Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1991, Side 40
TVÖFALDUR1. vinningur
Veöriðámorgun:
Frostlaust
víðast hvar
Á morgun veröur suðaustanátt
og frostlaust um mestallt land.
Rigning með suður- og vestur-
ströndinni en sums staöar slydda í
öðrum landshlutum en snjókoma
inn til fjalla. Hiti verður á bilinu
0-5 stig, hlýjast sunnanlands.
LOKI
Það er nú ekki einu sinni
- æfingíþvíaðlyftaJóni!
F R ETTASKOTIÐ
62 • 25 • 25
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um
frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir
hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað
í DV, greiðast 3.000 k'rónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku
greiðast 7.000 krónur. Fullrar nafn-
leyndar er gætt. Við tökum við frétta-
skotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
Frjálst, óháð dagblað
ÞRIÐJUDAGUR 19. NÓVEMBER 1991.
Ákærtfyrir
innflutning á
1.100 kössum
Fyrrum stýrimaður hjá Eimskipa-
félagi íslands hefur verið ákærður
fyrir að hafa staðið að innflutningi á
1.100 kössum á bjór á árinu 1989.
Málið var lengi í rannsókn hjá RLR
og síðan til meðferðar hjá ríkissak-
sóknara en er nú í dómsmeðferð.
Bjórinn fannst í gámi sem kom með
Laxfossi til Reykjavíkur 17. janúar
1989. Um miðjan febrúar sama ár var
maðurinn úrskurðaður í gæsluvarð-
hald vegna rannsóknar málsins. Þar
sat hann í einn mánuð en neitaði
ávallt sakargiftum.
* Bjórinn var í gámi sem samkvæmt
farmskrá skipsins átti aö vera tóm-
ur. Þegar tollverðir í Reykjavík opn-
uðu gáminn var hann fullur af
Heineken bjór. Bjórinn var keyptur
í Antwerpen í Belgíu. Við rannsókn
málsins báru vitni í Belgíu, sem
tengdust sölu á bjórnum, að um-
ræddur maður hefði keypt sending-
una. -ÓTT
Sjö milljóna
Ríkissaksóknaraembættiö hefur
gefið út ákæru á hendur fyrrum yflr-
lyfjafræðingi Landakotsspítala þar
sem honum er gefið að sök að hafa
dregið sér um 7 milljónir króna.
Dómsyfirheyrslur hefjast vegna
málsins í Hafnarfirði í næstu viku.
Manninum var vikið úr starfi í
apríl á síðasta ári og úrskurðaður
nokkru síðar í gæsluvarðhaid vegna
rannsóknar lögregu á málinu. Frum-
rannsókn lauk síðastliðið haust. Rík-
isendurskoöun hafði áður gert ítar-
lega skýrslu vegna málsins. Meint
misferli yfirlyfjafræðingsins tengist
'aö miklu leyti afhendingu á lyfjum
^jir apóteki Landakotsspítala. Tvö al-
mennapótektengjastmálinu. -ÓTT
Skeiöarárhlaup:
Vex hægt í ánni
„Mér sýnist að það hafi ekki vaxið
neitt að ráði í ánni í nótt. Hún hefur
vaxið mjög hægt að undanfornu.
Maöur hefur varla séð mismun á
henni frá degi til dags. Það verður
ekki hægt að meta það fyrr en birtir
hvort áin hefur róast eitthvað í nótt,“
segir Ragnar Stefánsson, bóndi í
Skaftafelli.
„Þegar mælt var í gær haföi það
vaxið mikið frá deginum áður og var
l^rennslið komið upp í 1200 rúmmetra
cT sekúndu sem er margfalt meðal-
rennsli," segir Snorri Ámason
vatnamælingamaöur. -J.Mar
Hugmyndir um efnahagsráðstafanir ríklsstjórnarmnar:
Sölu ríkisfyrir-
tækja verði hraðað
- og dregið verulega úr starfsemi ýmissa ríkisstofnana
Meðal þess sem rætt er um vegna
boðaðra efnahagsráðstafana rík-
isstjórnarinnar er að draga umtals-
vert úr fjárveitingum til ýmissa
ríkisstofnana og leggja jafnvel
aðrar niður. Til þess að þetta sé
hægt þarf í sumum tilfellum laga-
breytingar og er rætt um að bera
fram eitt fumvarp sem inniheldur
allar þær lagabreytingar sem þarf
að gera.
Þá er rætt um að hraða sölu ríkis-
fyrirtækja frá því sem fyrirhugað
var. Inni í því dæmi eru meðal
annarra fyrirtækja Síldarverk-
smiðjur ríkisins og ríkisbankamir,
annar eða báðir.
Annars era þessar efnahagstil-
lögur afar stutt á veg komnar og
þessa dagana veriö aö safna í eins
konar hugmyndabanka hjá stjórn-
arflokkunum.
Efhahagsráðstafanirnar vora að-
almálið á löngum þingflokksfundi
alþýðuflokksmanna í gær. Össur
Skarphéðinsson, formaður þing-
flokksins, sagði að menn hefðu þar
farið yfir stööuna en engar ákveðn-
ar tillögur heföu þar verið sam-
þykktar.
Þingflokksfundur sjálfstæöís-
manna í gær var aftur á móti stutt-
ur. Virðist svo sem að á þessu stigi
ráði ráðherrar flokksins einir ferð-
inni.
Nefnd efnahagssérfræðinga hef-
ur verið stofnuö til að vinna að
þessum efnahagsaðgerðum. Ólafur
Davíðsson hagfræðingur er for-
maður nefndarinnar en meðal
nefndarmanna er Þröstur Ólafs-
son, aðstoðarmaður Jóns Baldvins
utanríkisráðherra.
-S.dór
Nýbakaðir heimsmeistarar í kraftlyftingum, þeir Hjalti Árnason og Guðni Sigurjónsson, komu ásamt Jóni Gunnars-
syni, sem hlaut brons á heimsmeistaramótinu i Sviþjóð, til landsins i gær. Tekið var á móti kraftajötnunum með
kostum og kynjum í Leifsstöð. Þar var utanrikisráðherrann mættur fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Þegar brugðið var
á leik var Jón Baldvin eins og fis í höndum kraftlyftingameistaranna, enda lyftu þeir kappar samanlagt heilli rikis-
stjórn á mótinu ytra. Hjalti er lengst til vinstri, þá Guðni og síðan Jón. Sjá bls. 20-21
DV-mynd ÆMK
Tungufellsmálið:
Landsbankinn
veitir ekki
sakaruppgjöf
- segir Sverrir Hermannsson
„Landsbankinn mun ekki draga
beiðnina til baka því að málið er ekk-
ert á hans snærum. Það er í höndum
réttra lögregluyfirvalda sem er sak-
sóknari ríkisins. Þar verður það og
hefur sinn eðlilega framgang þar til
rannsókn er lokið og ljóst verður
hvort til ákæru kemur. Landsbanki
íslands veitir mönnum ekki sakar-
uppgjöf.“
Þetta sagði Sverrir Hermannsson,
bankastjóri Landsbankans, er DV
spuröi hann hvort bankinn myndi
draga til baka beiðni um opinbera
rannsókn á ráðstöfunum sem geröar
voru með sölu Hraðfrystihúss Ólafs-
víkur á tveim bátum til útgerðarfé-
lagsins Tungufells hf.
Á skiptafundi þrotabúsins, sem
haldinn var í gær, lagði Jóhann Ní-
elsson bústjóri fram tillögu að um-
boði til að gera samning við Tungu-
fell um endurgreiðslur og riftunar-
bætur til þrotabúsins að upphæð
rúmlega 150 milljónir króna. Fékk
bústjóri heimild til að ganga frá til-
boðinu. Er þar með lokið riftunar-
máli því er búið höfðaði.
í gær fór einnig fram uppboð á
frystihúsi Hraðfrystihúss Ólafsvík-
ur. Var Fiskveiðasjóði slegið húsiö á
30 milljónir króna. Auk frystihússins
á þrotabúið fiskimjölsverksmiðju og
saltfiskverkunarhús og aðrar minni
eignir.
-JSS
Laugardaga 10-17
Sunnudaga 14-17
TM-HUSGÖGN
SÍDUMÚLA 30 SÍMÍ 686822