Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1992, Side 26
34
KIMMTUDACUk 9. AI’KIU 1992.
Afmæli
Ingvar Viktorsson
Ingvar Viktorsson. kennari og
bæjarfulltrui. Svöluhrauni 15. Hafn-
arfirði, er fimmtugur i dag.
Starfsferill
Ingvar fæddist á Vífilsstöðum í
Garðahreppi og ólst þar upp. Hann
var í Barnaskóla Hafnartjarðar.
stundaði nám við Flenborgarskóla.
lauk stúdentsprófi frá MA 1963 og
stundaði nám í ensku og sögu við
heimspekideild HÍ. Auk þess hefur
hann sótt ýmis námskeið, innan-
lands og utan.
Ingvar stundaði sjómennsku á
sumrin á sínum yngri árum. Þá var
hann forstöðumaður Vinnuskóla
Hafnarfjarðar átta sumtir. Hann hóf
kennslu í Flensborg 1964 og kenndi
þar til 1986 en hefur síðan kennt við
Víðistaðaskóla í Hafnarfirði.
Ingvar hefur verið bæjarfulltrúi í
Hafnarfirði fyrir Alþýðuílokkinn
frá 1986. Hann er formaður bæjar-
ráðs frá 1990 og varaformaður Sam-
bands islenskra sveitarfélaga frá
1990. Ingvarsitur í stjórn Almenn-
ingsvagna b.s. frá 1990. í stjórn ísal
frá 1991 og hefur gegnt ýmsum trún-
aðarstörfum fyrir Alþýðuflokkinn.
m.a. verið formaður FUJ í Hafnar-
firði og varaformaður SUJ, auk þess
sem hann var um tíma formaður
sveitarstjórnarráðs og ritstjóri Al-
þýðublaðsins í Hafnarfirði. Hann
hefur starfað mikið fyrir FH, verið
formaður handknattleiksdeildar í
mörg ár og setið í aðalstjórn FH.
Ingvar sat í stjórn HSÍ í nokkur ár
og starfaði í ýmsum nefndum á veg-
um HSÍ. Þá er hann í stjórn Eftir-
launasjóðs hf. frá 1986.
Fjölskylda
Ingvar kvæntist 27.12.1975 Birnu
Blomsterberg, f. 31.7.1949, hjúkrun-
arfræðingi. Hún er dóttir Bjarna
Blomsterberg, kaupmanns í Fjarð-
arkaupum, og Valgerðar Jónsdóttur
húsmóður.
Ingvar var áöur kvæntur Margróti
Scheving en þau skildu.
Börn Ingvars og Margrétar eru
Páll Scheving, f_24.1.1963, heildsali,
í sambýli með Kristínu Ellertsdott-
ur og er sonur þeirra Ellert Schev-
ing; Viktor, f. 20.12.1964, nemi, í
sambýli meö Katrínu Jónsdótturog
er dóttir þeirra Heiðrún Gréta;
Heiðrún, f. 30.12.1966, nemi, í sam-
býli með Gunnari Garðari Gunnars-
syni.
Synir Ingvars og Birnu eru Bjarni
Birkir, f. 31.10.1970, verkamaður;
Freyr, f. 8.11.1973, nemi. í sambýli
með Sigriði Líndal Karlsdóttur og
er dóttir þeirra Sandra Sif.
Systkini Ingvars: Guðmunda Inga,
f. 6.11.1943, í foreldrahúsum í Hafn-
arfirði; Ingunn Elísabet, f. 13.11.
1944, sjúkraliði í Hafnarfirði, gift
Sigurði Ólafssyni, húsasmið og
slökkvihðsmanni, og eiga þau þrjú
börn; Matthías, f. 9.10.1948, félags-
málastjóri á Sauðárkróki, kvæntur
Ingu Andrcassen kennara og eiga
þau þrjú börn; Þorvaldur Jón, f. 9.7.
1953, skólastjóri í Mýrarhreppi í
Austur-Skaftafellssýslu, kvæntur
Magnhildi Gísladóttur kennara og
eiga þau tvö börn, auk þess sem
Þorvaldur á son frá því áður; Gunn-
ar, f. 29.3.1963, sjúkraþjálfari í Hafn-
arfirði, kvæntur Hörpu Sigurðar-
dóttur sjúkraþjálfara og eiga þau
eitt barn.
Foreldrar Ingvars eru Viktor Þor-
valdsson, f. 1.11.1911, fyrrv. starfs-
maður Ríkisspítalanna, búsettur í
Hafnarfirði, og kona hans, Guðrún
Ingvarsdóttir, f. 19.5.1922, húsmóð-
ir. .
Ætt
Viktor er sonur Þorvalds Jóns
Kristjánssonar, vitavarðar og út-
vegsb. í Svalvogum við Dýraljörð,
og Sólborgar Matthíasdóttur.
Guðrún er dóttir Vigfúsar Ingv-
ars, prófasts á Desjarmýri, bróður
Ingvar Viktorsson.
Guðfinnu, konu Emils Jónssonar
ráðherra. Móðir Guðrúnar var Ing-
unn Ingvarsdóttir, systir Helga yfir-
læknis, afa Júlíusar Vífils söngvara.
Systir Ingunnar er Soffia, borgar-
fulltrúi í Reykjavík, amma Svein-
björns Baldvinssonar rithöfundar.
Vinum, ættingjum og kunningjum
er boðiö í íognuð í félagsaðstöðu FH
í Kaplakrika klukkan 18.00-21.00,
fóstudaginn 10.4.
Þuríður S. Zóphaníasdóttir
Þuríður Sigurbjörg Zóphanías-
dóttir verkakona, Aðalgötu 20,
Stykkishólmi, er sextug í dag.
Starfsferill
Þuríður er fædd í Reykjavík og
ólst þar upp. Hún gekk í Landakots-
kólann, Miðbæjarskólann, Austur-
bæjarskólann og Laugarnesskóla.
Þuriður var einn vetur við nám í
Húsinæðraskólanum á Löngumýri í
Skagafirði.
Sem barn og unglingur dvaldi hún
á sumrin á Drangsnesi hjá föður-
systur sinni, Helgu Soffíu Bjarna-
dóttur ljósmóður. Þuríður réðst til
starfa hjá efnalaug KRON fljótlega
eftir námið í húsmæðraskólanum
en hafði þar stutta viðdvöl. Hún hóf
störf hjá efnalauginni Glæsi þar á
eftir og vann þar í fimmtán ár.
Þuríður bjó í Austurríki í skamm-
an tíma og í Múnchen í Þýskalandi
í tæp þijú ár. Þaðan lá leið hennar
til Washington í Bandaríkjunum og
síðar Norður-Karólínu í sama landi.
Þuríður kom heim 1967 og flutti þá
til Dalvíkur þar sem móðir hennar
og stjúpi voru búsett. Hún starfaði
í síldinni á Dalvík um hríð en hélt
aftur til Reykjavíkur og dvaldi þar
í nokkurn tíma. Þuríður flutti til
Stykkishólms 1971 oghefur verið
búsett þar síðan. Hún starfaði hjá
Sigurði Ágústssyni í Stykkishólmi í
meira en tvo áratugi en er nýhætt
störfum.
Fjölskylda
Maður Þuríðar er Sigurður Ólafs-
son, f. 22.10.1934, starfsmaður hjá
Sigurði Ágústssyni. Foreldrar hans
voru Ólafur Jónatansson verkstjóri
og Guðríður Guðmundsdóttir hús-
freyja en þau bjuggu í Stykkishólmi.
Systkini Þuríðar: Baldur, f. 10.8.
1928, hans kona var Ólöf Jónsdóttir,
látin, fyrrum starfsmaður DV og
Tímans, þau eignuðust fimm börn,
Baldur er búsettur í Reykjavík; El-
ías Björn, f. 20.9.1929, d. 17.1.1937;
Jakob, f. 24.2.1931, d. 2.3.1976, sjó-
maður, unnusta hans var Erla Long,
þau slitu samvistum, þau eignuðust
eitt barn, Jakob var búsettur í
Reykjavik; Bjarni, f. 11.11.1933, d.
2.5.1935. Hálfbróðir Þuríðar, sam-
feðra: Bragi Húnfjörð, f. 3.5.1926,
d. 30.11.1991, skipasmíðameistari,
hans kona var Helga Kristín Krist-
valdsdóttir, starfsmaður á Sjúkra-
húsi Stykkishólms, þau eignuðust
áttaböm.
Foreldrar Þuríðar voru Zóphanías
Þuriður S. Zóphaníasdóttir.
Bjarnason, f. 7.6.1903, d. 21.4.1974,
sjómaður og starfsmaður í Glerslíp-
un Lúðvíks Storr í Reykjavík, og
Elínbjörg Jakobsdóttir, f. 7.6.1906,
d. 16.7.1973, húsmóðir ogsauma-
kona, þau slitu samvistum. Zóphan-
ías var nefndur við Glúku í Bjarnar-
firði á Ströndum en Elínbjörg var
frá Snotrunesi á Borgarfirði eystra.
Þuríður tekur á móti gestum laug-
ardaginn 11. apríl í Verkalýðsfélags-
húsinu í Stykkishólmi kl. 15-17 þar
sem hún býður upp á kaffi og kökur.
Til hamingju með afmælið 9. apríl
85 ára
Nanna Snædal,
Álfaskeiði 44, Hafnarfirðt
Magnús Stefánsson,
Austurbyggð 21, Akureyri.
50 ára
75 ára
Kristín .lúliusdóttir,
Dalbæ, Dalvík.
Guðbjörg Guðmundsdóttir,
Skarðsbraut 15, Akranesi.
70 ára
Björn Friðbjörnsson,
Furulundi 13d, Akureyri.
Frank Henderson,
Óðinsgötu 6a, Reykjavík.
Guðný Th. Bjarnar,
Blátúni 4, Bessastaðahreppi.
60 ára
ltichard
Hannesson,
Búlandi 1,
Reykjavlk.
Kona lians er
Ingibjörg Ás-
mundsdóttir.
Þau eru að
heiman.
Margrét Guðjónsdóttir,
Haukanesí 16, Garðabæ.
i
Vilhjálmur Kristinn Skaftason,
Lundi, Skagaströnd.
Sævar Einarsson,
Grundarstig 16, Sauðárkróki.
Þráinn Traustason,
Smáragrund 5, Ytri-Torftistaðahreppi.
40 ára
Marteinn B. Guðmundsson,
Miklubraut 44, Reykjavík.
Guðbjörg Alfreðsdóttir,
Brekkubyggð 40, Garðabæ.
Sigurjóna Sigurðardóttir,
Grundartanga 25, Mosfellsbæ.
Ásta Ólafsdóttir,
Bárugötu 19, Reykjavík.
Þorgeir Benediktsson,
Sflakvísl 2, Reykjavík.
Jens Andréeson,
Vesturgötu 71, Reykjavík.
Finnur Eysteinsson,
Keilugranda 10, Reykjavik.
Daníel Gunnarsson,
Eyvindará, Egilsstaðahreppi.
Þórkatla Þórisdóttir,
Úthlíö 15, Reykjavík.
Jóna Guðrún Ásgelrsdóttir,
Hjaltabakka 16, Reykjavík.
Guðrún Margrét Hasler,
Ránargötu 4a, Reykjavík.
Andlát
Marta Pétnrsdóttir
Marta Pétursdóttir húsfreyja,
Víðimel 38, Reykjavík, sem lést 2.
þ.m., verður jarðsungin frá nýju
kapellunni í Fossvogi klukkan 15 í
dag.
Starfsferill
Marta fæddist 12. ágúst 1901 í
Reykjavík og ólst þar upp. Hún var
við nám í Kvennaskólanum í
Reykjavík 1915—Í8 og starfaði á
skrifstofu Sameinaða gufuskipafé-
lagsins í Reykjavík 1918-25. Marta
var heimavinnandi húsfreyja frá
1926. Hún bjó alla ævi í Reykjavík,
nema árin 1928-30 á Eskifirði og á
Siglufirði 1948-51.
Marta var einn af stofnendum
Kvenfélags Neskirkju, var í stjóm
þess 1941—45 og átti einnig um skeið
sæti í stjóm Nemendasambands
Kvennaskólans í Reykjavík.
Fjölskylda
Marta giftist 27.12.1926 Guðfinni
Þorbjömssyni, f. 11.11900, d. 4.4.
1981 framkvæmdastjóra en foreldr-
ar hans voru Þorbjöm Finnsson, b.
í Ártúni í Mosfellssveit, og Jónína
Jónsdóttir.
Marta og Guðfmnur eignuðust
þrjú börn. Þau eru Vigdís, f. 8.10.
1927, bréfritari, búsett í Reykjavík,
gift Lofti J. Guðbjartssyni, fyrrv.
bankaútibússtjóra, og eiga þau tvö
börn og fjögur barnabörn; Pétur, f.
14.8.1929, framkvæmdastjóri Sjón-
varpsins, kvæntur Stellu Sigurleifs-
dóttur og eiga þau fjögur böm og
fjögur bamabörn; Þorbjörn, f. 1.4.
1945, rennismiöur, búsettur í
Reykjavík, var í Éambúð með Arn-
þrúði Lilju Gunnbjömsdóttur, látin,
en þau eignuðust eitt bam og em
barnabömintvö.
Bróðir Mörtu var Erlendur Ólaf-
ur, f. 30.5.1893, d. 1958, forstjóri og
lengiformaðurKR.
Foreldrar Mörtu voru Pétur Þórð-
arson, f. 1868, d. 1942, skipstjóri og
síðar hafnsögumaður í Reykjavík,
og Vigdís Teitsdóttir, f. 1866, d. 1922.
Ætt og frændgarður
Bróðir Péturs var Jón faðir Láru,
ömmu Láru Ragnarsdóttur alþing-
ismanns og Árna Tómasar Ragnars-
sonar læknis. Jón var einnig faðir
skipstjóranna Jóns Otta og Guð-
mundar á Skallagrími, fóður Jóns á
Reykjum í MosfeUssveit. Dóttir Jóns
var Ástaj amma Ástu Ragnheiðar
Jóhannesdóttur. Önnur dóttir Jóns
var Guðrún, móðir Jóns Guð-
mundssonar menntaskólakennara.
Systir Péturs var Guðrún, lang-
amma Arnar Erlingssonar, skip-
stjóra i Keflavík. Pétur var sonur
Þórðar, b. og skipasmiðs í Gróttu,
bróður Ingibjargar, langömmu Pét-
urs Sigurðssonar, fyrrv. alþingis-
manns. Þórður var sonur Jóns,
skipasmiðs í Engey, Péturssonar,
b. í Engey, föður Guðrúnar,
langömmu Bjarna Benediktssonar
forsætisráðherra. Pétur var einnig
faðir Guðfinnu, ömmu Bjarna Jóns-
sonar vígslubiskups. Pétur var son-
ur Guðmundar, lögréttumanns í
Skildinganesi, Jónssonar, sem var
annar þeirra sem mældi út lóð
Reykjavíkur eftir að hún var gerð
að sérstökum kaupstað 1786. Móðir
Þórðar í Gróttu var Guðrún Þórðar-
dóttir, dbrm. í Skildinganesi, Jóns-
sonar og konu hans, Margrétar
Guðmundsdóttur, systur Péturs í
Engey.
Móðir Mörtu var Vigdís, systir
Marteins skipstjóra, föður Guð-
Marta Pétursdóttir.
mundar verkfræðings sem lengi var
formaður Skógræktarfélags Rvíkur,
föður Guðrúnar, hjúkrunarfor-
stjóra Landakotsspítaians. Vigdís
var einnig systir Helga, hafnsögu-
manns í Reykjavík, langafa Ásgeirs
Elíassonar, þjálfara landshðs ís-
lands í knattspyrnu. Vigdís var dótt-
ir Teits, sjómanns í Rvík, Teitsson-
ar, bróður Jóns, afa Benjamíns Ei-
ríkssonar bankastjóra. Móöir Vig-
dísar var Guðrún Þorláksdóttir,
hafnsögumanns í Rvík, Þorgeirs-
sonar, bróður Herdísar, ömmu
Margrétar, ömmu Ellerts B. Schram
og Gríms Valdimarssonar, for-
manns Armanns.
Skil á af-
mælisefni
í páska-
blað DV
Þeir sem óska birtingar á af-
mælisgreinum í páskablað DV
þurfa að skila inn upplýsingum
eigi síðar en á hádegi mánu-
daginn 13.4. nk.
Brúðkaup
ánæstunni
Margrét Auðunsdóttir og Birgir
Haraldsson, til heimilis aö Digra-
nesvegi 14, Kópavogi, verða gefin 7
saman í Kópavogskirkju laugar-
daginn 11.4. klukkan 14.00 afséra ■
Kristjáni Einari Þorvarðarsyni.
Foreldrar Margrétar; Helga
Halldórsdóttir og Auðunn Hin-
riksson.
Foreldrar Bírgis: Jóna Sigur-
lásdóttir og Ilaraldur Gestsson.