Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1992, Síða 13
I
13
FIMMTUDAGUR 9. APRÍL 1992.
Sviðsljós
Þau sjá um að allir skemmti sér vel. Guðlaugur Magnússon veitingastjóri með skemmtanastjórunum Astý Astráðs-
dóttur, t.h., og Laufeyju Johansen.
Stemning í Casablanca
Góð stemning ríkti í Casablanca
þegar Sviðsljósið kom þar við um
síðustu helgi. Staðurinn hefur skipað
fastan sess í skemmtanalíf fólks á
aldrinum 20-35 ára og gildir þá einu
hvort um er að ræða föstudags- eða
laugardagskvöld. Alltaf er vel mætt.
Á föstudögum eru ávallt uppákom-
ur eða kynningar í gangi en á laugar-
dögum fá gestimir að hafa dansgólflð
algjörlega út af fyrir sig. Nýr yfir-
plötusnúður hefur tekið til starfa en
hann heitir Arnold Bryan Cruz, kail-
aður ABC.
Þegar DV var á ferð var ein af áður-
nefndu uppákomum í gangi. Þeir
Arnór og Ingó, sem kalla sig Blues
brothers, voru mættir á staðinn í
klæðnaði eins og sjá má í ameríska
ruðningsboltanum. Strákarnir tóku
létta syrpu á dansgólfinu og voru
undirtekir gestanna með ágætum.
Það var glatt á hjalla hjá þessum dömum en þær heita, t.f.v., Ingibjörg
Sigurðardóttir, Urikka Sjöberg, María Sigurgeirsdóttir og María Auður Stein-
grimsdóttir. DV-myndir Hanna
Blý og timbur á Kjárvalsstöðum
Rúrí opnaði myndlistarsýningu í anna eru unnin í blý og timbur og góð. Sýningin er opin daglega frá
austursal Kjarvalsstaða um síðustu hafa ekki verið sýnd opinberlega klukkan 10 til 18 en henni lýkur 20.
helgi. Sýningin heitir Afstæði og er áður. apríl næstkomandi.
16. einkasýning hennar. Flest verk- Aðsókn fyrstu helgina var mjög
Þau voru að sjálfsögðu mætt og virtust hæstánægð. Frá
vinstri: Oddný Stefánsdóttir, Ragnar Sigurjónsson og
Matthías Matthíasson. DV-myndir Hanna
GRÆNAR BAUNIR
rauðvínsuegið
ÚRVALS
JARÐARBER
HLBOÐ
VIKUNNAR
HAGKAUP
- allt í einni ferd
■---------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
■