Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.1993, Page 15

Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.1993, Page 15
MIÐVIKTJDAGUR 21. APRÍL 1993 15 í þetta sinn hlutlaust ísland Yfirvofandi viðskiptastríð Bandaríkjanna og EB er fyrirferð- armikið umræðuefni vestanhafs og austan. Stríðsaðilar geta orðið fleiri, svo sem Japanir og síðan íleiri Asíulönd. Slíkt viðskiptastríð er heimsógæfa. Það sem þjóðimar þarfnast, sérstaklega þær fátækari, er frjáls og hindranalaus viðskipti um allan heim. Gagnkvæmar hótanir viðskipta- veldanna nú era stórfréttir sem ís- lenskir fjölmiðlar virðast þó ekki vita af. Alþingismaðurinn Vil- hjálmur Egilsson hefur samt fengið pata af því sem er að gerast og ótt- ast það. Viðbrög hans komu fram í DV þann 7. apríl sl.; þau að vöm íslendinga sé sú best að ganga í lið með einum ófriðaraðilanum, þeim sem upptökin á að stríðinu. „Bandaríkin eru ekki flekklaus á þessu sviði. En samt er það hinn stóri og opni markaður Bandaríkjanna sem hefur verið drifkraftur evrópskra sem asískra iðnþjóða.“ KjaUaiinn Bjarni Einarsson hagfræðingur Evrópsk einangrunarstefna Tilgangur Evrópubandalagsins á sviði viðskipta er uppbygging sam- eiginlegs innri markaðar, sem var- inn er sameiginlegum tollum og öðrum viðskiptahindrunum, þ.m.t. reglugerðum sem ætlaðar era til að halda erlendum vöram frá markaðinum. Því er viðskipta- stefna Evrópu einangranarstefna. Hörðustu einangrunarsinnar Evr- ópu eru Frakkar. Innan EB gilda strangar samkeppnisreglur sem ekki gilda í viðskiptum við um- heiminn. Japanir hafa einnig varið heimamarkað sinn þótt þeir hafi byggt efnahagsundur sitt á útflutn- ingi. Bandaríkin eru ekki flekklaus á þessu sviði. En samt er það hinn stóri og opni markaður Bandaríkj- anna sem hefur verið drifkraftur evrópskra sem asískra iðnþjóða. Islensk viðskiptastefna Það er hugmyndafræðilega rangt fyrir íslendinga að styðja hafta- stefnu í viðskiptum á milli landa og það stríðir gegn hagsmunum „Dollarinn hefur hækkað mikið síðan i haust sem leið og hann er nú aftur að ná þvi sæti sem hann hélt fyrir 1985.“ okkar. Við eigum að reka opna og víðsýna utanríkisstefnu. Vegna legu landsins er auðvelt fyrir okkur að skipta við alla heimshluta. Markaðssvæði heimsins eru mis- jöfn. EB er þeirra síst. Efnahags- horfur þar eru nú einna verstar í heimi. Þar er mikill samdráttur sem stefnir í kreppu og atvinnu- leysi vex mjög ört. Framleiðni í nær öllum atvinnugreinum er þar mun minni en í Bandaríkjunum, þar sem hún er mest, og í Japan þar sem hún er næstmest. Eigi EB að geta keppt verður að grípa þar til nyög róttækra efna- hagsaðgerða. En þótt það verði gert tekur það EB fjölda ára að komast upp að hlið Bandaríkjamanna og Asíubúa. Til er betra skjól en EB í Bandaríkjunum er nú öflugur hagvöxtur. Meiri er hann þó í iðn- aðarlöndum Asíu. Mestur er hann í Kína. Þar verður mesta neyslu- bylting heimssögunnar á næstu árum. Samstarf Bandaríkjamanna og Asíuþjóða vex. Rússar hafa meiri áhuga á samskiptum við Bandaríkin en við hið níska og sjálfumglaða EB. Ef við verðum að skríða í eitthvert skjól er það hag- kvæmara og traustara fyrir vestan en austan. Dollarinn hefur hækkað mikið síðan í haust sem leið og hann er nú aftur að ná því sæti sem hann hélt fyrir 1985. Nú er mun hagkvæmara að selja í vestur en líklega verður hagkvæmara að kaupa að austan eins og áður var. Litlar líkur era á að ófriður verði á milh ríkja Bandaríkjanna en í Evrópu er logandi stríð! Átök viðskiptaveldanna byggjast ekki, eins og kalda stríðið, á hug- myndafræðilegum ágreiningi. Sú stefna, sem ein hæfir okkur, er hlutleysi í átökum efnahagsveld- anna. Við þurfum ekki að setja neinar viðskiptahömlur sem máli skipta gegn öðram þjóðum og því er fráleitt að þeim verði beint gegn okkur. Bjarni Einarsson Þeim kom það ekki við! Athyglisvert er hve gert er upp á milli hinna ýmsu greina í sjó- sókninni hér við land en samt er það svo og hefur lengi verið. Á fremsta bekk situr nótaveiðin, sama hvort verið er að veiða síld eða loðnu. Fjölmiðlamir sjá til þess að þjóðin fylgist með því þegar leit- in hefst að þessum fiskum. Síðan fáum við að vita þegar torfurnar finnast. Svo koma bátamir að landi og tekin era viðtöl við sjómenn og fiskifræðinga. Yfirgnæfandi smáfiskur Ekki er ég að lasta þetta, síður en svo, svona á þetta einmitt að vera og einnig hvað afiar aðrar greinar fiskveiðanna varðar. En það er nú ekki aldeilis þannig. Ég ætla að nefna hér dæmi: Nú um þessar mundir hefir hrygningar- þorskurinn komið úr djúpunum (guð má vita hvaöan) upp á Reykja- nesgrunn, Grindavíkurdjúp og Sel- vogsbanka. KjaUarinn Oddbergur Eiríksson skipasmiður Samkvæmt korti í sérblaði Morg- unblaðsins um sjávarútveg vikuna 15.-21. mars eru á þessu svæði um það bil 40 togarar en á öllu hinu svæðinu hringinn í kringum landið eru helmingi færri togarar eða u.þ.b. 20 skip. Þetta finnst mér fréttnæmt. Blessaður þorskurinn hann ratar þessa slóð, þá sömu og hann hefir fylgt frá alda öðli og togaramenn hafa fundiö göngurn- ar. Dagana 15.-20. febrúar vora 20-30 togskip á Breiðadalsgrunni. Sumir skipstjórar töldu að þama væri yf- irgnæfandi smáfiskur og höfðu samband við Hafrannsóknarstofn- un og sögðu frá ástandinu þarna en svarið var að þeim kæmi þetta ekki við. Togbátur dró trollið í gegnum lóðninguna og var þá eins og það væri fast svo hann hífði eftir 10 mínútur. Þegar það kom upp úr sjó var það fullt af kræðu, aðallega þorsk- og ýsuseiðum. Að því búnu yfirgaf hann svæðið. Togaraskip- stjóri lét þess getið hvemig hann færi að þessu. Hann dró trolhð í lóðninguna. Gaf höfuðmæhrinn þá stöðugt væl og dró hann þá út úr lóðningunni. Fór þá vælið að shtna og þegar trohið var tekið inn var ekki kræða í því sem orð væri á gerandi, sem sagt búið að sía hana úr. Þessi hildarleikur stóð í fimm sólarhringa, þá var svæðinu lokað. Fyrirsjáanleg niðurstaða Ég get ekki að mér gert en mér finnst þetta vera tíðindi og ég tala nú ekki um þegar sjónum er sam- tímis beint að móttökunum, sem hrygningarstofninn fær þegar hann kemur á granninn og síðan umgengninni um nýhðunina. Á sínum tíma er svo farið í togara- rah og seiðatalningu og niðurstað- an hefir verið sú undanfarin ár að viðkoman sé því miður léleg eitt árið enn og ég er sannfærður um að þannig verður það einnig við næstu rannsókn. En ég ætla aö taka það fram að það kalla ég ekki tíðindi, heldur fyrirsjáanlega niðurstöðu af því sem á undan er gengið. Ekki er þó hægt að segja að engin viðleitni sé höfð í frammi th friðunar. Nú er búið að lengja páskafrí kahanna með krókana sína og netin sín en togarakarlanir mega á sama tíma leika lausum hala. En hvað er hægt að segja rnn svona atburði í fáum orðum? Tvímælalaust er hér um að ræða hörð hagsmunaátök og aflsmunir ráöa leikslokum. Afl þessara hópa, bátaútgerðar og togaraútgerðar mim vera í hku hlutfahi og vélastærðimar í skip- unum. Sfjórnkerfi þjóðarinnar hef- ur aðlagast þessum aðstæðum, bæði sjávarútvegsráðuneytið og Hafrannsóknarstofnun með L.Í.Ú. í fararbroddi og bólar ekki á breyt- ingum á þeim bæjum. En hvað segja þeir í nýja ráðimeytinu, kenndu við umhverfi? Oddbergur Eiríksson „Tvímælalaust er hér um að ræða hörð hagsmunaátök og aflsmunir ráða leiks- lokum. Afl þessara hópa, bátaútgerðar og togaraútgerðar mun vera í líku hlut- falli og vélastærðirnar í skipunum.“ lag frá stof nun „Atlants- hafsbanda- lagið hefur, aht frá stofn- un þess, 1949, sýnt og sann- að að þaö er friðarbanda- lag og verið nm . . þess megnugt Bjorn Bjarnason al- að tryggja friö fingismaður. með frelsi. Síöan Sovétríkin hrandu og Var- sjárbandalagiö var lagt niöur hef- ur verið unnið markvisst að því að laga Atlantshafsbandalagið að nýjum aðstæðum. Þessar breyt- ingar felast meðal annars í því að bandalagiö hefur tekið aö sér að sinna friðargæslu á vegura Sameinuðu þjóðanna eins og nú er gert í lofthelgi fyrram Júgó- slavíu. Ég tel að með þessu sé bandalagiö enn aö sýna að það starfar í þágu friðar og vhl vinna að því aö tryggja öhum íbúum Evrópu það öryggi sem það hefur tryggt aðildarþjóðunum frá upp- hafi. , Við íslendingar höfum lagt okk- ar skerf til bandalagsins og sam- starfsms irman þess, meðal ann- ars meö varnarsamningi við Bandaríkin. Við getum vænst þess að við þessar breyttu að- stæður veröi geröar kröfur th okkar um framlag til frlðargæslu, að sjálfsögöu með lhiðsjón af því að við ráðum ekki yfir eigin her- afla. Friðargæsla felst ekki aöeins í því aö senda herafla á vettvang heldur einnig í að veita neyöar- þjálp og sinna mannúðarstörfum. Til þess höfum við íslendingar ávaht verið reiðubúnir." Að þrðast í „Nató hernaðar- bandalag sera er myndað fyrst og fremst af Bandaríkjun- um og öðrum stórveldum þeim tengd- ' Ragnar Stefánsson um tíl að **m+m*+ verja þeirra ur' hagsmuni og eíhahagslega yfir- burði. Nató getur aldrei orðiö friðarbandalag frekai- en önnur hernaðarbandalög. Markmiöiöer aö reka hernað. Við Natóand- stæðingar eram sérstaklega á móti aöild Islands að Nató. Við viljum ekki vera samábyrg í þeirri hernaðarhyggju sem Nató stendur fyrir og eram á móti veru Natóhersins hér á landi. Nató hefur ekki breytt um eðh í seinni tíö. Fólki var tahn trú um að Nató væri til að veija okkur gegn Rússum. En þegar Rússa- grýlan er farin verður aö finna nýjar leiðir til að undirbyggja markmið þess. Nató er því í svíaxandi mæli að þróast yfir i heimslögreglu sem viðheldur og eflii' efnahagslega yfirburði Bandaríkjanna og helstu iön- velda heims og aröran þeirra á þriðja heiminum. Við höfum frá upphafi bent á sérstakt hlutverk Nató í að gæta þess að óæstólegir meiui komist ekki tíl valda i Natólöndunum sjálfum, til dæmis á Ítalíu, Nú er einmitt buið að afhjúpa áætlun Andreottis og félaga á Ítalíu um að beita hervaldi kæmust komrn- únistar th valda í kosningum."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.