Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.1993, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.1993, Blaðsíða 16
16 LAUGARDAGUR 18. SEPTEMBER 1993 Skák Einvígið í London: Afbrigði „eitraða peðs- ins" aftur í sviðsljósinu - Kasparov fetar 1 fotspor Fischers Skákmeistararnir heilsast við upphaf einvígisins í London. DV-mynd JLÁ Eftir stutt jafntefli í fimmtu skákinni í London hefur Short tækifæri til að safna kröftum eftir að hafa legið í köðlunum í fyrsta hluta einvígisins. Kasparov hefur ekki tekist að greiða rothöggið og hefur raunar sjálfur naumlega náð að sneiða hjá hættu- legum pústrum. En augljóst er að völdin eru hans. Staðan er 4-1 og varla verður spurt um sigurvegara ef fram heldur sem horfir heldur ein- ungis hversu mikhr yfirburðir Kasp- arovs verða. Fyrir einvígið voru margir þeirrar skoðunar að Short gæti átt það til að gera Kasparov skráveifu í Sikileyjar- vörn sem hann er þekktur fyrir að teíla lipurlega með hvítu. í 2. skák- inni virtist þetta ætla að ganga eftir en þá náði Short góðri stöðu en gaf Kasparov færi á að bjarga sér með skiptamunsfórn. í 4. skákinni beitti Kasparov hins vegar öðru varnar- kerfl og nú tókst honum að vinna fræðilegu baráttuna. Röðin er því komin að Short að betrumbæta en hann stýrir hvítu mönnunum í sjö- undu einvígisskákinni sem tefld verður í Savoy-leikhúsinu í dag, laugardag. Fjórða skákin tengist skemmtilega einvíginu í Laugardalshölhnni 1972 því aö Kasparov fetaði í fótspor Fischers og beitti „eitraða peðs“ af- brigðinu fræga sem þá var svo mjög í sviðsljósinu. Fischer lagði það á hilluna eftir herfhegan ósigur í ell- eftu skákinni en síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar. Þeir félagar, Karpov og nú Kasparov, hafa tekið upp hanskann fyrir Fischer og end- urbætt taflmennsku hans. Fjórða skákin í London teflist nákvæmlega eins og ellefta skákin ’72 en Short var fyrri til að breyta út af. Hann átti kost á því að þvinga fram jafntefli með því að þráleika en tefldi heldur ótrauður til vinnings. En hann fór aht of geyst í sakirnar - Kasparov veittist auðvelt aö veijast atlögunni og auka forskot sitt í einvíginu. Hvítt: Nigel Short Svart: Garrí Kasparov Sikileyjarvörn 1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 a6 6. Bg5 e6 Nú tefhr Kasparov Najdorf- afbrigðið á hefðbundinn hátt en í 2. einvígisskákinni lék hann 6. - Rc6 og taflið rann í farveg Richter-Rauzer afbrigðisins. 7. f4 Db6 Upphafsleikur afbrigðisins fræga sem kennt er við „eitraða peðið“. Ef hvítur er banginn gæti hann leikið 8. Rb3, eöa jafnvel lagt gildruna 8. a3 Dxb2?? 9. Ra4 og drottningin feh- ur. En Short kýs að fórna peðinu. 8. Dd2 Dxb2 9. Rb3 Da3 10. Bxf6 gxfS 11. Be2 Rc6 12. 0-0 Bd7 13. Khl h5 Með breyttri leikjaröð er fram komin sama staða og í elleftu skák Spasskís við Fischer ’72. Spasskí lék nú leik sem lengi var í minnum hafð- ur - riddaranum upp í borð, aftur á upphafsreitinn! Þetta þótti mörgum styttra komnum í fræðunum stór- furðulegt og héldu að Fischer væri nú endanlega búinn að rugla hann með einhverjum rafsegulbylgjum. Leikur Spasskís þótti þó snjall og hann vann snöggan sigur. Skákin tefldist: 14. Rbl Db4 15. De3 d5? 16. exd5 Re7 17. c4! Rf5 18. Dd3 h4? 19. Bg4 Rd6 20. Rld2 f5 21. a3 Db6 22. c5 Umsjón Jón L. Árnason Db5 23. Dc3! fxg4 24. a4 og Fischer missti drottninguna því aö 24. - De2 er svarað með 25. Hael. Kasparov hefur þó ekki áhyggjur af riddaraleik Spasskís enda hefur félagi hans, Anatolí Karpov, þegar sýnt fram á að svarta staðan er vel teflandi. í skák Karpovs (svart) við Kínverjann Xie Jingxuan á skákmóti í Hannover 1983, tefldist 15. - Re7! (í stað 15. - d5) 16. c4 f5 17. a3 Da4 18. Rc3 Dc6 19, Rd4 Dc5 20. exf5 Bg7 21. fxe6 fxe6 22. Hadl Bxd4 23. Dxd4 Dxd4 24. Hxd4 Rf5 og Karpov vann endataflið. Önnur tilraun í stöðunni er 14. De3 (Tal - Byme, mihisvæðamótinu í St. Pétursborg 1973) og þriðja thraunin er svo leikur Shorts sem er nýr af nálinni. 14. Rdl!? Hc8 15. Re3 Db4 16. c3!? Til greina kemur 16. Dd3 en Short fórnar öðru peði. 16. - Dxe4 17. Bd3 Da4 18. Rc4 Hc7! Nú má minnstu muna að svarta drottningin falli en hún á einn reit aflögu og það nægir! Ljóst er að Short getur nú knúið fram jafntefli með 19. Rb6 (eöa 19. Rb2) Da3 20. Rc4 Da4 o.s.frv. en hann kýs að tefla til vinn- ings þótt áhættan sé augljós. 19. Rb6 Da3 20. Hael!? Re7! 21. Rc4 Hxc4! 22. Bxc4 h4! Kasparov bregst hárrétt við og hef- ur eflaust verið feginn aö losna við óþægilegan riddara hvíts. Nú hótar hann að brjóta upp kóngsstöðuna með 23. - h3 og koma höggi á kónginn eftir hvítu hornalínunni. Þessu er ekki auövelt að spoma við því að 23. h3?! af hvíts hálfu gerði f-peðið auð- velt umsáturs. 23. Bd3?! f5 24. Be2 Til að geta andæft á hornalínunni. 24. - Bg7 25. c4 h3 26. g3 d5 27. Bf3? Nú fer Short of geyst í sakirnar, gæti hafa sést yfir 28. leik Kasp- arovs. Eftir 27. cxd5 Rxd5 á svartur mjög frambærilega stöðu, með tvö peð fyrir skiptamun en hvítur þarf þó ekki að örvænta. 27. - dxc4 28. He3 c3! En ekki 28. - cxb3 29. Hxb3 og næst 30. Hxb7 með sterkri sókn. 29. Hxc3 Bxc3 30. Dxc3 0-0 31. Hgl Short er ekki af baki dottinn og blæs enn í herlúðra. En nú er mesta púðrið farið úr hvitu sókninni. 31. - Hc8 32. DfB Bc6! 33. Bxc6 Hxc6 34. g4 Rg6 35. gxf5 exf5 Hrókurinn á c6 grípur skemmti- lega inn í taflið. 36. Dxf5 Dxa2 37. Dxh3 Dc2! 38. f5 Hc3 39. Dg4 Hxb3 40. fxg6 Dc6 + - Og Short gafst upp. Atskákmót Reykjavíkur Undanrásir atskákmóts Reykjavík- ur hefjast í dag, laugadag, kl. 14 og verður taflinu fram haldið á morgun. Tefldar verða níu umferðir alls og vinna átta efstu menn sér rétt til þess að tefla í aðalkeppninni sem fram fer 7.-9. október nk. með „Wimbledon” fyrirkomuiagi. Þar verður teflt um 300 þúsund króna verðlaunasjóð og verður úrshtaein- víginu sjónvarpað á Stöð 2. Sigurveg- arinn mun síðan tefla einvígi við Ind- verjann snjaha og handfljóta, Vis- wanathan Anand, sem kemur sér- staklega til landsins af þessu tilefni. Bridge_________________________________________________ NEC-heimsmeistarakeppnin í Santiago: Hollendingar unnu Bermúdaskálina Eins og kunnugt er af fréttum sigr- uðu Hollendingar Norðmenn í úr- shtaleik heimsmeistarakeppninnar og hlutu Bermúdaskálina að laun- um. Sigur Hollendinga var um margt hkur sigri íslendinga 1991. Hohend- ingar urðu í fjórða sæti á Evrópu- meistaramótinu eins og íslendingar, náðu naumlega í úrshtaleikinn eins og íslendingar og unnu síðan örugg- an sigur í úrshtunum, eins og íslend- ingar. Nýju heimsmeistaramir eru Enri Leufkens, 29 ára kerfisfræðingur, Berry Westra, 32 ára atvinnumaður í bridge, Wubbo de Boer, 30 ára fram- kvæmdastjóri, Bauke Muller, 29 ára félagsfræðingur, Piet Jansen, 34 ára kráreigandi, Jan Westerhof, 37 ára hagfræðikennari. Þetta hð hefir lægsta meðalaldur þeirra hða sem unnið hafa Bermúdaskálina til þessa. Við skulum skoða eitt skemmtileg- asta spil keppninnar, bæði hvað varðar sókn og vöm. N/N-S ♦ ÁIO V D54 ♦ Á98632 + Á5 * K62 V K973 ♦ K104 + 1064 * G9854 ¥ Á86 ♦ D7 + KD3 * D73 V G102 ♦ G5 + G9872 Á öllum átta borðum undanúrsht- anna vom spfluð 3 grönd í a-v og á sjö borðum var austur sagnhafi en vestur á einu. Umsjón Stefán Guðjohnsen í spih kvennaflokka Svíþjóðar og Þýskalands spilaði suður út laufi á báðum borðum, langt frá því að vera sjálfsagt útspfl með svona veika hönd. Sú þýska hleypti heim á drottningu, spflaði tígulsjö og lét það róa. Norður átti ekkert svar við þvi og spihð var létt unnið. Sú sænska drap á ásinn í bhndum og spilaði litl- um tígh. Noröur lét htið, sú sænska drottninguna og spihð var einnig létt unnið. í leik USA og Argentínu í kvenna- flokki fór á sömu leið í opna salnum en í lokaða salnum spilaði ein sigur- sælasta bridgekona Bandaríkja- manna, Kerri Sanbom, út hjarta- gosa. Sú argentínska gaf á báðum höndum, drap síðan hjartatíuna með ásnum, fór inn á laufás og spilaði htl- um tígh. Norður tók á kónginn, tók hjartaslagina og spilaði SPÁÐA- KÓNGI. Þar með var innkoman á tiguhnn farin og spflið einn niður. í karlaflokki í leik Noregs og Bras- flíu spilaði Geir Helgemo út laufi og Barbosa drap í bhndum og spilaði litlnm tígh. Tor Helness í norður tók á kónginn og aftur birtist SPAÐA- KÓNGURINN. Það dugði tfl þess að drepa tígulhtinn en Barbosa fékk hins vegar fjóra spaðaslagi og það dugði til vinnings. Á hinu borðinu voru spiluð þrjú grönd í vestur og eftir hjartaútspil var auðvelt að vinna þau. í leik Hohands og USA spflaði Leuf- kens út laufi gegn Larry Cohen. Co- hen drap heima og spilaði tígul- drottningu. Norður drap á kóng og spilaði meira laufi og þar með var auðvelt að fá tiguflitinn með inn- komu á spaðaás. Á hinu borðinu spilaði Marty Berg- en út hjartagosa sem Wubbo de Boer drap á ásinn heima. Hann lét síðan tígulsjöið róa yfir til norðurs og Eric RodweU spilaði náttúmlega SPAÐA- KÓNG. 'nigangurinn var ekki að drepa tígulhtinn, heldur að búa til innkomu á spaðadrottningu fyrir makker. De Boer reyndi hvað hann gat og spflaði spaðatíu, en Bergen drap á drottningu og spilaði hjarta- tíu. Einn niður.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.