Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1992, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1992, Blaðsíða 36
36 MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ 1992. Vestanátt og kólnar Þorleifur Einarsson íslendingar af- kastamestu fom- leifagrafaramir „Þetta mun vera í fyrsta skipti, svo kunnugt sé, líklega um alla veröld, að notaðar séu vélskóflur við fomleifauppgröft og uppgröft- urinn stundaður í ákvæðis- vinnu,“ sagði Þorleifur Einarsson jarðfræðingur um jarðraskið í Aðalstræti. Kristján og öxlin „Það er mikið áfall að þurfa að fara aftur undir hnííinn en þetta var það sem ég óttaðist aíltaf. Þess vegna vildi ég ekki fara í myndatöku fyrr en eftir íslands- mót,“ sagði Kristján Arason handboltakappi í Morgunblaðinu um umtöluðustu öxl síðari tíma á íslandi. Ummæli dagsins Stærst, best og frekust „Ætli ég sé ekki kölluð drottn- ingin vegna þess að ég er best, stærst, og frekust," sagði Ásta B. Gunnlaugsdóttir, elsti leikmaöur 1. deildar kvenna í knattspymu, í viðtali við DV. Á höfuðborgarsvæðinu verður vestan og síöar suðvestan gola eða kaldi og skúrir, heldur hægari í nótt. Hiti verður á bUinu 6 til 9 stig. Á landinu öllu verður norðlæg og síðar breytileg átt fram eftir morgni, víðast gola og rigning um norðanvert landið en sums staðar skúrir sunn- anlands. Síðan snýst vindur til vest- anáttar, víðast kaldi með skúrum um landið vestanvert an austan til á landinu léttir smám saman til síðdeg- is með suðvestan golu eða kalda. Lít- ið eitt kólnar í veðri. Veðrið í dag í morgun var norðangola eða breytileg átt og rigning um norðan- vert landið en sunnaniands var orðið úrkomulítið. Hiti var 4 til 7 stig á láglendi. Skammt út af Hornafirði er 997 mb lægö sem þokast mun norðvestur yfir landið í dag. Veðrið kl. 6 í morgun: Akureyri rigning 6 Egilsstaðir súld 6 Galtarviti rigning 4 Hjarðames skúr 7 Keflavíkurfhigvöllur skýjað 6 Kirkjubæjarklaustur skýjað 6 Raufarhöfn súld 5 Reykjavík rigning 6 Vestmannaeyjar hálfskýjað 6 Bergen skýjað 20 Helsinki léttskýjað 14 Kaupmannahöfn léttskýjað 18 Ósló léttskýjað 18 Stokkhólmur heiðskírt 17 Þórshöfn hrímþoka 10 Amsterdam súld 14 Barcelona léttskýjað 15 Berlín skýjað 20 Frankfurt skýjað 15 Glasgow skýjað 10 Hamborg skýjað 20 London mistur 13 Lúxemborg skýjað 12 Madrid háifskýjað 10 Malaga léttskýjað 18 Mallorca skýjað 19 Montreal skýjað 12 New York heiðskírt 18 Nuuk skýjað -1 París þokumóða 13 Róm skýjaö 21 Valencia léttskýjað 14 Vín skýjað 19 Winnipeg iéttskýjað 18 Veðrið kl. 6 í morgun „Síðastliðið eitt og hálft ár höfum við í frarakvæmdastjóminni verið að undirbúa hátíöína. Við leituðum eftir því áhugaverðasta og reynd- um aö ná því fólki hingað. Mitt starf felst í því að móta hátiðina í samvinnu við stjómina. Við höfum reynt að leggja áherslu á það að sem flestir geti notið Iiátíðarinnar og í þeirri viðleitni era nú, meðai annars, atriði á götum úti. Miða- verði hefur einnig verið stillt í hóf, það er nánast það sama og á síö- ustu Listahátíð, og það er alveg óliætt að fullyröa að það gefast ekki mörg tækifæri í heiminum til að sjá heimskunna listamenn fyrir þennan pening. Listahátíð á að vera fyrir alla,“ segir Helga Hjör- var, formaður framkvæmdastjóm- ar Listahátíðar. Helga er fædd á Kirkjubóli í Ön- undarfirði. Foreldrar hennar era Marsibil Bernharösdóttir og Helgi Vigfússon. Hún ólst upp í Laugar- Helga Hjörvar. neshverfinu í Reykjavík og gekk í Laugamesskólann. Síðan fór hún í Kvennaskólann og eftir þaö að vinna í Þjóðleíkhúsinu sem sæta- visa. Þar kviknaði leiklistaráhug- inn. Helga fór í Leiklistarskóla Leikfélags Reykjavíkur og útskrif- aðist 1966. Síðan hefur hún aöallega fengist við leiklistarkennslu, verið framkvæmdastjóri Bandalags is- lenskra leikfélaga og skólastjóri Leikiistarskóla íslands í níu ár. l júní sl. hætti hún sem skólastjóri Leiklistarskólans og er á leiðinni tii Danmerkur, þar sem hún tekur við stöðu framkvæmdastjóra fyrir norrænu leiklistar- og dansnefnd- ina. Maður Helgu er Úlfur Hjörvar rithöfundur og eiga þau tvö böm, Helga og Rósu Mariu. Reykjavíkur- deild RKÍ gengstfyrir námskeiði í skyndihjálp Reykjavíkurdeild Rauða kross íslands gengst fyrir námskeiði í skyndihjálp sem hefst í kvöld kl. 20 og stendur í 4 kvöld. Kennslu- dagar verða 3., 4., 9., og 10. júní. Námskeiðið verður haldið í Ár- múla 34,3. hæð (Múlabæ). Öllum 15 ára og eldri er heimil þátttaka. Fundir kvöldsins Þeir sem hafa áhuga á að komast á námskeiðið geta skráð sig í síma 688188. Meðal þess sem kennt verður á námskeiðinu er blást- ursmeðferðin, hjartahnoð, hjálp við brana, blæðingum, beinbrot- um og mörgu öðru. Einnig verður fjallað um það hvemig koma má í veg fyrir slys. Skák Heimsmeistarinn fyrrverandi, Mikhail Tal, var fljótur aö leiða þessa skák til lykta, en hún var tefld á opnu móti í Se- villa á Spáni eigi alls fyrir löngu. Tal hafði svart og átti leik gegn Gonzales: 26. - h5! og hvítur gafst upp. Drottningin faer ekki valdaö hvort tveggja í senn, hrókinn á dl og mátreitinn á g2 - hún er ofhlaðin störfum. Jón L. Árnason Bridge Sævar þorbjömsson og Karl Sigurhjart- arson voru ekki heppnir í þessu spih sem kom fyrir í landshðskeppni afmælismóts BR á fóstudag. NS fetuðu sig aUa leið upp í slemmu en vora svo óheppnir að velja 6 tígla sem lokasamning. Sex grönd, sex lauf og sex spaðar standa á spilin en í 6 tíglum voru aUtaf 2 gjafaslagir. Sagnir gengu þannig, vestur gjafari og a-v á hættu: ♦ K1082 V KG ♦ K1076 + 872 ♦ G6 V ÁD954 ♦ DG8 + 964 * ÁD5 V 3 ♦ Á953 + ÁKDG5 Vestur Norður Austur Suður Smolski Sævar Sowter Karl Pass Pass Pass 1+ l¥ Dobl 3f 4» Pass 4« Pass 5» Pass 64 p/h Bretamir trufluðu hraustlega sagnir þeirra Sævars og Karls en ekki er þó ljóst hvort þaö hefði breytt lokasamningnum. í spUinu var aUtaf gjafaslagur á tígul og hjartaás en í sex spöðum, laufum eða gröndum er ekki nauðsyn á að fá nema tvo slagi á tígul. Hinir slagimir koma þannig, 5 á lauf, 4 á spaða (úr því spaða- gosi er annar) og 1 á hjarta. Það má því með sanni segja að lánið hafi ekki leikið við Sævar og Karl. ísak örn Sigurðsson „Égheld ég gangi heim“ Eftir einn -ei aki neinn

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.