Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1992, Qupperneq 12
12
FIMMTUDAGUR 9. APRÍL 1992.
Spumingin
Hvað á að senda marga
fulltrúa á umhverfis-
ráðstefnuna í Ríó?
Ásta Eyjólfsdóttir húsmóðir: Það er
nóg að senda 10.
Einar Gunnlaugsson nemi: Ætli sé
ekki nóg að senda 2 fulltrúa. Það er
feikinóg og allt umfram það er bruðl.
Valtýr Helgi Diego verslunareigandi:
Sendum einn. Sendum Steingrím J.
Sigfússon.
Gísli Halldórsson verslunareigandi:
Sem allra fæsta. Það verður að spara.
Vladimir Padrós nemi: Fáa, kannski
fjóra.
Anna Margrét Bjamadóttir ferða-
tæknir: Það er mikilvægt aö viö send-
um góða fulltrúa en ég hef ekki
myndað mér skoöun á því hversu
margir þeir eiga að vera.
Lesendur___________
Brasiliufarar
hinir nýju
Nú er ekki tími karnivals í Ríó. - „Rió-farar, takið því konurnar með ykk-
ur,“ segir m.a. í bréfinu. Símamynd Reuter
Björn Björnsson skrifar:
Fáir hefðu trúað að undir lok 20.
aidar myndi hér á landi myndast
hópur sem vildi jafn ólmur fara til
Brasilíu og þeir sem lögðu héðan til
þess lands um miðja 19. öldina, af
allt annarri ástæðu þó. Sá hópur
manna leitaði af landi brott eftir
mannfelh og aðsteðjandi hungurvofu
sem hvarvetna birtist fólki sem hafði
flosnað upp af jarðnæði -sínu. - Nú
er öldin önnur og sá hópur manna
og kvenna sem nú vill komast til
Brasilíu ætlar sko ekki að fara þá
ferð fyrir eigin reikning, heldur láta
ríkið borga brúsann. - Barist er um
bitann og á þingi gengur maður und-
ir manns hönd til að tala fyrir því
að sem flestir fái að fara á umhverfis-
ráðstefnuna í Rio de Janeiro.
Það er heppilegt að ráðstefnan
skuli vera í júní en ekki t.d. í janúar
þegar heitast er þar syðra, bæði í
lofti og í sálum manna, þegar karni-
valið stendur sem hæst. Nú er frekar
dauft þama syðra, það er aö skella á
hávetur og lofthiti verður ekki nema
u.þ.b. 20-25 stig. Það er mátulegt fyr-
ir íslenska Brasilíufara. Og nú er þó
ástæða til aö taka konurnar sínar
með þótt ekki sé nema sem dansfé-
laga því nú er ekki tímí karnivals og
ekki víst að margar Ríó-stúlkur séu
tilbúnar að dansa sömbu við íslend-
inga óforvarendis. - Ríó-farar, takið
því konumar með ykkur, þær geta
hka alltaf þvegið skyrtumar á bað-
herbergjunum ef þið svitnið mikið.
Það sparar gjaldeyrinn;
Já, hver skyldi hafa trúað því að
þingmenn færu í hár saman út af
þessari fyrirhuguðu ferð og að jafn-
vel kommarnir stæðu uppi í hárinu
á forseta Alþingis th að kría út fleiri
þátttakendur í förina? En hvað end-
anlegan fjölda varðar má telja fuh-
víst að hvort sem miðað er við 11-13
eins og umhverfisráðherra gerir -
eða 25—40 manns - eins og áður hefur
veriö rætt um og tilboð ferðar ferða-
skrifstofu hlýtur að byggjast á má
reikna með að hópurinn verði helm-
ingi stærri þegar makar bætast í
hópinn. Aðalspurningin mun svo að
sjálfsögðu standa um það hvort og
hvaöa makar fái dagpeninga frá rík-
inu og hveijir ekki. - Um það verður
áreiðanlega deht á Alþingi í næstu
lotu.
Vegalaus börn
Konráð Friðfinnsson skrifar.
Fréttin er barst mér á dögunum og
kom mér úr jafnvægi opinberaði mér
nokkuð sem var mér huhð og ég hélt
að viðgengist eingöngu í útlöndum
en ekki á Islandi. Ég neitaði í fyrstu
að trúa fréttinni, fannst hún svo
óraunveruleg og fráleit. Síðar, er
frekari upplýsingar höfðu borist um
máhð, varð ég þó að bakka. - Stað-
reyndimar blöstu við mér, kaldar og
óhrekjandi. Vegalaus böm fyrirfmn-
ast á allsnægtalandinu íslandi.
Fréttin var - eins og komiö hefur
fram - um heimihslaus böm á aldrin-
um sex til tólf ára. Þetta vora milli
tuttugu og þrjátíu einstaklingar.
Þetta er að vísu ekki há tala, sem
betur fer, en breytir ekki þeirri stað-
reynd samt, að hér er um að ræða
vandamál sem ófært er að horfa
framhjá eða gera htið úr. Þess vegna
vöktu hka samtökin Barnaheill at-
hygh manna á þessu vandamáli og
hmndu af stað söfnunarátaki er var
að skapi landsmanna og gekk furöu
vel. Söfnuðust u.þ.b. 32 mhljónir
króna er nýtast munu samtökunum
til að koma ætlunarverki sínu í fram-
kvæmd. - Að reisa eöa kaupa hús th
nota fyrir þessi ógæfusömu böm, og
afmá þar með af þjóðfélaginu þann
blett, sem vegalaus börn hér em.
En hugsanir, þótt hlýjar séu, gagn-
ast hinum vegalausu ungmennum
lítt ef verk fylgja ekki með. Þá
skömm hafa nú Bamahehl tekið af
mér og öhum hinum er aðhöfðust
ekkert í máhnu. Bamaheill munu
nú fá nefnt húsnæði. Af þéim sökum
legg ég th að allir þeir sem komu
nálægt söfnuninni gefi vinnu sína til
að þessar 32 mhljónir nýtist samtök-
unum óskiptar. - Auðvitað ber rík-
inu síðan að sjá um daglegan rekstur
heimihsins. Það er sjálfsagt.
w ■ _■ * / *
Hnngið i sima
millikl. 14 og 16
-eðaskrifið
NaXn o&símsuir, veröur að fylgja bréfum
í Velf erðarmál með endemum
Jón Halldórsson skrifar:
Svo er nú komið hjá mér eins og
flestum almennum borgurum þessa
lands að mér ofbýður framkoma
stjómvalda í garð þeirra sem minnst
mega sín þótt þeir sem hæst era sett-
ir geti leyft sér nánast hvaö sem þeim
dettur í hug. - Mér kemur oft í hug
gamla spakmæhð „Deyr fé, deyja
frændur, deyr sjálfur hiö sama; en
orðstír deyr aldregi hveim er sér
góðan getur." - En orðstírs þeirra
manna sem nú ráða velferðarmálum
þjóðarinnar verður lengi minnst með
endemum.
Ég er síöur en svo á móti spamaöi
enda af þeirri kynslóð sem varð aö
Er gamalt fólk og öryrkjar „byrði“ á
þjóðfélaginu?
spara hvem eyri th að geta lifað. Því
ofbýður mér það braðl og sá skortur
á fjármálaviti sem forráðamenn okk-
ar hafa sýnt undanfama áratugi og
sem magnast með hverium degi.
Svo virðist það standast lög að ó-
prúttnir þorparar raki saman fjár-
munum og féflettí. fólk. Það er eins
og þeir sem við greiðum laun fyrir
að vemda okkur fyrir þessum þijót-
um standi jafnvel með þeim þegar á
reynir. Er ekki eitthvað bogið við þau
lög sem þeir skýla sér á bak við?
En þar sem þeir er stjóma era sí-
fellt að tala um að spara er ég með
spamaðarappástungu sem þeir ættu
að athuga. Þeir sem hafa meirihluta
á Alþingi ættu aö geta komið í gegn
lögum sem leyföu hreinlega að lóga
öryrkjum, gamalmennum og öðra
því sem kallast óæskhegt fólk. - Mér
finnst ólíkt mannúðlegra að gera það
snyrthega, heldur en að kvelja það
andlega og líkamlega í langan tíma
áður en guöi þóknast að losa þá við
þessa byrði.
I>V
Fagnaafslöðu
biskups
Dóra hringdi:
Ég fagna afstöðu biskups gagn-
vart borgaralegum útföram sem
virðast eiga vaxandi fylgi að
fagna. Biskup segir að hver geti
haft þann siö sem hann óskar eft-
ir. þetta er vel viöunandi afstaða
l\já einum æðsta yfirmanni þjóð-
arinnar. Ahtof algengt er að ráða-
menn sefji sig upp á móti ýmsu
sem breytast vih í tímans rás.
Aðstoðvið upp-
gjafaþiitgmenn
Sigurður Pétursson skrifar:
Það er áberandi í þjóðfélaginu
að þegar þingmenn hætta að
gegna þingmennsku er þeim í
flestum thvikura séð fyrir viöun-
andi starfi innan opinbera geir-
ans. - Undantekningin er ef
bændur, sem era þingmenn,
hverfa að búum sínum.
Ótal dæmi era um þessa menn.
Þeir setjast t.d. í bankana, ýmist
sem bankastjórar eða við sér-
verkefni, fara til opinberra sjóða
eða þeim er vísað úr landi í sendi-
herrastörf. - Þetta er sérstök
umhyggja sem aðrir þjóðfélags-
þegnar eiga ekki aögang að. -
Afar niðurlægjandi fyrir þing-
menn.
Stéttarfélög óþörf?
H.J. hringdi:
Fer ekki að verða tímabært að
leggja niður stóra stéttarfélögin,
BSRB, BHM og reyndar VSÍ líka,
sem sérstaka samningsaðha á
vinnumarkaðinum? Þetta er orö-
ið alltof dýrt úthald í þjóðfélag-
inu, öll þessi félög í sifelldu samn-
ingaþófi sem lítið sést frá nema
þegar samningamenn raða í sig
bakkelsi og hlakka yfir veislu-
föngum og sphamennsku.
Hinn þögli meirihluti borgar
brúsann eins og venjulega. Hvers
konar þjóð eram viö eiginlega aö
ala upp er gerir sér þetta að góðu?
Vill láta aðra sjá fyrir sér með
biölaunum, ríkisstyrk o.þ.h. Það
er sannarlega kominn tími á nú-
verandi kerfi sem er alltof þungt
í vöfum og letjandi.
íslenskar getraunir
Matthías skrifar:
Égvh koroa á framfæri innhegu
þakklæti til íslenskra getrauna
fyrir aö hafa tekiö sænska knatt-
spyrmheiki upp á seðlum sínum,
- Þetta er aht annað líf fyrir okk-
ur sem á laugardögum siljum
vonsviknir með getraunaseðlana
okkar eftir að úrsht eru kynnt
og síðan verið niöurbeyðir öh
laugardagskvöld þegar lottótöl-
umar okkar korau heldur ekki
upp.
Nú getum við lifað í voninni
ffarn á sunnudag og þá skiptir
ekki máh hvort maður er niður-
beygöur vegna óhagstæðra knatt-
spymuúrshta á sunnudagskvöld-
inu, maður er hvort sem er niður-
beygöur vegna þess aö vinnuvik-
an hefst næsta dag.
Úfvarpframyfir
Gísh Guðjóasson hringdi:
Ég held aö ég tah fyrir hönd
margra að á útvarpsstöðvunum
megi finna margfalt fjölbreyttara
úrval þátta, fréttaskýringa, tón-
listar og hvers konar afþreyingar
en hægt er að finna á sjónvarps-
stöövunum - þótt undantekning
sé þar að vísu.
Ég finn þetta svo vel ef ég sit
við vinnu sína, t.d. aö kvöldi th,
og opna útvarp. Þá má alltaf Ðnna
eitthvaö viö manns hæfi á ein-
hverri stöðinni - sjaldan í sjón-
varpi. Merkhegt hvað allar út-
varpsstöðvarnar standa sig þrátt
fyrir hrakspár um aö frelsið og
samkeppnin myndi gera út af viö
þær sumar eða ahar á einu bretti.
Þær spár hafa ekki ræst.