Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1992, Blaðsíða 17
ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚNÍ 1992.
17
Iþróttir
árs landsliðinu. I dag verður hann einn í
pest.
„Tel okkur eiga
góða möguleika"
- ísland mætir Ungverjalandi í dag, u-21 árs
Guðmundur Hflmaissan, DV, Búdapest
íslenska landsliðið í knattspymu
skipað leikmönnum 21 árs og yngri
mætir jafnöldrum sínum frá Ung-
verjalandi í dag og fer leikurinn
fram í borginni Vac, um 35 kíló-
metra frá Búdapest. Leikurinn er
liður í undankeppni Evrópumóts
landsliða í þessum aldursflokki.
Þetta er annar leikur íslands í riðl-
inum. í síðasta mánuði töpuöu
strákamir fyrir Grikkjum, 3-0, og
þótti sá ósigur íslands í stærra lagi
miðað við gang leiksins.
Eftir æfingu í gærkvöldi tilkynnti
Ásgeir Elíason landsliðsþjálfari
byijunarlið íslands. Það verður
þannig skipað: Ólafur Pétursson
stendur í markinu, bakverðir verða
þeir Steinar Guðgeirsson og Gunn-
ar Pétursson, miðverðir þeir Pétur
Marteinsson og Láms Orri Sig-
urðsson. Á miðjunni leika Ágúst
Gylfason, Finnur Kolbeinsson og
Bjarki Gunnlaugsson og á vængj-
unum þeir Amar Gunnlaugsson og
Ásgeir Ásgeirsson og einn í fremstu
víglínu verður Ríkharðm- Daðason.
Þeir Ríkharður og Ágúst léku ekki
með gegn Grikkjum.
Ásgeir Elíasson sá undir 21 árs
landslið Ungveija í leik gegn Aust-
urríkismönnum í síðasta mánuði.
„Þeir léku ekkert sérlega vel í þeim
leik sem lauk með 2-2 jafntefli. Ég
tel okkur eiga góða möguleika á
sigri leggi strákamir sig virkilega
vel fram,“ sagði Ásgeir í viðtali við
DV í gærkvöldi.
-GH
Tvívegis tvö aðf lug
Guðitumdur Hflmarssan, DV, Búdapest
Það gekk á ýmsu á ferðalagi íslenska A-landsliðsins til
Búdapest í gær. Þegar flugvél Flugleiða var rétt að fara
að lenda á Kastrupflugvelli í Kaupmannahöfn hóf hún
sig á loft að nýju og var ástæðan sú að önnur flugvél var
á brautinni þar sem flugmaðurinn hugðist lenda Flug-
leiðaþotunni.
Það er ekki á hveijum degi sem menn lenda í þessu
og hvað þá tvisvar sinnum sama daginn. Þegar SAS-
flugvélin, sem flutti íslenska landshðshópinn frá Kaup-
mannahöfn til Búdapest, var í aðflugi að flugvellinum
hóf hún sig upp með miklum látum og nú var ástæðan
sú að flugvélin kom of hátt til aðflugsins, að sögn flug-
mannsins. í báðum þessum tilfellum þurftu flugvélamar
að sveima í einn hring yfir flugvöllunum og síðan var
lent heilu og höldnu.
Stúfarfrá
Búdapest
Guðmundur Hflmarsson, DV, Búdapest
Leikur íslendinga gegn
Ungveijum í Búdapest
á miðvikudaginn verð-
ur 40. leikur íslands í
HM frá upphafi. Af þeim 39 sem
em að baki hafa íslendingar unn-
ið 5 leiki, gert 6 jafntefli og tapað
28. ísland hefur skorað 30 mörk
en fengið á sig 110. Stigin em 16
sem ísland hefur fengið í HM.
Stærsta tapið
á móti Frökkum
Stærsti ósigur íslendinga 1 heims-
meistarakeppninni var árið 1957
en töpuðu íslendingar fyrir
Frökkum í Nantes, 0-8. Stærsti
sigurinn í HM var gegn Tyrkjum
í Ismir árið 1980 en þá sigraðu
íslendingar, 3-1.
Flestir sáu landann
í leik gegn Spánverjum
Flestir áhorfendur á leik íslands
í heimsmeistarakeppninni vom í
Sevilla árið 1985. Þá komu 55 þús-
und manns á völlinn og sáu ís-
lendinga tapa, 2-1, fyrir Spán-
veijum.
Tvö töp
og ekkert mark
íslendingar hafa tvívegis áður
mætt Ungveijum á knattspymu-
vellinum. Leikimir fóra báöir
fram árið 1988 og urðu úrsht í
leikjunum báðum 3-0, Ungverj-
um í vil. Þessir leikir vora báðir
vináttuleikir.
f fyrir hörku-
gn Ungverjum
verjalandi 1 undankeppni HM á morgun
hafa sett sér það markmið að ná öðra
þessara sæta og ef Júgóslövum verður
meinuð þátttaka ættu möguleikar ís-
lendinga að aukast. Til að þessi markm-
ið náist verða íslendingar að ná í stig á
útivöhum og leikurinn gegn Ungveijum
í kvöld er því mjög mikilvægur fyrir ís-
lenska hðið.
Arnór, Sigurður og
Eyjólfur ekki með
Eins og í leiknum gegn Grikkjum í síð-
asta mánuði geta Islendingar ekki teflt
ffam sínu sterkasta hði. Atvinnumenn-
irnir Amór Guðjohnsen og Eyjólfur
Sverrisson era Ijarri góðu gamni, eiga
báðir við meiðsli að stríða og Skagamað-
urinn Sigurður Jónsson gaf ekki kost á
sér. Hins vegar koma sterkir leikmenn
að nýju inn í íslenska hðið sem ekki léku
gegn Grikkjum. Það era þeir Þorvaldur
Orlygsson og fyrirhðinn Sigurður Grét-
arsson.
Ungverjum hefur
ekki gengið vel
Ungveijum hefur ekki gengiö sem skyldi
upp á síðkastið og í hðinni viku töpuðu
þeir fyrir Svíum í Stokkhólmi, 2-1. Ung-
veijar era að byggja upp nýtt hð og von-
ast til aö geta orðið í einu af tveimur
efstu sætimum í riðhnum. í röðum Ung-
veija eru snjalhr leikmenn á borð við
Jozep Kiprich, sem leikur með Feyeno-
ord í Hohandi, hinn eldfljóti Peter Lipc-
sei, 20 ára, sem leikur með Ferencvaros
í Ungverjalandi, og Zsolt Petry mark-
vörður sem tahnn er einn besti mark-
vörður í Evrópu.
Besti leikmaður
Ungverja er meiddur
Ungveijar verða þó án síns besta og
frægasta leikmanns. Þaö er miðvahar-
spilarinn Lajos Detari sem leikur með
Bologna á ítahu. Hann á við meiðsli að
stríða og getur ekki leikið með í kvöld.
Nýr þjálfari er við stjómvölinn hjá Ung-
veijum. Hann heitir Emerich Jenei,
fyrrum þjálfari rúmenska hðsins Steaua
Búkarest og rúmenska landshðsins.
Hann gerði Steaua að Evrópumeisturum
árið 1986.
Gæðingakeppni Andvara í Garðabæ:
Fleygur fékk hæstu
aðaleinkunnina
Gæðingakeppni Andvara í
Garðabæ var haldin sunnudaginn 31.
maí. Dæmdir voru tuttugu gæðingar
í A-flokki og sami fjöldi í B-flokki. í
bama- og unghngaflokki kepptu
færri keppendur. Hæsta helgarein-
kunn gæðings kom í hlut Fleygs Jóns
Guðmundssonar sem fékk aðalein-
kunnina 8,73. Knapi var Sveinn
Ragnarsson.
í unghngaflokki sigraði Bryðja,
sem Stefán Ágústsson sat, með 8,28
í einkunn. Vinur, sem Elfa D. Jóns-
dóttir sat, var í öðra sæti með 8,01 í
einkunn og Fengur, sem Hrafnhildur
Hannesdóttir sýndi, fékk 7,73 í ein-
kunn og þriðja sætið.
í bamaflokki sigraði Kardináh,
sem Sigurður Hahdórsson sat, með
8,50 í einkunn. Glaður, sem Funi Sig-
urðsson sat var í öðru sæti með 8,43
í einkunn og Nótt, sem Þórdís Hösk-
uldsdóttir sýndi, fékk 8,36 í einkunn
og þriðja sætið.
í A-flokki gæðinga sigraði Flugar,
sem Hahdór Svansson á og sat. Flug-
ar fékk 8,40 í einkunn. Guhbrá
Margrétar Magnúsdóttur var í öðra
sæti. Hún fékk 8,36 í einkunn. Knapi
var Friðþjófur Vignisson. Friðþjófur
Vignisson var einnig knapi á þeim
hesti sem hafnaði í þriðja sæti; Flug-
ari, sem hann á sjálfur. Flugar fékk
8,39 í einkunn.
í B-flokki gæðinga sigraði Fleygur
Jóns Guðmundssonar með 8,73 í ein-
kunn. Knapi var Sveinn Ragnarsson.
í öðru sæti var Ábóti sem Halldór
Svansson á og sýndi og fékk 8,38 í
einkunn. í þriðja sæti var Gjafar
Guðrúnar Þóra Jónsdóttur, sem fékk
8,53 í einkunn. Knapi var Orri
Snorrason.
eikskeppni ólympíuleikanna
tleik, sem æfa raun fyrir Ólympíuleikana í
iinn skipa 22 leikmenn og er reiknað meö
r þátt í handknattleikskeppni ólympíuleik-
hefur gefið út yfirlýsingu þess eihis að ís-
g nú er aðeins beöið eftir formlegri afstööu
að yfirlýsing nefndarhmar verði gerð opin-
-SK
_ Þórður vann hálfa svínið
Þremur
frestað Fjórir leikir áttu að fara fram í 2. dehd kvenna um síðustu helgi. Þremur leikjanna var frestað og það vora aðeins hð Sindra og KSH sem léku. Sindri sigraði 2-1, Védís Ármannsdóttir og Jakob- ína Jónsdóttir skoruðu mörk Sindra en. Jóna Petra Magnús- dóttir mark KSH. -ih Þóröur Geirsson, ungur og efhilegur kylfmgur úr GR, varð sigurvegari á opna Selfossmótínu i golfi sem fram fór um liöna helgi. Leiknar voru 18 holur, punktakeppni Stableford raeö 7/8 forgjöf. Þórður hlaut 44 punkta en Guðlaugur Kristjánsson, GKG, varð annar með 43 punkta og Öm Tr. Gíslason, GK, þriðji með 42 punkta. Sigurður Pétursson, GR, keppti sem gestur og setti vaharmet á Svarfhólsvelh, lék á 67 höggum. Fyrir sigurinn fékk Þórður hálfan svínsskrokk og var ekki ánægðari með verðlaunin en þaö að hann seldi „steikm-nai*“ fyrir 8 þús- und krónur að mótinu loknu. Nú bíða menn spenntir eftir næsta sigri Þórðar og hvaöa skepnu hann fær þá í verðlaun.
Sjö úr hópnum
léku þessa leiki
Sjö leikmenn sem nú era í lands-
liðshópnum léku með í umrædd-
um leikjum gegn Ungverjum árið
1988. í fyrri leiknum, sem fram
fór í Búdapest, léku Sævar Jóns-
son og þeir Þorvaldur Örlygsson
og Rúnar Kristinsson komu inn
á. Birkir Kristinsson, sem ver
mark íslands á morgun, var á
bekknum. í síðari leiknum, sem
fram fór í Reykjavík, léku: Sævar
Jónsson, Guðni Bergsson og Sig-
urður Grétarsson. í þeim leik
gerðu Ungverjar út um leikinn á
fyrstu 19 mínútunum og skoraðu
þá sín 3 mörk.
Ungverjar tvisvar
leikið til úrslita
Ungveijaland hefur tvisvar sinn-
um leikið til úrshta um heims-
meistaratitihnn. í bæði skiptin
hafa Ungverjar þurft að láta í
minni pokann. Fyrst fyrir ítölum
árið 1958 í Frakklandi, 4-2, og
árið 1954 fyrir V-Þjóðverjum, 3-2.
í leiknum gegn Þjóðveijum vora
menn á borð við Puskas, sem í
dag er tahnn einn besti knatt-
spymumaður heims fyrr og síð-
ar, og Kocsis sem varð marka-
hæstur í keppninni árið 1954.
Komust í lokakeppnina
íMexíkó árið1986
Ungveijar komust ekki í loka-
keppnina á ítahu árið 1990 en
árið 1986 vora þeir á meðal þeirra
bestu í Mexíkó. Ungveijum gekk
iha þar. Töpuðu fyrir Sovét-
mönnum, 6-0, og Frökkum, 3-0,
og sigraðu Kanadamenn, 2-0. Eft-
ir þessa útreið sagði þjálfari ung-
verska landshðsins, Gyorgy Mez-
ey, af sér.
Ungverjum gekk illa
í Evrópukeppninni
í imdankeppni Evrópumóts
landshða sem lauk í fyrra gegn
Ungveijum ekki sem skyldi. Þeir
höfnuðu í næstneðsta sæti á eftir
Sovétmönnum, ítölum og Norð-
mönnum. Ungveijar unnu tvo
leiki, báða gegn Kýpurbúum,
gerðu fjögur jafntefli og töpuðu
tvívegis, fyrir ítölum, 3-1, og fyrir
Sovétmönnum, 1-0.