Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1992, Page 20
40
MIÐVIKUDAGUR 2. SEPTEMBER 1992.
Iþróttir unglinga
Úrslitaleikurinn 1 f slandsmóti 3. flokks karla:
Opinn leikur en
dómarinn lokaður
- Fram sigraði ÍBV, 5-4, eftir framlengingu
Fram varð íslandsmeistari í 3.
flokki karla eftir sigur í æsispenn-
andi úrslitaleik gegn ÍBV á Valbjam-
arvelli sl. sunnudag. Eftir venjuleg-
an leiktíma var jafnt, 3-3, og þurfti
því að framlengja leikinn um 2x10
mínútur. í framlengingunni var
jafnt, 4-4, þegar langt var liöið á
seinni hálfleik og allt útlit fyrir að
spila þyrfti annan leik. En þá kom
sigurmark Fram, Þorbjöm Sveins-
son slapp í gegn og skoraði af öryggi
og lokatölur 5-4 fyrir Fram.
ósigurinn i bikarúrslitaleiknum
gegn KR. Það hefði verið rosalegt að
tapa þessum leik líka. Baráttan var
svakaleg og ég hef aldrei lent í öðm
eins. - Jú, ég var orðinn svolítið
smeykur þegar staðan var 3-2 fyrir
IBV og um 3 mínútur eftir af venju-
legum leiktíma en Runólfur bjargaði
málunum," sagði Jóhann.
Slök dómgæsla
Leikur liðanna var geysilega jafn
og spennandi en um leið grófur og
harkan langt umfram það sem
leyfilegt getur talist og kom það að
sjálfsögðu niður á gæðum leiksins.
Dómarinn, Guðmundur Jónsson,
hafði engin tök á leiknum og yrði
allt of langt mál að telja upp öll þau
mistök sem hann gerði. Spyrja má
hvemig í ósköpunum landsdómari,
eins og Guðmundur er, getur sýnt
jafnslaka frammistöðu? Eða eru
kröfur forystumanna dómaramála
um hæfni ekki meiri en þetta?
-Hson
n _
Ét. 4iB&f ..
Viðburðaríkt augnablik frá úrslitaleik Fram og ÍBV í 3. flokki. Það eru
3 mínútur eftir af venjulegum leiktima og staðan 3-2 fyrir ÍBV. Hér er
í uppsiglingu jöfnunarmark Fram. Fjærst á myndinni er Runólfur G.
Benediktsson, vinstri bakvörðurinn sterki hjá Fram - og er hann nýbú-
inn að skalla boltann yfir markvörð ÍBV og í bláhornið. Ekki verður
betur séð en að drengurinn sé bara harla ánægður með árangurinn.
íslandsmeistarar Fram f 3. flokki 1992. Liðið er þannig skipað: Helgi Áss Grétarsson, Rúnar Agústsson,
Fylkisstrákarnir urðu íslandsmeistarar i 5. flokki 1992. B-lið, i fremri röð frá vinstri: Guðjón Hafliðason, Guðjón Örn Björnsson, Valdimar Hrannar
Þórsson, Sigurgeir Andrésson, Hörður I. Harðarson, Bogi Guðmundsson, Árni Torfason, Guðmundur Hauksson, Reynir Jónsson, Sveinn Teitur
Svanþórsson og Haukur Sigurvins. - A-lið, I aftari röð frá vinstri: Ófeigur Jóhann Guðjónsson, Magnús Jónsson, Björn Viðar Ásbjörnsson, Jón
Björgvin Hermannsson, Páll Ármann Þorsteinsson, Róbert Gunnarsson, Theódór Óskarsson, Arnar Þór Úlfarsson, Guðmundur Kristjánsson, Finn-
ur Marinó Flosason, Gunnar Arnar Gunnarsson og Valur Sveinbjörnsson. í bakgrunni er þjálfari strákanna, Þórir Sigfússon.
DV-myndir Hson
Úrslitaleikur íslandsmótsins í 5. flokki:
Fylkir meistari
í fyrsta skipti
Markaregn
Leikurinn var mjög opinn og þvi
skoraö mikið. Þaö voru Eyjamenn
sem gerðu fyrsta markið. Emil And-
ersen (Malli) fékk sendingu í opnu
færi og skoraöi með föstu skoti.
Skömmu seinna jafnaði Hörður
Rúnar Gíslason fyrir Fram eftir góð-
an undirbúning Þorbjöms Sveins-
sonar. Stuttu seinna var dæmd mjög
umdeilanleg vítaspyma á Eyjamenn
sem Þorbjörn Sveinsson afgreiddi í
netið af öryggi og staðan allt í einu
2-1 fyrir Fram. Ingólfur Jóhannes-
son jafnaði síðan fyrir IBV, 2-2.
Eyjapeyjar skomðu líka næsta
mark, sem yar glæsilegt, og var það
Sigurvin Olafsson sem afgreiddi
boltann með fóstu skoti undir slána
af um 40 metra færi. Sennilega hefur
Helgi Ass í marki Fram verið helst
til framarlega. Staðan var orðin 3-2
fyrir IBV og stutt til leiksloka en
þegar um 3 mínútur vom eftir af
leiknum gerði Runólfur G. Bene-
diktsson jöfnunarmarkið með glæsi-
legum skallabolta í bláhomið eftir
fyrirgjöf. Staðan var þvi 3-3 eftir
vepjulegan leiktíma.
I framlengingunni náðu Eyjamenn
fljótlega forystunni, 4-3, .með fostu
skallamarki Sigurvins Olafssonar.
Hörður Rúnar Gíslason jafnaði, 4-4,
og undir lokin kom sigurmark
FÝamara í þessum mikla baráttu-
leik. Þorbjörn Sveinsson slapp í gegn
um vöm Eyjamanna og skoraði með
fóstu skoti.
Nálægt sigri
Sigurvin Ólafsson, fynrliði 3. flokks
IBV, var að vonum niöurlútur eftir
hið nauma tap.
„Við töpuðum fyrir Fram úti í
Eyjum eftir vítaspymukeppni og svo
núna, 5-4. Okkur ætlar að ganga illa
með þessa Framara, annars vorum
við ansi nálægt sigri í þessum leik
og vítaspymudómurinn á okkur í
fyrri háfileik var hreint út í loftið.
Anægður með okkar leik? - spyrö
þú - því er til að svara aö ég er aldr-
ei ánægður með að tapa leík,“ sagði
Sigurvin.
Rosaleg barátta
Jóhann Wathne, fyrirliði 3. flokks
Fram, var kampakátur yfir sigrin-
um.
„Þetta er æðisleg uppreisn eftir
Umsjón:
Halldór Halldórsson
Fylkir varð íslandsmeistari í 5.
flokki karla þegar þeir sigruðu
Fram, 2-1, í B-Iiði og 1-0 í A-liði.
Leikurinn fór fram á Þróttacvelli sl.
sunnudag. Framarar urðu Islands-
meistarar í fyrra en þetta er aftur á
móti í fyrsta skipti sem Fylkir sigrar
í Islandsmóti 5. flokks og er við hæfi
aö óska Árbæjarfélaginu til ham-
ingju með áfangann. Fótboltinn, sem
strákamir sýndu, var frábær og
tækni jjeirra mjög góð - enda er allt
unglingastarf til mikillar fyrir-
myndar hjá báöum þessum félögum.
Leikur B-liða
B-liðs leikurinn fór fram á undan
og var hart barist. Fylkir náði for-
ystu með frábæm marki Guðjóns
Hafliðasonar sem fékk góða send-
ingu frá Valdimar Þórssyni. Þannig
var staðan í hálfleik. Framarar byrj-
uðu af miklum krafti síðari hálfleik-
inn og jöfnuðu með glæsimarki
Trausta Jósteinssonar. Stuttu
seinna náðu Fylkisstrákamir aftur
forystu þegar Guðmundur Hauks-
son skoraöi með fostu skoti sem
reyndist vera sigurmarkið. Sigur
Fylkis var réttlátur því þeir áttu
hættulegri færi en þaö var eins og
Framliðið kæmist aldrei almenni-
lega í gang.
Leikur A-liða
Jafnræði var með liðunum framan
af og allt gat gerst. En smátt og smátt
tókst Fylki að ná yfirtökunum en
misnotuöu góð marktækifæri. Eina
mark leiksins og sigurmark Fylkis
geröi Theódór Oskarsson í síðari
hálfleik eftir aö hafa fengið mjög
góða stungusendingu inn fyrir vöm
Framara. Eins og í leik B-liöanna var
Fylkishöið meira með boltann og
verðskuldaði sigurinn. Sennilega er
þetta með lakari leikjum A-ljös Fram
I sumar. Viö skulum þó ekki gleyma
því aö Fylkir vann Fram bæöi i
Essó-mótinu á KA-velli og í Reykja-
vikurmótinu.
Magnús Jónsson, fyrirliði A-liðs
5. flokks Fylkis, lyftir hér hinum
dýrmæta grip á loft.
Vinnum þá bara næst
Viðar Guðjónsson, fyrirliði A-liðs 5.
flokks Fram, var ekki ánægður með
frammistöðu liðsins:
„Það var allt í lagi með fyrri hálf-
leikinn en sá seinni var mjög slakur
hjá okkur. Eg veit ekki hvað var eig-
inlega að hja okkur, það gekk ekk-
ert. Við tökum þá bara næst. Eg óska
bara Fylkisstrakunum til hamingju
með titilinn,“ sagði Viöar.
Ákveðnir að vinna
Magnús Jónsson, fyrirliði A-liðs 5.
flokks Fylkis, var að vonum ánægð-
ur með Islandsmeistaratitilinn:
„Við vorum mjög ákveðnir og var
þjálfarinn búinn aö segja okkur að
vinna bara leikinn - og gerðum viö
það bara fyrir hann og svo auövitað
okkur lika. Þórir er nefnilega alveg
frábær þjálfari," sagði Magnús.
Gamanað skora sigurmark
Theódór Oskarsson skoraði sigur-
mark Fylkis í A-liðs leiknum:
„Jú, þaö var. frábært að sjáboltann
fara í netið. Eg hef gert sex mörk í
Islandsmótinu. Viö vorum klaufar
að skora ekki fleiri mörk. Jú, þetta
mark er það dýrmætasta sem ég hef
gert,“ sagði Theódór. -Hson
Runólfur G. Benediktsson, Jóhann Wathne, fyrirliöi, Páll H. Pátsson, Haukur Björnsson, Kristján R. Kristjáns-
son, Þorbjörn Svelnsson, Grimur Axelsson, Hörður R. Gislason, Lárus ívarsson, Ingi R. Júlíusson, Vilhjálmur
Þ. Arnarson, Guðmundur K. Guðmundsson, Sverrir S. Ingimundarson og Bragi Viðarsson. Þjálfari er Vilhjálm-
ur ö. Sigurhjartarson. Liðsstjórar eru þeir Svavar Hilmarsson, Steingrfmur Benedlktsson og Skúli Sighvatsson.