Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1992, Blaðsíða 17
MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ 1992.
17
Fréttir
Birkivín:
Ný af urð í skógarbúskap
Sígrún Björgvinsdóttir, DV, Egilastöðum;
„Viö gerum ráð fyrir að geta safnað
400 lítrum í vor. Það er tappað af 100
tijám í Egilsstaðaskógi og álíka
mörgum í Miðhúsaskógi. Það er mjög
misjafnt hve mikið fæst úr hveiju tré
en mest kemur um einn lítri úr tré
á sólarhring. Aðeins er tekinn safi
þegar trén eru að laufgast.
Við settum upp flöskur í gær og
fengum 30 lítra úr þeim 100 tijám
sem borað var í hér og gerum ráð
fyrir að álíka hafi komið á Miðhús-
um,“ sagði Jóhann Þórhallsson,
starfsmaður hjá Héraðsskógum, í
samtali við DV.
Á vegum Héraðsskóga er í sumar
verið að gera tilraun með framleiðslu
birkivíns. Vínið verður framleitt í
Mjólkurstöð Kaupfélags Héraðsbúa
og verður tilbúið til neyslu í haust.
Vínið verður bragðbætt með birki-
laufum en annars er uppskriftin al-
gjört leyndarmál.
Því miður náði fréttamaður ekki í
Helga Gíslason, framkvæmdastjóra
Héraðsskóga, þar sem hann var á
leið til útlanda. En hann hefur þó
látið í það skína að þetta vín verði
Héraðsvín í þess orð fyllstu merk-
ingu og ef til vill aðeins selt hér
eystra.
Fréttamaður smakkaði safann sem
rann úr tijánum og var hann bragð-
lítill. Flöskumar höfðu verið tæmdar
kl. sex síðdegis en þegar fréttamann
bar að um níuleytið var einungis
smádropi í einstaka flösku. Trén
virtust greinilega vera farin að sofa.
Mest rennur úr þeim að morgni.
Það var 1. apríl í vor sem fréttin
um birkivínið kom fyrst fram. Senni-
lega hefur mörgum orðið á að glotta
út í annað og hugsa. Nei, þið platið
mig ekki með svona vitleysu. Þeir
geta þá væntanlegá brosað enn breið-
ar í haust þegar veigamar fara að
renna um hálsa.
Tappað af trjánum - Jóhann Þórhallsson, starfsmaður Héraðsskóga.
DV-mynd Sigrún
Loöskinn Sauöárkróki:
Framleiðslan
selst jaf nóðum
ÞórhaQur Ásmundsson, DV, Sauöárkróki;
Mjög vel gengur nú í sölu- og mark-
aðsmálum sútunarverksmiðju Loð-
skinns. Öll framleiðsla þessa árs er
seld, liðlega 80 millj. kr. verðmæti,
og aö sögn Birgis Bjamasonar fram-
kvæmdastjóra hefði verið hægt að
selja meira. Gott útht er á að öll fram-
leiðsla ársins seljist beint sem gerir
rúmar 200 milljónir króna. Svipaður
fjöldi starfar í Loðskinni nú og áður
- um 50 manns.
Mokkaskinn eru mjög eftirsótt nú
en Loðskinn hefur sérhæft sig í fram-
leiðslu þeirra. Birgir segir mikla
breytingu hafa orðið á framleiðslu
og mörkuðum síðan endurskipu-
lagning rekstursins hófst 1990.
„Varan þótti ekki nógu góð og fyrir-
tækið hafði misst öll sín viðskipta-
sambönd þannig að byggja varð upp
markaöinn að nýju. Við höfum náð
þessum mörkuðum aftur og erum að
fá nýja. Aðallega er selt til Ítalíu,
Kafarinn leggur frá bátnum eftir skoðunina.
Höfn:
DV-mynd Ragnar
Slapp óskemmdur af skerinu
Júlía Imsland, DV, Hcfn;
Skipveijar á Dala-Rafni VE gátu
hrósað happi með að sleppa klakk-
laust í innsiglingunni á Hornafirði
fyrir skömmu, þegar þeir lentu á
Hleininni - skeri út af Hvanney.
Báturinn sigldi í 20 metra fjar-
lægð frá Hvanney en venjuleg inn-
siglingarleið er um 100 metrar frá
eynni. Mikið högg varð þegar bát-
urinn tók niðri á skerinu án þess
að stöðvast.
Þegar botn skipsins var skoðaður
af kafara voru engar skemmdir sjá-
anlegar utan rispur og menn eru
að geta sér til að Dala-Rafn muni
hafa runnið yfir skerið á kjölnum
og slingurbrettinu.
Starfsstúlkur Loðskinns aö snyrta mokkaskinn. DV-mynd Þórhallur
Bretlands og svolítið til Skandinavíu.
Það er jafnvel útlit fyrir að Bandarík-
in fari að koma inn,“ sagði Birgir.
Loðskinn fékk á síðasta hausti 100
þúsund gærur og á það að duga fyrir-
tækinu miðað við þann starfsmanna-
fjölda sem er í dag og 8-10 stunda
viimudag.
Héraösskógar:
Lerki plantað
í340 hektara
Lerki sótt í þriggja hæða kerru sem tekur 147 bakka. DV-mynd Sigrún
Sigrún Björgvinsdóttir, DV, Egilsstöðum:
Nú er útplöntun hafin af fuUum
krafti hjá Héraðsskógum. Það verða
840 þúsund plöntur sem fara í jörð í
vor. Þetta er allt lerki og nægir í 340
hektara. Af einstökum jörðum verð-
ur mest plantað í Vallanesi, 180 þús-
und plöntur, en alls er plantað á 31
bújörð.
Bændur vinna nú í mun meira
mæh sjálfir við plöntun. Það er mjög
jákvætt og í samræmi við þær hug-
myndir sem upphaflega voru uppi
um þetta verkefhi.
Þórir Ólafsson skólameistari afhendir Ástrósu Þorsteinsdóttur prófskírtein-
ið. DV-mynd Kristján *
Stykkishólmur:
Fyrsti stúdentinn útskrifaður
Kristján Sigurösson, DV, Stykkishólmi:
Skólaslit Grunnskólans í Stykkis-
hólmi fóru fram í Stykkishólms-
kirkju miðvikudaginn 27. maí. Skóla-
stjóri, Lúðvíg A. Halldórsson, flutti
ávarp og veitti viðurkenningar fyrir
ágætan námsárangur. í tengslum við
skólaslitin var einnig haldin vegleg
sýning á munum er nemendur hafa
unnið í vetur og vor.
Sá ánægjulegi atburður átti sér
stað að í fyrsta sinn var útskrifaður
stúdent hér í Stykkishólmi, Ástrós
Þorsteinsdóttir útskrifaðist af félags-
fræðibraut frá Fjölbrautaskóla Vest-
urlands á Akranesi. Ástrós stundaði
nám sitt í Stykkishólmi við fram-
haldsheild grunnskólans en hér er
rekin í tengslum við Fjölbrautaskól-
ann á Akranesi 2ja ára framhalds-
deild eftir 10. bekk. Eftir þau tvö ár
stundaði hún námið utanskóla. Þórir
Ólafsson, skólameistari Fjölbrauta-
skóla Vesturlands, afhenti Ástrósu
prófskírteinið og óskaði henni til
hamingju með glæsilegan árangur.