Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1992, Síða 5
LAUGARDAGUR 16. MAl 1992.
5
Fréttir
Mikið um aíþantanir útlendinga á hótelplássi:
Deyfð yf ir ferðamarkaðnum
- bæði utanlands- og íslandsferðum
„Það er óróinn á vúinumarkaðnum
hér heima sem hefur haft áhrif á fyr-
irhugaðir ferðir útlendinga hingað,“
segir Ámi Stefánsson, hótelstjóri á
Hótel Höfn í Hornafirði. Mikið hefur
verið um afpantanir útlendinga á
hótelherbergjum hjá honum að und-
anfornu fyrir júnímánuð. „Flug-
leiðaverkfóllin á vorin hafa til dæmis
alltaf haft gífurlegar afleiðingar,“
útskýrir Árni. „Þetta er ekkert hrun
en útiitið var óvenjulega bjart í mars
og apríl.“
Auður Birgisdóttir hjá Ferðaskrif-
stofu íslands, sem sér um bókanir á
Edduhótelin, segir ívið meira laust
) afhótelherbergjumogsætumíferðir
fynr sumarið en venjulega.
Óróinn á vinnumarkaðinum virð-
ist einnig hafa haft áhrif á sölu ferða
til útlanda. „Það hefur verið rólegt
að undanförnu en ennþá er ekki
hægt að merkja samdrátt," segir
Hörður Gunnarsson forstjóri Ur-
vals-Útsýnar. „Það er kannski eðh-
legt vegna ástandsins á vinnumark-
aði að fólk haldi að sér höndum."
Hörður segir mesta eftirspurn vera
eftir ferðum til Portúgals. „Portúg-
alsferðimar eru á svipuðu verði og
Spánarferðir en verðlagið í Portúgal
er 40 prósent lægra en á Spáni. Það
er greinilega það sem fólk horfir í.“
Helgi Danielsson, deildarstjóri hjá
Samvinnuferðum-Landsýn, segir
bókanir hafa verið hægari í lok mars
og apríl en oft áður. „Eg tel það hafa
verið út af óvissu á vinnumarkaði.
Eftir að samkomulag náðist hafa
bókanir tekið verulegan kipp.“
íslaug Aðalsteinsdóttir, forstjóri
Ferðaskrifstofu Reykjavíkur, segir
lægð hafa verið í bókunum eftir sölu
páskaferða en síðustu daga h'afi bók-
anir þó aukist.
Hópar Austurríkismanna hafa af-
pantað ferðir til Islands í maí og júní.
Signý Guðmundsdóttir hjá Ferða-
skrifstofu Guðmundar Jónassonar,
sem hópamir höfðu leitað til, telur
að kalt veður í Mið-Evrópu í vor sé
orsökin fyrir afbókunum. „Mars og
apríl eru aðalbókunarmánuðirnir til
íslands og þá var mjög kalt í Mið-
Evrópu. Þess vegna vill fólk koma
hingað seinna á sumrinu. Það er yfír-
bókað hér í júlí.“
-IBS
ULTRA
GLOSS
úijrpA \\ Sterkasta
j gloss | handbónið
BÍÍAI á íslandi.
BOHf 8 ára reynsla'
ESSO stöðvarnar
Olíufélagið hf.
Það er þetta með '
bilið milli bíla...
• ÍSLENSKUR LANDBÚNAÐUR • ÍSLENSKUR LANDBÚNAÐUR • ÍSLENSKUR LANDBÚNAÐUR • ÍSLENSKUR LANDBÚNAÐUR •
Tóníistarskólinn á Akureyri:
GuðmundurÓli
verður ráðinn
skólastjóri
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Fimm umsækjendur voru um
stöðu skólastjóra við Tónlistarskól-
ann á Akureyri og hefur skólanefnd-
in mælt með að Guðmundur Óli
Gunnarsson verði ráðinn skólastjóri.
Guðmundur Óh er 31 árs, stundaði
nám í Reykjavík, Kópavogi, Hohandi
og Finnlandi og hefur víöa komiö við
sögu hljómsveitar- og kórstjórnar.
Fjórir aðrir umsækjendur voru um
stöðuna, Páh Gröndal, sem starfar í
Bandaríkjunum, Alma Ehsabet
Hansen, Reykjavík, Gunnsteinn Ól-
afsson, sem starfar í Þýskalandi, og
Michael Jón Clark, sem starfar við
Tónhstarskólann á Akureyri og hef-
ur gegnt stöðu skólastjóra að undan-
fómu.
Magnús áfrýjar
„Eftir að hafa skoðað dómsniður-
stöðuna nánar hef ég tekið þá
ákvörðun að áfrýja dómnum til
hæstaréttar. Hann er með ólíkindum
tvísaga, bæði sýknar mig og dæmir
fyrir sömu atriði. Hann er ein
hringavitleysa,. Það er eins og dóm-
arinn hafi reynt að fara bil beggja
án þess að taka of mikla áhættu,"
segir Magnús Guðmundsson kvik-
myndagerðarmaður.
Magnús var í vikunni dæmdur fyr-
ir meiðyrði í garð Greenpeace hjá
borgardómaraembættinu í Osló.
Samkvæmt dómnum var Magnúsi
gert að greiða samtökunum um 300
þúsundkrónurímiskabætur. -kaa
LANDBÚNAÐUR
TILBOÐSPAKKI
A. tíCglJi v&uÍá.
Handlaug með
blöndunartækjum
Sturtubotn « * s \
80*80 cm l
Salerni ^
m. setu
Allt þetta
á aðeins
krónur
íárma^
28.990,-
VIÐ OSKUM OLLUM ISLENDINGUM
TIL HAMINGJU MEÐ NÝTT SAMEININGARTÁKN
ÍSLENSKS LANDBÚNAÐAR
Verðlaunamerkið, úr ný afstaðinni samkeppni um merki landbúnaðarins,
sýnir hendur hlúa að stráum og mynda um leið hjarta um pau.
Stráin tákna grósku landsins og bera íslensku fánalitina.
Skilaboð merkisins eru umhyggja fyrir landinu og gæðum þess,
ásamt því að standa beri vörð um það sem íslenskt er.
Höfundur merkisins er Björn H. jónsson teiknari í FIT.
© Óheimilt er að nota merkið, nema meö leyfi Markaðsnefndar landbúnaðarins.
MARKAÐSNEFND LANDBUNAÐARINS
Skeifunni 8, Reykjavík ‘S'682466
ISLENSKUR LANDBÚNAÐUR • ISLENSKUR LANDBÚNAÐUR • ISLENSKUR LANDBÚNAÐUR
ÍSLENSKUR LANDBÚNAÐUR •