Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.1991, Page 13
MÁNUDAGUR 2. DESEMBER 1991.
13
Fréttir
Landhelgisgæslan fékk Baldur en missti Þór:
Miklar tilf inn-
ingarbundnar
skipanöfnum
- segir Gísli Auðunsson hjá Siglingamálastofnun
„Nafniö Baldur hefur verið við
lýði á Dalvík svo lengi sem elstu
menn muna. Það var því mikið ólán
fyrir þá að missa nafnið til Land-
helgisgæslunnar. Mótleikur þeirra
var að sækja um nafnið Þór og það
hafa þeir fengið. Fyrir fólkið, sem
stendur í baslinu og hinu raun-
verulega lífsstríði, er þetta hins
vegar tilfinningamál, einkum varð-
andi skipsnöfn. Við kontóristarnir
í Reykjavík eigum oft erfitt með að
skHja svona lagaö. í þessu máli eiga
Dalvíkingar hins vegar fulla samúð
mína,“ segir Gísli Auðunsson í
skipaskráningadeild Siglingamála-
stofnunar ríkisins.
Nýlega úthlutaði Siglingamála-
stofnun sérleyfi á nafninu Þór til
Snorra Snorrasonar, útgerðar-
manns á Dalvík. Til langs tíma bar
eitt af skipum Landhelgisgæslunn-
ar þetta nafn en frá árinu 1986 hef-
ur ekkert skip hennar borið það.
Samkvæmt lögum um sérleyfi á
skipsnöfnum getur útgerð ekki
haldið nafni fráteknu nema í þrjú
ár. Að þeim tíma liðnum er sigl-
ingamálastjóra heimilt að endurút-
hluta því.
Deilur hafa að undanfómu staðið
um nöfnin Þór og Baldur milli
Landhelgisgæslunnar og Snorra.
Bátur, er Snorri keypti nýverið,
bar nafnið Baldur en vegna einka-
leyfis gæslunnar á því nafni verður
hann að breyta því. Sótti hann þá
um og fékk nafnið Þór.
„Það kom í minn hlut að sækja
um einkarétt á nafninu Baldri fyrir
nýtt sjómælingskip sem við sjósett-
um í vor. Þá hafði ég ekki hugmynd
um þennan Baldur á Dalvík. í
skipaskrá Siglingamálastofnunar
eru á þriðja hundrað sérleyfi fyrir
nöfn á skip. Við höfum ætíð haft
sérleyfi á okkar nöfnum. í tvígang
áður höfum við verið með skip sem
borið hafa nafniö Baldur og nafnið
Þór var í notkun afit fram til ársins
1986,“ segir Jón Magnússon, lög-
fræðingur Landhelgisgæslunnar.
Þegar Lanhelgisgæslunni varð
kunnugt um að Snorri hefði sótt
um nafnið Þór sótti hún einnig um
nafnið. En þar sem hún var seinni
til missti hún af því. Að sögn Jóns
Magnússonar er það ekki inni í
myndinni hjá Landhelgisgæslunni
að semja við Snorra um skipti á
nöfnunum Baldri og Þór. Að sögn
Gísla væri það þó farsælast fyrir
alla aðila.
-kaa
I
% #HtJSGAGN4^HF
M val
SMIÐJUVEGI 30 - KÓPAVOGI
SÍMI 72870
SÓFASETT - HÆGIND ASTÓLAR -
HORNSÓFAR - FATAHENGI -
SPEGLAR - HRÚGÖLD -
STANDLAMPAR - SÓFASETT
OG MARGT, MARGT FLEIRA
HÚSGÖGN
í ÚRVALI
Heimsþekkt heimilistæki..
Electrolux ROwenFð
sSCRVISs
t.d ísskápar, eldavélar o.fl.
t.d. kaffivélar, straujárn o.fl.
t.d. ofnar, helluborð o.fl.
t.d. þvottavélar og sambyggð
þvottavél og þurrkari.
...með ótrúlegri þjónustuábót:
✓ Sama verð um land allt, við boYgum flutninginn.
✓ Viku skilafrestur á öllum vörum, þér að kostnaðarlausu.
✓ Greiðsluskilmálarvið allra hæfi, t.d. Visa-raðgreiðslur í 18 mánuði.
Heimasmiðjan
Kringlunni, sími 685440
HUSASMIÐJAN
Skútuvogi 16, sími 687710