Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1993, Side 17

Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1993, Side 17
MIÐVIKUDAGUR 2. JÚNl 1993 17 Arni Þór og Broddi komnir í 3. umferð Árni Þór Hallgrímsson og Broddi Kristjánsson eru komnir í 3. umferö í tvíliðaleik á heimsmeistaramótinu í badminton sem nú stendur yfir í Birmingham á Englandi. í fyrstu umferðinni lögöu þeir Hamid Nasimi og Morteza frá íran mjög auðveld- lega, 15-0 og 15-11. 12. umferðinni mættu þeir Tim He og Murrey Hocking frá Ástralíu og sigruðu, 18-14 og 15-8. Þeir Árni og Broddi léku gífurlega vel. Fyrri lotan var mjög jöfn og spennandi. Ástral- amir náðu að jafna, 13-13, og skora fyrsta stigið í upphækkuninni en Arni og Broddi áttu lokaorðið og skoruðu fimm síðustu stigin. í ann- arri hrinu náðu þeir upp góðri sókn og sigurinn var aldrei í hættu. í kvöld leika Arni og Broddi gegn Tælend- ingunum Pramote og Sakrapee en þeim er raðað í mótinu númer 5-8. Þorsteinn Páll Hængsson og Nick Hall frá Nýja-Sjálandi léku gegn Gopl Chand og George Thomas frá Ind- landi og náðu þeir mjög vel saman þrátt fyrir aö hafa aldrei leikið sam- an áður. Þeir félagar töpuðu fyrstu lotunni, 15-10, en náðu sér vel á strik 1 annarri lotunni og sigruðu sann- færandi, 15-1. í oddalotu sigruðu þeir örugglega, 15-6. í 2. umferöinni léku þeir gegn Jap- önunum Machida og Miya og urðu að játa sig sigraða, 15-11, og 15-2. Árni Þór Hallgrímsson lék gegn Darren Hall frá Englandi í einhöaleik í gær og tapaði, 15-5,15-5. -JKS iskorti „Ég er mjög ánægður með leik strák- anna en aö sama skapi ekki með úrslitin eins og gefur að skilja. Við lögðum leik- inn þannig upp að við ætluðum að sanna fyrir okkur að þetta var slys sem gerðist í fyrri leiknum gegn þeim. Mitt mat nú rétt eftir leik er að viö vorum betri aðil- inn í leikmun og áttum fyllilega skihð að minnsta kosti annað stigið,“ sagði Gústaf Adolf Bjömsson, þjálfari íslenska liðsins, við DV eftir leikinn. „Ég verð að segja það að ég var mjög hrifinn af leik íslenska liðsins. Þetta eru sterkir strákar sem búa yfir miklum lík- amlegum styrk. Það er greinilegt að þetta hð hefur bætt sig núkið frá fyrri i leiknum sem fram fór í október. Mér fannst leikmenn nr. 10 (Steinar Guð- geirsson) og nr. 6 (Þórður Guðjónsson), bestir í íslenska liðinu,“ sagði Boriz Ign- atiev, þjálfari Rússana, við DV eftir leik- inn. -GH Agúst Gylfason stóð fyrir sinu í gær og hér er hann á fleygiferð á Kapla- krikavelli á eftir einum Rússanna. DV-mynd GS DV Iþróttir StórsigurSvía Svíar unnu ísraelsmenn, 4-1, í leik Uðanna í undankeppni EM í knatt- spymu í gærkvöldi, 21 árs og yngri. Johnny Rodlund skoraði þrjú mark- anna og Niklas Guðmundsson þaö fjórða. Þá gerðu Noregur og England jafntefli, 1-1. -SK AðalfundurHK AðaUundur Handknattleiksfé- lags Kópavogs verður haldinn 8. júní næstkomandi. Fundurinn verður í HK-heimil- inu á Ðigranesi og hefst hann stundvíslega kiukkan 19,00. Auðunnmeiddur Auðunn Helgason, varnarmað- urinn eftúlegi úr FH, meiddist Ula á fæti í leiknum við Víking í síð- ustu viku og óvíst er að hann verði með Hafnarfjarðariiðinu í næstu leikjum í GetraunadeUd- inni. KSl-kMbburinn Félagar í KSÍ-klúbbnum mæta á leik Islendinga og Rússa í dag. Upphitun veröur á HoUday Inn Klúbbfélagar þurfa að ganga frá greiöslu árgjalds fyrir leikinn. Tekið verður á móti greiðslum á Holidaylnn. -SK Óruggthjá Langer Þjóðverjinn Bernliard Langer vann ömggan sigur á breska PGA-mótinu í golfi og lék á 274 höggum. Gordon Brand jr., Bret- landi, CoUn Montgomerie, Bret- landi, og Frank NobUo frá Nýja Sjálandi komu næstir á 280 högg- um. -SK íslensku landsHðsmennirnir lofa betri leik en gegn Lúxemborg á dögunum: Ætla að sanna sig gegn Rússum í dag nu, heldur um kjuðann en þeir Ólafur Þórðar- DV-mynd Brynjar Gauti íslendingar og Rússar eigast við í undankeppni heimsmeistara- mótsins í knattspyrnu á Laugar- dalsvelU í kvöld og hefst leikurinn klukkan 18.15. Rússar mæta til leiks með firnasterkt Uð og það er ljóst að róðurinn verður þungur fyrir íslenska Uðið. Rússum nægir jafntefli til að tryggja sér sæti í úrsUtakeppninni en íslendingar eiga í baráttu við Ungverja um þriðja sætið í riðUnum. Síðasti leikur íslendinga í keppn- inni var gegn Lúxemborg og eftir að hafa séð til Uðsins í þeim leik ættu möguleikarnir ekki að vera mikUr í kvöld. íslensku landsUðs- mennimir hafa þó lofað því að leggja sig alla fram í kvöld og ætla að sýna landi og þjóð að þeir geti gert miklu betur heldur en í leikn- um gegn Lúxemborgurum. íslend- ingar hafa oft sýnt góða leiki gegn stórþjóðum á heimaveUi og með dyggum stuðningi áhorfenda gætu íslendingar velgt rússneska birnin- um vel undir uggum. Byrjunarliðið Ásgeir Elíasson landsUðsþjálfari valdi í gær byrjunariið íslands og er þaö skipað þessum leikmönnum: Birkir Kristinsson stendur í mark- inu. Miðverðir eru Guðni Bergsson og Kristján Jónsson. Hlynur Birg- isson leikur í stöðu hægri bakvarð- ar og Izudin Daði Dervic verður vinstri bakvörður. Á miðjunni leika Hlynur Stefánsson, Olafur Þórðarson og Rúnar Kristinsson. í fremstu víglínu verða síðan Arnór Guðjohnsen, EyjóUur Sverrisson og Arnar Gunnlaugsson. Á vara- mannabekknum sitja: Ólafur Gott- skálksson, Andri Marteinsson, Baldur Bragason, Arnar Grétars- son og Haraldur Ingólfsson. Stjömum prýtt lið Rússa Rússar tefla fram stjörnum prýddu Uði sem taUð er eitt af bestu lands- Uðum heims um þessar mundir. I markinu stendur Dmitri Kharin sem leikur með Chelsea. Á miðj- unni eru leikmenn eins og Andrei Kanchelkis, leikmaður Manchester United, Igor Kolyvanov, Foggia, og útherjinn snjalli, Serguei Kiriakov. I fremstu vígUnu eru síöan Igor Dobrovolski, MarseiUe, og Sergei Yuran, Sporting Lissabon. Uppi- staðan í Uði Rússa eru leikmenn frá hinu geysisterka Uði Sparta Moskva. Igor ShaUmov sem leikur meö Inter MUan fékk hins vegar ekki leyfi frá ítalska félaginu og leikur því ekki með í kvöld. Forsala á leikinn hófst á Laugar- dalsvelU klukkan 11 í morgun og verður framhaldið fram eftir degi en aðeins er selt í sæti. Kristján Jónsson og félagar í landsliöinu brugðu sér í keilu i gær og gáfu aðdáendum eiginhandaráritanir. DV-mynd Brynjar Gauti Arna og Birna ásjúkrahús íslenska sundfólkið, sem keppti á Smáþjóðaleikunum á Möltu, er ekki enn laust við matareitrun sem gerði vart viö sig á meðan á sundkeppninni stóð, I fyrradag kom sundfólkið heim og þá var það enn að veikjast. Þær Arna Þórey Sveinbjömsdóttir og Birna Bjömsdótör vom þá fluttar á sjiikra- hús en Uðan þeirra er góð eftir atvikum. Taliö er aö orsaka matareitrunarinn- ar sé að leita í kjúklingum sem voru á borðum íþróttamannanna á Möltu. -SK LACIippers Erwin Magic Johnson, fyrrum leikmaður með Los Angeles La- kers, mun á morgun eiga fund með eiganda Los Angeles CUpp- ers. Johnson hefur ítrekað lýst þvi yfir að hann vilji komast í NBA-slaginn á ný en nú ekki sem leikmaður heldur sem stjórnar- maöur. Hann segist vera spennt-. ur fyrir því að gerast meðeigandi og vill eignast 5% i félaginu. -GH/SV Golf: Bragi vann Fannarsbikarinn Opið öldungamót í golfi var haldið hjá Golfklúbbi Reykjavík- ur um nýhðna helgi og var keppt um Fannarsbikarinn. Þátttak- endur vorú 76 og voru verðlaun veitt fyrir þrjú efstu sætin með forgjöf og besta skor. Bragi HaU- dórsson, GR, sigraði á 59 höggum. Birgir Bjömsson, GK, varð annar á 60 höggum og Ríkharður Páls- son, GR, þriðji á 60 höggum. Knútur Björnsson, GK, fékk verðlaun fyrir besta skor, 71 högg. -GH Helgabesti Grafarholtinu Diletto, opið kvennamót í golfi, var haldið hjá Golfklúbbi Reykja- víkur á mánudaginn. Leiknar voru 18 holur meðforgjöf i tveim- ur fiokkumog voru þátttakendur 58 talsins. ÚrsUt urðu þessi: A-flokkur 1. Helga Gunnarsdóttir, GK.67 2. ÞórdísGeirsdóttir, GK....71 2. Anna J. Sigurbergsd., GK.71 B-flokkur 1. ViktoríaKristjánsd., GR.70 2. Bjarney Kristjánsdóttir, GK ..71 3. Linda B. Bergsveinsd., GR.71 -GH Jordan bestur fráupphafi Lesendur USA Today völdu á dögunum Michael Jordan besta leikmann NBA-deildarinnar í körfuknattleik frá upphafi. Jordan fékk 1.808 atkvæði, Larry Bird 894, Magic Johnson 297, WUt Chamberlain 153, Kare- em Abdul-Jabbar 97, Jerry West 76, Oscar Robertson 61 og Bill RusseU 58 atkvæöi. Ótrúlegir yfirburöir hjá Jordan og flestir ættu að geta verið sam- mála Magic Johnson sem sagði þeg- ar úrsUtin lágu fyrir: „Það kemur aldreiannar Jordan.“ -SV/VS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.