Alþýðublaðið - 18.03.1967, Blaðsíða 9
himins, og hver einasti hermaður,
jafnt óbreyttur sem háttsettur,
voru sifellt á varðbergi. Litlu tré
skálunum þeirra hafði verið hrófl
að upp í snatri og meðfram
þeim hafði verið lilaðið striga-
pokum fullum af sandi. Skálun-
um mátti breyta í góð vígi á
skammri stundu, en auk þess voru
skotgrafir allt í kringum búðirn
ar og þar stóðu hermenn á kafi
í moldarfeninu og hver blettur á
skyrtum þeirra var blautur af
svita. Þeir voru þungir á brún,
og þarna var lítið talað.
í herstöðinni var ferð okkar
að landamærunum, eða herstöð-
inni Camp Carroll skipulögð. Þeir
ákváðu að senda okkur með tveim
ur þyrlum sem tækju á sig nokk
urn krók til að fljúga ekki beint
yfir þau svæði þar sem barizt
var. Það var rökrætt um það
hvort þyrlurnar skyldu fliúga í
mikilli hæð, eða fara örlágt yf
ir skógarsvæðið upp af herstöð
inni. Þegar flogið er lágt, er
hraðinn á vélunum það mikill að
leyniskytturnar eru rétt búnar að
snúa sér við, þegar vélin er kom
in framhjá. Ef hins vegar er flog
ið í mikilli hæð, er vélin ekki í
skotfæri fyrr en hún fer að lækka
flugið, — og það er einmitt þá
að flestar þeirra eru skotnar nið
ur. Það var ákveðið að fljúga
lágt. — Síðan gengum við út að
þyrlunum. Báðar höfðu þær orð
ið fyrir nokkru hnjaski. Belgur-
inn á annarri var eins og sigti
eftir skothríð, og á hinni höfðu
allir gluggar vinstra megin verið
skotnir burtu. Þessir „jeppar"
Víetnam styrjaldarinnar tóku sig
á Ioft og hávaðinn frá hrevflunum
ætlaði að æra okkur. Gluggarnir
voru burtu og vélin var opin að
aftan, svo að við gætum stokkið
sem fyrst út úr henni, ef hún
nauðlenti.. Það tók ekki nema 10
mínútur að komast til Camp Carr-
ol. Á meðan fylgdust skytturnar,
sem voru sitt hvoru megin í vél
inni, með öllum mannaferðum á
jörðu niðri. Önnur skyttan, sem
var ungur piltur, tæmdi eina skot
rúlluna niður í þéttan skóginn,
þegar hann taldi sig hafa séð
hreyfingu á svæði þar sem eng-
inn Bandaríkjamaður átti að vera.
En kannski hefur hann aðeins
verið að létta á taugaspennunni.
Camp Carroll er nefnd eftir
bandarískum liðsforingja, spm lét
lífið fyrir nokkru á þessum slóð
u'm, er hann gerði hetjulega til-
raun til að bjarga nokkrum fé-
lögum sínum, sem höfðu verið
umkringdjr. Honum tókst það, en
lét lífið fyrir. — Þegar við kom
um til Camp Carroll var stór-
skotaliðið þar að aðstoða fót-
gönguliða, sem áttu í höggi við
hermenn frá Norður-Víetnam sem
höfðu reynt að komast inn í Suð
ur-Víetnam eftir Ho Shi-Minh-
slóðinni. Viðnámsgrindurnar á hin
um störu fallbyssum grófust nið
ur í moldina og loftið nótraði af
þungum drunum og hvini frá
kúlunum.
Fallbyssunum var stjórnað frá
framvarðarstöð á hæð skammt
frá Camp Carroll. Allt frá því að
styrjöldin hófst í Víetnam hefur
þessi hæð verið mjög mikilsverð.
Nefnist hún Rock Pile og stend
ur á lítilli sléttu þar sem koma
saman fimm dalir, er ganga til
norðurs yfir hlutlausa svæðið og
inn í Norður-Víetnam. Þessir dal
ir hafa einu nafni verið kallaðir
Ho Shi-Minh-slóð, en um þá fóru
nær allir birgðaflutningar norð-
anmanna við upphaf stríðsins. Nú
hafa Bandaríkjamenn náð þarna
sterkari aðstöðu og er tugum fall
byssna beint að dölunum og varð
mennirnir á Rock Pile gefa fyrir
skipanir um hvert skuli skjóta,
er þeir verða varir við manna-
ferðir í dölunum. Á þessum slóð-
um er lítil sem engin byggð,
enda landið mjög erfitt yfirferð-
ar.
Það eru ekki margir menn,
sem hafa aösetur á Rock Pile.
Þeir búa þar í tjöldum, og eini
möguleikinn til að koma varningi
til þeirra, er að nota þyrlur. Þær
lenda á litlum trépalli efst á hæð
inni, og færa hermönnunum mat
og skotfæri. Rock Pile er mjög
erfiður uppgöngu, og eru her-
mennirnir þar nokkuð öruggir
með að ekki verði á þá ráðizt.
Frá þessari litlu hæð hefur ver-
ið stjórnað öllum meiriháttar ár-
ásum á norðanmenn og flutninga
lestir þeirra. Það voru einnig
fallbysurnar í Camp Carrol, sem
skotið var úr inn á hlutlausa-
beltið fyrir nokkrum dögum.
Stundum halda norðanmenn uppi
látlausri skothríð dag eftir dag á
Rock Pile, og það hefur komið
fyrir, að hermennirnir þar hafa
soltið ef þyrlurnar, eina samband
þeirra við umheiminn fyrir utan
loftskeytasamband, hafa ekki get
að lent hjá þeim. Þeir eru ger-
samlega einangraðir á þessari
litlu hæð, en gegna afar mikil-
vægu hlutverki frá hernaðarlegu
sjónarmiði.
HÚSBYGGJENDUR
Kaupið miðstöðvarofna þar sem úrvalíð er- mest
og bezt. Hjá okkur getið þér valið um 4 tegundir:
V
HELLUOFNINN
30 ára reynsla hérlendis.
EIRALOFNINN
úr áli og eir, sérstaklega hentugur ’
fyrir hitaveitur.
PANELOFNINN
Nýjasta gerð, mjög hagstæð hitagjöf.
JA-OFNINN
Norsk framleiðsla — fáanlegur með
fyrirfram innstilltum krana.
Stuftur afgreiðslufresfur — Leifið tifboða.
h/fOFNASMíÐJÁN
EINHOLTI 10 — SÍMI 21220
IANNLÆKNASTOFA MÍN
ER FLUTT AÐ LAUFÁSVEGI 12
Viðtalstími frá kl. 9—12 og 2—5 nema laug
ardaga. Sími 10452.
EYJÓLFUR BUSK, tannlæknir
FÆÐINGARHEIMILIÐ í KÓPAVOGI
Fæðingarheimilið í Kópavogi vantar ljósmóð
ur nú þegar, þarf að vera vön að vinna á
deild, upplýsrngar gefur forstöðukonan í
síma 41618 kl. 13—14.
Jóhanna Hrafnfjörð
Borgarholtsbraut 42
Kópavogi.
STARF ÆSKULÝÐS- OG
ÍÞRÓTTAFULLTRÚA AKRANESS
er Iaust til umsóknar.
Æskilegt er að umsækjendur hafi kennara-
menntun/ eða hliðstæða menntun og nokkra
reynslu í félagsstörfum.
Umsóknarfrestur er til 10. apríl 1967.
Umsóknir sendist til Jóhannesar Ingibjarts
sonar Heiðarbraut 3. Akranesi.
Æskulýðsráð Akraness.
18. marz 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ «$