Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.1993, Síða 21
LAUGARDAGUR 18. SEPTEMBER 1993
21
Sviðsljós
Robert Redford
óttast aldurinn
Rennt
fyrir fisk
íslendingar gera mikið að því að
renna fyrir fisk, eins og sést glögg-
lega á ásókn í laxveiðiámar en upp-
selt er í þær flestar strax í upphafi
sumars.
En það eru margir fiskveiðiáhuga-
menn sem af einhverjum orsökum
hafa ekki komist að í laxinum. Þeir
hafa margir nýtt sér aðstöðuna í
Hvammsvík í sumar, enda stutt að
faraognógaffiski. HMR
Skúli Kristinson, 12 ára, og systir
hans, íris, sem er 8 ára, veiddu vel
i Hvammsvíkinni með því að nota
hrogn sem beitu. DV-myndir Sveinn
hjónin áttu saman þrjú börn sem öll
eru vaxin úr grasi. Robert segist
kappkosta að halda góðu sambandi
við þau. Cathy á eina dóttur, Amy,
sem hefur náð góðu sambandi við
stjúpíoður sinn.
Robert Redford með Cathy O’Real sem hann segir að sé þroskuð, fögur
og gáfuð kona. Með þeim á myndinni er dóttir hennar, Amy.
Þegar aflinn kemur á land er um
að gera að mynda hann í bak og
fyrir þó svo að veiðin sé ekki stór.
Leikarinn frægi, Robert Redford,
segist vera með hamingjusamari
mönnum núna. Ástæðan er ástin
hans núverandi, búningahönnuður-
inn Cathy O’Real. Engin rós er þó
án þyma. Redford hefur nefnilega
talsverðar áhyggjur af aldri sínum.
Hann er nú hálfsextugur en Cathy
er ekki nema 37 ára, sumsé átján ára
aldursmunur. Leikarinn hefur sagt
það hreint út við fjölmiðla, sem hafa
átt viðtöl við hann, að hann vilji helst
ekki ræða aldur sinn. Hins vegar
leggur hann áherslu á að hann sé
ákaflega vel á sig kominn líkamlega.
„Ég fer í fjallgöngur, renni mér á
skíðum eða fer í róðrartúra á bátnum
mínum," segir hann.
Það urðu mörgum sár vonbrigði
þegar Robert skildi við konuna sem
hann hafði verið kvæntur í ein 27 ár.
Það er ekki algengt að hjónabönd
endist svo lengi i Hollywood þar sem
flestir skipta um maka eins og sokka.
Þeir bjartsýnustu voru því farnir að
vona að þessi eftirsótti leikari yrði
til þess að afsanna þá reglu. En svo
bregðast krosstré sem önnur tré. Þau
Lola og Robert voru gift í heil 27 ár
en það þykir langt hjónaband hjá
leikurum. Þau hafa haldið góðu
sambandi eftir skilnaðinn.