Alþýðublaðið - 18.03.1967, Blaðsíða 10
Bréf sambands
sveifarfélaga
Áiyktanir járniönaðarmanna
Bréf• þetta átti að birtast með
ereinargerðinni frá Sambandi ís-
lenzkra sveitarfélaga, sem kom í
blaðinu í gær, en varð vegna mis-
taka viðskila við hana og birtist
l því liér núna.
i; Dagana 16. og 18. þ.m. áttu for
maður og varaformaður sambands-
* ins viðr'æður við háttv. félagsmála
ráðherra og háttv. fjármálaráð-
. iherra. Viðræður þessar fóru fram
•. vegna skilaboða, sem sambandinu
- höfðu borizt á þá leið', að ákveðn-
f ar hugmyndir væru uppi um það,
I að nauðsynlegt mundi á þessu ári
| að skerða um 10% tekjur Jöfn-
» unarsjóðs sveitarfélaga, skv. a-lið
t 16. gr. laga nr. 51/1964. Væri hér
* um að ræða fé, sem ríkissjóður
| þyrfti-á að haida vegna tiltekinna
: aðsteðjandi þarfa, og væri þessi
j skerðing nauðsynleg til fjáröflun-
■ ar í því skyni. Var talið, að hér
væri um að ræða kringum 20
* miilj. króna.
Stjórn sambaridsins hefur rætt
; þetta mal, og telur, að hún geti
ekki fallizt á þessa skerðingu,
; enda sé hér um að ræða mjög
snögglega stefnubreytingu, hvað1
' snertir viðhorf ríkisins til sveitar-
félaganna, stefnutoreýtingu, sem
muni vaida erfiöleikum í sveitar-
félögum, bæði íjárhagslega og þá
ekki síður stjórnmálalega.
Stjóm sambandsins telur, að síð
ustu árin hafi samskipti ríkisins
og sveitarfélaganna farið mjög
batnandi, óg hafi skilningur ríkis-
valdsins á aðstöðu sveitarfélag-
anna mjög aukizt. Sérstaklega
meta þau mikils þá skipun, sem
UPP var tekin fyrir nokkrum árum
er sveitarfélögum var veitt hlut-
deild i söluskatti og þeirri skipan
; fcomið á, að sveitarfélögin fengju
■ árlega framlög úr Jöfnunarsjóði
sveitarféiaga. Hefur sú skipun m.
a. orðið mjög til að bæta úr hvim-
. leiðum vanskilum margra sveitar-
- féiaga,- t.d. við Tryggingastofnun
ríkisins.
Rétt er þó að benda á, að sú
ihlutdeild, sem sveitarfélöigunum
hefur verið veitt í tekjum Jöfn-
unarsjóðs, hei’ur tvívegis raskazt,
þar sem sveitarfélögin hafa ekki
haldið því hlutfalii af tekjum, er
upphaflega var ákveðið. Þar sem
Sambandi ísl. sveitarfélaga var
Ijóst, hvaða nauðsyn var á þeim
hækkunum, var þessu ekki mót-
mælt, og má vera, að sambandið
, gjaldi nú þessa aðgerðaleysis, þeg-
ar beinlínis er að því stefnt að
! skerða þær tekjur, sem gildandi
* lög gera ráð fyrir.
Sveitarfélögunum er ljós nauð-
f sýn á þeirri verðstöðvun, sem lög-
leidd hefur verið, ■ þótt af fram-
f' kvæmd hennar stafi ýmis konar
i óþægindi og misræmi, þar sem
V bundnir eru álagningarstigar út-
f svara og ýmsar gjaldskrár; benda
y *á á það, að á tímabilinu frá
^ samningu fjárhagsáætlana, fyrir
> árið 1966, þ.e. frá árslokum 1965
? fram til 15. nóv. sl. urðu ýmsar
hækkanrr, sem sveitarfélögin urðu
/ að taka á sig, án þess að nægileg-
I - ar tekjur kæmu á móti. Er því þá
engan veginn gleymt, að framlög
Jöfnunarsjóðs munu á árinu 1966
verða nokkru hærri en áætlun fjár
laga gaf tilefni til.
Þótt sveitarfélögunum sé- það
vissulega hagsmunamál, að verð-
stöðvunin nái tilgangi sínum, þá
á það ekki síður við um ýmsa að-
ila aðra í þjóðfélaginu. Virðist því
miklu eðlilegra, að tekna, sem til
slíks þarf og nátengdra ráðstafana
verði afiað með álagninjgu á gjald-
þegna almennt, heldur en með því
að taka út einn aðila, sveitarfélög-
in, og leggja á hann tvöfaldar
byrðar, bæði 10% skerðingu fram-
Iags Jöfnunarsjóðs, auk þess sem
gert hefur verið ráð fyrir 10%
niðurskurði verklegra fram-
kvæmda, sem kemur mjög illa við
sveitarfélögin, sem standa í fram
kvæmdum sem lögboðnar eru og
ríkisframlög eiga að koma til.
Ef ekki þætti fært að leggja
áðurgreindan kostnað á gjaldend-
ur almennt, má nefna það, að sam
bandið hefur margsinnis bent á,
að óeðlilegt sé, að bankarnir i land
inu séu skattfrjálsir. Er sú tillaga
enn ítrekuð, að bankarnir verði
látnir taka á sig að sínu leyti
greiðslur til opinberra þarfa, bæði
til ríkissjóðs og sveitarfélaga.
Á það hefur oft verið bent af
hálfu sambandsins, að mjög ó-
heppilegt sé, að af ríkisvaldsins
hálfu sé hróflað við tekju- eða
gjaldaliðum sveitarfélaga, þannig
að áhrif hafi á gildandi fjárhags-
áætlun hverju sinni. Ef fram nær
að ganga skerðing á framlögum
Jöfnunarsjóðs til sveitarfélaganna
verða sveitarstjórnir, sem nú hafa
lokið gerð fjárhagsáætlana svo
sem lög gera ráð fyrir, að taka
þær til meðferðar að nýju við
tvær umræður. Mun það ekki
verða til að styrkja gagnkvæman
skilning að leggja slíkt á sveitar
stjórnir, sem eiga í miklum fjár
hagserfiðleikum og glíma við að
leysa lögbundin verkefni. En ríkis
framlög vegna þeirra verkefna eru
eins og kunnugt er í ýmsum til
vikum töluvert á eftir. Mun það og
verða til að auka enn á erfiðleik
ana, ef verklegar framkvæmdir rík
issjóðs verða færðar niður um 10
%, þar með ríkisframlög til lög-
boðinna verkefna sveitarfélaga.
Þessi skerðing er það þungbær
sveitarfélögunum, að telja verður
hana fullkomlega nægilegt fram
iag af þeirra hálfu og raunar um
fram fjárhagsþol sveitarfélaganna.
Að athu’guðu máli telur stjórn
sambandsins sér, eins og áður seg
ir, ókleift að fallast á þá stefnu
breytingu í samskiptum ríkisvalds
og sveitarfélaga, sem vakið hefur
verið máls á. Hún kemst heldur
ekki hjá því að gera umbjóðend
um sínum, svéitarstjórnum í land
inu, grein fyrir afstöðu sinni og
kanna, hvort nauðsýnlegt verður
talið að kveðja til fundár fulltrúa
ráðs sambandsins, sem fer með
æðstu stjórn þess milli landsþinga.
Stjórnin, mæltist að lokum ein
dregið til þess við háttv. ríkisstíórn
Framhald á 14. síðu. i
Félagsfundur i Félagi járniðn-
aðarmanna haldinn 13. marz 1967
m.a. til að ræða atvinnumál, á-
lyktar eftirfarandi:
,,Frá því í októbermánuði sl,
hefur atvinna í járniðnaði á
Reykjavíkur Hafnarfjarðarevæ^-
inu verið alls ófullnægjandi og
atvinnuástand í þessari iðngrein
ekki verið jafn slæmt í áratugi.
Að sama skapi hafa heildartekj-
ur járniðnaðarmanna minnkað að
miklum mun. Er lækkun heildar-
tekna á þessu timabili varlega á-
ætluð 25% og því hefur afkoma
þeirra er í þessari iðngrein starfa
versnað að sama skapi.
Það hefur verið meginverkefni
ísl. járniðnaðar að vél- og tækni-
væða höfuðatvinnuvegi lands-
manna, einkum sjávarútveginn og
að vinna að nauðsynlegu viðhaldi
skipa og verksmiðja.
Til þess að leysa þessi verkefni
af liendi, hafa verið fluttar inn
vélar og tæki fyrir hundruð millj-
óna króna. Þessar vélar og tæki
eru ekki nýtt nema að mjög litlu
leyti, en á sama tíma eru við-
gerðir íslenzkra skipa framkvæmd
ar erlendis að miklum meirihluta
en áður hefur verið, og sú þjón-
usta að sjálfsögðu greidd með
gjaldeyri til erlendra aðila.
Verkefnaskortur járniðnaðarins
nú er m.a. vegna eftirfarandi:
1. Viðgerðir ísl. skipa, jafnvel
minni fiskiskipa, hafa verið
framkvæmdar erlendis í ríkari
mæli en nokkru sinni áður.
2. Stóraukins innflutnings á vél-
um og tækjum, jafnvel heilum
verksmiðjum, sem hægt hefði
verið að smiða hérlendis og
hliðstæðar við það sem áður
hefur verið smíðað innanlands.
3. Dráttarbrautir á Reykjavíkur-
Hafnarfjarðarsvæðinu hafa
dregizt afturúr varðandi aðstöðu
til skipaviðgerða, með tilliti til
breytinga á stærðum fiskiskipa
og fjölgunar kaupskipa. Ný-
byggingar stálskipa hafa geng-
ið erfiðlega til þessa sbr. gjald-
þrot Stálskipasmiðjunnar sf. í
Kópavogi.
Fleiri atriði koma hér að sjálf
sögðu til, með tilliti til samkeppn-
innar við útlönd s.s. lánsfjárskort-
ur, háir vextir og hráefnistollar.
Félag jámiðnaðarmanna krefst
þess, að þegar í stað verði gerðar
ráðstafanir til úrbóta í atvinnu-
málum járniðanaðarins með því
m.a. að:
1. Viðgerðir ísl. skipa verði látn-
ar fara fram innanlands, hamli
ekki sérstakar ástæður.
2. Stöðvaður verði hinn gegndar-
lausi innflutningur á vélum og
tækjum, sem ísl. járniðnaðar-
fyrirtæki geta annazt smíði á.
3. Komið verði upp, á Reykjavík-
ur-Hafnarfjarðarsvæðinu, stórri
vel búinni dráttarbraut er full-
nægi þörfum fiskiskipaflotans
anriarsvegar og hinsvegar þurr-
kví til viðgerða og viðhald á is-
lenzkum kaupskipum.
Jafnframt verði komið upp
aðstöðu til nýsmíði skipa og að-
staða þeirra skipasmíðastöðva,
sem fyrir eru, stórbætt og
stefnt verði að því að öll þau
skip sem landsmenn þarfnast,
verði smíðuð innanlands.
4. Samkeppnisaðstaða járniðnað-
arins gagnvart erlendum aðilum
verði bætt með hagstæðum lán-
um og lækkuðum tollum á hrá-
efni, vélum og verkfærum.
Ef íslenzk stjórnarvöld vilja efla
atvinnulíf í landinu, verða þau,
nú þegar, að gefa gaum að ástandi
og þróun járniðnaðarins, jafn mik-
ilvægur þáttur og sú starfsgrein
er fyrir atvinnulífið, einkum þó
sjávarútveginn.“
Fréttatilkynning frá
Félagi járniðnaðarmanna.
FUNDARBOÐ
Aðalfundur Hjarta- og æðaverndarfélags
Reykjavíkur verður haldinn í gylltasalnum
Hótel Borg, sunnudaginn 19. marz, kl. 15.00.
DAGSKRÁ:
1. Skýrsla stjórnarinnar.
2. Lagðir fram endurskoðaðir reikningar
félagsins.
3. Kosning stjórnar, varastjórnar og endur
skoðenda.
4. Kosnir fulltrúar á aðalfund Hjarta-
vemdar.
5. Erindi, Snorri P. Snorrason.
6. Önnur mál.
Hljómsveitin ÁSAR frá Akranesi, en þeir léku í hinni árlegu skemmtun barnaskóla Akraness. Á
myndinrii eru frá vinstri; Tryggvi Magriússon, Vilhjálmur Þór Guðmundsson-, Stéinn M. Helgasön,
og Pálmi Guðmuridsson.
,r 10 Í8. marz 1967 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ