Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.1993, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.1993, Blaðsíða 30
38 LAUGARDAGUR 29. MAf 1993 Iþróttir_____________________________________________dv Ásgeir Elíasson, landsliðsþjálfari í knattspyrnu, í viðtali við DV: Eigum enn möguleika á að gera betur en áður Ásgeir Elíasson gerir eina breytingu á landsliðinu. Izudin Dervic kemur i stað Þorvalds Örlygssonar. DV-mynd ÞÖK íslenska landsliðið í knattspymu leikur á miðvikudaginn gegn Rúss- um í undankeppni heimsmeistara- mótsins í knattspyrnu og fer leikur- inn fram á Laugardalsvelli. íslend- ingar léku síðasta leik sinn í HM gegn Lúxemborg fyrir skömmu þar sem liðin skildu jöfn, 1-1. Þar olli leikur íslenska landsliðsins gífurleg- um vonbrigðum enda léku íslending- amir afskaplega illa. Þarf örugglega að fara nokkur ár aftur í tímann til aö finna lélegri leik hjá landsbðinu. Eins og við var að búast létu svokall- aðir knattspymusérfræðingar vel í sér heyra efdr leikinn gegn Lúxemborg og þeir em margir þeirrar skoðunar að þetta hafi verið einn lélegasti landsleik- ur fyrr og síðar hjá íslendingum, En hvað segir Ásgeir Elíasson landsliðs- þjálfari? Var leikurinn ekki mikið áfall fyrir hann sem þjálfara? Lélegasti leikurinn undir minni stjóm „Jú, hann var náttúrlega erfiður fyr- ir mig. Það er ekki oft sem maður hefur séð íslenskt landslið vinna ekki fyrir hlutunum. Frá mínum bæjar- dymm séð fannst mér þetta aðalmál- ið en auðvitað voru menn ekki að spila alveg eins og maður vildi." - Var þetta ekki slakasti leikur landsliðsins undir þinni sljóm? „Ég held það. Þessi fyrri hálfleikur var slakur og ég man ekki eftir nein- um verri.“ - Heyrir þú ekki raddir úti í bæ sem em að gagnrýna liösskipan? „Jú, auðvitað gagnrýna menn ailtaf val á landsliði þangað til þeir geta það ekki. Meðan þaö er hægt er það gert.“ - Kalia þessar ófarir í leiknum gegn Lúxemborg ekki á breytingar? „Ég vil nú kannski ekki kalla þetta einhveijar hroðalegar ófarir. Viö vomm að spila á útivelli gegn Lúx- emborg og gerðum jafntefli og mig minnir að það hafi gerst áður. Engu aö síður vúdi maður vinna leikinn. Ég tel ekki ástæðu til að henda mönnum út eftir einn lélegan leik og því em nær engar breytingar á liðinu en ljóst er að Þorvaldur leikur ekki vegna leikbanns." Verður að horfa lengra fram í tímann - Hvað um leikmenn eins og Sigurð Jónsson, Luca Kostic, Salih Porca, Sævar Jónsson og Atla Eðvaldsson? Margir vilja þessa leikmenn inn í landsliðið. Hvað segir þú um það? „Þetta eru allt ágætis fótbolta- menn. Sigurður var að léika í fyrra- kvöld sinn fyrsta heila leik með ÍA og því tel ég hann ekki tilbúinn. Ef mér finnst að það eigi að velja þessa menn þá geri ég þaö en ef ekki þá geri ég það ekki. Ég vel ekki þá sem einhveijum öðmm finnst ég eigi að velja. Ef við hefðum átt einhvem séns á að komast áfram hefðu kannski einhveijir af þessum mönn- um sem þú nefnir verið valdir." - Nú em þrír af þessum leikmönn- um komnir vel yfir þrítugsaldurinn. Skemmir það fyrir þeim? „Það verður náttúrlega að horfa eitthvaö aðeins lengra heldur en bara á þessa þrjá leiki sem viö eigum eftir í þessari keppni. Núna eigum við enga möguleika svo menn verða að spekúlera hvað er skynsamlegast í þeim efnum. Kostic er til að mynda 35 ára gamall svo auðvitað verða menn bara að meta þaö hvort það sé skynsamlegt að velja þá vegna ald- urs.“ - Verðurekkierfittaönáuppstemn- ingu á meðal landsliðsmannanna og hreinlega að fá fólk til að mæta á völlinn eftir að hafa séð til hðsins í síðasta leik? „Ég er ekkert hræddur við leik- mennina sjálfa og ég held að það verði jafnvel auðveldara ef eitthvað er að ná upp stemningunni. Með fólk- ið er erfiðara að segja. Hefðum við unnið sannfærandi sigur og spilað vel gegn Lúxemborg myndi fólk ör- ugglega streyma á völlinn. En við verðum að vona að fólk komi og fái þá að sjá skemmtilegan leik.“ Getum enn gert betur en nokkru sinni áður - Hvemig metur þú stööu landshðs- ins í dag? Hvert er markmiðið núna? „Það sem var markmiðið hjá mér á HM var að ná eins mörgum stigum og mögulegt er. Ég hefði alveg sætt mig við sex stig í viðbót við þessi stig sem við erum komnir með. Ég reikn- aði með að vinna báða leikina gegn Lúxemborg og fá síðan tvö stig út úr leikjunum gegn Ungverjum og Rúss- um á heimavelh. Það hefði getað orð- ið eitthvað sem maður hefði verið sáttur við. Það verður erfiðara að ná þessu markmiði núna fyrst við töp- uðum þessu stigi í Lúxemborg. Við getum þó enn náð 9 stigum og þótt við náum ekki nema 7 stigum er það eitthvað meira en við höfum verið að gera áður.“ Hækka okkur um styrkleikaflokk - Sérð þú fyrir þér að íslenska landshðiö nái því að leika í úrshta- keppni HM á komandi árum? „Það verður ahtaf erfitt fyrir okkur en auðvitað eigum við möguleika á því. Ég held að það velti á heppni bæði í því á móti hveijum við lendum og svo heppni kannski í riðhnum. Þá spilar líka inn í hvort okkur tekst að stiha upp okkar besta höi hveiju sinni. Markmiðið hjá okkur hlýtur náttúrlega að vera að reyna að hækka okkur um styrkleikaflokk og verða betri og betri. Þá aukast hk- umar að við náum að komast í úrsht- in.“ - Er ekki góður efniviður í yngri landshðunum eða er þetta bara eins og þetta hefur verið í gegnum tíðina? „Ég held að það sé ekki mikil breyt- ing á því sem verið hefur. Ég hef náttúrlega ekki fylgst með yngri landsliðunum fyrr en kannski núna þegar maður hefur horft á leiki hér heima. Maður man allavega þá tíð þegar maður var í þessu sjálfur með félagshðum og landsliðum. Þá stóð- um við okkur vel og náðum til að mynda 2. sæti á Norðurlandamóti árið 1968. Það sem breytist hjá okkur miðað við margar þjóðir er það að leikmenn ytra fara í atvinnumennsk- una og auka þannig við sig æfingar á meðan við hellum okkur út í lífs- baráttuna og æfum þar af leiðandi minna. Þar held ég að skhji á milli." Legg áherslu á að menn leggi sig fram - Svo við snúum okkur að leiknum gegn Rússum; eigum við einhverja möguleika gegn þeim? „Ég veit að þetta verður erfiöur leikur en ég veit það einnig að það er möguleiki á að vinna alla leiki og þá er sama hver andstæðingurinn er. Rússar hafa gríðarlegu sterku liði á að skipa, mjög léttleikandi og skemmtilegu liöi. Það verður við ramman reip að draga en ég mun leggja höfuðáherslu á að menn vinni vel og leggi sig alla fram,“ sagði Ás- geir að lokum. DV leitaði til tveggja gamalkunnra þjálfara, þeirra Inga Bjöms Alberts- sonar, þjálfara Breiðabliks, og Magn- úsar Jónatanssonar, þjálfara Fylkis, og spurði þá hvernig þeir myndu stilla upp byijunarliði í leiknum gegn Rússum. Lið þeirra félaga eru hérfyrirneðan. -GH Uðin gegn Rússunum Ásgeir Ehasson tilkynnti í gær landsbðshóp sinn sem mætir Rússum á Laugardalsvelh á mið- vikduagklukkan 18.15. Ein breyt- ing er á liðinu sem lék í Lúxem- borg. Izudin Dervic kemur í stað Þorvalds Örlygssonar sem er í leikbanni. Landshðið er þannig skipað; Birkir Kristinsson......Fram Ólafiir Gottskálksson....KR Guöni Bergsson.....Tottenham Hlynur Birgisson.........Þór Kristján Jónsson........Fram Haraldur Ingólfsson.;.....ÍA Ólafur Þórðarson..........ÍA Baldur Bragason..........Val Rúnar Kristinsson.........KR Andri Marteinsson.........FH Amar Grétarsson........ .UBK Hlynur Stefánsson.....Örebro ArnórGuðjohnsen.......Hácken Arnar Gunnlaugsson ..Feyenoord Eyjólfur Sverrisson.Stuttgart IzudinDervic..............KR 21 árs liðið 21 árs hðið, sem leikur gegn Rúss- um, er þannig: Ólafur Pétursson, ÍB, Friörik Þorsteinsson, Fylki, Óskar Þorvaldsson, KR, Láms 0. Sigurösson, Þór, Sturlaugur Haraldsson, ÍÁ, Pétur Marteins- son, Leiftri, Steinar Guðgeirsson, Fram, Finnur Kolbeinsson, Fylki, Ágúst Gylfason, Val, Ásgeir Ás- geirsson, Fylki, Þórhallur D. Jó- hannsson, Fylki, Ásmundur Am- arson, Þór, Þóröur Guðjónsson, ÍA, Kristinn Lámsson, Val, Ómar Bendtsen, KR, Helgi Sigurösson, Fram. ■... . ■ -GH
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.