstrend-
ingi gangi vel að safna upp í kaup-
in á nýja frystitogaranum sem
verður afhentur frá Noregi næsta
haust.
Að sögn Áka Áskelssonar, rekstr-
arstjóra Skagstrendings, er ástæð-
an fyrir betri afkomu fyrri hluta
ársins meiri afli og betra verð á
mörkuöum. Þá hafa skipin ekki
tafist frá veiðum vegna viðgerða
eins og gerðist 1990. Þá var Orvar
frá veiðum að mestu fyrstu tvo
mánuði ársins vegna lagfæringa
við millidekk.
VALDIS 0G GUNNGEIR
ÞREFÖLDUÐU UPPHÆÐINA
SEM ÞAU HÖFÐU TIL
RÁÐSTÖFUNAR!
DV
BRÚÐAR
gjofin
■ ValdísogGuiingeir
DV auglýsti eftir pari í gifting-
arhugleiðingum. Valdís og
Gunngeir voru svo ljónheppin
að vera valin úr f|ölda umsækj-
enda.
DV gaf þeim kvartmilljón,
2; o.ooo krónur, til að auðvelda t
þeim að byggja upp framtíðar-
heimili sitt og notuðu þau pen-
ingana til að kaupa. hluti i
gegnum smáauglýsingar DV.
■ Mikið fyrir lítið
Smáauglýsingar
Þverholti ii - io; Rvík
Sími 91-27022
Fax 91-626684
Græni síminn 99-6272
Opið:
Virka daga frá kl. 9-22
Laugardaga frá kl. 9-14
Sunnudaga frá kl. 18-22
Ath. Smáauglýsing í helgar-
blað DV verður að berast fvrir
kl.f 17 a föstudág.
Jóhanna Gísladóttir og María Kjartansdóttir í Vikurmarkaönum.
DV-mynd Hjörvar
Bónusverslun í
Neskaupstað
Hjörvar Siguijónsson, DV, Neskaupstað:
VíkurmEirkaðurinn, verslun með
bónussniði, var opnuð hér í Nes-
kaupstað þriðjudaginn 5. nóvember.
Eigendur eru Jóhanna Gísladóttir og
fjölskylda og mun Jóhanna annast
reksturinn ásamt einum starfs-
manni, Maríu Kjartansdóttur.
Víkurmarkaðurinn er opinn kl.
13-18 og er Jóhanna ánægð með við-
tökur bæjarbúa þessa fyrstu daga
verslunarinnar.
Þau fengu aldeilis mikið fyrir
lítið því þau þrefölduðu upp-
hæðina sem þau höfðu til ráð-
stöfunar.
Þau keyptu f)óra króm- og leð-
urstóla, Funai myndbandstæki,
22" Grundig litsjónvarp, tví-
skiptan Blomberg ísskáp, sófa-
borð með glerplötu og króm-
fótum, svartan, tvífættan
standlampa með glerplötu, tvo
2ja sæta sófa og stól með tauá-
klæði, Eumenia þvottavél með
innbyggðum þurrkara og stór-
an, þríski'ptan fataskáp.