Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.1993, Side 27
LAUGARDAGUR 18. SEPTEMBER 1993
27
Fékk viöurkenningu fyrir ljóð sitt í samkeppni á Ítalíu:
Gamanað
kynnast öðrum
ljóðskáldum
-segir Anna S. Bjömsdóttir rithöfundur
Konsúll íslands í Genova, Carlo Alberto Rizzi, og kona hans, Lillian, voru
viðstödd úrslit Ijóðakvöldsins til heiðurs Önnu.
Hér les Anna Ijóðið sitt, The Journ-
ey, fyrir gesti á hátíðarsamkomu
Ijóðasamkeppninnar.
„Það var auglýst ljóðasamkeppni á
Ítalíu í fréttabréfi Rithöfundasam-
bandsins og var öllum heimil þátt-
taka. Þó var sett skilyröi um að ljóð-
in væru á ensku, þýsku eða frönsku
og síðan yrðu þau þýdd yfir á ít-
ölsku. Það bárust ljóð frá tuttugu og
fimm þjóðlöndum í keppnina, um
þrjú hundruð ljóð,“ segir Anna S.
Björnsdóttir rithöfundur sem fékk
sérstaka viðurkenningu fyrir ljóð sitt
sem hún sendi í keppnina. Auina er
nýkomin frá Ítalíu þar sem hún tók
á móti bikar og viðurkenningar-
skjah.
Anna segist fyrst hafa sent ljóð eft-
ir sig sem Frans Gíslason þýddi yfir
á þýsku. Hins vegar hafi ljóðið ekki
verið gjaldgengt í keppnina þar sem
þaö hafði birst í bók. „Ég vissi ekki
að ljóðin ættu að vera óbirt,“ segir
Anna sem átti í fórum sínum ljóð,
sem hún hafði samið á ensku, og
sendi það snarlega.
„Ég yrki stundum á ensku og
dönsku þannig að ég átti óbirt ljóð
sem ég sendi. Það er auðvitað ekki
eins að yrkja á íslensku og erlendum
málum en það lætur mér þó ein-
kennilega vel að yrkja á ensku,“ seg-
ir hún. Ritari keppninnar, Rosmary
Subaki, sem er þýskt ljóðskáld, sendi
mér bréf og hvatti mig, kannski
vegna þess að hún hafði komið til
íslands. Við vorum tvaer sem fengum
viðurkenningu, ég og Ólöf K. Péturs-
dóttir sem einnig sendi ljóð í keppn-
ina. Ljóð okkar, ásamt úrvali af ljóð-
um sem valin eru, verða síðan birt í
sérstakri ljóðabók sem gefin verður
út.
Ég var ákveðin að fara til Ítalíu ef
mér tækist að komast í þetta úrval
enda taldi ég gott að kynnast öðrum
rithöfundum. Menntamálaráðuneyt-
ið styrkti mig til fararinnar og ég var
mjög glöð yfir því. ítalarnir óskuðu
sérstaklega eftir að höfundar ljóð-
anna kæmu og tækju á móti viður-
kenningum sínum. Þetta var mikill
hátíðisdagur þegar verðlaun voru
afhent en ég tók eftir að við vorum
aðeins þijár frá Norðurlöndum. Ég
fékk þama minn fyrsta bikar á
ævinni.“
Anna hefur gefið út þrjár ljóðabæk-
ur; Örugglega ég, Strendur og Blíða
myrkur. Þá er væntanleg ný ljóðabók
Anna S. Björnsdóttir rithöfundur fékk bikar og viðurkenningarskjal fyrir Ijóð
sitt. DV-mynd ÞÖK
eftir hana, Skilurðu steinhjartað,
fyrir jóhn. I thefni af útkomu bókar-
innar verður hstsýning í Listhúsi
Ófeigs þar sem Anna og Ófeigur
Bjömsson vinna talsvert saman.
Einn kafh bókarinnar er með erlend-
um ljóðum sem Anna hefur samið á
ferðalögum sínum erlendis.
Auk ritstarfa hefur Anna unnið
sem sjálfstæður blaðamaður en hún
var kennari um langt árabh. „Mér
finnst ég hafa vaxið út úr kennsl-
unni. Það er ekki pláss fyrir persónu-
leika eins og mig í henni. Skólarnir
eru ekki í nógu góðri þróun og ekki
nægilega skapandi," segir Anna S.
Björnsdóttir sem hefur hug á að taka
þátt í fleiri ljóöakeppnum erlendis.
-ELA
Uppboð á lausafjármunum
Eftirtaldir lausafjármunir verða boðnir upp að Fjarðarstræti 28, ísafirði (gömlu
lögreglustöðinni), laugardaginn 25. september klukkan 14.00.
í-1750, Subaru station, árg. '82. IV-781, Citroen BX GTi, árg. '88. HF-
286, Kawasaki KL 250, árg. '84. R-78735 (10-640), Isuzu Trooper, árg.
'88. í-848, Ford Fairmont, árg. '79. HJ-592 (R-76263), Mazda 626, árg.
'85. R-41066 (IF-894), Daihatsu, árg. '87. R-6486 (EG-688), Range
Rover '76. R-10695 (GK-885), Volvo 343, árg. '82. Fífa ÍS-57. HR-836,
Porsche 928, árg. '78. JI-317, Skoda, árg. '88. PK-936, Scania P113, árg.
89. JJ-132, Lada, árg. '88. LF-919, Toyota, árg. '85. GF-172, Volvo 244,
árg. '81. KU-919, Chevrolet Blazer, árg. '87. KV-033, Suzuki GS 550, árg.
'86. IL-819, Honda Accord, árg. '87. LH-206, Lada Samara, árg. '92.
SA-226, Scania P 113, árg. '90. MR-458, Case hjóladráttarvél IH 895
XL, árg. '91. JA-533, Nissan Sunny, árg. '88. Hamada 611-CD prentvél,
framleiðsluár 1986. Kalmar LM4-500 lyftari. Boss rafmagnslyftari, Typ
Ne16 MK, árg. '87. GL-371 Scania, árg. '76.
Sýslumaðurinn á isafirði
16. september 1993.
UC-2380
250 Itr. kælir-110 Itr. frystir
Mál HxBxD: 170x60x57cm
Tvísk. m/frysti að neöan
Tvöfalt Hitachi kæjikerfi
US-2360
282 Itr. kælir - 78 Itr. frystir
Mál HxBxD: 171x60x57cm
Tvísk. m/frysti að ofan
US-2290
212 Itr. kælir - 78 Itr. frystir
Mál HxBxD: 147x60x57cm
Tvísk. m/frysti að ofan
US-1300
265 Itr. kælir - 25 Itr. frystih.
Mál HxBxD: 140x60x57cm
Innb. frystihólf - Hljóðlátur
RÖNNING
SUNDABORG 15
SÍMI 68 58 68
FAGOR
Hreinsaðu húð þína með Hivea!
Hreinsikrem osskrúbbkrem mildosrakavemddndi
Nivea hreinsikrem: Hreinsar óhreinindi og farða af andlitinu á
árangursríkan hátt. Kremið má nota daglega, það er rakavemdandi
og hindrar húðþurk.
Nivea skrúbbkrem (peeling): Er milt og smákomótt. Kremið
hreinsar dauðar húðfrumur og óhreinindi af andlitinu og er
rakavemdandi. Regluleg notkun 1-2 í viku örvar blóðrásina og
heldur húðinni ferskri. Ljúkið hreinsun með andlitsvatni frá Nivea.
NIVEA
J. S. Helgason hf Draghálsi 4 sími 91- 68 51 52