Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.1993, Síða 20
20
LAUGARDAGUR 18. SEPTEMBER 1993
Kvikmyndir
Það eru margir góöir leikarar í Fearless.
Það hafa alltaf þótt merkileg tíöindi
þegar Peter Weir sendir frá sér nýja
kvikmynd. Hins vegar hefur sól hans
sem kvikmyndaleikstjóra verið að
hníga á undanfórnum árum vegna
þess að myndir hans njóta ekki nægj-
anlegra vinsælda að dómi framleið-
enda. Peter Weir hefur samt sem
áður lagt ýmislegt á vogarskálarnar
hvað varðar kvikmyndagerð. Hann
kom landa sínum Mel Gibson á fram-
færi í mynd sinni Gallipoli 1981'og
svo aftur í myndinni The Year of
Living Dangerously, þar sem hann
lék á móti Sigoumey Weaver. Síðari
myndin er líklega sú mynd þar sem
þessum leikurum hefur tekist einna
best upp á leikferli sínum.
Eftir að hafa slegið í gegn í heima-
landi sínu, Ástralíu, meö áöurgreind-
um myndum svo og Picnic at a Hang-
ing Rock og fyrstu mynd sinni, The
Cars That Ate Paris, lá leiðin vestur
um haf. Þar gerði Peter Weir hina
stórgóðu mynd The Witness (1985)
sem breytti algerlega hugmyndum
manna um hvað Harrison Ford gæti
gert sem leikari. Einnig var umtalað
hve vel Peter Weir tókst að láta Luk-
as Haas blómstra sem leikara þótt
hann væri aðeins bam.
Fáar myndir
Þótt lítið hafi farið fyrir myndinni
The Mosquito Coast þá var Dead
Poets Society þeim mun meira um-
töluð. Það eru allir sammála um að
Weir tókst að laða allt það besta fram
hjá Robin Williams sem leikara, auk
þess að hann gaf þarna leikurunum
Ethan Hawke og Robert Sean Leon-
ard tækifæri að skapa sér nafn í
heimi kvikmyndanna. Svo má geta
þess að Peter Weir ákvað, þegar hann
gerði myndina The Green Card, að
fá franska leikarann Gérard De-
pardieu í aðalhlutverkið, en það er
mjög erfitt að fá Bandaríkjamenn til
að sætta sig við útlendinga, sem tala
ekki ensku sem móðurmál, í aðal-
hlutverki í bandarískri kvikmynd.
Það er því ekki að ástæðulausu að
Peter Weir hefur oft á tíðum verið
kallaöur leikstjóri leikarana.
Flugslys
En nú er komin ný mynd frá Peter
Weir sem ber heitið Fearless og er
með Jeff Bridges í aðalhlutverki.
Myndin hefst á flugslysi. Vélin er að
hrapa og sumir munu deyja en aðrir
lifa slysið af. Myndin er byggð á sam-
nefndri bók Rafaels Yglesias, sem
einnig skrifaði handritið, og fjallar
um hvaö gerist hjá fólki sem lifir af
svona hörmungar. Það er arkitekt
frá San Francisco að nafni Max Klein
sem myndir beinir augum sínum aö.
Þótt hann hafi sloppið líkamlega
ómeiddur úr slysinu þá koma and-
legu örin fljótlega fram. Hann fær
hjálp frá öörum farþega sem hafði
misst ungan son sinn í slysinu. Sam-
an reyna þau að ná tökum á tilver-
unni, sem er ekki eins auðvelt og það
hljómar.
Peter Weir vonast til að Fearless
komi honum aftur á strik. Hann var
orðinn leiður á þeirri gerð handrita
sem honum voru send, svo hann
hóaði í nokkra kvikmyndaframleið-
endur sem hann þekkti og treysti og
bað um handrit sem væri ööruvísi
en önnur handrit og meira krefj-
andi. Framleiðendumir Mark Ros-
enberg og Paul Weinstein létu hann
lesa handritið að Fearless sem þeir
höfðu keypt aðeins 24 tímum eftir að
Rafael Yglesias hafði lokið því.
Öðruvísi mynd
Þama var kominn ööruvisi sögu-
þráður, einmitt sem Peter Weir vildi.
Raunar er hér um tvær sögur aö
ræöa. Annars vegar hvernig ein-
staklingur býr sig undir dauöann
þegar hann veit að flugvélin er að
farast og hins vegar hvemig lífsvið-
horf og lifsmunstur hans breytist eft-
ir að hafa lifað af svona hörmungar.
í fyrstu vildi Peter Weir fá vin sinn
og félaga, Mel Gibson, til að leika
aðalhlutverkið en þar sem hann var
að leikstýra sinni fyrstu mynd, The
Man without Face, gekk það ekki
upp. Því var ákveðið að fá Jeff
Bridges til að leika aöalhlutverkiö.
Hann fær líka gott fólk í lið með sér
því Isabella Rossellini, Rosie Perez
og Tom Hulce fara einnig með hlut-
verk í myndinni.
í nýlegu viðtali viðurkenndi Peter
Weir að pólskra áhrifa gætti í Fear-
less. Hann væri einlægur aðdáandi
pólska leikstjórans Krztsztofg Ki-
eslowski eftir að hafa séö sjónvarps-
þættina The Decalogue svo og mynd-
ina The Double Láfe of Veronique.
Peter Weir lék meira að segja pólska
tónlist m.a. eftir Heinrich Gorecki
meðan á kvikmyndatöku stóð.
Leikhúsmynd
Þetta er athyglisverð yfirlýsing og
gerir aðdáendur Peters Weir forvitn-
ari en áður hvers konar mynd þeir
Kvikmyndir
Baldur Hjaltason
fái að sjá þegar Fearless verður
framsýnd í næsta mánuði. Það eru
alltaf stórtíðindi þegar Peter Weir
sendir frá sér mynd enda hefur hann
aðeins gert 3 myndir á sl. 7 árum.
Það er hins vegar ánægjuefni að
hann er byrjaöur að vinna að undir-
búningi næstu myndar sem heitir
The Playmaker og er byggð á bók
Thomasar Keneally. Það er sami höf-
undur og skrifaði Schindlers List
sem Steven Spielberg kvikmyndaði
nýlega. Myndin fjallar um fyrsta
leikritið sem var sett á sviö í Ástralíu
árið 1789, ári eftir að landið var gert
að nýlendu.
Sjónvarps-
þáttur í
kvikmynda-
búning
Nýlega var tilkynnt að búið
væri að ráða leikarana Mel Gib-
son og Jodie Foster til að fara
með aðalhlutverkin í mynd sem
ber nafnið Maverick. Hjá mörg-
um hljómar þetta nafn kunnug-
lega en það er heiti á bandarískri
sjónvarpsþáttaröö sem framleidd
var á árununum 1957-1961. Þessi
þáttur geröi leikarann James
Gamer irægan á sínum tíma og
hjálpaði honum að koma undir
sig fótunum. Það er því ekki óvið-
eigandi að Gamer fer með smá-
hlut verk í my ndinni en þar leikur
hann fjárhættuspilara. Ástæðan
fyrir þvi að þessi mynd er gerð í
kringum gamlan sjónvarpsþátt
er líklega eöli Hollywood að gera
allt aftur sem gengur vel. Nýlega
var framsýnd í Bandaríkjunum
myndin The Fugitive með Harri-
son Ford i aðalhlutverki. Myndin
nýtur mikilla vinsælda en hún
var einmitt byggð á samnefndum
sjónvarpsmyndaflokki sem var
sýndur fyrir um 25 áram þegar
David Janssen fór með hlutverk
flóttamannsins Dr. Richard
Kimble.
Einvalalið
Það á auðsýnilega ekkert að
spara við gerð Maverick því sjálf-
ur Richard Donner er skráður
sem leikstjóri og William Gold-
man var ráðinn sem handritshöf-
undur. Sá fyrrnefndi á að baki
margar stórmyndir, eins og The
Omen (1976), Superman (1978) og
núna síöast stóð hann að baki
framleiðslu á hvalamyndinni
Free Willy, sem fékk marga
Bandaríkjamenn til aö vökna um
augun.
Það var mjög eðlilegt að velja
Goldman sem handritshöfund ef
litið er á þær myndir þar sem
hann hefur komiö viö sögu. Hann
gerði handritið að Butch Cassidy
and the Sundance Kid, sem að
mörgu leyti er í stíl viö það hvern-
ig aðstandendur Maverick vilja
að myndin líti út. William Gold-
man hefur mikla reynslu sem
handritahöfundur og af öðrum
myndum hans má nefna All the
President’s Men (1976), Marathon
Man (1977) og A Bridge too Far
(1977).
Ungureða gamall
f fyrsta uppkastinu gerði Gold-
man ráð fyrir að Cooper, sem
myndin snýst um, sé ungur mað-
ur. Aðstandendur myndarinnar
fengu einhverja bakþanka því í
fyrstu höfðu þeir áhuga á aö fá
Paul Newman í aöalhlutverkið,
líklega vegna þess hve vel honum
tókst upp í Butch Cassidy and the
Sundance Kid myndinni. Paul
var lengi vel hálfvolgur og lét
breyta handritinu þannig að það
passaði betur fyrir raann á hans
aldrí. En eins og svo oft vill ger-
ast með leikara í Hollywood þá
snerist Newman hugur á síöustu
stundu og ákvað að leika í mynd-
inni Nobody’s Fool sem Robert
Benton leikstýrir. Það var þá sem
Mel Gibson kom til sögunnar.
Það var ekki ólikt upp á ten-
ingnum varðandi aðalkvenhlut-
verkið. Meg Ryan var eiginlega
búin aö ía hlutverkið þegar eitt-
hvað kom upp á. Þvi var Jodie
Foster kölluð til. Hún ásamst Gib-
son situr þessa dagana með Gold-
man til að endurskoða einu sinni
enn handrítið. En eitt er víst, ef
það tekst að laöa allt hið besta
fram hjá þvi hæfileikarika fólki,
sem stendur að gerö þessarar
myndar, ætti útkoman að verða
stórkostleg. En það verður
tíminn að leiða í ljós.