Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1993, Page 11
b
'
MIÐVIKUDAGUR 9. JÚNÍ1993
27
Húsog garðar
Verkfæraeign
og umhirða
Amerískt
Fígúrur og pottar und-
ir sumarblómin.
Opið virka daga kl. ij-21
og 13-19 um helgar.
Sendum út á land.
garðskraut
í matjurtaræktun og á öðrum svið-
um garðyrkjunnar er nauðsynlegt
aö eiga sterk og góð verkfæri. Því
ætti garðyrkjumaðurinn, hvort sem
hann hefur garðyrkjuna fyrir at-
vinnu eöa tómstundastarf, að vanda
yel valið þegar hann kaupir verk-
færi. Gott getur verið að ráðfæra sig
við aðra sem hafa meiri reynslu og
bera saman verkfæri frá fleiri en ein-
um framleiðanda og reyna að gera
sér grein fyrir því hvemig það sé að
handleika og beita verkfærunum við
garðyrkjustörfin. Einnig er mikil-
vægt að verkfærin séu sterkbyggð
og endist vel, að það séu engir veikir
punktar á verkfærunum sem geri
þau ótraustvekjandi.
Góð meðferð
-góð ending
Nauðsynlegt er að líta á verkfæri
eins og hvetja aðra fjárfestingu
vegna þess að góð verkfæri sem fá
góða meöferð og umhirðu geta hæg-
lega orðið lífstíðareign. Umhirða
verkfæranna er aðallega í því fólgin
að þrífa þau vel eftir hverja notkun.
Þetta þarf ekki að vera tímafrekt og
gott að venja sig á það frá upphafi
að þrífa alltaf verkfærin áður en
þeim er komið fyrir í geymslu að
notkun lokinni. Gott er að nota strá-
kúst eða bursta til þess að ná öllum
moldarleifum og óhreinindum því
það þarf ekki mikiö til þess að járn
fari að ryðga undan óhreinindum en
ryðið er versti óvinur verkfæranna.
Smurolía getur komið að góðum not-
um í baráttunni gegn ryðinu ef hún
er borin á verkfærin annað slagið,
sérstaklega á haustin þegar verkfær-
unum er komið fyrir til geymslu yfir
veturinn. Bursta þarf verkfærin með
vírbursta áður en olían er borin á til
þess að losa allar ryðagnir. Smurolíu
er hægt að fá á bensínstöðvum og
smurstöðvum.
Sköftin á verkfærunum er gott að
mála í skærum ht, það getur komið
sér vel ef leita þarf að þeim að þau
séu áberandi á htinn, einnig getur
það þjónaö þeim tílgangi að merkja
sér verkfærin. Til þess að garðurkju-
störfin verði nú eins ánægjuleg og
kostur er þurfa eggjám að bíta vel.
Hægt er að nota handbrýni og þjalir
við brýningu.
Hvaða verkfæri
eru nauðsynleg?
Helstu verkfærin við matjurtarækt
og garðrækt eru þessi:
Stunguskófla, stungukvisl, garð-
hrífa, arfaskafa, kantskeri, klóra, lít-
il skófla til útplöntunar, greinaklipp-
ur, gróftennt sög, garðkanna, garð-
slanga, léttar hjólbörur, handbrýni
og þjalir.
Þetta er eingöngu dæmi um nokkur
verkæri sem gott er að eiga en það
er hægt að byija með mun færri.
Geymsla yfir vetur
Þegar verkfærin eru tekin úr notk-
un á haustin og sett inn í geymslu
er þægilegt að afmarka ákveðinn
stað fyrir verkfærin og helst aö
hengja þau upp á vegg.
Um garðsláttuvélamar gilda sömu
reglur og um verkfærin, aö til þess
að þær endist vel er nauðsynlegt
halda þeim hreinum og sjá til þess
að hnífurinn bíti vel. Á haustin eftir
seinasta slátt þarf að þrífa öh óhrein-
indi af véhnni, tæma bensíntankinn,
smyrja það sem nauðsynlegt er að
smyrja og til aö undirbúa vorstörf
næsta vors er upplagt að brýna hníf-
inn. Á vorin þarf svo að taka kertið
úr og hreinsa það.
Þröng sund við norðurvegg henta vel undir verkfæri að sumarlagi, ósamt
öðru sem ekki má sjást.
Oftast fá verkfærin þó eitt horn lánað í bílskúrnum eða geymslunni
Blómsturvellir v/Reykjalund
Mosfellsbæ. Margrét, sími 666642,
Ásdís, sími 666898
Fibertexrvens
JARÐVEGSDÚKAR
TIL MARGRA HLUTA NYTSAMLEGIR
Þegar
leggja á
ræsislögn
Þegar
mynda á
stalla í
garða
Þegar
byggja á
vegi
Þegar
leggja á
hellur
Þegar
byggt er
VATNSVIRKINNAf
ÁRMÚLA 21-108 REYKJAVlK - SlMI 686455 - FAX 687748
FEGRIÐ GARÐINN OG BÆTIÐ
MEÐ SANDI OG GRJOTI
SANDUR SIGURSTEINAR
VÖLUSTEINAR
HNULLUNGAR
Þú færð sand og allskonar grjót hjá okkur.
Við mokum þessum efnum á bíla eða
í kerrur og afgreiðum líka í smærri
einingum, traustum plastpokum sem
þú setur í skottiö á bílnum þínum.
Þú getur líka leigt kerru og
hjólbörur hjá okkur.
BJÖRGUN HF.
SÆVARHÖFÐA 33
SÍMI: 68 18 33
Afgreiðslan við Eliiðaár er opin:
Mánud.-fimmtud. 7.30-18.30.
Föstud. 7.30-18.00.
Laugard. 7.30-17.00.
Opið í hádeginu nema á laugardögum.