Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1992, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1992, Blaðsíða 31
LAUGARDÁGUR Í6.SEPTÉMBER 1992. Blöðruhálskirtiilinn er lítill hnotulaga kirtill sem liggur undir þvagblöðrunni í karlmönnum. Hann er lítill í ungum drengjum, stækkar á gelgjuskeiðinu en hættir síðan aö stækka. Þegar menn verða tæplega fimmtugir fer hann stundum að stækka á nýjan leik. Við slikar aðstæður getur þvagblaðran stundum stækkað verulega og þvag vætlað frá sjúklingnum við hnerra, hósta eða rembing, auk þess sem erfitt er að tæma blöðruna. Hallur og blöðruhálskirt- illinn hans Tjörvi læknir óttast mjög elli og hrömun. Hann hefur um langt ára- bil reynt að finna brunn eilífrar æsku og tryggja sér þannig ævar- andiæskublóma. „Ég hræðist alia þessa sjúkdóma sem fylgja eðlilegu slití. líffæranna," sagði Tjörvi eitt sinn við geðlækn- innsinn. „En hræddastur er ég þó um blöðruhálskirtilinn minn!“ bætti hann við. „Ég held honum síungum með því að keyra hann sem mest á fullu.“ Breytilegur blöðruhálskirtill Blöðruhálskirtillinn er lítill hnotulaga kirtill sem liggur undir þvagblöðmnni í karlmönnum. Þvagrásin Uggur frá blöðrunni, gegnum hnotuna og fram í liminn. Þessi kirtill framleiðir mjólkurhtan sykurríkan vökva sem blandast sæðinu í sáðláti og skiptir miklu fyrir hreyfanleika sáöframnanna. Blöðruhálskirtillinn er lítill í ung- um drengjum en stækkar á gelgju- skeiðinu vegna karlkynshormóns- ins. Eftir að kynþroska er náð hætt- ir kirtillinn að stækka. Þegar menn verða tæplega fimmtugir fer hann stundum að stækka á nýjan leik. Slík stækkun er býsna algeng meðal miðaldra og eldri karlmanna. Talið er að tveir til þrír af hveij um fimm karlmönnum yfir áttrætt hafi vem- lega stækkaðan blöðruhálskirtil. Stækkunin getur valdið miklum vandamálum vegna þess að þvag- rásin hggur í gegnum kirtihnn. Blaðran tæmist þá ekki alveg við þvaglát sem eykur líkur á blöðm- bólgu. Hún þarf að draga sig saman gegn mótstöðu sem veldur því að blaðran stækkar. Ef blaðran nær ekki að tæmast getur komið upp bráð eða langvinn þvagteppa. Við slíkar aðstæður veröur blaðran oft ipjög stór og getur náð upp undir nafla. Þá getur þvag vætlað frá sjúklingnum við hnerra, hósta eða rembing en blaðran tæmist aldrei. Sextíuogtveggja ára ekkill Einn af sjúklingum Tiörva var maður að nafni Hahur, 62ja ára gamah. Hann kom stundum til hans á lækningastofuna vegna ýmissa umgangspesta og félagslegra vand- kvæða. Hahur var ekkih sem verið hafði á örorku um nokkurra ára skeið vegna bakverkja og shtgigtar íntjöðmum. Einu sinni sem oftar kom Hahur th að spjaha um bakverkina sína og fá lyfseðil upp á gigtarlyf. Hann var klæddur í Ijósgrájakkaföt og vín- rauða peysu með brunagati. Undir peysunni var hann í guheitri skyrtu með trosnuðum fhbba. Það var gul- ur blettin- framan á buxnaklaufinni. „Skoðaðu aðeins á mér mjöðm- ina,“ sagði Hahur og Tjörvi bað Á læknavaktiimi hann að fara úr buxunum og leggj- ast upp á skoðunarbekkinn. Hann var í gráleitum, síðum nær- buxum og framan á þeim var stór, heiðgulur þvagblettur. „Gengur þér illa að halda þvag- inu?“ spurðiTjörvi. „Nei, nei,“ sagði Hahur, „ég er óttalegur mikih klaufi með þvotta- véhna og þvæ sjaldan nærfotin mín. Ég vissi ekki að þú bæðir mig að fara úr buxunum. Ef ég hefði vitað það hefði ég nú farið í hreinar nær- buxur. Það máttu bóka og fyrir- gefðu." Hvemiggengur að pissa? „Segðu mér heldur hvemig þér gengur að pissa,“ sagði Tiörvi. Hahur sagði þá feimnislega að þvaglátin væra th mikilla vand- ræða. Bunan væri mjög slöpp þegar hann kastaöi af sér vatni og hann ætti erfitt með að byxja að pissa. Auk þess fannst honum erfitt að hætta, endalaust virtust koma smá- dropar og hann fann ahtaf fyrir smá þvagleka. Hann þurfti að pissa mun tíðar en áður og oft vaknaði hann upp á nóttum og fór á klósett. „En ég skammast mín svo djöfuh mikiðfyrirþetta.“ Tjörvi þreifaði þá upp í endaþarm- inn á Halh th að gera sér grein fyrir stærð blöðruhálskirthsins. Kirtill- inn var greinhega stækkaður en bæði mjúkur og eðhlegur viðkomu svo að enginn granur var um hl- kynjavöxt. „Þú verður að fara á fund þvag- færasérfræðings," sagðiTíörvi. Aðgerðir Tveimur mánuðum seinna kom Hahur enn á ný th Tjörva. Rann- sóknir höfðu sýnt alvarlega traflun á þvagrennshnu svo að ákveðið var að fjarlægja þann hluta kirthsins sem einkennunum ohi. Slíkt er gert gegnum þvagrásina sjálfa í svokahaðri mænudeyfingu. Grönnu röri er þá rennt upp rásina aha leið að blöðrahálskirtlinum. Á enda rörsins er vírlykkja sem hægt er að hita með rafstraumi og stjórna um blöðraspegh sem einnig er í rörinu. Má á þennan hátt brenna burt þá kirthhnúta sem th vand- ræðaera. Einkennin hurfu að mestu við þessa aðgerð og Hallur var hinn glaðasti. Honum fannst thveran verða allt önnur þegar hann þurfti ekki að fara á klósettið th að pissa oftánóttu. „Mér líður mun betur líkamlega og andlega og mjöðmin pínir mig ekki eins og áður,“ sagði hann við Tjörva lækni. „Nú er ég farinn að stunda gömlu dansana af miklum móð. Ég var hættur því af ótta við þenn- an bölvaðan þvagleka. í sumar ætla ég th Svíþjóðar og heimsækja dætur mínar og taka Svíaríki aftur í sátt.“ Hann kvaddi brosandi og haltraði útírigninguna. 43 Vsk- bíll Ford F-150 4x4, árgerö 1988, vél 4,9, 6 cyl., sjálfskipt- ur. Allur í toppstandi. Verö 1.590.000 m. vsk. stgr. Upplýsingar í síma 73879. Útboð Ólafsfjarðarvegur norðan Dalvíkur Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í lagn- ingu 7,5 km kafla á Ólafsfjarðarvegi norðan Dalvíkur. Helstu magntölur: Fylling 42.000 m3 og burð- arlag 32.000 m3. Verki skal lokið 15. ágúst 1993. Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á Akureyri og í Borgartúni 5, Reykjavík (aðal- gjaldkera) frá og með 28. þ.m. Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00 þann 12. október 1992. Vegamálastjóri ________________________________________J Staða forstöðumanns bankaeftirlits Samkvæmt 13. gr. laga nr. 36/1986 er viðskiptaráð- herra falið að skipa forstöðumann bankaeftirlits Seðlabanka íslands til eigi lengri tíma en sex ára í senn. Viðskiptaráðuneytið auglýsir hér með stöðu þessa lausa til umsóknar. Umsóknum ber að skila til viðskiptaráðuneytis eigi síðar en 30. október nk. Viðskiptaráðuneytið 25. september 1992 RSK RÍKISSKATTSTJÓRI AUGLÝSIR LAUS TIL UMSÓKNAR EFTIRTALIN STÖRF: DEILDARSTJÓRI í VIRÐISAUKASKATTSDEILD Um er að ræða deildarstjóra þjónustusviðs virðis- aukaskattsdeildar. I starfinu felst að skipuleggja og stjórna eftirliti með framkvæmd virðisaukaskatts á skattstofum og hafa með höndum stjórnun á þjón- ustu og eftirliti með skattskyldum aðilum. Umsækjendur þurfa að hafa lokið prófi í lögfræði, hagfræði eða viðskiptafræði eða vera löggiltir endur- skoðendur. Krafist er góðrar þekkingar á löggjöf um virðisaukaskatt og æskileg er þekking á skattfram- kvæmd. Umsækjendur þurfa einnig að hafa reynslu af stjórnun og vera skipulegir í framsetningu á rituðu máli. LÖGFRÆÐINGUR í VIRÐISAUKASKATTSDEILD I starfinu felst einkum að rita lögfræðilegar álitsgerð- ir um framkvæmd virðisaukaskatts, rita umsagnir í málum sem rekin eru fyrir yfirskattanefnd og fjalla um erindi sem berast RSK og ýmsa skattframkvæmd virðisaukaskatts. Umsækjendur þurfa að hafa lokið lögfræðiprófi og æskilegt er að þeir séu kunnugir skattframkvæmd. VIÐSKIPTAFRÆÐINGUR í ENDURSKOÐUNARDEILD I starfinu felst að leiðbeina skattstjórum um yfirferð atvinnurekstrarframtala, gera eftirlitsáætlanir um end- urskoðun atvinnurekstrarframtala og veita umsagnir um ýmis skattaleg atriði sem til álita geta komið. Umsækjendur þurfa að hafa lokið prófi í hagfræði eða viðskiptafræði eða vera löggiltir endurskoðendur og æskilegt er að þeir séu kunnugir skattframkvæmd.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.