Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1993, Qupperneq 14
30
MIÐVIKUDAGUR 9. JÚNÍ 1993
Húsoggarðar
- er grundvöllurinn fyrir rósarækt
Rósir eru mest ræktuðu garðplönt-
ur í heiminum og af mörgum taldar
elstu bljómjurtir sem þekkist í
ræktun. Þær hafa að mörgu leyti
sérstöðu meðal garðplantna, eink-
um vegna mikillar fjölbreytni og
htaskrúðs.
Hérlendis er mögulegt að rækta
nýög margar tegundir af rósum og
færist sífellt í vöxt að íslenskir
garðeigendur reyni að hfga upp á
garða sína með þessum skemmti-
legu runnum.
Villirósir eða
kynblendingsrósir
Gróflega má skipta rósum sem
ræktanlegar eru í görðum hérlend-
is í vilh- og kynblendingsrósir. Þær
síðamefndu eru oft ágræddar á
stofna vilhrósa vegna þess að þeir
eru harðgerðari. Af vilhrósum má
nefna sem dæmi; meyjarrós (Rosa
moyesh), ígulrós (Rosa rugosa) og
rauðblaðarós (Rosa rubrifoha).
Kynblendingsrósirnar bera nöfn
eins og t.d. Peace, Schneewittigen
og Doctor Faust.
Hvaða aðstæður
eru bestar
Sé ætlun þín að rækta rósir skaltu
íhuga staðsetningu þeirra vel. Rósir
þmfa gott skjól en mega þó ekki vera
innilokaðar þar sem loftstreymi er
takmarkað. Best er að miða við að
þær standi þar sem skuggi er fyrir
hádegi, en sól eför hádegi. Það má
ekki planta rósum í nálægð stórra
tijáa eða þétt við aðra runna því
rætur þeirra leita í rósabeðið og rýra
vaxtarskilyrði þar.
Gróðursetning
ogjarðvegsgerð
Rósir gera kröfur til góðs jarð-
vegs og vilja rakan stað, þó ekki
bleytu. Áburð ætti ekki að spara
við þær. Áður en rósir eru gróður-
settar er best að blanda jarðveginn
vel með húsdýraáburði og kalki
(skeljasandi). Að því loknu skal
gefa tilbúin áburð og skipta í
nokkra skammta yfir sumarið.
VUhrósum skal þó gefinn mun
minni áburður.
Rétti tíminn til að gróðursetja
rósir er að vori. Þá er jarðvegur
tekinn að hlýna og hætta á frosti
verður aö vera nokkum veginn hð-
in hjá. Tekin er nægilega stór hola
til að ræturnar rýmist þar án þess
að þær séu sveigðar á nokkum
hátt. Mjög langa rótarsprota er
óhætt að stytta með khppum eða
beittum hníf. Vhhrósir skal gróð-
ursetja þannig að rótarhálsinn sé
u.þ.b. 2-3 cm undir yfirborði mold-
arinnar, en kynblendingsrósir 5-8
cm undir yfirborði.
Klipping
Rósir þarf að khppa árlega og er
það gert á vorin þegar þær fara að
bæra á sér. Sést þá vel hvaða sprot-
ar hafa sloppið við kalskemmdir
eftir veturinn.
VUhrósir eru flestar khpptar eins
og aðrir runnar. Byrjað er á að fjar-
lægja dauðar og brotnar greinar
og sprotaenda, annaðhvort alveg
niður eða við fyrsta heila brum,
sem snýr út, neðan við skemmdina.
Gamla sprota má endumýja með
því að fjarlægja þá en oft er beðið
með það þar til eftir blómgun og
koma þá fljótlega nýir sprotar.
Þegar grisja á kynblendingsrósir
er byijað á að íjarlægja dauðar og
skemmdar greinar. Síðan er rósin
stýfð niður í um 15-30 cm, eftir því
hversu vel hún hefur komið undan
vetri. Kalnar greinar em skornar
niður aö lifandi brumi. Mjög mikil-
Dvergrósir (pottarósir) verða stöðugt vinsælli. Þær eru geymdar á köld-
um stað yfir veturinn.
Tvöfalt og o v*r^1 oct zgróðurhiÁ
þrefalt vJ 1 CxL 1 do L og sólskál
Tvöfalt Acryl Sólarplast hleypir í gegn
sólargeislum. Hetur gott veðurþol, heldur
sér árum saman án þess að upplitast.
Sólarplast gefur betri einangrun
en tvöfalt gler og er miklu sterkara.
Háborg aw @§ pums
Skútuvogi 4 S 812140 & 687898
Eigum vandaða állista og allar festingar
sem tryggja góðan frágang og endingu
á sólskálum og gróðurhúsum.
Veitum upplýsingar og ráðgjöf
um frágang og uppsetningu.
Stofnrósir eru loks farnar að sjást í görðum. Þær lifa góðu lifi úti að
sumrinu og eru oft hafðar í stömpum og geymdar svo í köldum bílskúr
að vetrinum.
vægt er að rósir, einkum kynblend-
ingsrósir, séu khpptar á þennan
hátt á hveiju vori.
Vetrarumhirða
skiptir sköpum
Kalskemmdir á rósum orsakast
fyrst og fremst af umhleypingum
og því mikilvægt að verja þær sem
best gegn þeim óvini. Mögulegt er
að flytja rósina inn í hús á haustin,
en betra er auðvitað að raska ekki
jafnvæginu þannig með sífehdum
flutningum. Betra er að veija
plöntuna á vaxtarstað sínum með
því að hreykja að henni mold
blandaðri mosa, um 20-25 cm upp
eftir stofninum, strengja striga
umhverfis plöntuna eða leggja
greinar af greni eða birki yfir hana.
Ef rós er tekin inn yfir veturinn,
verður geymslan að vera köld og
gæta skal þess að moldin þorni
ekki alveg. Yfirleitt er þó óþarfi að
vökva frá nóvember fram í febrú-
ar/mars.
Mikilvægt er að klippa kynblendingsrósir niður árlega.