Alþýðublaðið - 18.03.1967, Qupperneq 7
Yfirlýsing frá stjórn Sambands ungra jafnaðarmanna:
í ÞJÓÐVILJANUM 1. marz sl. og
Frjálsri Þjóð 2. marz sl. er látið
mjög að því liggja, að Sambandi
ungra jafnaðarmanna hafi borizt
fé frá Leyniþjónustu Bandaríkj-
anna (CIA) seinni árin til starf-
Bemi sinnar. Er þetta rökstutt
með því annars vegar, að sannað
sé að Alþjóðasamband ungra jafn
aðarmanna (IUSY) hafi þegið
fjárstyrki frá CIA og því hins veg-
ar, að með ólíkindum megi telja
hversu ,,rúm fjárráð SUJ hafa
verið. Hafa þeir m.a. gefið út mjög
vandað tímarit, — „ÁFANGA“,
sem ekkert hefur verið til sparað,
en varla sést nokkurs staðar til
sölu“, svo að orð Frj'álsrar Þjóð-
ar séu tilfærð. En Þjóðviljinn seg-
ir m.a. að „raunar 'hafi Samband
ungra jafnaðarmanna virzt hafa
býsna góð fjárráð í samanburði
við önnur æskulýðssamtök hér á
landi, eins og m.a. má marka af
tímariti sambandsins, sem hefur
borið þess merki, að ekki hefur
þurft að spara við það peninga."
— Stjórn SUJ unir vel því áliti
andstæðinganna, að starfsemi sam
bandsins hafi verið blómleg og
öflug seinni árin. Hins végar hef-
ur hún vissulega ekki grundvallað
á gjafafé frá Leyniþjónustu Banda
ríkjanna eða Alþjóðasambandi
ungra jafnaðarmanna. Fé það, sem
SUJ hefur áskotnazt seinni árin til
starfsemi sinnar og framkvæmda
er allt innlent og vel fengið. Skal
það nú skýrt nokkru nánar:
I. Daglegur rekstur SUJ byggist
á mjög mikilli sjálfboðavinnu
stjórnarmanna ag annarra félaga.
Fé fæst með tvennum hætti ein-
vörðungu: með sköttum FUJ-fé-
laganna og sérstakri blaðaútgáfu
vor og haust. Með sparsemi og fórn
fýsi félaganna dugar þetta tvennt
til að halda uppi þeirri miklu
starfsemi, sem blöðin tvö skilja
ekki hvernig takast má, án þess
að CIA-fé komi til.
II. Tímaritið ÁFANGI hefur nú
komið út í 6 ár og átt vaxandi við-
gangi að fagna, þrátt fyrir alla þá
eríiðleika, sem flest íslenzk tíma-
rit eiga við að etja. Ofangreind
blöð Alþýðubandalagsins halda
því fram, að ekki 'hefði verið unnt
að halda því úti ef ekki hefði til
komið fé frá erlendum aðilum til
að standa undir hallarekstri. Slíkt
er fjarri öllu sanni. Útgáfa Á-
FANGA hefur heppnazt vegna þess
að nánustu aðstandendur hans í
röðum samtakanna hafa unnað
honum og unnið án greiðslu, hann
hefur átt tryggan fjölda áskrif-
enda og áskriftarverðið raunar
verið í hærra lagi. Nú standa
mál að vísu svo, að ritið hefur
safnað skuld frá fyrri árum, sem
nemur um 120 þúsund krónum.
Fyrirsj'áanlegt er þó, að hún verð-
ur ritinu ekki að aldurtila, því
að bæði hækkaði áskriftargjaldið
verulega á miðju síðasta ári og
eins hefur nýleg áskrifendasöfn-
un fært því stórt hundrað áskrif-
enda. Er því ástæða til að ætla, að
ÁFANGI muni koma áfram út, ef
íslenzkir vinstrimenn vilja kaupa
hann og án þess að svo mikið sem
ein erlend gjafakróna verði til
hans lögð, fremur en til þessa.
III. Á síðastliðnu sumri rættist
nær fertugur draumur Sambands
ungra jafnaðarmanna um eigin
húsakynni til starfseminnar. Keypt
var 80—90 fermetra skrifstofuhús-
næði, þar sem miðstöð hreyfingar-
innar verður á komandi timum.
Ekki er ósennilegt að þessi kaup
eigi sinn þátt í því, að ofangreind
alþýðubandalagsblöð telja sér
stætt á dylgjum um erlent gjafa-
fé til SUJ. Þó er skemmst frá því
að segja. að ungt alþýðuflokks-
fólk hefur eitt saman lagt til fé
til kaupa á húsnæði þessu. Eign-
in var keypt á tæpa milljón kr.,
útborgun nam um 370 þús. kr., en
aðrir hlutar kaupverðsins eru föst
lán til langs tíma. Ætlunin er að
safna öllu því fé meðal ungra jafn-
aðarmanna og hafa 85 þeirra þeg-
ar lagt fram samtals kr. 221.500,
eða að meðaltali 2.650 kr. hver.
Fyllsta ástæða er til að ætla, að
unnt verði að safna allri útborgun
húsnæðisins meðal unga fólksins
í Alþýðuflokknum og mun það
væntanlega verða innan skamms.
Þessi mikla þátttaka og fómfýsi
un'gra jafnaðarmanna sýnir vel
hug þeirra og baráttuvilja og hug-
sjónaást. Og víst er mest um vert
að svo rækilega skuli sannast að
hún er fyrir hendi. Hitt er illt að
dylgja um, að framlög til húsa-
Frá fundi S.U.J.
kaupa þessara hafi ekki komið til
sögunnar úr vösum ungra jafnað-
armanna, heldur leynisjóðum CIA.
En slíkt er engin hæfa, eins og
áður hefur verið lýst. Ungir ís-
lenzkir jafnaðarmenn hafa með
eigin fé keypt skrifstofuhúsnæði
þetta o'g hafa ekki notað til þess
fé annar staðar frá.
Stjórn SUJ hefur ekki fleiri orð
um þetta mál — nema tilefni gef-
ist til. Hún mun ekki una dylgj-
um fjármál samtakanna og mun
grípa til sérstakra ráða í því iefni
ef annað dugir ekki.
F.h. stjórnar SUJ
Sigurður Guðmundsson.
AÐALFUNDUR
Sparisjóðs vélstjóra verður haldinn að Báru
götu 11 sunnudaginn 19. marz 1967 kl. 14.00.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir
ábyrgðarmönnum, eða umboðsmönnum
þeirra föstudaginn 17. marz kl. 13.00—16.00
og laugardaginn 8. marz kl. 10.00—12.00
Stjórnin.
IÐJA, FÉLAG VERKSMIÐJUFÓLKS
í REYKJAVÍK.
AÐALFUNDUR
Iðju, félags verksmiðjufólks í Reykjavík verð
ur haldinn þriðjudaginn 21. marz 1967, kl.
8,30 e.h. í Átthagasalnum að Hótel Sögu._
DAGSKRÁ:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Mætið vel og stundvíslega.
Reikningar félagsins liggja frammi í skrif-
stofu félagsins.
Stjórnin.
18: marz 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ T