Alþýðublaðið - 18.03.1967, Side 11
Ánægjuleg Íþróttahátíð stúdenta:
Stúdentar sigruðu
í öllum greinum
Á fimvitudagskvöld hélt íþrótta
félag Stúdenta íþróttahátíð mikla
í íþróttahöllinni í Laugardal, í
tilefni að því, að um þessar mund-
ir eru liðin 40 ár frá stofnun fé-
lagsins.
Hátíðin hófst á því, að allir
keppendur kvöldsins gengu fylktu
liði í salinn undir stjórn Bene-
í dag, kl. 2, hefst Reykjavíkur-
meistaramót í Badminton í í-
þróttahúsi Vals. Þátttakendur eru
úr Tennis- og Badmintonfélagi
Reykjavíkur, Badmintondeild KR,
Knattspyrnufélaginu Val og
Skandinavisk Boldklub. Er þátt-
taka mjög góð, og mun óhætt að
fullyrða, að þessi skemmtilega og
holla íþrótt eigi sívaxandi vin-
sældum að fagna hér á landi.
Að þessu sinni er keppnistil-
högun með nokkuð öðrum hætti
en á undanförnum árum, þar sem
1. flokkur og meistaraflokkur
karla hafa keppt í einum flokki.
Nú er' hins vegar keppt til úr-
slita í hvorum flokki. fyrir sig.
Eykur þetta spennuna um úrslit í
dikts Jakobssonar, við undirleik
Lúðrasveitarinnar Svanur. Að fána
kveðju lokinni tók Ármann Snæ-
varr, rektor Háskólans, til máls.
Hann rakti nokkuð sögu félags-
ins og sagði m.a. að megintilgang-
urinn með stofnun þess hefði ver-
ið, að fá sem flesta stúdenta til
að taka þátt í einhvers konar
1. fl., sem að þessu sinni eru
mjög tvísýn, en með hinu eldra
fyrirkomulagi voru 1. fl. kepp-
endurnir allajafna ofurliði born-
ir af meistaraflokksmönnum.
í meistarafl. kvenna verður
keppt í tvíliða- og einliðaleik, og
má búast við jafnri og harðri
keppni, því ekki lætur kvenfólk-
ið sinn hlut fyrr en í fulla hnef-
ana. í tvenndarkeppni eru skráð
til þátttöku þrjú lið.
í meistarafl. karla, tvíliðaleik,
má telja líklegasta sigurvegara
þá Jón Árnason og Viðar Guð-
jónsson, báða úr TBR.
í einliðaleik karla í meistara-
flokki hafa þeir Jón Árnason og
Framhald á 14. síðu.
líkamsrækt, en hitt hefði ekki
verið eins þungt á metunum, hver
sigurinn hlyti. Þá minntist liann
þess, að um þessar mundir á
Benedikt Jakobson, hinn kunni
íþróttafrömuður, tvöfalt starfsaf-
mæli, en 35 ár eru síðan hann
hóf leikfimikennslu, og 25 ár
hefur hann verið íþróttakennari
Háskólans. Að lokum mælti rekt-
or nokkur hvatningarorð til stú-
denta og bað viðstadda að hrópa
ferfalt húrra fyrir afmælisbarn-
inu og sagði að því loknu mótið
sett.
Þetta varð sannkölluð sigurhá-
tíð fyrir íþróttafélag Stúdenta,
því stúdentar færðu félagi sínu
sigur í öllum greinum keppninn-
ar, en þess ber að geta, að innan
vébanda ÍS eru margir af frækn-
ustu íþróttagörpum landsins.
Fyrst fór fram knattspyrnukapp-
leikur, þar sem stúdentar léku
gegn liði Vals og sigruðu með
tveggja marka mun, 7 mörkum
gegn 5. Þá kepptu þeir í boð-
hlaupi gegn nokkrum þekktustu
hlaupagörpum höfuðstaðarins og
báru frækilegan sigur af hólmi
í skemmtilegri keppni. Því næst
léku slúdentar handknattleik
gegn KR og sigruðu sem fyrr, með
17 mörkum gegn 12. Að lokum
var keppni í körfuknattleik og
sigruðu stúdentar þar úrvalslið
landsliðsnefndar með 68 stigum
gegn 57 í ágætum leik.
Rey kja víku rmót í
i dminton I clstg
1 •'"■gj
Hulda Guðmundsdóttir, Lovísa Sigurðardóttir, Jón.na Nieljóníusardóttir og Rannveig Magnúsðóttir,
aliar úr T. B. E.
Frá Íþróttahátíð stúdenta.
Landsflokkaglíman
íer fram á morgun
Ein sú fjölmennasta sem háð
hefur verið. Meðal þátttakenda
eru flestir beztu glímumenn lands-
ins.
Landsflokkaglímán 1967 verður
háð að Hálogalandi á sunnudag-
inn og hefst kl. 5. Keppt verður
í þremur þyngdarflokkum full-
orðinna og þremur aldursflokk-
um drengja.
í fyrsta flokki keppa meðal
annarra Ármann J. Lárusson,
glímukappi íslands, Sigtryggur
Sigurðsson, skjaldarhafi Ár-
manns, Sveinn Guðmundsson,
glímukappi Vestfirðingafjórð-
ungs og Ingvi Guðmundsson úr
KR-ÍR LEIKA
ÁMORGUN
Á morgun sunnudag, 19. marz
verða leiknir tveir leikir í 1. deild
íslandsmeistaramótsins í körfu-
knattleik. Leikirnlr eru þessir:
1. Á-KFR og 2. ÍR—KR.
Ástæða er til að vekja athygli
á þessum leikjum, þar sem þarna
eigast við gamlir keppinautar
í körfuknattleiknum. Sérstaklega
má búast við skemmtilegri keppni
í leik KR og ÍR þar sem margir
i Framhald á 14. síðu.
Víkverja, en alls eru 8 þátttak-
endur í 1. þyngdarflokki.
Framhald á 14. síðu.
Heimsfrægir '*
stangarstökkv-
arar í Reykjavík i
Meistaramót íslands i
frjálsum íþróttum innanr
húss fer fram í fyrsta sinn
í íþróttahöllinni í Reykja-
vík nú um mánaðarmótin.
Keppt verður 31. marz og
1. apríl.
Frjálsíþróttadeild KR,
sem sér um framkvæmd
mótsins hefur boðið tveim
heimsþekktum stangar-
stökkvurum að keppa á mót-
inu sem gestum. EvrópvU
meistaranum Igor Feld,
iSovétríkjunum, sem stökk
5 metra á mótihu í Prag
og bandaríska meistararv-
um Bob Seagren, en hann
stökk 5,18 m. Hvort sem
þeir koma eða einhverjir
aðrir erkeitt vist, að keppn-
in verður mjög skmmetileg
og þá fáum við sennilega
að sjá 5 metra 'stökk í
fyrsta sinn hér á landi,
18. marz 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
£ » j* *%!+***+ ****!%<% +