Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.1993, Qupperneq 18
18
MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL1993
MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 1993
31
Iþróttir
Iþróttir
Marco Van Basten vill fá að
spila í hálftíma meö AC Milan
gegn PSV Eindhoven í Evrópu-
keppni meistaraliða i knatt-
spymu í kvöld. Hann hefur ekk-
ert leikið á árinu vegna meiðsla
en þjálfari AC Milan vill helst
hvíla hann aöeins lengur.
Edbergíhættu
Svíinn Stefan Edberg siapp með
skrekkinn í gær þegar hann vann
Henri Leconte ffá Frakklandi
naumlega í l. umferð á opna
Monte Carlo tennismótinu, 3-6,
7-6. 6-1.
Boris Becker, Þjóðverjinn
frægi, siapp hins vegar ekki.
Hann féll út í 1. umferð fyrir
svissneska ólympiumeistaranum
Mare Rosset, 7-6,6-3.
Jean-Pierre Papin leikur ekki
með Frökkum í næstu viku þegar
þeir mæta Svíum í undankeppni
heimsmeistaramótsins í knatt-
spymu. Hann er meiddur á kálfa.
Eric Cantona frá Manchester
United er hins vegar í franska
hópnum á ný.
Tyrkiríbann
Tyrkir mega ekkí leika knatt-
spyrnulandsleiki í Izmir næstu
sex mánuðina, i kjölfar óláta
áhorfenda á HM-leik þeirra gegn
Englendingum fyrir skömmu.
Egyptar fengu jafnlangt bann á
heimavöll sinn í Kairó en mikiar
óeirðir bmtust út þegar þeir
mættu Zimbabwe i HM fyrir
skömmu.
Þá var Uruguay í gær bannað
að taka þátt í næstu heimsmeist-
arakeppni 20 ára og yngri vegna
slæmrar hegðunar leikmanna
iiðsins í keppninni sem nýlokið
er í Ástraiíu.
Minsklangefst
Dinamo Minsk er langefst í 1.
deild knattspyraunnar í Hvíta-
Rússlandi, hefur níu stiga forystu
á KEM Vitebsk þegar leíknar hafa
verið 20 umferðir af 32.
Stjaman og Akranes gerðu 0-0
jafntefli í liflu bikarkeppni
kvenna i knattspymu í gær-
kvöldi.
Lvtla bikarkeppnðn
HK og Selfoss ieika i litlu bikar-
keppninni í karlaflokki á Vallar-
gerðisvelh í Kópavogi klukkan 19
íkvöld.
• > •
Sigurgeir Svavarsson frá Ólafs-
firði sigraöi í karlaflokki á minn-
ingarmóti í skfðagöngu um tví-
burana Nývarö og Frímann
Konráðssyni sem ffarn fór á Ól-
afefirði um síðustu helgL
...ogvann
Sigurgeir sigraöí einnig í Fjarð-
argöngunni á Ólafsfirði um helg-
ina og á skírdag vann hann í
karlaflokki á OlafsQarðarmótinu
í göngu en Hólmffíöur Vala Svav-
arsdóttir í kvennaflokki.
Islandsgliman, elsta glimuraót
landsíns, fer ffarn að Varmá í
Mosfellsbæ á laugardaginn kem-
ur og hefst klukkan 14.
-ih/þj/VS
Körf ulandsliðin valin
- sex landslelklr framundan hér á landi hjá körlunum
Landshð karla og kvenna í körfu-
knattleik munu leika á ólympíuleik-
um smáþjóða sem ffam fara á Möltu
í lok maí. Torfi Magnússon hefur
valið kvennaliðið sem fer í þessa ferð
og æfingahóp karlalandsliðs.
Leikið við Eistlendinga
á Sauðárkróki
Karlahðiö mun leika sex leiki hér á
landi í byrjun maí gegn Englending-
um og Eislendingmn. Leikimir gegn
Englendingum verða 7.-9. maí í
Njarðvík, Reykjavík og á Akranesi
og gegn Eistíendingum 11.-13. maí í
Keflavík, Sauðárkróki og í Reykja-
vik.
Æfingahópur karlalandshðsins er
skipaður efdrtöldum leikmönnum:
Jón Kr. Gíslason, ÍBK, Albert Ósk-
arsson, ÍBK, Guðjón Skúlason, ÍBK,
Guömundur Bragason, UMFG,
Brypjar Harðarson, Val, Nökkvi M.
Jónsson, ÍBK, Magnús Matthíasson,
Val, Teitur Örlygsson, UMFN, Jón
A. Ingvarsson, Haukum, Valur Ingi-
mundarson, UMFN, Páll Kolbeins-
son, Tindastóh, Hermann Hauksson,
KR, Henning Henningsson, UMFS,
Pétur Ingvarsson, Haukum, Kristinn
Friðriksson, ÍBK, Óskar Kristjáns-
son, KR, Herbert Amarson,
Kentucky, Falur Harðarson, Char-
leston.
Kvennalandsliðið:
Kvennalandshðið skipa: Guöbjörg
Norðfjörð, KR, Hildigunnur Hilm-
arsdóttir, ÍR, Olga Færseth, ÍBK,
Hanna Kjartansdóttir, ÍBK, Björg
Hafsteinsdóttir, ÍBK, Hafdís Helga-
dóttir, ÍS, Stefanía Jónsdóttir,
UMFG, María Guðmundsdóttir,
UMFG, Annar D. Sveinbjömsdóttir,
UMFG, Svanhildur Káradóttir,
UMFG, Elínborg Herbertsdóttir,
ÍBK, Helga Þorvaldsdóttir, KR.
-GH
NBA-körfuboltinn í nótt:
Detroit að missa af lestmni
Níu leikir fóm fram í NBA-deild-
inni í körfuknattíeik í nótt og urðu
úrslit þessi:
Atlanta - Indiana.......111-102
Cleveland -Detroit.....105-81
Miami-NewYork...........97-109
Orlando - Washington...105-86
Minnesota-LALakers......95-107
Chicago-76’ers.........123-94
Dallas-LAClippers.......98-107
Portland - Golden State.115-99
Sacramento - Utah......101-92
Lið Detroit Pistons er að missa
af lestinni hvaö varðar að ná sæti
í úrslitakeppnini Detroit tapaði sín-
um þriðja leik í röð og ef liðið nær
ekki sæti í úrslitunum yrði það í
fyrsta skipti í 10 ár. Larry Nance
skoraði 19 stig fyrir Cleveland en
Dennis Rodman var með 17 stig og
tók 18 fráköst í hði Detroit.
Charles Smith átti stjömuleik
með New York og skoraði 36 stig í
sigri á Miami. New York er því enn
með vinningsforksot á Chicago í
toppslag austurstrandarriðilsins.
Michael Jordan skoraði 27 stig í
liði Chicago gegn Philadelphia en
Weatherspoon 17 fyrir 76’ers.
Atlanta náði að rétta úr kútunum
eftir þrjá tapleiki í röð og lagði Indi-
ana. Kevin Willis gerði 31 stig og
Dominique 25 fyrir Atlanta en Detl-
ef Shrempf 27 í liði Indiana.
Orlando berst hörðum höndum
um að koma í úrsht. Saquflle O’Ne-
al skoraði 20 stig og tók 25 fráköst
en Nick Anderson var stigahæstur
Orlandomanna með 30 stig.
Terry Porter skoraði 28 stig og
Cliff Robinson 24 þegar Portland
vann sigur á Golden State. Tim
Hardaway gerði 29 fyrir Golden
State.
A.C. Green skoraði 20 stig og
Anthony Peeler 17 fyrir LA Lakers
gegn Minnesota. Christian Laettn-
er og Doug West vom með 20 stig
fyrir Minnesota.
DaUas tapaði sínum 70. leik á
keppnistímabUinu og er þriðja Uðið
í sögu NBA sem tapar svo mörgum
leikjum á einu tímabUi.
-GH
Þýsk og spænsk félög
sýna Júlíusi áhuga
- en þó spenntur fyrir að leika áfram í Frakklandi
Nimes tryggði sér franska meist-
aratitilinn í handknatfleik um síð-
ustu helgi en tveimur umferðum er
ólokiö i deUdinni. Júlíus Jónasson
og félagar í Paris Saint Germain em
í 5.-6. sæti. Júlíusi hefur gengið ágæt-
lega í leikjum upp á síðkastið og er
í hópi tíu markahæstu leikmanna í
1. deUd. Liðið er enn með í bikar-
keppninni og mætir Venissixu í 8-hða
úrshtum.
Samningur Júlíusar við félagið
rennur út eftir þetta tímabU og sem
stendur er aUt í óvissu með framhald
hans h)á hðinu.
„Framtíð mín hjá félaginu er í
lausu lofti sem stendur. Fjárhagsá-
ætlun fyrir næsta tímabU hggur fyrir
um miðjan maí og þá verður gengið
til samninga við leikmenn. Þá kemur
í ijós hvað í pakkanum verður frá
aðalstyrktaraðUa félagsins sem er
franska sjónvarpstöðin Cannal Plus.
Heyrst hefur að styrktaraðUinn ætii
að láta af hendi rakna töluvert íjár-
magn í handboltann, körfuna og
blakiö og koma þessum greinum inn-
an félagsins í fremstu röð í Evrópu
eins og fótboltaliöinu. Þangað tíl bíða
leikmenn og stjómarmenn bara ró-
Júlíus Jónasson í leik með Paris Saint Germain í deildinni í vetur.
DV-mynd GS
legir,” sagði Júlíus Jónasson í sam-
tah við DV.
Júlíus sagðist hafa áhuga að leika
áfram með Paris Saint Germain en
hann staðfesti þó að félög á Spáni og
í Þýskalandi hefðu sýnt honum
áhuga og hann hefði verið í viðræð-
um við þau síðustu daga.
-JKS
Haukar og Selfoss
í Firðinum í kvöld
Það ræðst í kvöld hvort Haukar eða Selfyssingar
verða fjórða liðið tíl að tryggja sér sæti í undanúr-
shtum íslandsmótsins í handknattleik karla. Liðin
mætast þá þriðja sinni og fer leikurinn fram á
heimavelh Haukanna, íþróttahúsinu við Strand-
götu i Hafnarfirði, og hefst klukkan 20. Liðin hafa
unnið einn leik hvort og sigurvegarinn mætir Val
í undanúrslitum.
-VS
Úrslit brengluöust í DV sl. mánudag er greint var frá
niðurstöðum í bogfitnikeppni Norðurlandamóts fatl-
aðra. Hér fara á eftir rétt úrslit:
Konur
1. HanneTved.Danmörku.......
2. Berthe Mogensen, Danmörku.
3. SiwThulin, Sviþjóö.......
Karlar
1. JensFudge.Danmörku.......
2. PerttiPulkinen,ElmUandi..
3. Roger Eriksson, Svíþjóö..
...1057
.............1057
.............1043
....1109
....1066
....1060
-SK
Ólafur Stefánsson besti maður vallarins í Eyjum í gærkvöldi skorar eitt marka sinna í leiknum þrátt fyrir góð vamartilþrif
Eyjamanna. DV-mynd Ómar
Öruggt hjá Val
- komnir í undanúrslit eftir sigur í Eyjum, 20-26
Valsmenn sigruðu IBV, 20-26, í spenn-
andi leik í Eyjum í gærkvöldi og era þar
með komnir í undanúrslit íslandsmóts-
ins þar sem þeir mæta annaðhvort Sel-
fyssingum eða Haukum. Lokatölur segja
ekki aUa söguna því Valsmenn þurftu
svo sannarlega að hafa fyrir sigrinum.
Eyjamennn byrjuðu betur og nýttu
fyrstu sjö sóknimar og Sigmar Þröstur
varði átta skot á þessum tíma. Valsmenn
virtust allar bjargir bannaðar en Þor-
bjöm Jensson, þjálfari Vals, átti svar við
þessu, hann breytti flatri vöm Vals í 5-1
og Axel Stefánsson fór í markið. Þetta
herbragð setti Eyjamenn út af laginu,
Axel varði eins og berserkur og Vals-
menn náðu þriggja marka forskoti í hálf-
leik.
ÍBV hóf síðari hálíleik með látrnn en
það var fyrst og fremst afspymuslakur
varnarleikur sem varð þeim að falh.
Valsmenn fengu að spUa óáreittir að
flatri vöm ÍBV og Uest mörk þeirra
komu eftir gegnumbrot eða línuskot, þar
sem Geir Sveinsson var duglegur að
opna vömina fyrir félaga sína í Val.
Olafur Sefánsson var bestur Vals-
manna í leiknum. Jón Kristjánsson var
líka vel ógnandi og Geir Sveinsson vann
mjög óeigingjamt starf á línunni. Þá var
Axel Stefánsson mjög drjúgur í markinu,
þá sérstaklega í fyrri hálfleik.
Sigmar Þröstur var sem fyrr besti
maður ÍBV en frammistaða hans dugði
ekki frekar en í fyrri leik félaganna. Það
hvað mest að Belányi af útileikmönnum
Uðsins.
Þorbjöm Jensson, þjálfari Vals, sagði
eftir leUdnn að sigurinn hefði verið mjög
sanngjam. „Ég vissi að þetta yrði mjög
erfitt en ef okkur tækist að komast
tveimur til þremur mörkum yfir myndu
Eyjamenn leika Uia og það sýndi sig í
lokin. Við erum auk þess í mjög góðri
æfingu um þessar mundir. Sigurður
Gimnarsson er með ungt og efnUegt Uð
í höndunum og framtíðin er þeirra. Mér
er alveg saman hvort við mætum Sel-
fyssingum eða Haukum í undanúrsht-
um. Selfossliðið byggist meira á skyttum
en Haukamir er betur spUandi HðsheUd
og það er bara spuming hvort hðið henti
okkur betur. Við eram staðráðnir í að
fara aUa leið í úrsUtaleik,” sagði Þor-
bjöm Jensson.
„Befra hðið vann einfaldlega þennan
leik. í Valshðinu era landsUðsmenn í
hverri stöðu og tíl að vinna þurftum við
að ná mjög góðum leik sem ekki tókst.
Valsmenn era einfaldlega með besta Uð-
ið á landinu og það kæmi mér á óvart
ef þeir færa ekki aUa leið í úrshtin. Við
náðum ekki aö halda einbeitingu þegar
við náöum þriggja marka forskoti en það
virðist loða við okkur aö við föram aUt-
af Ula meö forskot. Það er erfitt að eiga
viö leikmenn á borð við Geir Sveinsson
sem er besti línumaður sem ég hef séð.
Hann hefur lítið fyrir því að eyðUeggja
heUu varnimar.
Sigurður sagði að ekki væri enn fariö
að ræða hvort hann yrði áfram með Uð-
ið næsta vetur. Sigurður gerði tveggja
ára samning við ÍBV í fyrra sem hefur
mögiUeika á endurskoðun eftir þetta
tímabU.
Eyjamenn æfa í Eyjum og
Reykjavík næsta vetur
Þorsteinn Gunnaissan, DV, Eyjum:
Handknattleiksforystan í Vestmannaeyj-
um hefur í hyggju aö meistaraflokkslið í
karla- og kvennaflokki æfi bæði í Eyjum
; og á höfuðborgarsvæðinu næsta vetur.
( Nokkrir leikmenn úr báðum flokkum ætla
aö stunda nám í Reykjavík næsta vetur og
til að missa ekki þessa leikmenn í önnur
félög ætlar handknattleiksdeUd ÍBV að
bregðast við með þessum hætti.
Nú þegar leika nokkrir Eyjamenn með
liðum í Reykjavík og þinda Eyjamenn vonir
við þaö að fá þá leikmenn til baka ef æft
verður á höfuöborgarsvæðinu næsta vetur.
Middlesborough úr botnsæti
Middlesborough komst úr botnsæti
ensku úrvalsdeUdarinnar í knattspymu í
gærkvöldi með 3-0 sigri á Tottenham.
Tommy Wright skoraði tvö mörk og Paul
Wilkinson eitt.
Staðan neðstu liðanna er þá þannig:
Cr.Palace...........38 10 15 13 45-55 45
Sheff.Utd.............38 11 9 18 45-50 42
Oldham..............39 10 10 19 55-69 40
Middlesbro...........40 10 10 20 48-70 40
NottFor.............39 10 9 20 39-57 39
Úrsht í 1. deUd:
Bristol City - Derby...............0-0
Leicester - Southend...............4-1
Oxford - Peterborough..............2-1
-VS
IBV
Valur
(11) 20
(14 26
1-1, 3-1, 5-3, 7-4, 7-7, 9-9, 9-12,
(11-14). 13-14, 15-17, 16-17, 16-20,
18-21, 18423, 20-24, 20-26.
Mörk ÍBV: Zoltán Belányi 7/2,
Guðfinnur Kristmannsson 3, Sig-
urður Friðriksson 3, Erlingur Ric-
hardsson 3, Sigbjöm Óskarsson 2,
Björgvin Þór Rúnarsson 2, Harald-
ur Hannesson 1.
Varin skot: Sigmar Þröstiu: Ósk-
arsson 18/1.
Mörk Vals: Ólafur Stefánsson 7,
Dagur Sigurðsson 6, Valdimar
Grímsson 6/3, Jón Kristjánsson 5,
Geir Sveinsson 1, Jakob Sigurðs-
son 1.
Varin skot: Axel Stefánsson 11,
Guðmundur Hrafhkelsson 3/1.
Brottvísanir: ÍBV 2 mín, Valur 8
mín.
Dómarar: Gunnlaugur Hjálm-
arsson og Einar Sveinsson, ágætir.
Áhorfendur: 420.
Maður leiksins: Ólafur Stefáns-
son, Val.
Dortmund í úrslit um UEFA-bikarinn
. Dortmund frá Þýskalandi tryggði sér
í gærkvöldi rétt tU að leika tíl úrslita um
UEFA-bikarinn í knattspymu með því
að leggja Auxerre aö velh í vítaspymu-
keppni eftir framlengingu í síðari leUt
Uðanna sem fram fór í Frakklandi.
Dortmund vann fyrri leikinn, 2-0, en
Auxerre komst í 2-0 í gærkvöldi með
mörkum frá Corentin Martins og Franck
Verlaat, og hafði þar með jafnað metin.
Ekkert mark var skorað í framlengingu
en Dortmund hafði betur í vítakeppn-
inni. Stefan Klos, markvörður liðsms,
varði þá frá Pascal Mahe og það réð
úrshtum.
Dortmund mætir Paris StGermain frá
Frakklandi eða Juventus frá Ítalíu í úr-
slitum en þau félög mætast annað kvöld.
-VS
Afmæiismót
Afmælismót KeUis í golfi verð-
ur haldið sunnudaginn 25. apríl á
Hvaleyrarvelli í Hafnarfirði.
Keppnisfyrirkomulag var punk-
takeppni 7/8 stableford. Verðlaun
verða veitt fyrir þijú efstu sætin
og aukaverðiaun fyrir að vera
næst holu á 16. braut og næ$f
holu í ööra höggi á 18. braut.
Keppnisgjald er krónur 1300 og
er skráning í síma 653360.
-GH
í vetur hafa verið haldin pútt-
mót á sunnudöginn í Golfheimi í
Skeffunni 8. Þar hefur veriö hart
barist um tvö efstu sætin sem
veitt hafa þátttökurétt í SL-mótiö.
30 keppendur hafa náð þeim ár-
angri og heyja þeir nú 36 holu
keppni um utaftlandsferð sem
Samvinnuferöir-Landsýn gefur.
Hefst þessi keppni straxað loknu
síðasta sunnudagspúttmóti þann
25. aprU klukkan 20.30.
-GH
ffeilurá
lyfjaprófi
Brasilíski knattspyraumaður-
inn Antonio Gomes féU á lyfja-
prófi sem framkvæmt var á hon-
um eftír leik með 2. deUdar liöinu
Real VaUadolid á Spáni í lok
marsmánaðar. í sýni kappans
kom fram aö hann hefur notaö
anabolíska stera. Ekki eru komn-
ar niðurstöður úr síðara prófinu
en ef þær reynast jákvæðar verð-
ur mál hans tekið fyrir hjá
spænska knattspymusamband-
inu og hann þá úrskurðaður í
leikbann.
-GH
fyrirfæreyska
landsliðinu
Ægir Máx Kárason, DV, Suðumesjum:
Nýliðar KeflvUdnga í l. deUd
era nýkomnir heim frá Færeyj-
um þar sem höið dvaldi í æfinga-
búðum fyrir átökin í sumar. Uðið
lék þtjá ieiki á jafnmörgum dög-
um. Uðið tapaði fyrir færeyska
landsliðinu, 1-0, vann síöan B 68,
4-2, tapaði síðasta leiknum íyrir
Götu, 1-0.
Aberdeen á enn tölfraaðilega
möguleika á skoska meistaratitl-
inum iknattspyraueftir 1-3 sigur
á Parflck í úrvalsdeUdinni i gær-
kvöldi. Rangers er raeð 67 stig en
Aberdeen 57 og hvort lið á fimm
leUd eftir þannig aö Rangers þarf
aöeins eitt stig enn til aö tryggja
sér titUinn.
Airdrie vann Hibemian, 3-1,
Celtic vann Falkirk, 1-0, Dundee
tapaði fýrir Dundee United, 0-4,
ög Motherwell vann Hearts, 2-1.
lllÉiiÍÍÍÍÍIlillilliÍIÍ
i efsta sætinu
Kanadamenn unnu Svia, 4-1, á
heimsmeistaramótinu í isknatt-
leik í gær en þaö fer fram í Þýska-
landi. Þeir eru eina hðið sem ekki
hefur íapað stígi eftír tvær um-
ferðir. Önnur urslit: Ítalía-Sviss
1-0, Tékkiand-Þýskaland 5-0 og
Finniand-BandarUdn 1-1.
-VS
F erðamannaí búðir
í Kaupmannahöfn
Fullbúnar íbúðir í Kaupmannahöfn. Ódýr og þægileg-
ur valkostur fyrir ferðamenn og viðskiptafólk. Hafið
samband við ferðaskrifstofu ykkar eða í síma 9045-
31226699, telefax 9045-31229199.
- í hvaða dyr sem er
= HÉÐINN =
SMIÐJA
STÓRÁSI6 -GARÐABÆ-SÍMI 652000-FAX 652570
Greiðsluáskorun
Sýslumaðurinn á Patreksfirði skorar hér með á gjald-
endur, sem ekki hafa staðið skil á virðisaukaskatti
með gjalddaga 5. apríl 1993 og fyrr ásamt gjaldfölln-
um og ógreiddum virðisaukaskattshækkunum, svo
og staðgreiðslu opinberra gjalda og tryggingargjaldi
með gjalddaga 15. apríl 1993 og fyrr ásamt vanskila-
fé, álagi og sektum, að gera skil nú þegar.
Fjárnáms verður krafist án frekári fyrirvara fyrir van-
goldnum eftirstöðvum gjaldanna að liðnum 15 dög-
um frá birtingu áskorunar þessarar, samkvæmt heim-
ild í 9. tl. 1. mgr. 1. gr. sbr. og 8. gr. laga nr. 90/1989
um aðför.
Patreksfirði 19. apríl 1993
Sýslumaðurinn á Patreksfirði
Vornámskeið
íslenska fyrir útlendinga - byrjendanámskeið.
Kennt er tvisvar í viku. Námskeiðið stendur í 5 vikur
og hefst 26.4. nk.
Umhverfisteikning - 5 vikna námskeið sem hefst
26.4. nk. Kennt er tvo daga í viku, auk þriggja laug-
ardaga. M.a. unnið utandyra.
Trimm - hefst fimmtud. 3.5., stendur til 30.7, kennt
tvisvar í viku.
Innritun - í MiðbæjarskóJa í síma 12992 og 14106.
Auglýsendur, athugið!
Sumardagurinn fyrsti er fimmtudagur-
inn 22. apríl.
DV kemur ekki út þann dag.
DV kemur út miðvikudaginn 21. apríl
og föstudaginn 23. apríl og er eina
blaðið sem kemur út þann dag.
Smáauglýsingadeild DV verður opin
miðvikudaginn 21. apríl kl. 9-22.
Sumardaginn fyrsta, 22. apríl, verður
lokað.
Gleðilegt sumar!
Smáauglýsingar
Þverholti 11, sími 632700