Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1992, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1992, Blaðsíða 21
LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 1992. Eirikur Jónsson segist vera eini núlifandi Islendingur sem kenndur er við Kaupmannahöfn. Eiríkur Jónsson, útvarps- og sjónvarpsmaður: Prinsinn í fjöl- skyldunni „Ég þrífst á því að gera alltaf eitt- hvað nýtt. Þessi þáttur er nýr og einnig viss ögrun að því leyti að hann er á hverju kvöldi og yfirleitt í bein- um útsendingum. Ég tek þá fyrir ein- hveija hhð á málum sem efst eru á baugi þann og þann daginn. Þó þætt- imir séu ekki langir er gerð þeirra alveg fuUt starf. Það er vinna að halda þessu gangandi. Annars eru þættimir tilraunastarfsemi þannig að þættimir eins og þeir eru í dag geta gjörbreyst eftir 20 eða 50 þætti. Áhorfendur mega eiga von á öllu en svona þættir bjóða upp á marga möguleika. Ég vildi hins vegar byija á að hafa þættina eins og þeir eru nú og þvi era þeir þannig," segir út- varps- og sjónvarpsmaðurinn Eirík- ur Jónsson. Eiríkur er þekktastur sem útvarps- maður en nú nýlega fór hann að hirt- ast reglulega á skjánum, eftir fréttir á Stöð 2, í viötalsþáttunum Eiríkur. í Kaupmannahöfn Eiríkur á 12 ára reynslu að baki sem útvarpsmaður, steig fyrstu skrefin í Kaupmannahöfn, í uppahfi síðasta áratugar. „Ég var þá blaðamaður á Vikunni og fór út til að vera sex mánuði í skóla. í Kaupmannahöfn fór ég að senda fréttapistla fyrir Ríkisútvarpið sem þá var eina útvarpsstöðin hér. Ég var með pistla oft í viku og oft á dag ef eitthvað var um að vera. Þaö var góður markaður fyrir þessar fréttir héma og hægt að gera sér mat úr öllu. Við þær aðstæður byijaði ég í útvarpi sem Eirikur Jónsson, Kaup- mannahöfn. Ég er líklega eini núlif- andi íslendingurinn sem er kenndur við þá borg,“ segjr Eiríkur en margir kollegar og fyrrum samstarfsmenn kenna Eirík enn við Kaupmanna- höfn. Eiríkur var fréttaritari útvarpsins í Kaupmannahöfn í um 3 ár. „Það var aUtaf nóg að gera og ég hef lík- lega aldrei haft eins góðar tekjur. Enda lengdist dvölin ytra úr sex mánuðum í þrjú ár.“ Við heimkomuna fór Eiríkur að vinna sem blaðamaður á DV, var þar frá 1983 til 1987. Þá var útvarpsstöðin Stjaman stofnuð og Eiríkur var ráð- inn fréttastjóri. Á Stjörnunni starfaði Eiríkur með Jóni Ársæh og fleiram en fréttatímar Sljömunnar þóttu í meira lagi sér- stakir og vöktu mikla athygh. „Þetta gekk vel í tvö og hálft ár, þar til allt sprakk í loft upp. Ég er að upplifa það hér á Bylgjunni að alhr gömlu félagamir af Stjömunni era komnir hingað eða á leiðinni." Eftir Stjörnuævintýrið tók Eiríkur sér hlé frá fjölmiðlum. „Enda fór rek- inn fréttastjóri ekki í hvaða starf sem var. Ég sá þó við því og skrifaði bók um Davíð Oddsson og svo aðra bók árið eftir, Lífsstríð, sem gekk miklu betur en Davíðsbókin." Eiríkur fór síðan um stund á Aðal- stöðina og þá á Bylgjuna þar sem hann er enn. Hann hefur vakið at- hygh fyrir morgunþætti sína, kvöld- sögur, sem vora að hefjast um sama leyti og hann byijaði, og nú síðast viðtalsþáttinn í sjónvarpinu. Hestamaður Eríkur er giftur Katrínu Baldurs- dóttur, frétta- og dagskrárgerðar- manni, og eiga þau tvö böm, Lovísu, sem er að vera 6 ára, og Baldur, 3 ára. Eiríkur á síðan eina eldri dótt- ur, Hönnu, 13 ára. Eiríkur og fjölskylda búa í vestur- bænum. Eiríkur hefur lengi verið að gæla við að fá sér hund en ekki kom- ið því í verk. Hann er gamah hesta- maður en fjölskylda hans hefur lengi verið með hesta. Eiríkur er hestlaus sem stendur en lóga þurfti hestunum hans vegna veikinda. „Ég er því upp á fóður minn kominn með útreiðar- túra,“ segir hann. Faðir Eíríks er Jón Þorsteinsson læknir en móðir hans er Lovísa Ei- ríksdóttir. Eiríkur á fjórar systur, er næstelstur. Elsta systir Eiríks er Sig- ríður, félagsfræðingur og sérfræð- ingur í málefnum aldraðra kvenna á Norðurlöndum. Þá á hann tvíbura- systur, Möggu og Ingu, bóndakonu í Hrunamannahreppi, en hin er kenn- ari, gift hstmálara. Þá er það Tóta litla. „Hún er heimasætan, er að læra hjúkrun og er á lausu. Annars er ég prinsinn í fjölskyldunni og fæ arf- inn,“ segir Eiríkur og hlær. -hlh EES EFLIR ÍSLENSKAN SJÁVARÚTVEG • Tollar á íslenskar sjávar- afurðir lækka verulega með tilkomu EES. • Tækifærum til útflutnings sjávarafurða á mikilvægasta markað okkar fjölgar. • íslendingar halda óskoruðum yfir- ráðum yfir fiskveiðilögsögunni. • Erlendir aðilar munu ekki geta eignast íslensk útgerðar- og fiskvinnslu- fyrirtæki. • EES styrkir samkeppnis- stöðu íslensks sjávarútvegs gagnvart öðrum fiskveiði- þjóðum. • Reglur EES um samkeppni verja útflytjendur gegn óheiðarlegri samkeppni erlendra stórfyrirtækja. ATVINNULÍFÍÐ STYÐUR EES Vinnuveitendasamband íslands • Samband veitinga- og gistihúsa • Landssamband iðnaðarmanna Verktakasamband íslands • Samtök fiskvinnslustöðva • Apótekarafélag íslands • Útflutningsráð íslands Verslunarráð íslands • Félag blikksmiðjueigenda • Félag íslenskra iðnrekenda • Félag íslenska prentiðnaðarins Landssamband bakarameistara • Landssamband veiðarfæragerða • Hárgreiðslumeistarafélag íslands Félag löggiltra rafverktaka í Reykjavík • Landssamband íslenskra útvegsmanna Meistara- og verktakasamband byggingamanna • Félag húsgagna- og innréttingaframleiðenda Málmur (samtök fyrirtækja í málm- og skipaiðnaði) t...Aug!ýsingastofa

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.