Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.1993, Qupperneq 36
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta-
skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast
3.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast
7.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við
tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjóm - Auglýsíngar - Áskrift - Dreífing: Símí 63270$
Frjálst,óháð dagblað
MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 1993
Eldsvoðinn 1 morgun:
„Vaknaði við
barsmíðarog
hróp á hjálp“
„Ég vaknaöi við barsmíðar og hróp
á hjálp sem komu frá konunni í íbúð-
inni við hliðina á okkar íbúð. Ég er
með gægjugat á huröinni hjá mér og
þar sem ég sá ekkert út um það gerði
ég mér grein fyrir að það var kvikn-
að í. Þá hringdi ég strax á slökkvilið-
ið. Við fórum út á svalir og gátum
hjálpað okkur þaðan niður á lóðina
í þann mund sem slökkviliðið kom.
Það var orðið svo heitt á svölunum
að við gátum ekki verið þar lengur,"
segir Laufey Harðardóttir sem býr í
íbúðinni við hliðina á þeirri sem
( brann við Veghús í morgun.
Laufey slapp heilu og höldnu frá
húsinu ásamt manni sínum, Jóhann-
esi Georgssyni hljóðfæraleikara, og
þremur dætrum þeirra. Laufey segir
að allir íbúar hússins hafi farið fram
úr rúmunum og út þegar ósköpin
byijuðu. Þau hafi einnig fullvissað
sig um að íbúarnir tveir í brennandi
íbúðinni hefðu sloppið út.
Laufey var inni í íbúð sinni þegar
DV ræddi við hana en sagði þau vera
að fara þar sem ekki væri verandi
þar fyrir reyklykt. Eins væri stiga-
-^gangurinn illa farinn og ekki fyrir
böm að fara þar um. Hún sagði böm-
in þrjú hafa tekið atburðunum vel.
„Sú í miðið áttaði sig ekki á þessu
og hélt að fólkið væri að grilla á svöl-
unum,“ sagði Laufey. -hlh
Sinubruni:
Rýma þurfti
sjúkrahúsið
Kristján Einaissan, DV, Selfossi;
Mikill sinueldur var kveiktur við
Sjúkrahús Selfoss í gær sem varö til
-•þess að rýma þurfti sjúkrahúsið. Þaö
logaði aÚt í kringum húsið og tré
fyrir norðan það eru sennilega ónýt.
Tveir drengir vom valdir að brun-
anum og á tímabili hvarf allt sjúkra-
húsið í reyk.
DV kemur næst út fóstudaginn 23.
apríl.
Smáauglýsingadeildin er opin í
kvöld til kl. 22.00 en lokuð á morgun,
sumardaginn fyrsta.
Síminn er 632700.
Gleðilegt sumar
LOKI
Sumrið heilsarauðvitað
með vetrarveðri!
Reykur í íbúðinni
er við voknuðum
tvennt flutt á slysadeild
Eldri hjón björguðust naumlega
er eldur kom upp í Veghúsum 23 í
morgun. Sex íbúðir em í húsinu
sem er þriggja hæðá og var eJdur
laus í íbúð á 2. hæö. Hjónin sera
bjuggu í íbúðinni voru flutt á slysa-
deild með reykeitmn og minni
háttar brunasár og er líðan þeirra
nú eftir atvikum.
„Þegar við komum á vettvang var
mikill eldur í húsinu. Eldtungur
stóðu út um brotnar rúður garð-
megin í húsinu og svartur reykur
barst út um opinn glugga á stiga-
ganginum, Fólk úr íbúðum á 1. og
2. hæö hússins stóð á náttfótum og
nærklæðum í anddyrmu en íbúar
á 3. hæð vom ennþá í sinni íbúð,“
sagði Guömundur Jónsson, varð-
stjóri á Árbæjarstöð slökkviliðsins,
sem kom fyrst á vettvang um kl.
6.30 í morgun.
: Á þriðjú hæð hússins era tvær
íbúðir og búa þrír menn í annarri
þeirra. Gmmar Rúnarsson er einn
þeirra og sagðist hann hafa vaknað
um þaö leyti sem slökkviliðið kom
á vettvang við þaö að lögregluþjónn
vakti þá.
„Þegar við vöknuöum var þó-
nokkur reykur í íbúðinni og maður
átti nokkuð erfitt um andardrátt.
Ég var dálítið vankaður þegar ég
vaknaði og sá að reykur liðaðist
undir ganghuröina aö íbúðinni og
fyrsta hugsun mín var að komast
niður á 1. hæð í brunaslöngu sem
var þar en var stöðvaöur af lög-
regluþjóninum," sagði Gunnar.
Gunnar telur að þeir félagarnir
hafi ekki veriö í mikilli hættu i
íbúðinni en þegar þeir voru á leiö
út úr íbúðinni, niður svalirnar,
stóðu eldtungur upp á svalir íbúð-
arinnar við hliðina og glerbrot
þeyttust í átt til þeirra þegar rúður
sprungu í brennandi íbúðinni.
íbúðin, sem eldurinn kom upp i,
er mjög mikið skemmd og má segja
að flest sé brunnið sem bmnnið
gat. Stigagangurinn er sótsvartur
og skemmdir af völdum lúta nokkr-
ar. Þá komst reykur og sót inn í
flestar aðrar íbúðir í húsinu.
Rannsókn á vettvangi stóð yfir í
morgun og eru eldsupptök ennþá
ókunn.
Amfetamínsmygl:
Tíðarkomurtil
landsins leiddu
til líkamsleitar
Þessar ungu stúlkur sóluðu sig í Laugardalslauginni í gær þegar Ijósmyndari átti þar leið um. Veður hefur verið
með eindæmum gott á höfuðborgarsvæðinu frá páskum og vona sundlaugargestir eflaust að það haldist fram á
haust. Gleðilegt sumar! DV-mynd GVA
35 ára Hollendingur, sem tekinn
var með rúm 1,3 kíló af amfetamíni
í Leifsstöð á föstudaginn langa, hefur
samkvæmt heimildum DV statt og
stöðugt neitað því í gæsluvarðhaldi
að vitorðsmenn hafl verið með hon-
um. Enginn annar er í haldi vegna
málsins. Búist er við að Hollending-
urinn verði í gæsluvarðhaldi fram
að dómsuppkvaðningu í málinu -
hann sleppur því ekki út fyrr en að
lokinni afplánun.
Samkvæmt upplýsingum DV höíðu
engin lögregluafskipti verið höfð af
manninum áður. Síðastliðna 9 mán*
uði hefur hann að jafnaði komið
mánaðarlega til landsins. Þessar tíðu
komur urðu ástæða þess að gmn-
semdir vöknuðu hjá tollgæslunni.
Við komuna var Hollendingurinn
spurður um erindi í öllum þessum
ferðum. Hann svaraði því að hann
væri í ákveðnum viðskiptaerindum
sem þóttu ekki mjög trúleg. Eftir það
var leitað á honum. Máhnu hefur
verið haldið leyndu vegna rannsókn-
arinnar og grunsemda um að fleiri
séu í spilinu, annaðhvort hér heima
eðaerlendis. -ÓTT
Veöriö á morgun:
á Suðvest-
uriandi
A morgun verður austan- eða
norðaustanátt, víðast kaldi og
skýjað á Austur- og Suöaustur-
landi en hægari og yfirleitt létt-
skýjað á Norðvestur- og Vestur-
landi. É1 verða með norðaustur-
ströndinni og smáskúrir suöaust-
anlands. Hiti 1-7 stig, hlýjast suð-
vestanlands.
Veðrið í dag er á bls. 52
ÖRVGGI - FAGMENNSKA
LANDSSAMBAND
ÍSL. RAKVF.RKTAKA
L6TTi|
... alltaf á imðvikudögum