Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1993, Qupperneq 3
MIÐVIKUDAGUR 2. JÚNÍ 1993
3
Frétdr
mmmlsnbmm
Bókaklúbbur barnanna
er lifandi og fjölbreyttur
bókaklúbbur fyrir börn.
Ef þú gerist félagi innan \
10 daga færðu tvær vandaöar
og skemmtilegar ævintýra-
bækur frá Walt Disney
á aðeins 795 krónur.
Einnig fær barnið skemmtilegt
Mikka Mús-úr ásamt blaði
klúbbsins, Gáska. Hægt er
að segja sig úr klúbbnum
með einu símtali.
J A'l'J'JDtB'íi
Láttu barnið þitt lesa góðar og vandaöar
bækur því þannig eykst lestrarkunnátta,
ímyndunarafl og andlegur þroski barnsins.
Tryggðu barninu góðar bækur og úr aö gjöf!
Taktu ákvörðun strax í dag.
Síminner t)1|
VAKVHELGAFELL
Lifandi útgáfa og þjónusta viö þig!
Mývetnlngar:
Skoðunar-
ferð
áðurenfé
fer á fjöll
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri;
Ákveðið hefur verið að senda
fulltrúa hagsmunaaðila í skoðun-
arferð á afréttarlönd Mývetninga
áður en ákvörðun veröur tekin
um hvenær fé verður rekið á fjall.
Mývetningar fóru með fé sitt
upp á öræfin í byijun júni á síð-
asta ári í trássi við vilja Land-
græðslu ríkisins og varð af nokk-
ur „hvellur".
Sveinn Runólfsson land-
græðslustjóri segir að nú sé unn-
ið í meiri sátt í þessu máli og í
næstu viku fara fulltrúar Land-
græðslunnar, sveitarstjómar
Skútustaðahrepps og gróður-
vemdamefndar í skoðunarferð
um upprekstrarlöndin. Að þeirri
ferð lokinni er síðan ætlunin að
taka ákvörðun um framhaldið.
Ástand upprekstrarlandanna
er talið mun betra en var á síð-
asta ári og veldur þar mestu að
snjóalög hafa verið mun meiri í
vetur en var í fyrravetur og vorið
mun hagstæöara gróðri.
Kópavogur:
Stálu
vinnuskúr
Lögreglan í Kópavogi leitar nú
logandi ljósi að vinnuskúr sem
var stolið í bænum fyrir um 3
vikum. Skúrinn, sem er á fjómm
hjólum, stóð á auðu svæði vestan
við fyrirtækið Palla hf., sunnan
Dalvegar í Kópavogi.
Vitni sáu til manna vera að hífa
skúrinn með krana upp á vöru-
bílspall og héldu að um hreinsun-
arátak bæjarins væri að ræða en
skömmu áður höfðu bílhræ verið
fjarlægð á svipuðum stað. Vinn-
uskúrinn var hins vegar í not-
hæfu ástandi og veldur stuldur-
inn eigandanum miklum erfið-
leikum.
Þeir sem geta lagt fram ein-
hverjar upplýsingar um hvarf
vinnuskúrsins er bent á að hafa
samband við lögregluna í Kópa-
vogi.
-bjb
Iðnskólinn:
Launað
starfsnám
í sumar
Reykjavíkurborg og Iðnskólinn í
Reykjavík ætla að gefa atvinnu-
lausu ungu fólki á aldrinum 16-20
ára kost á launuðu starfsnámi í
Iðnskólanum í sumar. Kennt verð-
ur fullan kennsludag í tvo mánuði,
14. júní til 13. ágúst, og fá nemend-
ur greiddar 30 þúsund krónur á
mánuði eða 60 þúsund krónur fyrir
sumarið. Reykvíkingar sem eru
atvinnulausir að staðaldri hafa for-
gang að náminu en aðeins verða
200 manns teknir inn.
Innritun í starfsnámið fer fram
í Iðnskólanum 2.-4. og 7. júní frá
klukkan tíu til sex síðdegis. Effir-
talin kennslusvið eru í boði:
tréiðnir, málmiðnir, rafiðnir,
tölvugreinar, fataiðnir, bókagerð
og hönnun. Þátttakendur verða
að velja eitt þessara sviða og
verður námið bæði bóklegt og
verklegt.
Nemendur geta fengið einingar
úr sumarskólanum metnar inn í
Iðnskólann og aðra framhalds-
skóla þar sem sambærilegt nám
eríboði. -GHS
Tvær íbúðir fyrir starfsmenn Landsbankans í gömlu timburhúsi fyrir vestan:
Bankinn keypti hús
í Ögri á 11 milljónir
„Sverrir Hermannsson er fæddur
og uppalinn í Ögumesi, í næsta ná-
grenni við Ögur. Ég býst við að hús-
ið hafi verið selt bankanum að hans
frumkvæði, án þess að ég viti neitt
um það. Ég geri ráð fyrir að hann
hafi haft taugar til hússins af þvi að
hann er uppalinn þarna í nágrenn-
inu,“ segir Smári Haraldsson, bæjar-
stjóri á ísafirði.
Landsbankinn hefur keypt gamalt
tveggja hæða timburhús í Ögri við
ísafjarðardjúp fyrir rúmar ellefu
milljónir króna. Búið er að endur-
uppgera húsið og eru nú tvær íbúðir
í því auk svefnpokapláss í risi.
Fyrirhugað er að leigja húsið út
sem orlofshús fyrir starfsfólk bank-
ans en unnið hefur verið aö breyting-
um á húsinu undanfarið ár.
Ekki náðist í Sverri Hermannsson
vegna málsins.
-GHS
EINSTAKT INNGÖNGUTILBOÐ í BÓKAKLÚBB BARNANNA