Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.1991, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.1991, Blaðsíða 14
14 MÁNUDAGUR 2. DESEMBER 1991. Útgáfufélag: FRJALS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EVJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÖNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÖNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLT111,105 RVlK, SlMI (91 )27022- FAX: Auglýsingar: (91 )626684 - aðrar deildir: (91)27079 GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Askrift: 99-6270 AKUREYRI: STRANDGÖTU 25. SlMI: (96)25013. Blaðamaður: (96)26613. FAX: (96)11605 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1200 kr. Verð i lausasölu virka daga 115 kr. - Helgarblað 150 kr. Um keisarans skegg Sérkennileg deila hefur risið um túlkun og útfærslu samningsins um Evrópska efnahagssvæðið. Evrópu- bandalagið setti á sínum tíma fyrirvara um það ákvæði sem fjallar um veiðiheimildir bandalagsins innan ís- lenskrar fiskveiðilögsögu. í stað þess að veiða langhala krefst Evrópubandalagið þess að fá að veiða karfa. Um er að ræða þijú þúsund tonn og hefur þessi krafa banda- lagsins sett aút á annan endann hér heima. Andstæðing- ar samkomulagsins um efnahagssvæðið fullyrða að all- ir endar séu lausir. Fyrrverandi ráðherrar saka Jón Baldvin utanríkisráðherra um að hafa samið af sér og samtök hagsmunasamtaka sjávarútvegsins segjast ekki lengur styðja samninginn fyrr en öll kurl séu komin til grafar. Það er eins og himinn og jörð séu að farast. Þó eru ekki nema nokkrar vikur síðan mikill meirihluti þjóðar- innar og stjómmálamanna fagnaði samkomulaginu um Evrópska efnahagssvæðið. íslendingar töldu sig hafa unnið mikinn sigur og hvort sem það kallast sigur eða ekki, þá var ljóst að íslenska samninganefndin undir forystu Jóns Baldvins náði fram öllum meginkröfum íslendinga. Við fáum tollfrjálsan aðgang að Evrópu og við gátum komið í veg fyrir gagnkvæmar veiðiheimild- ir, ef undan er skihð umrætt ákvæði sem nú er verið að rífast um. Þar höföum við boðið fram leyfi til veiða á langhala gegn því að fá þijátíu þúsund tonna veiðiheimild á loðnu innan lögsögu Evrópubandalagsins. Fæstir vita hvað langhali er og að minnsta kosti hefur það ekki verið afli sem okkar skip hafa dregið að landi. Sem ekki er nema von. Fiskifræðingar hafa litlar sem engar upplýs- ingar um þennan fisk og í sjálfu sér blekking frá upp- hafi að halda að viðsemjendur okkar gleyptu við fiski sem enginn veit neitt um. Veit ekki hvar hann veiðist, hvar hann heldur sig né hvort ástand stofnsins sé með þeim hætti að gera megi út á hann. Svo ætlar allt vitlaust að verða þegar Evrópubanda- lagið nennir ekki að láta plata sig og heimtar karfaveið- ar 1 staðinn! Það er ekki eins og öllu hafi verið siglt í strand. Þijú þúsund tonn af verðlitlum fiski á borð við karfa eru lítið gjald fyrir þann ávinning sem tollfrelsið hefur í för með sér. Það er hálfur ársafli á einu skipi. Eða varla það. Jón Baldvin þarf ekki að afsaka sig með því að benda á að fyrrverandi ríkisstjóm hafi ljáð máls á gagnkvæm- um veiðiheimildum með þessum hætti. Halldór Ás- grímsson þarf ennþá síður að vísa ábyrgð af höndum sér. Allra síst þurfa forsvarsmenn sjávarútvegsins að láta eins og þeir hafi verið sviknir. Auðvitað þurftu ís- lendingar að gefa eitthvað eftir ef þeir vildu fá mikið fyrir lítið. Auðvitað gat ekki nokkrum heilvita manni dottið í hug að íslendingar gætu gabbað heilt Evrópu- bandalag með því að veifa langhala framan í viðsemj- endur sína og komist upp með það. Kjami málsins er sá að það er bara í stakasta lagi þótt þijú þúsund tonn af karfa verði gefin eftir í býtti fyrir þá ávinninga sem evrópskt efnahagssvæði hefur í för með sér. Menn eiga ekki að láta eins og þeir séu fæddir í gær. Menn eiga ekki að deila um keisarans skegg. Ellert B. Schram Viðgerðir er- lendra skipa Viöskipti við erlend fiskiskip, sem stunda veiöar utan við land- helgi íslands, gætu fært okkur mörg hundruð milljónir í gjaldeyr- istekjur á hverju ári. En úrelt lög frá 1922, sem banna landanir er- lendra skipa á afla sínum í íslensk- um höfum, hafa komið í veg fyrir þessi ábatasömu viðskipti. Misvitur stjómvöld hafa um ára- bil staðið af sauðslegum þráa gegn því að lögunum yrði breytt og þar hefur Framsóknarflokkurinn verið langsamlega erfiðastur. Á meðan hafa erlendir veiðiflotar, til dæmis frá Sovétríkjunum, gert viðgerðar- samninga við Færeyinga, Dani og íra. Samningurinn var írum raun- ar svo mikilvægur að Charles Haughey forsætisráðherra kallaði hann á sínum tíma „stóra vinning: inn“. Breyttar aðstæður Lögin frá 1922 vom reyndar mjög gagnleg íslendingum um langt skeið. Þegar Alþingi setti þau var landhelgin ekki nema fjórar mílur. Án þeirra hefði því erlendum út- gerðum verið í lófa lagið að setja upp bækistöð á íslandi og gera út togara frá innlendum höfnum til veiða utan við fjórar mílumar. Þar með hefðu íslenskir fiskistofnar verið í stórhættu. Lögin komu sem betur fer alfarið í veg fyrir þaö. Nú eru aðstæður hins vegar gjör- breyttar. Við erum fyrir löngu búin aö færa landhelgina út í 200 mílur. Langmest af þeim fiski, sem telst til nytjastofna íslendinga, heldur sig innan þeirra. Vemdunarsjón- armiðin, sem vom upphaflega grundvöllur löndunarbannsins, mæla þess vegna alls ekki lengur gegn því að lögunum verði breytt. Japanski togarinn Samningurinn, sem írar gerðu á sínum tíma við Murmansk flotann sovéska, nam hundruðum milljóna sterlingspunda. Hann bjargaði mörgum írskum skipasmíðastöðv- um frá bráðum dauða og því varla nema von að sá gamh refur, Haug- hey forsætisráðherra, hrósaði happi. En fyrir stóran hluta þessa flota er ísland hins vegar miklu nærtækari viðgerðarstöð en ír- land. Sovétmenn gera sér glögga grein fyrir þessu. Gegnum árin hafa þeir ítrekað spurst fyrir um möguleika á samningum um viðhald skipa sinna hér. Þannig er ekki langt síð- an umboðsmaður þeirra vildi koma með 10-15 nafngreind skip til reglu- legs viðhalds á íslandi. Að sögn strandaði það á löndunarbanninu. Hins vegar er um mikið fleira að tefla en bara þann þátt sem snýr markaöina og vinnslustöðvamar, sem þeim eru háðar, gæti þetta skipt mjög miklu máU. Fiskmarkaðirnir eiga nefnilega í vök að verjast vegna minnkandi kvóta og þarafleiöandi skorts á hráefni. Þetta myndi skapa meiri vinnu við sölu og vinnslu fisksins, sem og flutning hans úr landi. En síðast en ekki síst yrði virðisauk- inn, sem verður til við vinnslu fisksins, eftir í landinu. Þannig myndi sala innanlands á afla erlendra skipa ein og sér leiða til vaxandi gjaldeyristekna. össur Skarphéðinsson formaður þingflokks Alþýðu- flokksins - Jafnaðarmanna- fiokks íslands Kosningaloforð efnt Eitt af kosningaloforðum Al- þýðuílokksins var að breyta lögun- um frá 1922 og opna íslenskar hafn- ir fyrir útlendum veiðiskipum. Með því vildum við jafnaðarmenn í senn stórefla sóknarfæri málm- og „Landanir erlendra fiskiskipa myndu færa hingað alls konar viðskipti sem gætu skilað furðu háum upphæðum í þjóðarbúið. Skipin þyrftu að kaupa kost og eldsneyti, ís, varahluti, veiðar- færi, læknisþjónustu og jafnvel dýran vinnslubúnað...“ að viðhaldi og viðgerðum. Landan- ir erlendra fiskiskipa myndu færa hingað alls konar viðskipti sem gætu skilað furðu háum upphæð- - um í þjóðarbúið. Skipin þyrftu að kaupa kost og eldsneyti, ís, vara- hluti, veiðarfæri, læknisþjónustu og jafnvel dýran vinnslubúnað - eins og dæmi eru um. Árlega gæti þetta skipt hundruðum milljóna. Áhafnaskipti myndu sömuleiðis þýða umtalsverðar upphæðir fyrir hótel og flugfélög og almenn vöru- kaup áhafna gætu orðið dýrmætt húsílag fyrir verslanir á lands- byggðinni. Og hafnargjöld vegna þeirra yrðu án efa búbót fyrir mörg sveitarfélög. Gott dæmi um ábata þessara við- skipta eru landanir grænlensku rækjutogaranna hér á landi sem skila a.m.k. 200 milljónum árlega til landsmanna. Og ekki má gleyma japanska verksmiðjutogaranum sem fékk leyfi til að leita hafnar fyrir nokkrum árum. í þeirri einu heimsókn keyptu áhöfn og útgerð bæði tæki og þjónustu fyrir tugi milljóna! Fiskmarkaðir Landanir erlendra veiðiskipa myndu jafnframt auka framboð á fiski á íslenskum mörkuðum. Fyrir skipaiðnaðarins, skjóta um leiö stoðum undir innlenda fiskmark- aði og flytja þannig viðskipti og atvinnu upp á hundruð milljóna í erlendum gjaldeyri inn í landið. Þetta höfum við nú efnt. Ríkis- stjórnin hefur nú samið frumvarp að lögum sem geiir þetta kleift. Næsta verkefni verður að hrinda af stað víðtækri markaðssetningu á íslandi sem alþjóðlegri viðgerða- stöð fyrir veiðiflota í norðurhöfum. Einmitt verkefni af því tagi þarf til að blása lífsanda í smiðjur og drátt- arbrautir vítt um land - á Vest- fjörðum, Austfjörðum, að ógleymdu Noröurlandi, þar sem flaggskip íslenskra skipasmíða, SMppstöðin, býr að langri og mik- illi reynslu. Tækifærin eru fyrir hendi. En það þarf bjartsýni og dug til að nýta þau. Samningarnir um EES og breyting á lögunum frá 1922 eru dæmi um mikilvæg sóknarfæri sem gætu fært þjóðinni dijúgan ávinning. En þá verða menn að gæta þess að láta ekki sameinaðan grátkór VSÍ, Ólafs Ragnars og Steingríms Hermannssonar drekkja sér í þunglyndi þó eiiítið gefi í bih á bátinn... össur Skarphéðinsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.