Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1993, Page 13

Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1993, Page 13
MIÐVIKUDAGUR 2. JÚNÍ1993 13 Neytendur Grillmatur og önnur matvara býðst neytendum á tilboðsverði næstu daga og einnig er hægt að fá ýmsa sérvöru með góðum afslætti. Sértilboð og afsláttur: Grillmatur á tilboðsverði Neytendur ættu að geta gert góð kaup í stórmörkuðunum næstu daga því þar ér boðið upp á margs konar sértilboð og afslætti. Kjöt og fiskur Helgartilboðið hjá Kjöti og fiski gildir frá fimmtudegi til laugardags. Þar verður hægt að fá nautahakk á 598 krónur kílóið, lambagrillsneiðar á 720 krónur kílóið og svínagrill- sneiðar á 590 krónur kílóið. Einnig býöst þar Tuffy pops kex á 89 krónur pakkinn, Orville örbylgju- poppkom á 99 krónur pakkinn og sex tveggja lítra kókflöskur á 799 krónur pakkinn. Föst tilboð eru einnig í gangi frá mánudegi til föstudags allt árið um kring. Á mánudögum kostar kílóið af ýsuflökum 395 krónur, á þriðju- dögum kostar kílóið af kjötfarsi 295 krónur, á miðvikudögum kostar kíló- ið af saltkjöti 449 krónur og á fimmtu- dögum bjóðast 10-15 tegundir af grænmeti með allt að 30% afslætti Tilboðsveggurinn er einnig á sín- um stað hjá Kjötí. og fiski. Þar eru 30 mismunandi tilboð í gangi hveiju sinni sem skipt er út hálfsmánaðar- lega. Mikligarður Engin sérstök matvörutilboð eru í gangi í Miklagarði en rýmingarsalan stendur enn yfir og þar má gera góð kaup á sérvöru. Þar má fá herraulpur á 2.495 sem áður kostuðu 5.995 krónur, herra- skyrtur á 995 sem áður kostuðu 2.995, hama flauelsbuxur kosta nú 500 en kostuðu 1.895 krónur áður og telpu- kjólar kosta nú 1.995 en kostuðu áður 4.995. Einnig er hægt að gera góð kaup í dömupeysum, þær kosta nú 1.495 en kostuðu áður 3.995, sportskór í stærðunum 35-46 kosta nú 995 en kostuðu áður 2.995, herraskór kosta nú 1.995 en kostuðu áður 3.995 og geisladiskar eru nú seldir með 30% afslætti. Fjarðarkaup Tilboðin í Fjarðarkaupum í Hafn- arfirði gilda frá miðvikudegi til föstu- dags. Þar má fá 'A dós af ananas- kurh á 25 krónur, 'h dós af hvítum aspas á 59 krónur, 400 g af Macvites súkkulaðikexi á 127 krónur og Snap Jacks kex, fruit og country, á 95 krónur. Einnig fást þar niðurskorin þriggja koma brauð og Pálmabrauð á 98 krónur, Pampers bleiur á 897 krónur pakkinn og 680 g af Hunts tómatsósu á 98 krónur. í kjötborðinu er nautaframhryggj- arfile á tilboðsverðinu 998 krónur kílóið, lamba grillsneiðar á 929 krón- ur kílóið, nautagrillsneiðar á 998 krónur kílóið og kindabjúgu á 429 krónur kílóið. Dagana 3.-11. júní verður sérstök Heinz-vika í Fjarðarkaupum þar sem Heinz-vörur verða kynntar og seldar á tilboösverði. Heinz tómatsósa í 792 g plastflösku verður seld með sér- stökum afslætti á 50 krónur ef skilað er inn afsláttarseðli sem liggur frammi í versluninni og gildir einnig sem happdrættismiði. Bónus Tilboðin í Bónusi gilda frá fimmtu- degi til laugardags. Þar er hægt að fá þijú bréf af Hos örbylgjupopp- komi á 82 krónur, 500 g af D. pasta- skrúfum á 43 krónur og tólf rúllur af íslenskum Bónus salernispappír á 229 krónur. Einnig fæst þar 1 kg af komflexi á 199 krónur, 300 g af Nóa rúsínum kosta 159 krónur og fjórir stórborgar- ar með sósu kosta 298 krónur. -ingo Pottagaldra-dagar í stórmörkuðum: Dagana 3.-5. júní næstkomandi verður fyrirtækið Pottagaldrar með kynningu í helstu stórmörkuðunum þar sem lambakjöt verður kryddað á margvíslegan hátt með kryddi og jurtablöndum frá Pottagöldram og selt í kjötborðum verslananna. Pottagaldrar framleiða u.þ.b. 8-10 tegundir af kryddblö'ndum sem seld- ar em með uppskriftum og notkun- armöguleikum og inniheldur hver blanda allar þær kryddtegundir sem nauðsynlegar em í umræddan.rétt. Allar eru kryddblöndumar án salts og pipars. Á kynningunni verður lög áhersla á hreinleika lambakjötsins, ljúffengt bragð þess og hversu vel jurtir bragð- bæta það. Þar verður m.a. boðið upp á villijurtakryddað lambalæri, lambalærissneiðar/kótelettur mar- ineraðar í Creola-blöndu og Chili con Came sem er mexíkanskur réttur úr lambahakki. Verslanimar, sem taka þátt í kynn- ingunni, em: Hagkaup, Nóatún, Fjarðarkaup, Kjöt og fiskur í Mjódd og Kjötbúr Péturs í Austurstræti. -ingo Innilegar þakkir sendi ég þeim sem heimsóttu mig á afmælisdaginn, 20. maí, og glöddu mig með blómum og gjöfum og á annan hátt gjörðu mér daginn ógleymanlegan. Guð blessi ykkur öll. Ósk Þórhallsdóttir Golfklúbbar - félagasamtök Til sölu eftirtalin tæki: 1. Dráttarvél, Massey Ferguson 35, bensín, þarfnast viðgerðar. 2. ATCO B-28, „green" sláttuvél, 28" vals, gott ásig- komulag. 3. Ransome brautarsláttuvél, 5 valsa, dregin, nýleg, gott ástand. Upplýsingar í síma 91-667415 næstu daga. Golfklúbburinn Kjölur, Mosfellsbæ Byggingarréttur á Ingólfstorgi Auglýst er eftir umsóknum um byggingarrétt fyrir u.þ.b. 15 ferm söluskála á norðanaustanverðu Ingólf- storgi, þar sem gert er ráð fyrir að seld verði blöð, ís, sælgæti o.þ.h. Fyrir liggur útlitshönnun skálans, sem verður byggður að hluta til undir bogaþaki, sem er borið uppi af 6 súlum. Reykjavíkurborg kostar gerð súlnanna og þaksins og lætur gera undirstöður undir skálann um leið og unnið er að frágangi Ing- ólfstorgs. Verður því lokið í júlí nk. og skal byggingu söluskálans lokið innan þriggja mánaða eftir það. Umsóknum um byggingarréttin skal skila á skrifstofu borgarverkfræðingsins í Reykjavík, Skúlatúni 2, 3. hæð, fyrir kl. 16.00 föstudaginn 18. júní 1993 og skal fylgja þeim greinargerð um starfsemi umsækj- anda, þ.á m. upplýsingar um fjárþagsstöðu hans, Nánari upplýsingar, skilmálar og uppdrættir fást áN skrifstofu borgarverkfræðings, Skúlatúni 2, og í síma 632310. Borgarstjórinn í Reykjavík ER SKEMMTILEGER TÍMI FRAMIMIW? Ekki nema í góðum félagsskap. Hringdu og prófaöu SímastefnumótiS þar sem fjöldi fólks á öllum aldri hefur fundiS sér félaga. Þetta er spennandi og skemmtileg leið til að kynnast nýju fólki. Þetta er spennandi, þetta er rómantískt, þetta er öruggt. Mínútan kostar 39,90 kr. SÍMASTEFIAIJMÓT 99/18/95 V Teleworld

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.