Alþýðublaðið - 18.03.1967, Page 16
Hann á afmæli í dag.
Það er ótrúlegt hve margir eiga
afmæli þessa dagana. Og það ekki
aðeins einstaklingar, heldur líka
fyrirtæki og stofnanir, og jafn-
vel heil sveitarfélög. Þessu fylg-
ir auðvitað talsvert húllumhæ,
eins og vera ber, enda er liérna
um að ræða aðila, sem geta tæp-
lega með góðu móti verið að
heiman á afmælisdaginn, eins og
nú er mjög í tízku. Það væri
t.d. ákaflega erfitt fyrir Borgar-
nes, sem verður aldargamall verzl
unarstaður í næstu viku, að
skreppa til útlanda eða upp á
Vatnajökul til þess að komast
hjá öllu afmælisumstangi. Og
sama gildir um kollega okkar
Tímann; hann getur illa lagzt
undir feld eða skriðið í felur,
meðan afmælið stendur.
Annars er þetta kapítuli út af
fyrir sig, hve mjög menn eru
farnir að hyllast til þess að vera
að heiman á afmælisdaginn sinn.
Skæðar tungur segja að þetta sé
oft gert til þess að losna við að
þurfa að gefa heilum lierskara
af gestum í staupinu, en slíkt
er bæði kostnaðarsamt og krefur
auk þess talsverðs húsrýmis. Hitt
kemur aúðvitað engum til hugar,
Jóhann Hatstein
Hvað boðar Jóhanns blessuð sál?
Hún boðar kísilgúr og ál.
Hún Ijómar eins og glói gull,
af gleðiboðskap sneisafull.
í gæzkuríkri hendi hans
er heilög kristni þessa lands,
hver kapella og kirlcjuskrín
og kaleikur og messuvín.
S
S
S
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
í
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
$
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
að hægt væri að losna við þetta
með því að servera einfaldlega
ekkert nema kaffi í afmælunum.
Það mundi vera ódýrara; að
minnsta kosti virðist Hafnar-
fjarðarbær vera þeirra skoðunar,
en hann hefur nýlega samþykkt
að veita ekki áfengi í veizlum
sínum, og er sú .samþykkt sjálf-
sagt gerð með tilliti til þess, að
kaupstaðurinn verður sextugur á
næsta ári. Forráðamenn bæjar-
ins hafa reiknað út að það verði
hægt að sleppa ódýrar frá afmæl-
inu með kaffiboðum, en eins og
allir vita þá ráða þar í bæ ríkj-
um sparnaðarmenn góðir og fjár-
vitringar, sem t.d. eiga sér núna
þá ósk heitasta að losa bæinn
við þann bagga að þurfa greiða
ióðverjum stórfé í tolla af met-
sölum þess eina togara, sem enn
er í eigu bæjarfélagsins.
En þetta átti að fjalla um af-
mæli, en ekki útgerðarmál eða
hafnarfjarðarpólitíkina, sem þó
væri hvort tveggja verðugt út-
leggingar hér á þessari síðu.
Einn .kollega okkar í blaðamanna
stétt á afmæli um þessar mund-
ir, og um leið og Baksíðan óskar
honum til hamingju, vill hún ekki
láta hjá líðast að minnast á þykkt
aukablað sem út kom af því til-
efni. Þar kemur fram, hvílíkir
afburðamenn hafa ævinlega unn-
ið við það blað; — og er auðvitað
ekki nema rétt að menn hæli sér
sjálfir, sérstaklega þegar aðrir
verða ekki til þess.
það fylgir heilmikið af aukaútbúnaði með honum, m.a. stórglæsi-
leg krómuð handföng að aftna, svo léttara sé að ýta honum.
Bifreiðin fór af staðnum án
þess að gera húseigendum að-
vart . . .
MOGGI
Þegar SAS gat ekki komið
Lotfleiðum fyrir kattarnef,
réðust þeir bara í staðinn á
Flugfélag Færeyja . . .
Það var gaman að sjá skvís-
umar úr Verzló komnar I
síðpils í gær. Mér fannst ég
bara vera orðinn afi minn . .
Það ætti alls ekki að leyfa
bíómyndir eins og þessa
saensku mynd, sem verið er
að sýna núna. Ég er buin að
sjá hana þrisvar, og hún er
alltaf jafn ósiðsamleg. ...