Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1992, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1992, Blaðsíða 15
ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚNÍ 1992. 15 Eigi skal skera „Endurhæfing er lausnarorð svo ótalmargra sem þannig losna úr viöjum ýmissa áfalla og erfiðleika... “ Það er látið í veðri vaka af valds- mönnum dagsins að nú sé torveld tíð aðhalds og ráðdeildar og ríku- legs spamaðar. Og þegar aðhalds- tíma lýkur og rofar til blasir við mikil birtutíð og blessunarrík að sögn sumra. En nú eru sumsé erfið- ir tímar þó að allt sé enn undir þjóð- arsátt þar sem launafólkið borgar áfram brúsann með bjarta framtíð- arvon Viðeyjarbræðra að leiðar- hnoða ljósu. Þetta með fjórtánfalda muninn Og erfiðir tímar kalla á aðhald og ráðdeild, allt yfir í nauman nið- urskurð, sums staðar a.m.k., því ekki hafa hinir erfiðu tímar náð til þeirra með fjórtánfóldu launin, fjórtánfalda uppskeru af „erfiði" sínu, ef miða skal við þá sem minnst hafa og ugglaust minnst hafa þá fyrir lífinu. Og þetta með fjórtánfalda mun- inn og misréttið i þjóðfélaginu hafa menn hvorki meira né minna en frá sjálfri Jóhönnu sem hvert böl vil bæta og er örugglega reynslunni ríkari eftir fimm ára æöstu forystu í félags- og vinnumálum. Félagi hennar, sjálfur Sighvatur, segir hins vegar fólk almennt hafa það alltof gott og gerir í gríð og erg ráö- stafanir til að leiða almenning frá óráðsíuvillu síns vegar inn á að- haldsbrautina frá Viðeyjarundr- inu. En að öllu háði slepptu um tví- saga fólk á tróni valdsins og mis- sagnir margar um leið þá skal að meginefni þessa greinarkoms gætt og þar gildir alvaran ein og um- búðalaus. - Og hún er allrar um- hugsunar verð. KjáUarmn Helgi Seljan félagsmálafuíltrú ÖBÍ Virk endurhæfing Við íslendingar höfum til þessa stært okkur réttilega af mörgum vel ræktum þáttum velferðar okk- ar þar sem allir pjóta án tillits til efnahags og aðstæðna. Einn þess- ara þátta, og ekki þýðingarminnst- ur, snýr að endurhæfingu fólks eft- ir hvers konar áföll, veikindi og slys. Margur útlendur gestur hefur undrast hversu langt við höfum náð á þessu sviði, hve góðum ár- angri og giftudrjúgum, og eins hversu jafnrétti allra er þar vel tryggt. Við eigum afbragðsstofnan- ir á þessu sviði, sömuleiðis af- bragðsstarfskrafta sem vinna markvisst starf án auglýsingagnýs eða fjölmiðlaflóðljósa. Virk endur- hæfing á ýmsum sviðum fer fram æ víðar um land allt og hvert ár færir okkur þar nýja áfanga. Það er hreint ævintýri að fylgjast með þessu starfi, fylgjast með hversu sá er beygður og bugaður kemur inn á endurhæfingarstöð - brotinn og lemstraður á líkama og sál - gengur undrahress út á nýjan leik til að hefja hólmgöngu sína við lífið. Sá óvinnufæri og óvirki þegn, sem áður var, verður fullgildur á ný, sjálfum sér til heilla og samfé- laginu til hins mesta halds. Það eru mörg hljóðlát kraftaverk sem gerast blessunarlega á endur- hæfingarstofnunum okkar og ótal- inn fjöldi sækir þangað þrek og nýjan þrótt og á auðveldari lífs- göngu fram undan fyrir bragðið. Á tímum þar sem niðurskurðarhnif er jafnvel beitt í blindni undir yf- irskini aðhalds og spamaðar er þessi þáttur sem aðrir ámóta dýr- mætir í mikilli hættu. Og glögg höfum við hættumerki séð, þótt því versta hafi verið burtu bægt sem hugmyndir voru uppi um. Varast skyldi sparnaðarsnilli Á ári hveiju njóta hundruð, ef ekki þúsundir fólks, verulegrar endurhæfingar á ýmsan veg. Eftir slys, eftir erfiðar aögerðir, eftir snögg áfoll, eftir síendurtekna slæma meðferð á sjálfum sér. Þetta fólk á að standa vörð um þennan velferöarþátt - vemda hann og styrkja enn traustar undirstöður hans. Samfélagið tapar einungis á því ef dregið er úr endurhæfingu, ef þróun hennar fær ekki sinn eðh- lega framgang, ef okkar góðu kraft- ar svo viða á vettvangi fá sín ekki að fullu notið. Endurhæfing er lausnarorð svo ótalmargra sem þannig losna úr viðjum ýmissa áfalla og erfiðleika, léttir þeim sporin áfram um lengri og umfram allt hamingjuríkari framtíð en ann- ars hefði orðið. Valdsmenn skyldu því varast að sýna spamaðarsnilh sína á þessum mikilvæga hð heilbrigðisþjónustu okkar. Sá „spamaður" fær illa upp- skera, ekki síst til lengri tíma htið. Þar skal, eins og í fleira, aðgát höfð og mætti gjama hafa þar sem mottó: Eigi skal skera. Þá næst fram sparnaður í raun. Helgi Seljan. „Samfélagið tapar einungis á því ef dregið er úr endurhæfingu, ef þróun hennar fær ekki sinn eðlilega fram- gang, ef okkar góðu kraftar svo víða á vettvangi fá sín ekki að fullu notið.“ Stjórnarskrá hér og stjómarskrá þar „Hver einstök breyting telst þá samningur sem Alþingi fjallar um sam- kvœmt ákvæði stjórnarskrárinnar,“ segir m.a. í greininni. Utanríkisráðherra sagði við Morgimblaðið 5. þ.m.: „Ég er alveg ásáttur með að bíða þeirrar niður- stöðu (um hvort EES-samningur- inn standist ákvæði sfjómarskrár) en bendi á að máhð hefur verið rannsakað rækilega af þjóðréttar- sérfræðingum aðildarríkja EFTA og það er athyghsvert að alls staðar nema í Sviss hafa þeir komist að þeirri niðurstöðu að ekki verði gerð krafa um þjóðaratkvæðagreiðslu vegna þess að samningurinn kalh ekki á breytingar á stjómarskrá. Framsal á valdi Ég þekki nokkuð til umræðu um þetta mál í Noregi en ekki í öðrum EFTA-löndum. Það er ekki von að þjóðréttarfræðingar í Noregi telji að þar verði að halda þjóðarat- kvæðagreiðslu vegna EES-málsins. Þar í landi em nefnilega engin al- menn ákvæði um þjóðaratkvæða- greiðslu. Ef alþingi Norðmanna vih viðhafa slíka atkvæðagreiðslu verður þaö að ákveða það í hvert skipti og hvort það er ráðlegt geta þjóðréttarfræðingar ekki dæmt um með meiri rétti en aðrir þegnar landsins. Það er ekki heldur von að norsk- ir þjóðréttarfræðingar telji að samningsuppkastið um EES kalh á breytingar á sfjómarskrá Noregs. í henni er nefnilega ákvæði um hvemig fara skuh með samninga sem fela í sér framsal á váldi til alþjóðasamtaka, valdi sem stjóm- arskráin áskilur norska ríkinu sem grundvaharatriði. Ákvæði um þetta var sett árið 1962. Þvi hefur aldrei verið beitt. Árið 1972 stóð til að beita því um samninginn .um aðild Noregs að Evrópska samfé- laginu (ES). Samningurinn var fyrst borinn undir þjóðaratkvæði. Ríkisstjómin hótaði afsögn sinni ef þjóðin samþykkti hann ekki. Hann var fehdur og stjómin sagði af sér en samningurinn var aldrei lagður fyrir þingið til staðfestingar. KjaHarinn Björn S. Stefánsson dr. scient Hvenær á ákvæðið við? Það á ein- faldlega við þegar um er að ræða framsal á valdi til alþjóðlegra sam- taka sem Noregur er aðih að. Það er óumdeilt í Noregi meðal þjóð- réttarfræðinga og stjómmála- manna að það eigi við EES-samn- inginn, þar sé um að ræða framsal á valdi (sem einhverju nemur). Ákvæðiö er þess efnis að slíkur samningur þarf stuöning % at- kvæða í þinginu til að verða stað- festur. Þótt það þyki ótvírætt í Noregi að í EES-samningnum fehst fram- sal á valdi þarf ekki að breyta stjómarskránni, heldur mælir hún fyrir um hvernig með skuh farið. Stjómarskrá íslands er aö því leyti eins og norska stjómarskráin að framkvæmdavald, dómsvald og löggjafarvald skal vera í höndum tilgreindra stofnana ríkisins. Ef það er rétt metið, sem þykir raunar ótvirætt í Noregi, felur EES-samn- ingurinn einnig í sér framsal á valdi íslenska ríkisins til erlendra aðila. TU shks framsals verður Al- þingi að breyta stjómarskránni. Eins og á færibandsborði Hér hef ég ekkert sagt um með hvaða rökum Norðmenn eru svo sammála um það að í EES-samn- ingnum fehst framsal á valdi. Ég hef gengið úr skugga um að endan- leg gerð samningsins hefur ekki breytt áhti þeirra að þessu leyti. Óháð rökum Norðmanna má at- huga hvort löggjafarvald er fram- selt með EES-samningnum. Því hefur verið haldiö fram með eftir- farandi rökum að svo sé ekki. í upphafi er það löggjafans að stað- festa samninginn samkvæmt 21. grein stjómarskrárinnar um samninga við erlend ríki. í því felst að láta lög og reglugerðir ES á sviði efnahagsmála þegar taka gUdi (60.000 blaðsíður fyrir tveimur ámm að sögn norsks lögræðipró- fessors). Síðan ræður ES öUu um breyting- ar á þeim lögum og reglugerðum, EFTA-ríkin hafa þar ekki einu sinni tUlögurétt. EFTA-ríki sem ekki sveigði lög sín og reglugerðir að sérhverri breytingu á samnings- sviðinu brýtur með því samning- inn og mættu þá hin ríkin telja sig laus allra mála. Það á einnig við um þau ákvæði sem ekki yrði á valdi ES að breyta, svo sem viö- skiptalqör fyrir sjávarafurðir. Þar eð það yrði á valdi Alþingis við sérhverja breytingu að leiða hana í lög eða láta það vera, hefur verið ályktaö sem svo að ekki sé um aö ræða framsal á löggjafarvaldi. Hver einstök breyting telst þá samningur sem Alþingi flaUar um samkvæmt ákvæði stjómarskrár- innar. ÓsennUegt er að þjóðréttarfræð- ignar geti bent á nokkurt dæmi um samskipti ríkja af þessu tagi, þar sem „samningar" koma frá öðmrn aðUanum eins og á færibandsborði, en sá sem er viö neðri enda borðs- ins hefur ekki rétt til að biðja um eitt né neitt og verður að taka því sem berst, að öðrum kosti hverfi hann réttlaus á braut. Þaö er óhugsandi aö nokkrum sem komið hefur að samningu ís- lensku stjómarskrárinnar eða end- urskoðun hafi hugkvæmst að kaUa slíkar tilkynningar hverja fyrir sig samning við erlend ríki (21. grein) eða telja slikt fyrirkomulag löggjaf- arvald (2. grein), svo að segja megi um ríki sem taki upp slíka stjómar- hætti að það haldi óskertu löggjaf- arvaldi. Hugvitsemi af þessu tagi er algjört nýmæh í samskiptum ríkja hér um slóðir enda vantar orð umfyrirkomulagið. Siðskiptamenn skirrast ekki við að breyta merk- ingu orða. Það þarf siðskiptamann til að kaUa aðstöðu íslenska ríkis- ins í sambandi við breytingar á EES-reglum löggjafarvald. Björn S. Stefánsson „Siðskiptamenn skirrast ekki við að breyta merkingu orða. Það þarf sið- skiptamann til að kalla aðstöðu ís- lenska ríkisins í sambandi við breyt- ingar á EES-reglum löggjafarvald.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.