Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1992, Page 10
10
LAUGARDAGUR 16. MAÍ 1992.
Myndbönd
★★
II
SUBURBAN
COMMANPO
Œ
Súperhetja
SUBURBAN COMMANDO
Útgefandi: Myndform.
Leikstjóri: Burt Kennedy.
Aðalhlutverk: Hulk Hogan, Christopher
Lloyd og Dhelley Duvall.
Bandarisk, 1991 -sýningartimi89mín.
Bönnuð börnum innan 12 ára.
Hulk Hogan er sjálfsagt frægasti
fj ölbragðaglímukappi (wrestling)
sem uppi hefur verið. í honum hafa
kvikmyndaframleiðendur séð per-
sónu sem gæti fetað í fótspor Am-
olds Schwarzenegger en ef eitthvað
er þá er Hogan enn verri leikari en
Schwarzenegger. Það kemur samt
ekki að sök í Suburban Commando
þar sem Hogan leikur súperhetju í
stjörnustríði sem þarf að hafa smá-
viðkomu á jörðinni þegar geimfarið
hans bilar. Þar leigir hann hjá fjöl-
skyldu i úthverfi og er hann ekki
lengi að komast upp á kant við
nágrannana.
Suburban Commando er létt og
skemmtileg ævintýramynd þar
sem húmorinn er í fyrirrúmi en
það er eins gott því að söguþráður-
inn er léttvægur. Myndin höfðar til
unglingsstráka og þaö er sá aldurs-
hópur sem hefur mest gaman ag
myndinni. Ágætir karakterleikar-
ar eru í aukahlutverkum og skila
þeir flestir góðum leik.
★★
.
Grái fiðringurinn
I WANT HIM BACK
Útgefandi: Steinar hf.
Leikstjóri: Catlin Adams.
Aðalhlutverk: Valerie Harper, Elliot Go-
uld og Brenda Vaccaro.
Bandarísk, 1990 - sýnfngartimi 91 mín.
Leyfö öllum aldurshópum.
I byrjun I Want Him Back kynn-
umst við Martin Slade sem nýorð-
inn er fimmtugur og finnst hann
vera kominn á grafarbakkann.
Þetta breytist þó fljótt þegar hann
kynnist samstarfskonu dóttur
sinnar, sem er hið fegursta fljóö en
er heldur ekkert að leyna því aö
hún er tilbúin í ástarsamband. Þeg-
ar hún hefur náð þeim tilgangi þá
heimtar hún að Slade fái skilnaö
en þá snýst eiginkonan til vamar
með góðri aðstoð vinkonu sinn-
ar...
Gamansemin er í fyrirrúmi og er
sérstaklega gert góðlátlegt grín að
tilraunum karla til að halda sér
ungum en kvenfólkið fær einnig
sinn skammt. Einastaka atriði
halda myndinni frekar á floti held-
ur en söguþráðurinn í heild. Elliot
Gould er ekki jafn góður leikari og
hann var í byrjun ferils síns, er
orðinn stirður, en gerir samt hiut-
verki sínu ágæt skil miðað við að
texti hans er einna lakastur.
★★‘/2
Sápuóperugrín
SOAPDISH
Útgefandi: CiC-myndbönd.
Leikstjóri: Michael Hotfman.
Aðalhlutverk: Sally Field, Kevin Kline,
Robert Downey jr. og Whoopi Goldberg.
Bandarisk, 1991 - sýningartimi 95 min.
Leyfð öllum aldurshópum.
Sápuóperur eru fyrirferöarmest-
ar í bandarísku sjónvarpi þar sem
þær eru sýndar alla virka daga í
öllum stærstu sjónvarpsstöðunum.
Þessar ómerkilegu þáttaraðir liggja
auðveldlega við gríni og er þekkt-
asta dæmið hin vel heppnaða sjón-
varpssería Löður, en í lokin fór
þáttaröðin fyrir brjóstiö á púrítön-
um í Bandaríkjunum sem stóðu
fyrir miklum mótmælum og fengu
í gegn að hætt var að framleiða
þessa skemmtilegu þætti.
Soapdish kemur í kjölfarið og er
þar einnig gert stólpagrín að sápuó-
perum, en myndin segir frá lífi
nokkurra persóna sem koma ná-
lægt gerð sápuóperunnar The Sun
Also Sets. Þar er aðalstjaman Ce-
lesta Talbert (Sally Field), en ferill
hennar er heldur á niðurleið og er
það henni lítt að skapi. Það má
einnig segja um sápuóperuna í
heild og vilja framleiðendumir fá
nýtt blóð í þáttaröðina. Og bjarg-
vætturinn á að vera persóna sem
eitt sinn var drepinn úr þáttunum,
Jeffrey Anderson (Kevin Kline) en
hann var einu sinni giftur Celeste.
Færist nú heldur betur fjör í leik-
inn þegar hann er lífgaður við og
þeir sem utan standa vita ekki hvað
Cathy Moriarty, Sally Field og Whoopi Goldberg í hlutverkum sínum
Soapdish.
er raunveruleikinn og hvað er leik-
ur.
Kevin Kline sannaði það í A Fish
CaUed Wanda að hann er sérlega
góður farsaleikari og er hann ekki
síðri hér. Á hann auðvelt með að
vera senuþjófur í þeim atriðum
sem hann kemur fram í. Sally Field
á góða spretti en er ekki eins fynd-
in og Kline. Þótt hamagangurinn
sé yfirgengilegur í Soapdish og
sumt grínið fari fyrir ofan garð og
neðan er myndin hin besta
DV-myndbandalistmn
Suburban Commando er önnur tveggja nýrra mynda sem koma inn
á llstann þessa vikuna. í myndtnni leikur gllmukapplnn Hulk Hogan
striðshetju í geimstriði, en Hulk þarf aö hafa viðkomu á jörðinni.
1 (1) The Commitments
2 (2) Regarding Henry
3(4) Toy Soldier
4 (4) Soapdish
5 (3) Terminator II
6 (-) Suburban Command
7 (6) Backdraft
8 (15) To Catch a Killer
9 (9) Teen Agent
10(8) Fjörkálfar
11 (-) Doublecrossed
12 (11) Quigley down under
13 (12) The Hard Way
14 (7) Defending Your Life
15 (10) The Sheltering Sky
★★
Leyndar ástríður
GRAND ISLE
Útgefandi; Skífan.
Leikstjóri: Mary Lambert.
Aðalhlutverk: Kelly McGillls, Adrian
Pasdar, Julian Sands, Glenne Headly
og Ellen Burstyn.
Bandarisk, 1991 -sýningartimi 97 min.
Leyfð öllum aldurshópum.
Kelly NcGillis er bæði framleið-
andi og aðalleikari Grand Isle sem
gerist um aldamótin og segir sögu
af konu sem er bundin í viðjár van-
ans en gerir uppreisn gegn tíðar-
andanum.
Edna Pontiellier er hin fullkomna
eiginkona, falleg, móðir tveggja
sona og lætur eiginmann sinn ráða
ferðinni. Fjölskyldan er vel efnum
búin og fer í sumarfrí til eyjarinnar
Grand Isle þar sem hún eyöir
sumrinu við áhyggjulaust letilíf.
Edna kynnist ungum manni, Ro-
bert, sem reynir að kenna henni
að synda. Þau kynni verða afdrifa-
rík, Edna verður ástfangin og um
leið gerir hún sér grein fyrir að hún
hefur sjálfstæðan vilja og langanir
sem ekki samræmast reglum heim-
ilislífs hennar.
Sumarleyfinu lýkur og Edna snýr
heim. Allt er breytt og Edna sættir
sig ekki við líf sitt eins og það er
og verður fegin að fá að vera ein,
þegar maöur hennar, vinnu sinnar
vegna, þarf að flytja um tíma til
annarrar borgar. Hún nýtur frels-
isins en að því kemur að hún þarf
að gera það upp við sig hvert hún
vill að líf sitt stefni.
Grand Isle er virkilega.vönduð
kvikmynd og er greinilegt að mik-
ill hugur er í öllum þeim konum
sem að myndinni standa en eins
og áður sagöi er Kelly Mcgillis
framleiðandi, handritshöfundur-
inn og leikstjóri eru einnig konur.
En öll þessi vandvirkni gerir at-
burðarásina hæga og langdregna.
Sagan sjálf er samt athyglisverð og
myndin hefur fallegt yfirbragð auk
þess sem Kelly McGillis nær góð-
um tökum á hlutverki sínu.
-HK
skemmtun og einstaka
lega fyndin.
atriði ótrú-
-HK
Þjónarrökkursins
SEVANTS OF TWILIGHT
Útgefandi: Myndform.
Aóalhlutverk: Beiinda Bauer.
Bandarisk, 1991 -sýningartimi 93 mín.
Bönnuð börnum innan 16 ára.
Það fara ekki margir í spor Step-
hens King í gerð góðra hryllings-
bókmennta og hefur hann hingað
til verið einráður á toppnum þegar
um gerð slíkra bókmennta er að
ræða. Sá sem einna helst hefur
veitt honum einhverja samkeppni
og er spáð að í framtíðinni eigi eft-
ir að verða haröur keppinautur
hans er Dean R. Koontz en vegur
hans hefur farið vaxandi á síðustu
misserum. Servants of Twilight er
gerð eftir einni skáldsögu Koontz.
Aðalpersónur myndarinnar eru
móðir og sonur. Kvöld eitt ógnar
kona þeim og segir að sonurinn sé
antikristur og ef hann verði ekki
drepinn muni styrkur hans aukast
jafnt og þétt. Móðirin snýst að sjálf-
sögðu í vöm enda er sonur hennar
aðeins sex ára. Það kemur síðan í
ljós að konan er leiðtogi ofstækis-
trúarflokks og lætur hún þau boð
út ganga að drengurinn sé rétt-
drepanlegur. í örvæntingu leitar
móðirin á náðir einkaleynilög-
reglumanns sem veitir þeim vemd
og reynir hvað hann getur til að
fela þau en meðlimir trúarflokks-
ins em ávallt skrefi á undan.
Söguþráðurinn í The Servants of
Twilight kemur kunnuglega fyrir
sjónir og nægir þar að benda á
Omen-myndirnar en fléttan í sögu-
inni er samt snjöll og skilur áhorf-
andann ávallt á varðbergi um það
hveijir em góðu mennirnir og
hverjir þeir vondu. Þvi miður ber
myndin þess merki að vera gerð í
fjárþröng en í heild er hún samt
góð skemmtun öllum þeim sem
hafa gaman af slíkum myndum.
-HK