Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1992, Page 29
LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 1992.
41
Bridge
NOVATO stjömu-einmenningskeppnin:
Granovetter sigraði Zia
naumlega
Tímarit Granovetterhjónanna,
Bridge Today, hefir undanfarin ár
verið fjárhagslegur bakhjarl ein-
menningskeppni þar sem margar af
skærustu sfiömum bridgeheimsins
hafa reynt með sér. Háar fjárhæðir
hafa verið í boöi til efstu manna og
var svo einnig nú.
Keppnin í ár var haldin fyrir
nokkrum dögum og náði bakhjarlinn
að minnka kostnað sinn töluvert þvi
Matthew Granovetter sigraði.
Bridge
Stefán Guðjohnsen
Röð og stig fimm efstu manna var
eftirfarandi:
1. M. Granovetter 174 imp.
2. Zia Mahmood 170 "
3. F. Hamilton 138,75
4. B. Glubok 137,75
5. A. Sontag 131,5
Keppnin var nokkuð sérstök að því
leytí. að hægt var aö fylgjast með
henni í beinni útsendingu á tölvu-
skjám og þegar best lét fylgdust 50
aðilar með í fjórum heimsáifum.
Matthew Granovetter.
Við skulum skoða eitt skemmtiiegt
spil frá keppninni, topp hjá Grano-
vetter.
A/N-S
♦ G98632
f 93
♦ D93
+ D7
♦ K10
V KG872
♦ 5
+ ÁG1084
* 754
* 1064
* 87642
+ K9
♦ ÁD
V ÁD5
♦ ÁKG10
+ 6532
Það voru engar smástjömur við
borðið. í n-s sátu Bobby Wolff, marg-
faldur heimsmeistari, og Matthew
Granovetter en í a-v Hugh Ross og
Grant Baze.
Margir dauðlegir spilarar hefðu
opnað á tveimur gröndum á spil suð-
urs en ekki Granovetter. Hann opn-
aði á einu laufi og sló tvær flugur í
einu höggi - fyrirbyggði útspil í laufi
og fékk hagstætt útspil í staðinn:
Austim Suður Vestur Norður
pass llauf lhjarta lspaði
pass 3grönd pass pass
pass
Baze bjóst ekki við mörgum háspil-
um hjá makker en vonaðist eftir
drottningu eða tíu í hjarta. Hann
spilaði því út hjartasjöi og var tiltölu-
lega ánægður þegar tían kom frá
makker. Granovetter drap á drottn-
ingu, spilaði síðan spaðaás og spaða-
drottningu. Hann var ánægður þegar
austur sýndi þrílit og íhugaði mögu-
leikana. Suður var þegar sannaður
með 12 punkta í hálitunum, líklega
átti hann laufkónginn (hann opnaði
jú á laufi) og þá gat hann tæplega átt
tvo hæstu í tígli. Hann hélt þvi
ótrauður áfram með hjartað og
Granovetter fékk 11 slagi og topp.
Fyrir þá sem kafa dýpra í spifin er
ljóst að „fómar-glaðir“ a-v-spilarar
hefðu haft erindi sem erfiði með því
að fóma í fjögur hjörtu. Eftir liklegt
spaðaútspil norðurs er engin leið að
tapa þeim.
Ert þú að tapa réttindum?
Eftirtaldir lífeyrissjóöir hafa sent sjóðfélögum yfirlit um iðgjaldagreiðslur á árinu 1991 og 1992:
Lífeyrissjóður Bolungarvíkur
Lífeyrissj. starfsfólks í veitingahúsum
Lífeyrissjóður matreiðslumanna
Lífeyrissjóður sjómanna
Lífeyrissjóður Suðurnesja
Lífeyrissj. verkafólks í Grindavík
Lsj. verkamanna á Hvammstanga
Lífeyrissjóður verkstjóra
Lífeyrissjóður Vestmannaeyinga
Sameinaði lífeyrissjóðurinn
HAFIR ÞÚ EKKI FENGIÐ YFIRLIT, en dregið
hefur verið af launum þínum í einn eða fleiri
af ofangreindum lífeyrissjóðum, eða ef launa-
seðlum ber ekki saman við yfirlitið, skalt þú
hafa samband við viðkomandi lífeyrissjóð hið
allra fyrsta og eigi síðar en 1. nóvember nk.
Verði vanskil á greiðslum iðgjalda í lífeyrissjóð er haetta á að dýrmæt réttindi tapist. Þar á meðal má nefna:
ELLILÍFEYRI, MAKALÍFEYRI, BARNALÍFEYRI, ÖRORKULÍFEYRI
Gættu réttar þíns
I lögum um ábyrgðarsjóð launa segir meðal annars:
Til þess að iðgjöld launþega njóti ábyrgðar ábyrgðarsjóðs launa
vegna gjaldþrota skulu launþegar innan 60 daga frá dagsetningu
yfirlits ganga úr skugga um skil vinnuveitenda til viðkomandi lífeyr-
issjóðs. Séu vanskil á iðgjöldum skal launþegi innan sömu tíma-
marka leggja lífeyrissjóði til afrit launaseðla fyrir það tímabil sem
er í vanskilum. Komi athugasemd ekki fram frá launþega er við-
komandi lífeyrissjóður einungis ábyrgur fyrir réttindum á grund-
velli iðgjalda þessara að því marki sem þau fást greidd, enda
hafi lífeyrissjóðnum ekki verið kunnugt um iðgjaldakröfuna.
Lífeyrissjóðurinn Björg
Lífeyrissjóður Dagsbrúnar og Framsóknar
Lífeyrissjóður Hlífar og Framtíðarinnar
Lífeyrissjóðurinn Sameining
Lífeyrissjóður Sóknar
Lífeyrissjóður trésmiða á Akureyri
Lsj. verkalýðsfélaga á Suðurlandi
Lífeyrissjóður verksmiðjufólks
Lífeyrissjóður Vestfirðinga
Lífeyríssjóður Vesturlands