Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1992, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1992, Síða 10
10 FIMMTUDAGUR 9. APRÍL 1992, VORNÁMSKEIÐ íslenska fyrir útlendinga - byrjendanámskeið. Kennt er tvisvar í viku. Námskeiðið stendur í 5 vikur og hefst 27.4. nk. Umhverfisteikning - 5 vikna námskeið sem hefst 30.4. nk. Kennt er tvo daga í viku, auk þriggja laugar- daga. M.a. unnið utandyra. Trimm - hefst fimmtud. 30.6., stendur til 30.7., kennt tvisvar í viku. Innritun til 14.4. og aftur 24.4. nk. í Miðbæjarskóla í síma 12992 og T4106. JAPISð BRAUTARHOLTl OG KRINGLUNNI FERMINGARTILBOÐ JAPIS GILDA EINNIG I EFTIRTÖLDUM VERSLUNUM : KAUPFÍIAG BOKCFIRDINGA BORGARNESI • KAUPFÍLAG HÉRADSBÚA EGILSSTÖÐUM BÖKAVERSLUN ÞÖRARINS STEFANSSONAR IIUSAVlK • KAUPFÉLAG ÁRNESINCA SELFOSSI RADIÖVINNUSTOFAN KAUPANGI AKUREYRI • RADlöNAUST GEISLACÖTU AKUREYRI • KAUPFÉLAG HÉRADSBUA SEYDISFIRDI • RAFS/A SAUDÁRKRÖKI • SÓNAR KEFLAVlK • MOSFELL HELLU PÓLLINN IIF ISAFIRDI • KAUPFÉLAG AUSTUR-SKAFTFELLINCA HÖFN • TÖNSPIL NESKAUPSSTAD MALNINGARÞJÖNUSTAN AKRANESI • VERSLUN E. GUDFINNSSONAR BOLUNGARVlK Panasonic SGHM22 PLÖTUSPILARI, FULLKOMINN GEISLASPILARl, TVÖFALT SEGULBAND, ÚTVARP, 40W MACNARI, 5 BANÐA TÖNJAFNARI, HÁTALARA OG ALLT FJARSTÝRT. VEP.Ð KR. 53.600. stgrr Uflönd John Major, forsætisráðherra Breta, bíður örlaga sinna í dag. Með ósigri gæti ferill hans verið á enda og íhalds- menn farið að svipast um eftir nýjum leiðtoga til að taka upp merki Margrétar Thatcher. Símamynd Reuter Einar mikilvægustu kosningar á öldinni í Bretlandi: Með tapi í dag er ferli Majors lokið - skoöanakannanir benda til oddaaðstöðu frjálslyndra John Major, forsætisráðherra Breta, lauk kosningabaráttu sinni í gær með því að lýsa yfir vissu sinni um sigur. Annað gat hann ekki gert enda þýðir ósigur hans í þingkosn- ingunum í dag að öllum hkindum að ferill hans er á enda. Hann yrði að segja af sér og nýr slagur um stöðu leiðtoga hæfist. Major tók við búi jámfrúarinnar Margrétar Thatcher eftir að hún hafði sigrað í þrennum kosningum í röð og haldiö embætti forsætisráð- herra í meira en áratug. Það væri því mikil niðurlæging fyrir Major að tapa nú eftir að hafa aðeins setið rúmt ár á valdastóli. Síðustu skoðanakannanir benda þó til að þau örlög bíði Majors að tapa í dag. Verkamannaflokkurinn undir forystu Neils Kinnock hefur ívið meira fylgi en íhaldsflokkur Majors. Hvorugur hefur þó meirihluta eftir því sem skoðanakannanir segja. Mestar líkur eru því á að Paddy Ashdown, leiðtoga frjálslyndra demókrata, takist að koma flokki sín- um í oddaaðstöðu. Einnig er mögu- leiki að ýmsir smáflokkar komist í sömu aðstöðu. Þar munar mest um skoska þjóðernissinna sem hafa ver- ið að sækja í sig verðið í ár. Fari þetta eftir verður aö mynda samsteypustjórn að kosningum loknum. Bretar hafa um árabil búið við meirihlutastjórnir. Sennilega kemur það í hlut Ashdowns að velja með hvorum stóru flokkanna hann viU starfa. Sjálfur segist hann vera á móti báðum en Kinnock segist geta myndað stjórn með frjálslyndum. Ashdown segir að stóru flokkarnir séu eins og afdankaðir boxarar sem fari í hnefaleikahringinn til að berj- ast þar til annar stendur uppi. As- hdown vill breytt kosningalög þar sem einmenningskjördæmin verði lög niður og hlutfallskosning tekin upp eins og víðast á Vesturlöndum. Reuter Með vilja guðs munum við biðja saman í Jerúsalem - sagði Arafat við Gaddaíi á sjúkrahúsi í Líbíu Moammar Gaddafí Líbíuleiðtogi heimsótti Yasser Arafat á sjúkrabeöinn í gær. Á mynd þessari frá líbíska sjónvarpinu sést að Arafat er með sáraum- búðir yfir hægra auganu. Símamynd Reuter „Með vilja guðs munum við biðja saman í Jerúsalem. Ég sver að ég sá það fyrir mér nóttina eftir slysið," sagði Yasser Arafat, leiðtogi Frelsis- samtaka Palestínu, þegar Moammar Gaddafí Líbíuleiðtogi heimsótti hann á sjúkrabeðinn í gær. Arafat slapp með minniháttar meiðsl þegar flugvél hans nauðlenti í líbísku eyðimörkinni á þriðjudags- kvöld eftir að hafa lent í sandbyl. Flugvélin brotnaði í þrennt og þriggja manna áhöfn hennar fórst. Leitarmenn frá palestínskum her- búðum í grennd við slysstaðinn fundu Arafat og átta ferðafélaga hans um miðjan morgun í gær. Þá hafði ekkert spurst til þeirra í fimmtán klukkustimdir. Um sólarhring eftir slysiö sýndi hbíska sjónvarpið myndir af því þeg- ar Arafat var borinn á sjúkrabörum inn í sjúkrahús í borginni Misrata við strönd Miðjarðarhafsins. Arafat var með sáraumbúðir yfir hægra auganu og settist ekki upp í rúmi sínu þegar Gaddafí heimsótti hann. En hann brosti breitt og þakk- aði Gaddafi fyrir leitina. Mikil fagnaðarlæti brutust út með- al Palestínumanna á herteknu svæð- unum við fréttimar um að Arafat væri á lífi og stjórnmálamenn í arabaríkjunum vörpuöu öndinni léttara. Yitzhak Shamir, forsætisráð- herra ísraels, lét sér á hinn bóginn fátt um finnast og sagðist vona að sá dagur kæmi að arabar áttuðu sig á því að Arafat væri ekki bjargvættur þeirra. Bandarísk stjórnvöld þáru til baka fréttir um aö gervitungl þeirra heföi fundið flugvél Arafats. Mikill órói greip um sig meðal leið- toga Palestínumanna á meðan ekkert var vitað um Arafat. í höfuðstöðvum PLO sögöu menn að af þessu atviki mætti draga þann lærdóm að vara- menn fyrir leiðtogann þyrftu alltaf að vera til staðar. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.