Alþýðublaðið - 18.03.1967, Qupperneq 4
Ritstjóri: Benedikt Gröndal. Símar 14900—14903. — Auglýsingaslmi:
14906. — Aðsotur: Alþýöuhúsið við Hverfisgötu, Rvík. — Prentsmiðja
Al]).vðubla3sins. Sími 14905. — Áskriftargjald kr. 105.00. — í lausa-
sölu kr. 7.00 eintakið. — Útgefandi: Aiþýðuflokkurinn.
SVEI ÞÉR, EYSTEINN!
í ÞEIRRI LÖNGU RÆÐU, sem Eysteinn Jónsson
flutti á flokksþingi framsóknarmanna í vikunni, vék
hann lítillega að Alþýðuflokknum. Ekki voru það hlý
legar kveðjur, sem hann sendi okkur, frekar en vant
er nú á dögum. Meðal annars fullyrti hann, að Alþýðu
flokkurinn ræki allt aðra stefnu en jafnaðarmanna-
flokkar nágrannalanda og gaf í skyn, að hann væri
annars konar flokkur en þeir.
Þessari órökstuddu fullyrðingu mótmælir Alþýðu-
blaðið. Alþýðuflokkurinn er náskyldur öðrum jafnað
armannaflokkum í Vestur-Evrópu, hefur frá upphafi
rekið og rekur enn sömu pólitík og þeir. Má bezt sjá
sönnun þessa með því að bera saman þau velferðar-
ríki, sem hafa til orðið mest fyrir áhrif jafnaðarstefn
unnar: jöfn og góð lífskjör, mannréttindi, almanna-
tryggingar frá vöggu til grafar, mikil ríkisafskipti,
frelsi og framfarir.
Samanburður á stefnu og starfi Alþýðuflokksins og
jafnaðarmanna á Norðurlöndum, í Þýzkalandi og Eng
landi, sannar þessa fullyrðingu og afsannar orð Ey-
steins Jónssonar.
í öllum þessum löndum hafa jafnaðarmenn beitt
svipuðum hagstjórnartækjum, vöxtum, útlánastjórn,
bindingu sparifjár og fleiru — í mismunandi mæli eft
ir aðstæðum hvers lands. í öllum þessum löndum hef-
ur verið farið inn á áætlunarbúskap skref fyrir skref,
eins og núverandi ríkisstjórn hefur gert hér með þátt
töku jafnaðarmanna.
Áhugi jafnaðarmanna á félagsmálum er hvarvetna
'hinn sami, og hér á landi hefur Alþýðuflokkurinn í
núverandi stjórn stóraukið tryggingakerfið og staðið
vörð um það. Flokkarnir eru alls staðar nátengdir
verkalýðshreyfingunni og í þeim anda hafa hér skap
azt betri og skynsamlegri tengsl milli ríkisvalds og
verkalýðs en áður.
Norrænir, þýzkir og brezkir jafnaðarmenn hafa all-
ir heimilað — og stundum barizt fyrir — noktun er-
lends fjármagns til vissra verkefna í löndum sínum.
Þeir hafa tekið afleiðingum af verzlunarfrelsi og við
skiptabandalögum og sýna enga minnimáttarkennd
eða tortryggni í skiptum við önnur ríki. í þessum efn
um hefur orðið sama þróun hér og þar ytra.
Þjóðnýting er hvergi á dagskrá jafnaðannanna,
nema varðandi stáliðnað í Bretlandi, en ríkisþátttaka
í atvinnulífi er líklega meiri hér en í grannlöndum. í
félagsmálum hefur Alþýðuflokkurinn gengið lengra
en hinir flokkarnir í því að berjast fyrir 18 ára kosn
ingaaldri.
Þannig mætti lengi telja og hlaða upp sönnunum
þess, að stefna og starf Alþýðuflokksmanna hér á
landi er hin sama og jafnaðarmanna á Norðurlönd-
um, í Englandi og Þýzkalandi. Meira að segja sam-
starf við hægriflokk í ríkisstjórn er ekkert einsdæmi
hjér — samanber Þýzkaland.
^ 18. marz 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
BlLAKAUP
Bílar viff allra hæfi
Kjör viff allra hæfi.
Opiff tli kl. 9 á hverju kvöldi.
BÍLAKAUP
Skúlagötu við Rauðará.
Sími 15813.
RAUÐARÁRSTÍ6 3J !
SÍMl 220 22 L
Hverfisg-ötu 103.
Sími eftir lokun 31160.
feílaseila
FmsTOIBIji.v.s=1
Bergþórugötu 3.
Símar 19032 og 20070.
VANTAR BLAÐBURÐAR-
FÓLK í
EFTIRTALIN HVERFI:
MIÐBÆ, I. og II.
UVERFISGÖTU
EFRI OG NEÐRI
ESKIHLÍÐ
LÖNGUHLÍÐ
GNOÐARVOG
rw,
á krossgötum
RAUÐARARIÍOLT
LAUGAVEG, EFRI
LAUGAVEG, NEÐRI
LAUFÁSVEG
ÁLFIIEIMA
KLEPPSHOLT
S í m 5 14 9 0 0
★ KÚLUSUKK í LAUGAR-
DAL.
★ ÍÞRÓTTAHÚS Á AKUR-
EYRI.
íþróttaunnandi, sem við hittum
nýlega á förnum vegi, sagði, að það ætlaffi sann-
arlega ekki að verða cndasleppt með íþrótta-
höllina í Laugardalnum, sem almenningur hefur
lengi kallað Kúlusukk, vegna þess hve óheyri-
lega dýrt mannvirkið var.
Það er nú komið í Ijós, sagði
þessi maður, að ekki er hægt að taka kvik-
myndir í þessu stórhýsi lýsingarinnar vegna, nema
rétt á daginn, þegar dagsbirtu nýtur. Mikil for-
sjálni hlýtur slíkt að teljast hjá þeim, sem
mannvirkið byggðu.
Þá er það, sagði hann, að í-
þróttamenn hafa meiðzt vegna þess að þeir hafa
dottið í bleytunni á salargólfinu. Hið dýra kúlu-
þak, sem óspart hefur verið auglýst og kostaði
margar milljónir gegnir nefnilega ekki frum-
hlutverki þaks. Það heldur ekki vatni! Liggur
því vafalaust fyrir að aflýsa liér eftir samkom-
unum í þessari dýrðarinnar höll, þegar væta
er, — eða vætu er að vænta. Já, þær eru sann-
arlega ekki til einskis, þessar milljónir, sem
teknar hafa verið úr vösum okkar borgarbúa og
settar í þetta Kúlusukk, sagði íþróttaunnandinn.
•Þessi sami maður hafði nýlega
verið dagstund norður á Akureyri og þá notað
tækifærið og skoðað íþróttahús, sem þar er búið
að taka í notkun. Hann sagði, að það væri að
vísu engan veginn fullkomið, en þakið á þvl
læki þó að minnsta kosti ekki! Þetta hús var
ekki ætlað sem íþróttahús, en með tiltölulega
litlum tilkostnaði var því breytt í íþróttahús
og dugar vel.
Hann kvaðst sannfærður um, og
hefðu margir raunar bent á það áður, að byggja
hefði mátt að minnsta kosti tvö iþróttahús af
venjulegri og skynsamlegri gerð fyrir það fé, sem
kúluhöllin kostaði, og hann bætti því við, að
sennilega hefðu þau verið vatnsheld og nothæf
til kvikmyndatöku líka.
Hin alvarlegu mistök við kúlu-
höllina í Laugardal liafa orðið okkur dýr, sagði
liann. Sums staðar erlendis þar sem það tíðkast
að hafa eftirlit með framferði og framkvæmd-
um opinberra aðila, hefði það sem hér hefur
átt sér stað áreiðanlega kostað opinbera rann-
sókn. En hér yppa menn bara öxlum, rétt eins
og enginn beri ábyrgðina. — K a r 1.