Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1992, Page 3
MIÐVIKUDAGUR 2. SEPTEMBER 1992.
3
Bærinn þinglýsti ekki
veði og tapar vélunum
Gylfi Kristjánssan, DV, Akuxeyri:
„Ég get ekki annað séð en veðkröf-
um Akureyrarbæjar í vélar og tæki
verksmiðjunnar verði hafnað, enda
uppfylla þær ekki þau skilyrði sem
þarf og eru byggðar á afar veikum
grunni. Veðinu var ekki þinglýst og
tilgreiningarreglu, sem skýrir veðiö
nánar, var ekki gætt. Það er ekki
búið aö lýsa þessum veðkröfum en
þær eru mjög vafasamar og mjög
ólíklegt að þær verði samþykktar,"
segir Þorsteinn Hjaltason, skipta-
stjóri þrotabús Skóverksmiðjunnar
Striksins á Akureyri.
Veðkröfur Akureyrarbæjar nema
um 10,5 milljónum króna á 1. veð-
rétti en á 2. veðrétti er íslandsbanki
með kröfur upp á um 15 milljónir.
Þorsteinn Hjaltason hefur auglýst
vélar og tæki þrotabúsins til sölu.
Hann hefur tilkynnt bæjarlögmanni
stöðu mála og segir að þaö sé nú
bæjarins að svara auglýsingunni eða
aðhafast eitthvað í málinu.
„Það virðist því miður vera þannig
í reynd að tryggingabréfið sé þannig
frá gengið að þar vanti þessa svoköll-
uðu sérgreiningu, þar sé einimgis
almennt orðalag og ekki skilgreint
nákvæmlega hvaða vélar og tæki eigi
í hlut. Hitt er annað að þessu bréfi
hefur ekki verið þinglýst. Ég hef enga
skýringu á hver ástæöan er,“ segir
Halldór Jónsson bæjarstjóri.
Halldór segir að ef skjalið heíði
verið fært til þinglýsingar hefði kom-
ið í ljós að það var ófullnægjandi. Þá
hefði væntanlega verið hægt að
ganga frá skjahnu á fullnægjandi
hátt. „Þetta er hlutur sem hefur gerst
fyrir um 4 árum en er jafnslæmt fyr-
ir það. Við munum í framhaldi af
þessu láta fara mjög nákvæmlega
ofan í okkar ábyrgðir og skjöl og
kanna hvort fleiri vankantar komi í
ljós. Ég hef enga ástæðu til að ætla
það en vil vita það með vissu.“
Rætt hefur verið um aö forsenda
þess að endurreisa skóverksmiðjuna
sé að bærinn leysti til sín vélar og
tæki hennar og legði fram sem hlut-
afé í nýtt fyrirtæki. Getur þetta ekki
þýtt endalok skóiðnaðar í bænum?
„Það kann að vera. Allar athuganir
Iðnþróunarfélagsins á endurreisn
verksmiðjunnar miðuðu við að vél-
arnar og tækin, sem reiknað var með
að Akureyrarbær heíði umráðarétt
yfir, yrðu lögð inn í fyrirtækið sem
hlutafé og bærinn hafði lýst yfir vilja
sínum að það gerðist. Það var skoðun
bæjarins að þetta væri sá stuðningur
sem hann gæti lagt fram, fjárframlög
væru ekki inni í myndinni. Sam-
kvæmt því, og ef þetta fer þannig að
vélamar fara annaö, hefur bærinn
ekki möguleika á að leggja þau inn.
Þetta setur því óhjákvæmilega strik
í þann undirbúning sem Iðnþróunar-
félagið hefur unnið,“ sagði Halldór.
Hallbjöm af stað með útvarpsstöð
„Tækin eru einhvers staðar á leiö-
inni til landsins frá Bandaríkjunum.
Ég er að láta mig dreyma um að fara
af staö með stöðina um næstu mán-
aðamót,“ sagði Hallbjörn Hjartarson,
kántrífrömuður á Skagaströnd, við
DV. Hann er að setja á stofn útvarps-
stöð, sem hefur þegar hlotið nafn:
„Útvarp Kántrýbær." Hún mun
senda út á FM 100,7. Félagið, sem
rekur stöðina, heitir „Villta vestrið,
Skagaströnd." Stofnandi er fjöl-
skylda Hallbjamar.
„Ég veit ekki alveg á hversu stóru
svæði sendingar stöðvarinnar koma
til með að nást,“ sagði Hallbjörn. „Ég
er með leyfi fyrir Austur- og Vestur-
Húnavatnssýslur og Strandirnar á
móti. Þetta er frekar erfitt svæði,
mikið af fjöllum, þannig að það verð-
ur bara að koma í ljós hvað sending-
amar koma til með að nást víða þeg-
ar ég byrja að senda út.“
Hallbjörn sagðist ætla að spila ein-
tómt kántrí á stöðinni. Hugmyndin
væri aö fjármagna reksturinn með
auglýsingum. „Þetta dæmi er orðið
einum of dýrt,“ sagði hann. „Spurðu
mig ekki hvað það kostar."
Hann sagði ennfremur að draum-
urinn um að sefja upp útvarpsstöð
væri búinn að blunda í sér í nokkur
undanfarin ár. Rétt fyrir áramót í
fyrra hefði har.n svo sótt um útvarps-
leyfi og fengið það í febrúar síðast-
liðnum.
„Upphaflega ætlaði ég mér að
reyna að kaupa góð, notuð tæki en
það gekk ekki upp. Ég ákvað þá að
kaupa nýjan búnað. í fyrstunni verð-
ur eingöngu um að ræða helgarstöð
sem mun senda út fóstudaga, laugar-
daga og sunnudaga frá klukkan sex
á daginn til tvö á nóttunni. Með
hækkandi sól ætla ég svo að lengja
útsendingartímann þannig að hann
verði frá klukkan tvö að deginum til
tvö á nóttunni. Ég verð sjálfur við
þetta til að byrja með en ætla svo að
vona að ég fái einhvern sjálfboðaliða
í þetta með mér.“
-JSS
Tilkynnt var um innbrot i inn-
ílutningsfyrirtæki við Bíldshöfða
í Reykjavík á mánudag. Talið er
aö innbrotiö hafi verið framið
nóttina áöur. Kynæsandi undir-
fatnaði af franskri tegund var
stolið úr fvrirtækinu, auk ann-
arrar vöru.
RLR leitar nú að undirfotunum
og þeim sem tóku þau ófrjálsri
hendi, -bjb
Teknirmeðhass
Tveir ungir karlmenn, 26 ára
og 21 árs, voru handteknir á
Rauðarárstíg síödegis á mánu-
dag, grunaðir um aö vera með
fíkniefni í fórum sinum. Lítill
hassmoli fannst á öðrum mann-
inum. Mennimir vom stöðvaöir
á bíl sem þeir voru að koraa á frá
Akranesi. Fíkniefnalögreglan tók
mennina til yfirheyrslu. Þeim var
sleppt eftir aö hafa viðurkennt
eignaraðildáhassinu. -bjb
VínifyrirlOO
þúsundstolið
'l'ilkynnt var um innbrot í veit-
ingahúsið Þrjá Frakka við Bald-
ursgötu í Reykjavík í gærmorg-
un. Meðal þess sem saknaö var
vom vínbirgðir að verðmæti um
100 þúsund krónur, að talið er,
og eitthvað af skiptimynt. Málið
er í rannsókn hjá RLR. -bjb
SIÐUSTU
DAGAR
HUNDADAGAR
VIDEÓTÖKUVÉLAR
VIDEOTÆKl
NÚ FER HVER AÐ VERÐA SÍÐASTUR AÐ FJÁRFESTA f VIDEÓTÖKUVÉL Á HUNDA-
DÖGUNUM í JAPIS. VÉLARNAR ERU FÁANLEGAR f MIKLU ÚRVALI FRÁ KR. 49.900
VIDEÓTÆKI OG VIDEÓTÖKUVÉLAR Á HUNDADAGAVERÐI SVO SANNARLEGA HUNDÓDÝRT
Tjarnarkirkja í Svarfaðardal var endurvígð með hátíðarmessu á sunnudag-
inn eftir miklar endurbætur. Upphaflega var kirkjan vígð 5. júni 1892. Við-
staddir voru biskup íslands, herra Ólafur Skúlason, vígslubiskup, prófastur
og prestar úr prófastsdæminu. Búist er við að kostnaður við endurbæturn-
ar verði 5 til 6 milljónir króna. DV-mynd Heimir Kristinsson
VIDEOVÉLAR F U L LT VERD HUNDADAGA VERD
1 Panasonic G-1 VHSc 8xzoom 73.500 49.900
I Panasonic G-2 VHSc m/ljósi 84.500 64.900
I Panasonic G-3 VHSc m/lita monit. 99.700 69.700
I Panasonic MS-70 S-VHSc sterío 124.900 79.900
I Panasonic M-10 VHS sterío 128.600 99.800
Fréttir
Akureyrarbær átti 10,5 milljón króna kröfu í Skóverksmiðjuna Strikið:
Veiðivörðurinn á Amarvatnsheiði,
Snorri Jóhannesson á Augastöðum,
kom að dauðu lambi, sem hafði verið
skotið með öflugum riffilskotum, við
vegarslóða á heiðinni í síðustu viku.
Veiðivörðurinn náði til tveggja
manna úr Reykjavík sem sögðust
vera gæsaskyttur á ferðalagi. Skytt-
umar viðurkenndu verknaðinn.
„Þeir sáu lamb sem þeir sögðu að
hefði verið þjáð og átt erfitt með
hreyfingar. Þeir skutu lambið en láð-
ist að láta vita af því þegar þeir komu
til byggða. Skyttumar sögðust hafa
tekið atburðinn upp á myndband. Ég
bíð spenntur eftir bíóinu,“ sagði
Snorri veiðivörður í samtali við DV.
Auk lambhræsins fann Snorri
nokkra dauða fugla í eftirlitsferð
Gæsaskyttur skutu sært lamb
sinni upp á Amarvatnsheiði en með-
ferð skotvopna er algjörlega bönnuð
á þessum slóðum.
„Mér finnst eðlilegast að menn láti
vita í byggð ef þeir sjá skepnur í sár-
um. Mér varð nú að orði að það væri
eins gott að ganga ekki haltur fram-
hjá svona mönnum,“ sagði Snorri.
Eigandi lambsins er Ármann
Bjamason, bóndi á Kjalvarastöðum.
Ármann sagði í samtali við blaðið að
hann væri engan veginn sáttiu: við
athæfi skyttnanna. „Eg er að athuga
hvort ég kæri mennina eða ekki og
mun ráðfæra mig við lögregluna í
Borgarnesi. Hafi þeir tekið aftökuna
upp á myndband þá verða þeir bara
að leggja hana fram sem sönnunar-
gagnefégleggframkæra." -bjb
HUNDADAGA
F U L LT
VERD
VIDEOTÆKI
VERÐ
30.000
48.000
00.300
Panasonic J-40 VHS 3.hausa 49.900
Panasonic J-45 VHS NTSC 4.hausa 57.800
Panasonic FS-90 SVHS HiFi 4.hausa 128.600
V*rðm nér að ofan
óast wíð ataðgraiði
iðalu
mið
JAPIS
brautarhol.tr og kringlunni s