Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1992, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1992, Blaðsíða 10
10 LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 1992. All-American Murder Leiddurígildru ALL-AMERICAN MURDER Útgefandi: Sam-myndbönd. Aöalhlutverk: Christopher Walken, Charlie Schlatter og Josie Bissett. Bandarisk, 1991 -sýningartimi 99 min. Bönnuö börnum innan 16 ára. í All-American Murder leikur Charlie Schlatter skólapiltinn Artie sem hvað eftir annað hefur verið rekinn úr skóla. Það fer þess vegna slæmt orð af honum þegar hann byrjar nám i nýjum skóla. Artie kemst fljótt í kynni við unga stúlku sem hann hrífst mjög af og telur að loks hafi hann fundið hina einu réttu. En þegar hún er myrt er hann grunaður um morðið... All-American Murder byijar eins og hver önnur sakleysisleg ungl- ingamynd en morðið breytir fljótt yfirbragðinu, um leið verður sagan ósennilegri með hverri mínútunni og ekki er skýringin á morðunum trúverðugri. Kannski væri myndin þolanleg ef hæfileikameiri leikari en Schlatter væri til staðar en leikur hans á meira heima í lélegri gam- anmynd en spennumynd. Þá er óskiljanlegt hvers vegna jafn góður leikari og Christopher Walken er í myndinni. All-American Murder er þrátt fyrir slakt handrit stund- um spennandi en það bjargar samt ekki myndinni. Morð í pósti MURDER C.O.D Útgefandi: Steinar hf. Leikstjóri: Alan Metzer. Aöalhlutverk: Patrick Duffy og William Devane. Bandarisk, 1991 - sýningartími 93 min. Bönnuð börnum innan 12 ára. Leikarar, sem léku lengi í Dallas, hafa átt fremur erfitt uppdráttar í leikiistinni efdr að þáttaröðinni lauk. Patrick Duffy, sem lék Bobby, er engin undantekning. Honum tekst þó sæmflega upp í Murder C.O.D sem er sjónvarpsmynd og íjallar um samskipti sjálfskipaös leigumorðingja og lögregluforingja sem verður skotspónn morðingj- ans. Það er samt Wflliam Devane í hlutverki morðingjans sem stelur senunni og er gaman að sjá þennan ágæta leikara í góðu formi í inni- haldsríkri sakamálamynd þegar miðað er við sams konar myndir sem geröar eru fyrir sjónvarp. Það er erfitt að vera frumlegur í gerð sakamálamynda en ekki minnist ég að hafa séð kvikmynd um leigumorðingja sgm sjálfur vel- ur fómarlömb sín og sendir svo reikninginn í pósti eftir á. Flest við þessa mynd gengur upp og gerir hana að ágætri afþreyingu. DV-myndbandalistiriri 6 - 9(6) 10 (8) 11(-) 12 (7) My Girl er ein nýrra mynda á iistanum þessa vikuna. í aðalhlutverk- um eru Anna Chtumbsky sem leikur hina duttlungafullu Vödu og stjarnan úr Home Alone, Macauley Culkin sem leikur Thomas J. 1 (1) JFK 2 (5) Pure Luck 3 (3) Deceived 4 (2) Dead again 5 (15) The Lawnmower Man My Giri Freejack Rocketeer Stone Coki All American Murder True Identity My Own Private Idaho 13 (10) Frankie & Johnnie 14 (12) Curly Sue 15 (-) Thelma & Louise Flogið með þotuhreyfil á bakinu Stálístál BY THE SWORD Útgefandi: Háskólabíó. Leikstjóri: Jeremy Kagan. Aðalhlutverk: F. Murray Abraham, Eric Roberts og Mia Sara. Bandarisk, 1991 -sýningartimi 89 min. Leyfð öllum aldurshópum. Á sínum tíma fékk F. Murray Abraham óskarsverðlaun og mikla frægð fyrir leik sinn í Amadeus. Hann hefur þó ekki látið þessa frægð stíga sér tfl höfuðs og er vandlátur á hlutverk og hefur eytt mun meiri tíma á leiksviði heldur en í kvikmyndum. Þaö er því mik- ill fengur að By The Sword þó ekki væri nema tfl að fylgjast meö góð- um leik Abrahams í hlutverki skylmingarmeistara sem setið hef- ur tuttugu ár í fangelsi fyrir aö hafa drepið keppinaut sinn 1 ein- vígi. Eric Roberts leikur son þess sem lét lífið, Alexander Villard sem nú er meistari meistaranna og rekur skylmingaskóla. Undir dulnefninu Suba sækir banamaður föður hans um starf við skólann sem kennari, en hæffleikarnir eru ekki þeir sömu og áður og hann verður að gera sér að góðu að vera húsvörö- ur. Hann byijar að æfa og er fljótur að ná upp fyrri getu. Á meðan læt- ur Viflard rannsaka húsvörð sinn. Uppgjörið er því óumflýjanlegt. By the Sword er nokkuð hæg tfl að byrja með en tekur vel við sér þegar fer að líða á myndina. Nokk- uð er um skylmingar enda gerist myndin nánast á fjölum skylm- ingaskólans. Áöur hefur verið minnst á frammistöðu Abrahams. Eric Roberts er einnig góður og mun betri én fyrirfram var hægt að.búast við eftir slakan leik í mis- góðum myndum að undanförnu. -HK ROCKETEER Útgefandl: Biómyndir. Lelkstjóri: Joe Johnston. Aóalhlutverk: Bill Campell, Alan Arkin, Jennlfer Connelly og Timothy Dalton. Bandarísk, 1991 - sýnlngartíml 104 mfn. Bönnuð börnum innan 12 ára. " Eins og svo margar ævintýra- myndir nútímans er The Rocketeer gerð eftir teiknimyndaseríu sem var mjög vinsæl á fyrri hluta aldar- innar og voru þá einnig gerðar kvikmyndaseríur eftir sögunni. Það verður að segjast eins og er að rakettumaðurinn er hálfklunna- legur í samanburði við Superman þegar flughæffleikar eru annars vegar, enda þarf hann að þvælast með þotuhreyfil á bakinu. The Rocketeer er látin gerast á fjórða áratugnum og er mikfl áhersla lögð á að ná tíðarandanum á þessum árum og tekst það nokk- uð vel. Að því leytinu minnir hún nokkuð á Indiana Jones myndim- ar. Bfll Campell leikur sjálfan rak- ettumanninn sem er í rauninni flugmaður aö nafni Cliff Secord. Hann á sér þann draum að setja met í flugi. I æfmgaferð einni er hann óvart skotinn niður og lendir í miðjum hasar mifli lögreglu og glæpalýðs en þeir síöamefndu hafa undir höndum nýja uppfmningu, þotuhreyfihnn er þeir hafa stolið, en hann gerir þeim sem ber hann á bakinu færan um að fljúga. Aö vonum em tilburðir Secord klaufa- legir í byrjun en æfingin skapar meistarann og meö tímanum fer Skemmtilegir krakkar MY GIRL Útgefandi: Skffan. Leikstjóri: Howard Zietf. Aóaihlutverk: Dan Aykroyd, Jamie Lee Curtis, Macaulay Culkin og Anna Chumsky. Bandarfsk, 1991 -sýningartimi 98 min. Leytð öllum aldurshópum. Vada er engin venjuleg stelpa. Hún hefur þau forréttindi að faðir hennar er útfararstjóri og er ávaflt lík í kjallaranum hjá henni. Þá er amma hennar orðin ragluð og tek- ur upp á því í tíma og ótíma að syngja gamla slagara, meira að segja við jarðarför. Móðir Vödu er látin og nýtur Vada talsverðs sjálfs- ræðis í uppeldi og gerir yfirleitt það sem hana langar tfl, meðal annars sækir hún sumamámskeið fyrir fullorðna í ritsmíð, eingöngu vegna þess aö hún er ástfangin af kennar- anum. Vada á sér einn trúnaðarvin, Thomas, sem stendur með henni í JainUJ^vc Mac Curtis Cu - >d u» a iricnd uultrMsurdsyon... crcníf il’s aboy; blíðu og stríöu og beinir stundum fljótfæmisráðagerðum hennar inn á réttar brautir. Onnur stjama myndarinnar er Macauley Culkin sem sló í gegn í Home Alone. Hér er hann í raun í aukahlutverki og er persónan mjög ólík þeirri sem hann lék í Home Alone. Stærsta hlutverkið er í höndum Önnu Chumsky og gerir hún margt vel þótt ekki sýni hún sama stjömuleikinn og Culkin gerði 1 Home Alone. My Girl veldur nokkrum von- brigðum. Sagan er míög tflviljunar- kennd og byggð um of á formúlum og maður hefur það á tflfinning- unni að gróðasjónarmið hafi ráðið ferðinni. Á móti göllunum kemur að krakkamir em sjarmerandi og skemmtilegir. Skilin em skörp milli gamans og alvöra þegar líða fer á myndina og kemur það sjálf- sagt mörgum á óvart. En þegar upp er staðið er My Girl góð skemmtun fyrir alla fjölskylduna. -HK Misheppnuð tlugferð á enda með þotuhreyfilinn. Bill Campell og Alan Arkin i hlutverkum sínum. hann að geta beitt sér af mikfli hæfni og kemur það sér vel því öll- um er umhugað að komast yfir þessa uppfinningu. Til að koma þessu ævintýri til skila var fenginn leikstjórinn Joe Johnston sem leikstýrði Honey I Shmnk the Kid. Tekst honum bærilega upp þótt ekki sé The Rocketeer jafn góð og bestu Super- man myndirnar og langt frá að vera sambærileg India Jones myndunum. En það er léttleikinn sem ræður ferðinni þó farið sé út og suður í textanum sem að ósekju hefði mátt vera minni. En vel var til fundið hjá handritshöfundum aö láta hugmyndasmiöinn að þotu- hreyflinum vera sjálfan Howard Hughes en hann var mikill draum- óramaður þegar flugvélar vom annars staðar. -HK ★★‘A

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.