Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.1991, Side 26
38
MÁNUDAGUR 2, DESEMBER 1991.
Hreint loft, laust við tóbaksreyk,
er grundvallarþóttur í réttinum til heilnæms
og ómengaðs umhverfis.
TÓBAKSVARNANEFND
BILALEIGA
við Flugvallarveg
ARNARFLUGS
- gegnt Slökkvistöðinni
Jólatilboð
50% afsláttur
af daggjöldum í desember
: 61-44-00
Simi
91
Fax 91-61 •44915
* HITAR
* NUDDAR
* STYÐUR VIÐ MJÓBAKIÐ
Þú setur bakhjarlinn í sætið
og setur í samband við
sígarettukveikjara og þá ert
þú kominn með vellíðan.
Allt þetta fyrir aðeins kr.
4.900.
BÍLARAF H/F
BORGARTÚNI 19, SÍMI 24700 - 624090
OFUR-HLJÓÐMAGNARI
Herntt
Tækið kemur að noturr
hvar sem er:
I skóla, í bíói, í leikhúsi
á ráðstefnum.
Vlð að hlusta á:
útvarp, sjónvarp,
án þess að
hækka upp úr
öllu valdi.
RÖKRÁS HF.
Bíldshöfða 18 - S. 91-671020
Ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar. - „Undarlegt var að ekki skyldi nást samstaða í þeirri ríkisstjórn um
hátekjuskatt...“
Ráðvillt
ríkisstjórn
„Velferö á varanlegum grunni"
heitir hvíta bókin sem hefir að
geyma stefnuskrá ríkisstjórnar-
innar. - Ekki vantar það að nafnið
er faUegt og getur sjálfsagt vakið
vonir hjá þeim sem leggja trúnað á
að þessi ríkisstjóm hafi yfirleitt
vilja á að skapa velferð í landinu.
- En það þurfa þó að vera einhver
takmörk fyrir þvi hve lengi fólk
lætur blekkja sig. Því hvaða gildi
hafa „orð, orð innantóm"?
Það besta sem ég sé við þessa rík-
isstjóm er hve hún spilar djarft og
gengur miskunnarlaust fram í
árásum sínum á þjóðfélagið.
Þetta kann að hljóma dálítið und-
arlega en svona er það nú samt því
að ég fæ ekki séð að henni geti tek-
ist að blekkja fólk lengur. - Jafnvel
sumir stjórnarliðar eru búnir að fá
nóg og fordæma vinnubrögðin,
minnsta kosti hreppaflutningana.
Það er rétt eins og ríkisstjómin
haldi að hún geti bara hvað sem
er. Þegar hún hefir gert fyrirtækin
gjaldþrota með hávaxtastefnu
sinni. Þá er næst að leggja niður
heilu byggðarlögin, reka fólkið frá
heimilum sínum og planta því svo
niður hvar sem henni þóknast.
Þetta taldi Bjöm Bjamason, einn
af nýhðum íhaidsins á Alþingi, að
gæti átt vel við í dag þótt það hefði
ekki þótt viðeigandi fyrir 20 árum.
Engu skila heldur taka
Að mörgu leyti minnir ástandið
í þjóðfélaginu nú á það sem var
þegar ríkisstjóm Þorsteins Páls-
sonar gafst upp og nýfrjálshyggjan
svokallaða hafði rústað þjóðfélagið
svo að aht virtist komið í strand.
Þá fékk ríkisstjórn Steingríms
Hermannssonar það hlutverk að
reisa atvinnuvegina úr rúst og
koma fyrirtækjunum til bjargar. -
Margt tókst þeirri ríkisstjóm vel
þó að henni mistækist annað, eins
og það að leggja niður lánskjara-
vísitöluna sem hún virtist þó vilja
gera. En það er eins og einhverjar
óvættir komi í veg fyrir að við
henni verði hróflað.
Þetta er einna líkast því að sá sem
hefir orðið uppvis að þjófnaði yrði
að fá að halda áfram að stela alla
ævi. - Þá má segja að undarlegt var
að ekki skyldi nást samstaöa í
þeirri ríkisstjóm um hátekjuskatt
og að skattleggja fjármagnstekjur.
Kjallariim
Aðalheiður Jónsdóttir
verslunarmaður
En samt sem áður tókst meö góðri
samvinnu ríkisstjómarinnar og
aðila vinmnnarkaðarins að bæta
svo afkomu atvinnuveganna og
þjóðarbúsins að samkvæmt þjóðar-
sáttinni átti launafólk orðið inni
kjarabætur sem ákveðið var að
standa skh á. En þá kemur upp ný
staða, stjóm Davíðs Oddssonar
komin th valda og hefir haft uppi
aht önnur viðhorf en standa skil á
einu eða neinu heldur einbeitt sér
að kjaraskerðingu og niðurskurði
á velferðarkerfmu af slíkri hörku
að með óhkindum er að nokkur
ríkisstjórn skuh þora að gera slíkt.
Hin hörðu gildi
Davíð Oddsson hefir líklega ekki
áttað sig á því ennþá að þaö er ekki
unnt að stjóma nútímaþjóðfélagi
með því að láta hömlulausa frjáls-
hyggju ráða ferðinni. - Það leit út
fyrir að Þorsteinn Pálsson hefði
skhið þetta eftir að hafa veitt slíkri
ríkisstjórn forystu í tvö ár.
Var það kannski þess vegna að
honum var bolað út úr formennsku
flokksins á svo sérkennilegan hátt?
Þurftu harðhnumenn harðsvíraðri
foringja th þess að geta duglega
þjarmað að þjóðfélaginu með kröt-
um? - Sagði Þorsteinn ekki, eftir
að úrslit kosninganna voru kynnt,
að nú hefðu „hörðu gildin“ í Sjálf-
stæðisflokknum sigrað? Líklega er
ekki ástæða th að rengja það. Var
ekki þeirra tími kominn? Var það
ekki þess vegna að Davíð Oddsson
fékk svo dularfuha köllun og vissi
að hans tími var kominn? Vissi að
einmitt á þessum fundi ætti hinn
mikli leiðtogi þeirra að birtast und-
ir kjörorðinu „mannúð og mhdi“?
„Viðeyjarundrið“
Eins og vitað er gerist margt í
póhtík og póhtískar ieikfléttur geta
verið margslungnar og skapað hin
furðulegustu fyrirbæri. Hvernig
hefði th dæmis „Viðeyjarundrið"
getað fæðst ef Jón Baldvin og Dav-
íð Oddsson hefðu ekki náð saman
og hvernig hefði það átt að geta
gerst ef Davíð hefði ekki orðið
formaður Sjálfstæðisflokksins? -
Þannig leiðir svo eitt af öðru. Þjóð-
in heföi ekki fengið þessa ríkis-
stjóm.
Og eins og Jón Baldvin sagði
hefði hann ekki haft óbundnar
hendur að semja um hvað sem
hann vhdi við EB. Og hatturinn
frægi líklega óseldur enn og ef th
vih óseljanlegur, hvað þá að vera
kominn á stah! - Og með öhu óvíst
að Jón Sigurösson hefði þá getað
fullyrt við fréttamenn aö ekki væri
nógu lengi búið að draga ráðherra
á asnaeyrunum í álmáhnu. - Svona
getur pólitík stundum verið skrítin!
Aðalheiður Jónsdóttir
„Davíö Oddsson heflr líklega ekki áttaö
sig á því ennþá að þaö er ekki unnt að
stjórna nútímaþjóðfélagi með því að
láta hömlulausa frjálshyggju ráða ferð-
inni.“