Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1992, Blaðsíða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1992, Blaðsíða 37
 MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ 1992. Ungveija- land 1HM í kvöld keppir karlalandsliö ís- lands í knattapymu við Ungvetja í undankeppni HM i Ungverja- landi en íslendingar töpuöu fyrir Grikkjum um daginn í fyrsta leiknum í riðlinum. Iþróttiríkvöld Fimm leikir eru í 2 deild kvenna i knattspymu og í kvöld verður einnig fyrsti úrslitaleikur Chicago og Portland i NBA-deild- inni í körfuknattleik. Lengsta manns- nafní heimi Lengsta maxmsnafn sem lesa má á fæðingarvottorði er Rhos- handiatellyneshiaunneveshenk Koyaanfsquatsiuty Williams en hún fæddist 12. september 1984 og er dóttir hjónanna James L. Williams og konu hans í Beau- mont í Texas í Bandaríkjunum. Hinn 5. október lét faðirinn bóka viðauka sem stækkaði fyrra nafn dótturinnar í 1019 stafi og hið síð- ara í 36 stafi. Blessuð veröldin Algengasta ættarnafnið Algengasta ættamafn heims er kínverska nafnið Chang en áætl- að er að milli 9,7 og 12,1% allra Kínveija beri þetta nafn, þ.e um eða yfir 104 milfjónir manns. Færð á vegum Ailir helstu þjóðvegir landsins eru ágætlega færir. Vegna aurbleytu eru sums staðar sérstakar öxulþunga- takmarkanir á vegum á sunnanverð- um Vestflörðum og austan Þórshafn- ar á Norðausturlandi og em þær til- greindar með merkjum við viðkom- andi vegi. Umferðinídag Á Vestfjörðum er Þorskafjarðar- heiði lokuö vegna aurbleytu. Færð er góð á Norðurlandi, Norðaustur- landi og Austurlandi, þó er Öxar- fjarðarheiði lokuð svo og Hólssand- ur. Hálendisvegir eru lokaðir vegna aurbleytu og snjóa. 0 Lokað [T] lllfært 0 Tafir ÍÖ Hálka Höfn Svæðunum innan svörtu línanna er ekki haldið opnum yfir vetrartímann. CS2Þ muvuauu^icuviuiiui i/ogtu j. Brúöubæ verður fmmsýndur í dag kL 14 í Hallargarðinum aö Frí- kirkjuvegi n. Söngleikurinn fjallar um vináttuna, hversu mikilvægt það er aö sýna öllum góðvild, bæði mönnutn og dýrum. Við fylgjumst með einum degi í brúðubæ frá morgni til kvölds. Söngleikurinn er eftir Helgu Steffensen en hún býr einnig tíl brúöumar og leikstýrir ásamt Þór- unni Magneu Magnúsdóttur. Vís- umar eru eftir Sigríði Hannesdótt- ur og tónlistina annast Magnús Kjartansson. Um raddir brúðanna sjá Edda Heiðrún Backman, Felix Bergsson og Aðaisteinn Bergdal og þær Helga Steffensen, Sigríður Hannesdóttir og Helga Sigrfður Haröardóttir sjá um brúðuhreyf- ingamar. Jason Ólafsson, Helga Steffensen og Helga Sigriður Harðardóttir. Brúðubíllinn starfar á vegum ; íþrótta- og tómstundaráös Reykja- víkurborgar og em sýningamar öUum opnar og aðgangur ókeypis. BrúöubíUinn sýnir á öUum gæslu- vöUum Reykjavikurborgar og á nokkmm öðmm útivistarsvæðum, s.s í Árbæjarsaftú, Geröubergi o.U., i júní og júlí í sumar. Hver sýning tekur um 30 mínútur og verðnr fariö 2 sinnum á hvem leikvöll. í júU verður frumsýnt leikritið Hvað er í pokanum? Reykjavikurkvartettinn. Reykjavíkur- kvartettinn í Bústaðakirkju Reykjavíkurkvartettínn leikur veglega efnisskrá á tónleikum á Listahátíð í Bústaðakirkju kl. 20.30 í kvöld. Mors et vita op. 21 eftir Jón Leifs, Strengjakvartett op. 135 í F-dúr eftir Ludwig van Beethoven og Strengjakvartett nr. IV eftír Béla Bartók. Reykjavíkurkvartettinn var stofhaður formlega árið 1990 en áöur hafði Kammersveit Reykja- víkur gert nokkrar tilraunir tíl að koma á fót strengjakvartett og iðulega leikið meistaraverk tón- bókmenntanna fyrir strengja- kvartett. Stofnun kvartettsins’ var gerð möguleg með því að Reykjavíkurborg tók að sér aö fjármagna starfsemi hans. Listahátíðídag Reykjavíkurkvartettinn skipa valinkunnir Ustamenn, þau Rut Ingólfsdóttir fiöluleUíari, Guð- mundur Kristmundsson víólu- leikari, Zbigniew Dubik fiðluleik- ari og Inga Rós Ingólfsdóttir seUó- leikari. Meðalfellsvatn í Kjós MeðaifeUsvatn er 200 hektarar að stærð og strandlengja þess er um 6 km. Algengásta dýpi er 2 til 5 metrar en mesta dýpi er 18 metrar. Bærinn MeðalfeU stendur um 150 metra frá vatninu og hægt er að aka að því víöast hvar. MeðalfeU stendur við veg nr. 460, sem er afleggjari af þjóð- vegi nr. 1 í Hvalfirði. Áin Bugða rennur úr vatninu í Laxá í Kjós. Þess vegna gengur nokk- ur lax í vatnið, en þaö veiðast um 100 laxar þar árlega. Mest þó af vatna- bleikju en laxinnn eftir 15. júní. Mjög mikUl fiskur er í vatninu og bleikjan getur orðið 3 pund og urrið- inn um 5 pund. VeiðitímabUið í ár er tíl 20 september. VeiðUeyfi má fá á hóflegu verði að MeðalfeUi og stangafjöldi er ótakmarkaður. Umhverfi Sólarlag í Reykjavík: 23.37. Sólarupprás á morgun: 3.15. Síðdegisflóð í Reykjavík: 20.08. Árdegisflóð á morgun: 8.34. Lágftara er 6-6 'A stundu eftir háflóð. 37 Bud fær ekki að vera með. ítalskur spagettí Lukku-Láki Flestir kannast viö hinar óvið- jafnanlegu teiknimyndasögur um Lukku-Láka sem þeir Morris og Goscinny settu saman hér á árum áður og gera kannski enn. Bæði böm og fuUorðnir gátu skemmt sér hið besta yfir lestri þessara bóka sem fjöfiuðu um hinn þvengmjóa Láka og klár hans Léttfeta. Nú hefur Terence nokkur HiU tekið að sér að ffamleiða, leik- stýra og leUca aðaihlutverkið í mynd um Lukku-Láka og er af- uröin sýnd í Háskólabíói um þessar mimdir. Terence er ann- ars frægur fyrir það að hafa leik- iö í Trinity myndunum tveimur sem voru gríðarlega vinsælar. Heldur hefur haUað undan fæti hjá greyinu síðan en hann og fé- lagi hans, Bud Spencer, gerðu mýmargar slagsmálamyndir á sínum tíma. Nú er HiU mættur enn á ný, Spencerlaus, og tekst bara aU- bærilega að láta Láka hreyfa sig. Bíóíkvöld Nýjar kvikmyndir ÓgnareðU, Regnboginn. Grunaður um sekt, Saga-Bíó. ÓsýnUegi maðurinn, BíóhöUin. Mamó-kóngamir, Saga-Bíó. Lukku-Láki, Háskólabíó. Gengið Gengisskráning nr. 103. - 3. júnl 1992 kl. 9.15 Eining Kaup Sala Tollgengi Dollar 57,840 58,000 57,950 Pund 105.052 105,343 105,709 Kan. dollar 48,166 48,299 48,181 Dönsk kr. 9,2878 9,3135 9,3456 Norsk kr. 9,1941 9,2195 9,2295 Sænsk kr. 9,9645 9,9921 9,9921 Fi. mark 13,2037 13,2402 13,2578 Fra. franki 10,6770 10,7065 10,7136 Belg. franki 1,7416 1,7465 1,7494 Sviss. franki 39,3871 39,4961 39,7231 Holl. gyllini 31,8739 31,9621 31,9469 Vþ. mark 35,9143 36,0137 35,9793 It. líra 0,04757 0,04770 0,04778 Aust. sch. 5,0994 5,1135 5,1181 Port. escudo 0,4321 0,4333 0,4344 Spá. peseti 0,5750 0,5766 0,5775 Jap. yen 0,45391 0,45517 0,45205 Irsktpund 95,931 96,196 96,226 SDR 80,8603 81,0840 80,9753 ECU 73,6737 73,8775 73,9442 Símsvari vegna gengisskráningar 623270. Krossgáta Lárétt: 1 stUla, 5 elska, 8 heiður, 9 baun, 10 hispurslaus, 12 fals, 14 fiskur, 15 glápt- ir, 18 eyddur, 20 hagnað, 21 formóðir. Lóðrétt: 1 svik, 2 kvitt, 3 hljóð, 4 greip, »• 5 snemma, 6 hnuplir, 7 stertur, 10 hvetja, 11 land, 13 vanþóknun, 16 skel, 17 sefa, 19 varðandi. Lausn á síðustu krossgátu. Lárétt: 1 þverúð, 7 roka, 8 rek, 10 eöl- unni, 12 stafinn, 14 tún, 16 aðan, 18 iö, 19 áruna, 20 ramur, 21 nn. Lóðrétt: 1 þrestir, 2 voö, 3 ekia, 4 raufar, 5 úr, 6 skinnan, 9 enn, 11 niöur, 13 túða, 15 nám, 17 ann.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.