Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1992, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1992, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 1992. Svipmyndin Hver er maðurinn? Sá sem svipmyndin er af er stór- vaxinn. Hann er 109 kílógrömm á þyngd og 193 sentímetrar á hæð. Og hann notar skó númer 46. Hárið er byrjað að þynnast á hvirflinum. Hann er örvhentur. Þegar við sáum hann í sjónvarpi var hann með úr á báðum úlnliðum svo hann gæti betur gert sér grein fyrir því hvað tímanum liði í Bandaríkjun- um. Opinber lýsing á honum segir hann vera með greindarvísitöluna 170. Samstarfsmenn hans segja að minni hans sé ótrúlegt, hann gleymi aldrei neinu sem honum sé sagt. Sá sem kemur með nýja út- gáfu af einhverju sem hann hefur sagt áður þarf því að hafa skýringu á reiðum höndum. Mörgum finnst hann vera mikil hetja. Hann hefur öðlast mikinn frama og mikið veriö hylltur. En margir hafa andúð á honum. Sá sem svipmyndin er af fæddist 22. ágúst 1934. Faðir hans var of- ursti en hafði verið gerður að lög- reglustjóra í New Jersey. Ofurstinn var önnum kafinn þeg- ar sonurinn fæddist. Hann stjóm- aði leitinni að þeim sem rændu bami Charles Lindberghs. Málið vakti gífurlega athygli í Bandaríkjunum en bamið fannst látið þótt Lindbergh hefði heitið háu lausnargjaldi. Um mánuði eftir að sá fæddist sem hér er lýst var þýskur innflytj- andi, Brano Hauptmann að nafni, handtekinn. Hann var síðar dæmd- ur til dauða fyrir bamsránið. Of- urstinn sætti mikilli gagnrýni fyrir þátt sinn í rannsókn málsins. Margir höfðu um það miklar efa- semdir að Bruno Hauptmann hefði verið sá seki. Nám í Evrópu Árið 1941 gerðust Bandaríkin þátttakandi í síðari heimsstyijöld- inni. Ofurstinn var þá sendur til írans. Þar fékk hann það verkefni að skipuleggja öryggissveitir sem í vora 21.000 manns. Þær bældu nið- ur uppreisn kommúnista í norður- hiuta landsins í lok styijaldarinn- ar, árið 1945. Nokkra síðar fluttist fjölskylda ofurstans til írans. Sá sem svip- myndin er af gladdist mjög yfir því að fá aö sjá föður sinn á ný. Þá var hann ellefu ára. Ofurstinn fór með son sinn í lang- ar útreiðarferðir um eyðimörkina. Þar kenndi hann honum að skjóta af margs konar byssum. Saman fóra þeir á veiðar. Þeim sem lýst er hér tókst aö læra nokkuð í máli landsmanna.______________________ Eftir nokkur ár var ofurstinn fluttur til. Þess vegna hóf sá sem svipmyndin er af skólagöngu í Evr- ópu. í árslok 1951 fluttist fjölskyld- an aftur heim til Bandaríkjanna. Sá sem hér er fjallað um var ekki í neinum vandræðum að velja sér starf. Auövitað vildi hann feta í fót- spor föðurins og gerast hermaður. Þar eð hann var velgefinri veitt- ist honum námið létt. I frístundum stundaði hann margs konar íþrótt- ir, þar á meðal lyftingar. Hann var tónelskur og varð tenórsöngvari í herskólakómum. ÍVíetnam í ágúst 1965 var hann orðinn majór. Þá fékk hann lífshættulegt verkefni í Víetnam. Hann leiddi fámennt hö en skyndilega var það umkringt af skæruliðum nálægt landmæram Kambódíu. Varpa varð öllum nauðsynjum til mannanna niður í faUhlíf. Óvinim- ir gerðu árásir dag og nótt. Liðið varð fyrir miklu mannfalli. Það var fyrst eftir nokkurra vikna umsátur að liðsauki barst. Þá flúði liðið frá Norður-Víetnam aftur yfir landamærin. Þetta var tahnn stórsigur. Banda- ríski yfirhershöfðinginn Wilham Westmoreland eygði möguleika á að vekja á sér athygli. Hann flaug í þyrlu th búðanna sem umsetnar höfðu verið. í kjölfar þess var mik- ið um máhð fjahað í sjónvarpi. „Hver stjórnar hér?“ spuröi Westmoreland. Sá sem svipmyndin er af kynnti sig. „Hvemig er maturinn?" spurði hershöfðinginn. Sá sem hér er lýst sagöi að menn hans hefðu vart haldið lífi af því sem hægt hafði verið að kasta niður til þeirra því það hefði veriö svo naumt. Margar flugvélar hefðu verið skotnar niður. „Hvemig hefur gengið að fá póst- inn?“ spurði hershöfðingin að síö- ustu. Sá sem svipmyndin er af var orð- laus. Hann hafði misst 60 af þeim 400 mönnum sem hann hafði haft undir sinni stjóm. Svo kom Westmoreland og spurði um póstflutninga. Sá sem hér er lýst komst lifandi frá Víetnam. Mörgum árum síðar sjórnaði hann sjálfur mikilh hernaðarað- gerð. Þá kynntumst við honum í sjónvarpi, enda varð hann heiiris- þekktur. Hver er hann? Svar á bls. 56 Matgæðingur vikuimar_r Ljómandi humarréttur Siguijón Aðalsteinsson, rekstrarfræðingur hjá út- gerðarfélaginu Eyjavík í Vestmannaeyjum, býður les- endum upp á ljómandi humarrétt. Siguijón segist af og til taka th potta og pönnur og elda fyrir sambýhs- konu sína og gesti. „En ég nenni því ekki nema eitt- hvað sérstakt sé á pijónunum. Ég nenni ekki að sjóða ýsu.“ Siguijón segist hafa gaman af að elda ahs kyns sjáv- arrétti en annars borði hann og sambýhskonan tölu- vert af pasta. „Það er annars hægt að gera svo margt gott við æti úr sjónum, möguieikamir era endalausir. Einn möguleikinn er þessi ljúffengi humarréttur," seg- ir Siguijón. Þettaþarf Uppskriftin er miðuö við fjóra 600 g humar (má nota skötusel) 2 meðalstórir laukar 2 rauöar paprikur 1-2 niðurskorin eph 14 dós ananas 2,5 dl ijómi aromat-krydd fiskikrydd marinn hvitlaukur smjör th steikingar Ápönnuna Humarinn er steiktur í smjöri í 1-2 mínútur á hvorri hhö. Hann er kryddaður með aromat, fiskikryddi og hvítlauk. Þá er hann tekinn af og laukurinn, papr- ikan, ephn og ananasinn steikt létt í smjörinu. Þá er humamum bætt út í, rjómanum heht yfir og látið Sigurjón Aðalsteinsson. krauma smástund. Sósan er þykkt eftir smekk með sósujafnara. Með þessum rétti segir Siguijón gott að bera fram ristað brauð eða hvítlauksbrauð, ferskt salat og soðin hrísgrjón. „Gott er að setja í þau smásmjörklípu, papr- iku og saxaðan lauk,“ segir Siguijón og bætir viö að vatn eða svalt hvítvín sé thvahð með humarréttinum. Siguijón skorar á Grím Gíslason, fiskverkanda og mathák í Eyjum, að vera matgæðingur næstu viku. Hinhliöin Saga Jónsdóttir, markaðsstjóri LR: Alltaf gaman í leikhúsinu Haustin eru einn annasamasti tíminn í leikhúsunum og því hefur Saga Jónsdóttir, markaðs- og sölu- stjóri Leikfélags Reykjavíkur, í mörgu að snúast þessa dagana. Borgarleikhúsið opnaði um miðjan ágúst eftir tveggja mánaða sumar- lokun og sýningar era þegar hafn- ar. Saga hefur verið markaðsstjóri Leikfélags Reykjavíkur í þijú ár og kann vel við starfið. „Það er mjög krefjanch en skemmtilegt og fjöl- breythegt. Það er ahtaf gaman að vera í leikhúsinu," segir hún. Saga starfaði sem leikari og leikstjóri í rúm tuttugu ár. Síðan vann hún í nokkur ár á Stöð 2. Þar stjómaði hún sjónvarpsþáttum, samdi bamaefni og las inn á bamaefni. Fullt nafn: Saga Geirdal Jónsdóttir. Fæðingardagur og ár:28. júh 1948. Maki: Enginn. Böm: Þrír strákar. Bifreið: Cho Renault ’91. Starf: Markaðs- og sölusljóri hjá Leikfélagi Reykjavíkur. Laun: í lagi. Áhugamál: Ég er svo mikið í leik- húsinu að þaö er htill tími fyrir annað. Þegar tími gefst þykir mér gaman að fara í ferðalög, bæði inn- anlands og utan. Hvað hefur þú fengið margar réttar tölur í lottóinu: Fjórar. Hvað finnst þér skemmtilegast að gera? Mér þykir skemmtilegt að hafa mikið aö gera. Svo er það mjög skemmthegt aö leika og vinna í sambandi við leikhstina. Hvað finnst þér leiðinlegast að Saga Jónsdóttir. gera? Taka th. Uppáhaldsmatur: Soðin ýsa með nýjum kartöflum og hamsatólg og rúgbrauði frá bróður mínum sem hann bakar í hver á Laugarvatni. Uppáhaldsdrykkur: Vatn. Hvaða íþróttamaður finnst þér standa fremstur í dag? Árangur ólympíuhðs fatlaðra og þroska- heftra var stórglæshegur. Ég get ekki nefnt neinn sérstakan íþrótta- mann í hðinu umfram annan. Uppáhaldstimarit: Ekkert. Hver er fallegasti karl sem þú hefur séð? Kvikmyndaleikarinn Armand Assante. Ertu hlynnt eða andvíg ríkisstjórn- inni? Heldur andvíg. Hvaða persónu langar þig mest að hitta? Ánthony Hopkins. Uppáhaldsleikari: Ég hef uppáhald á þeim sem gerir vel hveiju sinni en Anthony Hopkins þykir mér ahtaf rosalega góöur. Uppáhaldsleikkona: Shirley Mcla- ine. Uppáhaldssöngvari: Placido Dom- ingo. Uppáhaldsstjórnmálamaður: Eng- inn sérstakur. Uppáhaldsteiknimyndapersóna: Denni dæmalausi. Uppáhaldssjónvarpsefni: Ég horfi ahtaf á fréttir. Svo þykir mér ágætt að horfa á góðar fræðslu- og dýra- lífsmyndir og léttar spennumyndir. Ertu hlynnt eða andvíg veru vam- arliðsins hér á landi? Andvíg. Hver útvarpsrásanna finnst þér best? Ég hlusta mest á gömlu guf- una, bæði rás 1 og 2. Uppáhaldsútvarpsmaður: Stefán Jón Hafstein var ágætur. Hvort horfir þú meira á Sjónvarpið eða Stöð 2? Það er nokkuð álika. Uppáhaldssjónvarpsmaður: Bjarni Fehxson. Uppáhaldsskemmtistaður: Ég á engan. Uppáhaldsfélag í íþróttum: Ég er ahtaf dáhtið veik fyrir KA og Þór af því að ég er að norðan. Stefnir þú að einhveiju sérstöku í framtíðinni? Að rækta garðinn mirin, í óeiginlegri merkingu. Hvað gerðir þú í sumarfríinu? Ég fór th grísku eyjarinnar Korfu og þar var mjög gott að vera. -IBS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.