Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1992, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1992, Blaðsíða 16
16 LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 1992. Skák „Mörg ævintýri" í tíundu einvígisskákinni í Sveti Stefan: Spasskíj þurfti að þræða einstigi - til að ná einu jafntefli í fimm skákum Nú fer að líöa að því að Fischer og Spasskíj taki upp þráðinn að nýju eftir vikuhlé en seinni hluti einvígis þeirra fer fram í Belgrad. Fischer heftu- unnið fjórar af fimm síöustu skákum, staðan er 5-2 og Spasskíj kvartar undan þreytu og slæmri heilsu. Úrslitin virðast svo gott sem ráðin. En nú hefur Spasskíj loks fengið tækifæri til að hvílast og á nýjum stað gæti andinn komið yfir hann. Það var einmitt í Belgrad sem Spasskíj tefldi frægt einvígi við Kortsnoj 1978, þar sem honum tókst að vinna fjórar skákir í röð þegar öllu virtist lokið. Athyglisvert er að bera stöðuna í einvíginu saman við stöðuna eftir jafnmargar skákir í Reykjavík fyrir tuttugu árum. Eftir eliefu tefldar skákir þá (Fischer mætti ekki í 2. skákina) hafði Fischer unnið fimm skákir, Spasskíj tvær en fjórum hafði lyktað með jafntefli. Staðan nú er nákvæmlega sú sama. Ekkert hefur breyst á tuttugu árum! Fischer hefur unnið fjórar skákir af síðustu fimm. Hann er þekktur fyrir að semja aldrei um jafntefli á ótefldar skákir - hér í eina tíð kom fyrir að hann hló aö andstæðingum sem gerðust svo djarfir að bjóða honum jafntefli. Hann er laginn við endatöflin og tekst að skapa sér vinningsfæri úr htlu efni. Þessu komst Spasskíj að í 10. skákinni sem virtist lengstum gefa Fischer afar litla vinningsvon. En Fischer þæfði taflið áfram og undir lokin þurfti Spasskíj að þræða einstigi til að halda jafntefli. „Þetta var góð skák - mörg ævin- týri,“ sagði Spasskíj að henni lok- inni og Fischer hrósaði vamartafl- mennsku hans. Tíunda einvígisskákin Hvitt: Borís Spasskíj Svart: Bobby Fischer Nimzo-indversk vörn. 1. d4 RfB 2. c4e63. Rc3 Bb4 4. Dc2 Þessi sígildi leikur átti vinsæld- um að fagna á árunum fyrir 1950 en lá síöan í þagnargildi í allmörg ár. Það er einkum fyrir tilstHli heimsmeistarans Kasparovs sem leikurinn er orðinn vinsæll á ný. Fischer hefur aldrei fyrr þurft aö glíma við leikinn á sínum skákferli en með svarleiknum tekst honum að skipta yfir í svonefht Ragozin- afhrigði af drottningarbragöi sem hann beitti gjaman á áram áður. 4. - d5 5. cxd5 exd5 6. Bg5 h6 7. Bh4 Til skamms tíma var þetta álitinn slæmur kostur vegna framhaldsins 7. - C5 8. 0-0-0 Bxc3 9. Dxc3 g5 10. Bg3 cxd4! 11. Dxd4 Rc6 12. Da4 Bf5 13. e3 Hc8 sem gaf Botvinnik skjót- an sigur í skák við Keres 1941. Síð- an var leikiö 8. e3 (í stað þess að hróka langt), eins og t.a.m. Friðrik Ólafsson gerði í frægri skák viö Fischer í Portoroz 1958 og vann glæsilega. Næsti leikur Spasskijs er nýlega kominn fram á sjónar- sviðið og varpar enn nýju ljósi á afbrigðið. 7. - c5 8. dxc5!? Rc6 9. e3 g5 10. Bg3 Da5 Eftir 10. - Re4 11. Rf3 DfB hristi Kasparov nýjungina 12. Bb5! fram úr erminni gegn Spasskij sjálfum i Linares 1990 og náði betra tafli. 11. Rf3 Re4 12. Rd2 Rxc3 Enn þræða þeir troðnar slóðir.! Fischer hefur unnið fjórar af fimm siðustu skákum þeirra Spasskíj í Sveti Stefan og staðan er 5-2 og þó úrslitin virðist svo gott sem ráðin getur allt gerst enn. Frægt er einvígi Spasskfjs við Kortsnoj i Belgrad 1978 þegar Spasskíj vann fjórar skókir i röð er fokið virtist í flest skjól. Simamynd Reuter Annar kostur er 12. - Rxd213. Dxd2 Be6 og eftir 14. Hcl? d4! 15. exd4 0-0-0 náði svartur öflugri sókn í skákinni Drasko - Maksimovic í Júgóslavíu í fyrra. Þetta afbrigði var verkefni nemenda minna í Skákskóla íslands sl. vetur og þeir vom fljótir að skella skuldinni á 14. leik hvíts - efdr 14. Bb5 em möguleikar hvíts betri. 13. bxc3 Bxc3 14. Hbl Dxc5! Fischer er vel með á nótunum og lætur ekki rússneska skákskýr- endur slá ryki í augu sín! í skák- inni Glek - Juferov, Sovétríkin 1989, var leikið 14 - a6? 15. Bd6 og hvítur náði betri stöðu. Glek segir í skýringum í Ljóstra að leik Fisc- hers megi svara meö 15. Hb5 með mun betra tafli á hvítt 15. Hb5 Da3! 16. Hb3 Bxd2+ 17. Dxd2 Da5 Nú Uggur beint við að leika 18. Dxa5 Rxa519. Hb5 og næst 20. Hxd5 er hvítur vinnur peðið til baka og taflið er nokkum veginn í jafn- vægi. Ákvörðun Spasskíjs kemur verulega á óvart og verður ekki skýrð öðmvísi en svo að hann hafi veriö búinn að fá nóg eftir aö hafa tapað þremur skákum í röö. 18. Bb5 Dxd2+ 19. Kxd2 Bd7 20. Bxc6 Bxc6 X Sf X lAl k £ k k : A £ A á? A A A s það að verkum að erfitt er fyrir Fischer að kreista vinning úr stöð- unnL'Hann er hins vegar þekktur fyrir allt annað en að semja jafn- tefli á ótefld töfl og því hefur Spasskíj mátt gera ráð fyrir því að þurfa að hafa fyrir hlutunum. 21. h4 Ke7 22. Be5 f6 23. Bd4 g4 24. Hcl Ke6 25. Hb4 h5 26. Hc3 Hhc8 27. a4 b6 28. Kc2 Be8 29. Kb2 Hxc3 30. Bxc3 Hc8 31. e4! Með óbreyttri peðastöðunni gæti Fischer í ýmsum tilvikum átt vinn- ingsfæri eför hrókakaup - kóngur- inn gæti gert usla á kóngsvængn- um. Eftir uppskipti á e- og d-peðun- um er útilokað fyrir hann að vinna ef hrókamir fara af borðinu. Hvit- ur stillir peðum sínum upp á h4, g3 og f2 og með biskupinn á e3 kemst svartur ekki í gegn. Kóngur hvíts getur því einbeitt sér aö drottningarvængnum. 31. - Bc6 32. exd5 Bxd5 33. Bd4 Kd5 34. Bd4 Kd5 35. Be3 Hc7 36. Kc3 f5 37. Kb2 Ke6 38. Kc3 Bd5+ 39. Kb2 Be4 40. a5 bxa5 41. Hb5 a4 42. Hc5 Hb7+ 43. Ka3 a6 44. Kxa4 Bd5! Þaö hefur enga þýðingu að valda a-peðið með 44. - Bd3. Fischer hyggst brjóta sér leið með kóngn- um og metur það rétt að þetta gefur honum nokkra vinningsvon. 45. Ka5 Ke5 46. Kxa6 Hb3 47. Hc7 Ke4 48. Hh7 Hxe3! 49. fxe3 Kxe3 50. Hxh5 Be4 51. Hh8 Kf3 Eftir tuttugu leiki í skákinni hefði verið erfitt að sjá það fyrir að upp kæmi svo spennandi endatafls- staða þar sem allt veltur á einu „tempói". Spasskíj hefur margs að gæta í stööunni. Ef hann fer strax af stað með h-peðið tapar hann: 52. h5 Kxg3 53. h6? f4 54. He8 f3! 55. Hxe4 f2 56. He3+ Kh4 57. h7 fl = D með skák og vinnur. 52. He8! Kxg3 53. h5 Bd3 + Umsjón Spasskíj hefur sjálfviljugur skipt í endatafl þar sem hann hefur peði minna en mishtir biskupar gera & ö k £ k A & K Jón L. Arnason Annar athyghsverður möguleiki er 53. - Kf3 54. h6 Bd3 + og nú þarf Spasskíj að gæta aö sér: A) 54. Kb6? f4 55. Kc5 (ef 55. Hd8 Be4 56. He8 g3 57. Hxe4 Kxe4 58. h7 g2 59. h8=D gl=D með skák og svartur vinnur) g3 56. Kd4 g2 57. Hg8 (57. Hel Bfl) Bh7! 58. Hg7 Bf5 59. Ke5 (eða 59. Hxg2 Kxg2 60. Ke5 Í3 61. Kxf5 f2 62. h7fl=D+ 63. Kg6 Df8 og vinnur með einu „tempói") Bg4 60. h7 gl = D 61. h8=D Dc5+ 62. Kd6 Dd6+ 63. Kf7 De6+ 64. KfB Dc8 + og drottningin fehur í næsta leik. B) 54. Ka5! f4 55. Hd8 leiðir til jafn- tefhs. Hvítur eltir svarta biskupinn hvert sem hann fer eftir skáhnunni bl-h7 og ef 55. - Be4 56. He8 g3 57. Hxe4Kxe4 58. h7g259.h8 = Dgl = D 60. De8+ þráskákar hvítur vegna slæmrar stöðu svörtu drottningar- innar. T.d. 60. - Kf3 61. Dc6+ KÍ2 62. Dc2+ Kf3 63. Dc6+ o.s.frv. í ljósi þessa afbrigðis mætö æöa að besta svarið við textaleiknum sé 54. Ka5 en svo er ekki! 54. Kb6!! Ef nú 54. Ka5 f4! 55. Hd8 Be4 56. He8 f3! 57. Hxe4 f2 og vinnur. 54. -f4 Og núna er 54. - Kf3 ekki svarað með 55. h6? f4 og svartur vinnur, sbr. afbrigðið hér að framan, held- ur með 55. Kc5! g3 56. Kd4 g2 57. Hg8 Bbl 58. Ke5 f4 59. Hxg2 Kxg2 60. Kxf4 og jafhtefh. 55. Kc5! f3 56. Kd4 Bf5 57. Hf8 Kf4 58. h6 Loks hefur hvítur öma til að þoka h-peðinu áfram og nú er staðan jafntefh. 58. - g3 59. h7 g2 60. h8=D gl=D+ 61. Kc4 Dcl+ 62. Kb3 Dc2+ 63. Kb4 De4+ 64. Kc3 Dc6+ 65. Kb3 Dd5+ 66. Kc3 Dc5 + 67. Kb2 Db4 + 68. Ka2 - Og jafntefli samið. Afbrigði M-Chess Eins og fram hefur komið í fjöl- miðlum fann M-Chess forriöð kynngimagnaðan leik í áöundu einvígisskák Spasskíjs og Fischers sem slapp undan haukfránum sjónum skákskýrenda. Það var í þessari stöðu sem Spasskíj með hvítt átö leik: Höskuldur Dungal hjá Kjama hf. setö stö'ðuna öl gamans upp í for- riönu M-Chess að kvöldlagi og lét það um að rekja framhaldið með 10 mínútur á leik. Er hann kannaði máhð næsta dag hafði forriöð, sem var keyrt af 50 megariða 486 vél, fundið 33. Dc2!!- einn þann ótrúleg- asta leik sem sést hefur lengi. Spasskíj lék hins vegar 33. Hc6? og tapaði í nokkrum leikjum. Ef svartur svarar með 33. - Hxc2 kemur 34. Hfxc2! og svartur kemst ekki hjá því að missa drottninguna öl baka vegna hótana á c8 og c7. Svartur verður því að leika 33. - Rxcl en eför 34. Ddl! sleppur ridd- arinn ekki út, því aö 34. - Hc5 strandar á 35. b4! Hc3 36. Hc2. Er ég sá þetta afbrigði fyrst fannst mér 34. - S6! enn gefa svörtum nokkra vinningsvon. Vel má það vera en M-Chess kemst hins vegar að þeirri niðurstöðu aö staðan sé jafntefh! Aðalafbrigði M-Chess for- ritsins er þannig: 35. Hc2 fxg5 36. Dxcl Hxc2 37.Dxc2 Kf7 38. hxg5 Dxg5 39. Rg2 Hd8 40. Dc7+ De7 41. Be6+ Kf6 42. Db6 Ha8 43. f4 exf4 44. Rxf4 Kg5 45. Rd3 Kh6 46. e5 dxe5 47. Rxe5 Df6 48. Db7 Dfl + 49. Ka2 Df4 50. Rf7+ Kg7 51. Rd6+ Kh6 52. Kb3 Dg3+ 53. Kc2 Df2+ 54. Kbl Dfl+ 55. Ka2 Df4 56. Dxa8 Da4+ 57. Kbl Ddl+ 58. Ka2 Da4 + og þráskák og jafntefh. -JLÁ Reykjavfk 1972 Bobby Fischer Boris Spasskíj 1 2 3 4 5 0 0 1 ‘/i 1 1 1 0 ■/> 0 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 Ú Sveti Stefan 1992 1 Vi 1 ■/* 1 0 'A 1 /2 ‘/2 ‘/2 '/2 ’/i '/1 Vi 1 12‘/i Bobby Fischer 0 Vi 0 Vi 0 1 '/2 0 '/2 >/2 /2 ‘/1 '/2 ’/2 '/2 0 8‘/2 Boris Spasskíj 1 23456789 10 11 1 Vi Vi 0 0 Vi 1 1 1 '/2 1 0 */2 Vi 1 1 ‘/2 0 0 0 Vi 0 u 5(7) 2(4)

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.