Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.1993, Blaðsíða 35
LAUGARDAGUR 18. SEPTEMBER 1993
GLÍIVIA
Sá glæsilegasti til sölu:
Utboð
Austurlandsvegur,
Staðará - Reynivellir
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í lagn-
ingu 11,9 km kafla á Austurlandsvegi í Aust-
ur-Skaftafellssýslu frá Staðará að Reynivöll-
um.
Helstu magntölur: fyllingar 23.000 m3, burð-
arlög 56.000 m3 og klæðing 72.000 m2.
Verki skal að fullu lokið 1. júlí 1994.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð rikis-
ins á Reyðarfirði og í Borgartúni 5, Reykjavík
(aðalgjaldkera), frá og með 21. þ.m.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl.
14.00 þann 4. október 1993.
Vegamálastjóri
''//V/x
Við slysið var eins og undirstöður tilverunnar hryndu. Hann gafst upp og sálin lagðist saman eins og fram-
endi Toyotunnar og hann flýði öll sín vandamál inn í heim lækna, tryggingafélaga, sjúkraþjálfara og'þjáninga.
Trésmiður í
smávægileg-
um árekstri
Natan trésmiður hafði 1-2 menn
í vinnu og tók að sér nótulausar
viðgerðir og smáviðvik fyrir fólk.
Haust nokkurt var hann á leið til
vinnu hjá valinkunnum embættis-
manni í dómskerfinu. Á gatnamót-
um Sóleyjargötu og Skothúsvegar
lenti hann í hörðum árekstri við
bleikan vörubíl. Natan var í órétti
og ljósbláa Toyotan hans skemmdist
mikið. Við áreksturinn fékk hann
harðan shnk á sig en engin önnur
alvarlegmeiðsl. Læknar Borgár-
spítala greindu slæma tognun í hálsi
og gáfu honum bólgueyðandi lyf,
hálskraga og tilvísun á sjúkraþjálf-
un.
Næstu mánuðir voru Natan erfið-
ir. Hann hætti að vinna en gekk um
bæinn með mikinn þjáningarsvip
og bar hálskragann eins og ein-
kennilega hannaða þyrnikórónu.
Sjúkraþjálfunina stundaði hann vel
en árangurinn var lítill. Geðslagið
breyttist til hins verra. Natan varð
ergilegur, uppstökkur og taiaði í sí-
fellu um áreksturinn. Bæði vinir og
ættingjar fengu margsinnis að
heyra söguna af slysinu og því rang-
læti sem Natan taldi sig hafa verið
beittan.
„Lögreglan er bæði vitlaus og
ranglát, glæpamenn ráða ríkjum í
tryggingafélögunum og læknar eru
óhæfir svindlarar,“ endurtók Natan
í öll þau eyru sem honum tókst að
ljásér.
Ökumaður bleika vörubílsins
varð tákn samanlagðrar mannlegr-
ar sviksemi. Enginn bati.
Smám saman jukust margvísleg
líkamleg óþægindi mjög verulega.
Hann var óvinnufær áfram vegna
svima og máttleysis, auk dofa og
verkja í handleggjum, höfði og baki.
Natan kvartaði auk þessa undan
síþreytu og kvíða sem hann tengdi
slysinu. Heima fyrir hafði hann allt
á hornum sér enda fannst honum
að fjölskyldan hefði gengið í lið með
svikulum tryggingamönnum og
óheiðarlegum læknum.
„Enginn trúir á minn málstað. Ég
stend aleinn í heiminum," sagði
hann beiskum rómi á Rauða ljóninu
fimmtudagskvöld nokkurt í leið-
indaveðri og grét ofan í blettóttan
hálskragann.
Natan hætti að geta sofiö og vakn-
aði oft á nóttu með martröð. Hann
Á laaknavaktíimi
óttar
Guðmundsson
læknir
dreymdi að Toyotan hefði oltið út í
slímuga Tjörnina og hann gæti sig
hvergi hreyft í flakinu. f draumnum
dönsuðu tryggingalæknar, lög-
regluþjónar og umboðsmenn trygg-
ingafélaga stríðsdans á tjarnar-
bakkanum en hreyfðu hvorki legg
né hð til að bjarga honum úr bíln-
um. Natan hrökk þá upp með and-
fælum löðursveittur og gat ekki náð
andanum um stund.
Hann fékk róandi lyf hjá heimilis-
lækninum og nokkra tugi skipta hjá
ýmsum sjúkraþjálfurum en ein-
kennin fóru síversnandi. Kvíði, höf-
uðverkur, dofi, svefnleysi og sí-
þreyta tóku höndum saman og
gerðu líf hans óbærilegt. Hjóna-
bandið stóð höllum fæti enda var
hann hættur að treysta konu sinni.
Stundum geta lítil slys valdið mun
meira tjóni og hugarangri en lesa
má í fyrstu fréttum dagblaða. Marg-
ir sitja uppi með óþægilegar minn-
ingar frá slysinu, mikla sektar-
kennd og sjálfsásakanir. Þeir geta
ekki fyrirgefið sér andartakskæru-
leysi og eyða ómældum tíma til að
finna einhveija sökudólga sem
kenna má um óhappið. Stundum
magnast upp andleg óþægindi eins
og kvíði, svefnleysi, almennt áhuga-
leysi ogdoði.
Margir verða mjög næmir fyrir
öllu áreiti og eiga erfitt með að ein-
beita sér. Auk þessa kvarta þessir
einstaklingar undan margvíslegum
líkamlegum óþægindum sem þeir
rekja til slyssins en læknum tekst
sjaldnast að finna neitt sem örugg-
lega rennir stoðum undir kvartanir
sjúklingsins.
Oft tengjast þessi óþægindi bó-
takröfum og erfiðum tryggingamál-
um. Sjúklingurinn þeytist á milli
lækna og sjúkraþjálfara, klæddur
áberandi hálskraga en fær sjaldnast
neina varanlega bót. Endalaus lík-
amleg óþægindi, verkir, dofi, mátt-
leysi og svimi virðast draga úr and-
legum sársauka vegna slyssins og
minnka sektarkennd og skömm.
Natan komst um síðir til geðlækn-
is sem áleit að einkennin væru að
verulegum hluta vegna þunglyndis
sem rekja mætti til slyssins. Hann
ákvað að gefa Natan þunglyndislyf,
auk viðtalsmeðferðar í nokkrar vik-
ur.
í viðtölunum kom í ljós að hjóna-
band Natans og konu hans hafði
lengi staðið höllum fæti. Auk þess
hafði Natan áhyggjur af háöldruð-
um foreldrum sínum sem höfðu
skrifað upp á skuldabréf hjá eldri
syninum sem stundaði umfangs-
mikinn veitingarekstur. Þau höfðu
misst aleigu sína í kjölfar gjaldþrots
athafnamannsins.
Yngri dóttir Natans haföi um
nokkurt skeið lagt lag sitt við liðlega
fimmtugan leikfimikennara sem á
árum áður hafði verið skólabróðir
Natans.
Við slysið var eins og undirstöður
tilverunnar hryndu. Hann gafst upp
og sálin lagðist saman eins og fram-
endi Toyotunnar og hann flýði öll
sín vandamál inn í heim lækna,
tryggingafélaga, sjúkraþjálfara og
þjáninga. Smám saman virtist hann
átta sig á þessu en náði þó fyrst
góðum bata þegar honum voru
dæmdar noldcur hundruð þúsund
krónur í slysabætur.
Allir eru velkomnir, byrjendur svo og lengra komnir.
Upplýsingar eru í síma 7 28 96.
Dodge Grand Caravan, langur, árg. 1991, ekinn 45 þús.,
rafdrifnar rúður, centrallæsingar, hvítur, nýinnfluttur. Verð
2.550.000 (kostar nýr ca 3.300.000 stgr.).
Upplýsingar í síma 655020 (Bergþór).
Glímuæfingar eru að hefjast hjá Glímudeild Ármanns
í íþróttahúsi Austurbæjarskóla fyrir 13 ára og eldri.
Æfingar verða:
mánudaga
kl. 18.50-20.30
miðvikudaga
kl. 18.50-20.30
föstudaga
kl. 18.00-18.50
Leikskólar
Reykjavíkur-
borgar
Fóstrur, þroskaþjálfar eða fólk með uppeldismenntun
óskast til starfa á neðangreinda leikskóla:
Arnarborg v/Maríubakka, s. 73090, Gullborg
v/Rekagranda, s. 622455, Klettaborg v/Dyrhamra,
s. 675970, Seljaborg v/Tungusel, s. 76680, Steina-
hlíð v/Suðurlandsbraut, s. 33280, Vesturborg
v/Hagamel, s. 22438.
Eingöngu í 50% starf e.h. á eftirtalda leikskóla:
Grandaborg v/Boðagranda, s. 621855,
Gullborg v/Rekagranda, s. 622455.
Þá vantar starfsmann með sérmenntun í stuðnings-
starf á leikskólann Brekkuborg v/Hlíðarhús, s.
679380.
Eingöngu í 50% stuðningsstarf á leikskólann Rofa-
borg v/Skólabæ, s. 672290.
Nánari upplýsingargefa viðkomandi leikskólastjórar.
Dagvist barna
Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími 27277