Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.1993, Side 56
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast
hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- 7.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við
skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
3.000 krónur.
Dreifing: Sími IS270Ö
Augtýsmgar - Áskrift -
LAUGARDAGUR 29. MAi 1993.
Hressir krakkar i leikskólum Garðabæjar fóru í göngutúr um Garðabæ í
gær undir lúðrablæstri og með íslenska fánann í höndum. Prýðisveður var
til útiveru þótt hitastigið hafi ekki verið ýkja hátt en krakkarnir létu það ekki
á sig fá og snæddu íspinna og drukku gos að lokinni göngunni. Á fimmta
hundrað börn tóku þátt í göngunni og vonast fóstrur í leikskólum bæjarins
til að framhald verði á svona uppákomum. DV-mynd ÞÖK
Sprenging á
tannlæknastofu
___Sprenging varð á tannlæknastofu í
Reykjavík um klukkan eitt í gær.
Gasleki kom að tengiröri og safnaðist
gasið fyrir í stjómkassa við hlið
tannlæknastólsins á stofunni. Þegar
starfsstúlka ætlaði svo að hleypa
straumi á tæki á stofunni komst
neisti í gasið með þeim afleiðingum
að sprenging varð og hlíf á stjórn-
kassanum þeyttist í hönd stúlkunnar
þannig aö hún handleggsbrotnaði.
Enginn sjúklingur var á stofunni
þegaróhappiðvarð. -pp
Hjálmur bjargaði
Ivfi 6 ára drengs
- varð fyrir strætisvagni og kastaðist í götuna
„Við sáum frétt um slys sem varð
fyrir norðan þar sem stúlka varð
fyrir bíl og hjálmurinn bjargaði
henni. í kjölfarið gáfu einhver sam-
tök öllum krökkum í bænum
hjálma og fréttin sat í okkur. Þess
vegna lögðum við áherslu á það við
drenginn að nota hjálm að stað-
aldri og við hvetjum aðra foreldra
til að brýna það fyrir bömum sín-
um að gera hið sama,“ segir Geir
faðir Sigurðar sem slapp ótrúlega
vel eftir að hann varð fyrir strætis-
vagni í Eskihlíð á fimmtudag. Sig-
uröur skall með hnakkann í götuna
við óhappið og fékk heilahristing
og marðist eitthvað. Hann eyddi
nóttinni á Borgarspítalanum en
fékk að fara heim í gær. Hjúkrun-
arfólk á Borgarspítala sagði að
sennilega væri Sigurður htli ekki
til frásagnar nú ef hann hefði ekki
verið með hjálm.
„Já, ég ætla að nota hjálm eftir
þetta og segja við alla aðra að gera
það hka,“ segir Sigurður. Sigurður
var nýbúinn að fá nýtt hjól þegar
óhappið varð og með því fékk hann
reiðhjólahjálm. Hann segist ekki
hafa notað hjálm á gamla hjóhnu
en geri það hér eftir og hlakkar til
að fara heim af sjúkrahúsinu og
út að hjóla aftur.
Foreldrar Sigurðar vilja koma á
framfæri þakklæti til hjúkrunar-
fólks á bráðamóttöku slysadeildar
Borgarspítalans.
-pp
Sigurður á Borgarspítalanum í gær skömmu áður en hann fékk að fara heim. Hjálmurinn, sem bjargaði lifi
Sigurðar, er allur rispaður og plastið inni i honum brotið. Hjúkrunarfólk telur hjálminn hafa bjargað lífi Sigurðar.
DV-mynd BG
DV kemur næst út þriðjudaginn 1.
júní.
SmáauglýsingadeUd DV er opin í
dag, laugardag, frá kl. 9-16.
Lokað á morgun, hvítasunnudag.
Opið mánudag frá kl. 18-22.
Síminn er 632700.
Smyglmáliö á Siglufiröi:
Sýslumaðurinn leystur f rá störf um
- nýr yfirlögregluþjónn ráöinn til þriggja mánaða
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Sýslumaðurinn á Siglufirði var í
gær leystur frá störfum meðan rann-
sókn á aðUd hans að smyglmáhnu,
sem upp kom þar í bæ, stendur yfir.
Það sama á við um yfirlögregluþjón
bæjarins.
Sýslumaðurinn á Sauðárkróki
mun annast embættið á Siglufirði og
utanaðkomandi lögreglumaður mun
taka við starfi yfirlögregluþjóns nk.
þriðjudag og er sá ráðinn tU þriggja
mánaða.
Lögreglumenn sem vinna að rann-
sókn málsins verjast ahra frétta at
því. Sömu sögu er að segjaum starfs-
menn Ríkisendurskoðunar sem hafa
kannað fjárreiöur sýslumannsemb-
ættisins.
LOKI
Engin hola!
Veðriö á sunnudag
ogmánudag:
Léttskýjað
á Suðvestur-
Á sunnudag og mánudag eru
horfur á norðaustanátt, nokkuð
stífri á mánudag en síðan hægari.
É1 eða skúrir norðan- og austan-
lands en léttskýjað suðvestanlands.
Hiti 5-11 stig yfir hádáginn sunnan-
lands en annars 0-4ra stiga hiti.
Veðriö í dag er á bls. 61