Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1993, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1993, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR 26. MARS 1993 3 Fréttir Fangelsisafplánun Bandaríkj amannanna í bamsránsmálinu: Feeney fer á Litla-Hraun Grayson þegar kominn 1 afþlánun á Kvíabryggju Bandaríkjamaðurinn Donald Fee- ney, sem Hæstiréttur dæmdi í 2 ára fangelsi síðastliðinn föstudag, mun afplána meginhluta refsingar sinnar í fangelsinu á Litla-Hrauni. Hann sit- ur ennþá í Síðumulafangelsinu en verður fluttur austur jafnskjótt og pláss losnar. Fyrrum eiginmaður Emu Eyjólfs- dóttur, Brian Grayson, hóf 42 daga afplánun sína strax á laugardag, eða daginn eftir að dómur var upp kveð- inn. Þá fór hann í Hegningarhúsið við Skólavörðustíg. Hann var síðan fluttur í fangelsið á Kvíabryggju í Grundarfirði á miðvikudag. Grayson mun losna úr afplánun um mánaðamótin apríl/maí. Hins vegar er útlit fyrir að Feeney muni jafnvel losna út síðast í janúar á næsta ári. Þá er eitt ár frá því að gæsluvarðhaldsvist hans hófst en hún dregst frá afplánunartímanum. Ástæðan fyrir því að Feeney losnar liklega út eftir að hafa afplánað helming dæmdrar refsingar er sú að hann getur sótt um reynslulausn eft- ir þann tíma. Það er svo undir Fang-' elsismálastofnun komið hvort Fee- ney verður veitt slík reynslulausn. Brian Grayson óskaði eftir að fá að sjá dóttur sína á miðvikudags- morguninn, daginn sem hann var fluttur vestur á Kvíabryggju. Ekkert varð þó af því að Grayson sæi dóttur sína. Sýslumannsembættið í Reykja- vík hefur til meðferðar beiðni Gray- sons um bráðabirgðaumgengni við dóttur sína og var sú beiðni lögð fram þegar í byrjun marsmánaðar. Eins og fram kom í DV í gær hefur Ema ákveðið að heimila föðumum umgengni við dóttur þeirra einu sinni í viku, hluta úr degi. Sýslu- mannsembættið á þó eftir að kveða upp úr með tiliögur foreldranna í þessum efnum. Samkvæmt heimildum DV mun Fangelsismálastofnun hlutast til um að reynt verði að koma til móts við Grayson, þegar og ef honum gefst kostur á að hitta dóttur sína á afplán- imartímanum. Eins og fram hefur komið í DV er núverandi eiginkona hans, Ginger, farin til Flórída til að sinna vinnu sinni og 18 ára syni. Forræðismál, þar sem fjallað verð- ur um varanlega forsjá vegna bama Ernu, var þingfest í Héraðsdómi Reykj avíkur í gær. -ÓTT Friðrik Sophusson: Hallinn eykst um 4 milljarða „Miðaö við fyrirliggjandi vitneskju má áætla að hallinn á ríkissjóði í ár verði um 10 milljarðar, eða 3,5 til 4 milljörðum hærri en gert var ráð fyrir í fjárlögum," segir Friðrik Sop- husson fjármálráðherra. Friðrik segir ástæðumar fyrir auknmn halla einkum þrjár. Aukið atvinnuleysi kosti ríkissjóð 1,5 millj- arða, aukin endurgreiðsla á virðis- auka vegna vinnu við húsbyggingar 400 miUjónir, minni sala eigna 1 milljarð og verri efnahagshorfur og minni velta 900 milljónir. Hann segir að vegna innbyggðra þátta í ríkis- rekstrinum stefni halli næsta árs í 4,4 til 5 milljarða þrátt fyrir að tekist hafi að skera varanlega niður útgjöld upp á 7,5 milljarða. Því verði ekki breytt nema með lagasetningu. Friðrik kveðst ekki geta útilokað að haliinn verði meiri komi ríkis- stjómin til móts við aðila vinnu- markaðarins um aukin útgjöld upp á 3,5 til 4 milljarða. „Áður en við getum gefið einhver svör í þeim efn- um þurfum við að vita hvort þetta séu einu tillögurnar sem þeir koma með, hvort verið sé að semja til langs tíma og hvort allir standi að þessum tillögum, þar með taldir opinberir starfsmenn. Liggi þetta ekki allt fyrir er ekki hægt að búast við því að við getum gefið nein skýr svör.“ -kaa Báturinn Markús frá Akranesi, sem fórst með tveimur mönnum við inn- siglinguna til Akraness fyrir rúmri viku, náðist á flot á þriðjudaginn og liggur nú í Reykjavíkurhöfn. Tveir kafarar, Aðalsteinn Aðalsteinsson og Sigurgeir Högnason, náðu bátn- um upp með aðstoð björgunarsveit- arinnar á Akranesi. Nokkurs konar blöðrur voru settar inn í bátinn og þær blásnar upp þar til hann lyftist ■•upp á yfirborðið. Skrokkur bátsins reyndist að mestu óskemmdur. DV-mynd GVA afsláttur af öllum vörum verslunarinnar 24 - 27. mars niálning teppi porket gélfflísar hreinlætisvörur viðarvörn dúkar fflálningarvörur listmálaravörur blöndunartæki málning penslar flísar teppi baðmottur dúkar sturtuklefar efl. ofl. efl • •• í tilefni af Því að Málarinn opnar nú nýja glæsilega verslun að Skeifunni 8 bjóðum við upp 25% opnunartilboð af öllum vörum verslunarinnar. Líttu við í bjarta og rúmgóða verslun okkar og gerðu góð kaup! -Opið til kl. 16 á laugardag- Skeifunni 8 Reykjavík Sími 813500 ... ||||Í ■ | |V l

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.