Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.1993, Síða 11
LAUGARDAGUR 29. MAÍ1993
11
Vísnaþáttur
Oft ég sótti á þinn fund
Eg lét loks verða af því nú fyrir
skömmu að heimsækja gamian
kunningja, Ágúst Vigfússon kenn-
ara, sem er manna fróðastur um
gamla daga, stálminnugur og auk
þess prýðilega hagmæltur. Ég hafði
lengi ætlað mér að „heilsa upp á
hann“ gæfist tækifæri til en látið við
það sitja þar til nú. Árangur við-
ræðna okkar fer hér á eftir, þó aðeins
að hluta til, því ekki rúmast hann
aRur í einum þætti. Ágúst segir svo
frá:
„Fyrir allmörgum árum kynntist
ég öldruðum Skagfirðingi, Jóhanni
Magnússyni frá Gilhaga. Hann var
sambýlismaður minn um nokkurt
skeið. Jóhann er bæði greindur og
skemmtilegur, sagði manna best frá,
snjall hagyrðingur. Þau voru ótalin
kvöldin sem við röbbuðum saman
um margvísleg málefni og þó einkum
um skáldskap. Hann kunni ógrynni
af ljóðum og ferskeytlum, enda Skag-
flrðingar kunnir fyrir það að þeim
er létt um að gera stökur.
Þegar Jóhann flutti úr nágrenninu
kvaddi ég hann með eftirfarandi
stökum:
Oft ég sótti á þinn fund,
eitt var það sem réði:
Mér fannst alltaf styttast stund
og stöðugt hlýna í geði.
Vísnaþáttur
Torfi Jónsson
Alltaf hafa yljað mér
óður þinn og ríma,
því er skylt að þakka þér
þennan liðna tíma.
Daginn eftir fékk ég kveðjubréf frá
Jóhanni:
Nú mun fundum fækka um skeið,
fyrr við undum saman,
þá gat lundin létt og heið
lífgað stundargaman.
Vorið 1974 komum við saman
skólasystkinin sem luku prófi frá
Kennaraskóla íslands vorið 1934. Þá
voru liðin fjörutíu ár síðan við
kvöddum þessa merku stofnun. Við
þetta táekifæri voru margar ræður
fluttar eins og venja er undir slíkum
kringumstæðum, rifjuð upp gömul
kynni og minnst liðinna samveru-
stimda. Þá varð þessi staka til:
Senn er lokið langri göngu,
lítinn hlaut ég skammt.
Þetta skiptir annars öngvu,
allir kveðja jafnt.
Ég kynntist Hannibal Valdimars-
syni, þeim þjóðkunna manni, nokk-
uð mn árabil. Mér þótti að mörgu
leyti mikið til mannsins koma. Rösk-
leiki hans, baráttugleði og vígfimi á
mannfundum vakti athygli flestra.
Það var aldrei logn í kringum hann.
Þó var það svo að við vorum sjaldan
sammála. Þegar hann lýsti því yfir
að hann væri hættur afskiptum af
sljómmálum datt mér þessi staka í
hug:
Þú hefur aflað ærinn skammt
á við flesta hina.
Ósköp lítið áttu samt
eftir vertíðina.
Lífsviðhorf mitt:
Gæfa er að hafa létta lund,
ljúfur eðlisþáttur.
Geta að lokum Guðs á fund
gengið alveg sáttur.
Afmæliskveðja til kunningja míns,
manns sem var mjög fróðleiksfús.
Má segja að hann hafi alla ævina
verið að læra og lesa:
Ennþá ljómar birta á brá
bjarmi hlýrra kennda.
Vona ég þín vaxtarþrá
vari að leiðarenda.
Afmæliskveðja til manns sem
starfar að umferðarmálum:
Það er hljótt um þennan mann,
þó er hann flestum stærri.
Ættum við marga eins og hann
yrðu slysin færri.
Kveðið á gamlárskvöld:
Þó í sárin svíði um stund
sýnist ráð að gleyma,
kveðja árið léttri lund
líkt og áður heima.
Fyrir ailmörgiun árum komu út
bækur eftir sr. Jón Guðnason sem
nefnast Dalamenn. Merkar upplýs-
ingar um ábúendur í Dalasýslu og
ná yfir langt tímabil. Ég keypti þess-
ar bækur strax og þær komu út og
var spenntur að rýna í allan þann
fróðleik sem bækur þessar hafa að
geyma. Þetta var auðvitað eðlilegt.
Dalasýsla er æskuhérað mitt. Hér
var ég kunnugastur mönnum og
málefnum. Þama var mynd af gömlu
konunni sem ég ólst upp hjá. Er ég
leit á myndina af henni urðu þessar
vísur til:
Þegar bjátar eitthvað á
æðir kuldahrina,
ennþá finn ég ylinn frá
ástúð þinni, vina.
Enginn kuldi á mér hrín
eða frostavetur,
svona mikið mildin þín
manni hlýjað getur.
Afmæliskveðja til kunningjakonu:
Þeim sem varstu, vina, kær
verður þér lengi háður,
hugsi ég til þín hjartað slær
hraðara en áður.
Lengra verður ekki komist að
sinni.
Torfi Jónsson
Sumarfrí í Danmörku!
Danmörk bíður, full af spennandi ferðamöguleikum.
Tívolí, Strikið og Dyrehavsbakken eru aðeins brot af öllum þeim
Ijúfu lystisemdum sem hægt er að njóta á danskri grundu. Danir
eru frægir fyrir að kunna að njóta lífsins bæði í mat og drykk,
hvort sem stefnan er sett á sveítakrá eða fínt veitingahús,
útkoman kemur jafn mikið á óvart. Fjölmörg söfn og hallir heilla
jafnan ferðamenn og fegurð danskrar náttúru er margrómuð.
Sumaráætlun SAS til Kaupmannahafnar er sú að flogið er á
þriðjudögum, föstudögum og sunnudögum. Hafðu samband við
söluskrifstofu SAS eða ferðaskrifstofuna þína.
Brottfarartími frá íslandi er kl. 16.20.
Brottfarartími frá Kaupmannahöfn er kl. 14.30.
Verð 28.900 kr.
Innlendur flugvallarskattur er 1.310 kr.
Danskur flugvallarskattur er 664 kr.
Verð gildir til 30. september og miöast við dvöl erlendis 16-30 daga.
Barnaafsláttur er 33%. Bókunarfyrirvari 21 dagur.
/M/S4S
SAS á Islandi - valfrelsi í flugi!
Laugavegi 172 Sími 62 22 11