Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1993, Síða 3
ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 1993
3
i>v Stuttar fréttir
reynslusveitarfélag
Minnst 20 sveitarfélög vilja
verða reynslusveitarfélög og taka
að sér aukin verkefni. Valin
verða 5 sveitarfélög og verða þau
sera sameinast látin sitja fyrir.
Umsóknarfrestur rennur út um
mánaðamótin.
Börnunt líðurilla
AHt að 8.500 bornum á íslandi
líður mjög iHa í skóla. Tíminn
hefur þetta eftir Arthuri Mort-
hens, formanni Barnaheilia. Mið-
að við hin Norðurlöndin verja
íslendingar mun minni íjármun-
um til mennta og velferðarmála.
Svipað fjármagn fer til skólamála
hér á landi og í Suður-Evrópu.
Uppsagnir á leikskólum
Um 600 börn tapa leikskóla-
plássi um áramótin ákveði heil-
brigðísráðherra að veita ekki fé
til rekstursins. RÚV segir að á
annaö hundrað starfsmönnum
verði sagt upp um mánaðamótin
verði þetta niðurstaðan.
Fleiri unglingar lagðir inn
MikH aukning hefur orðið á
innlögnum unglinga á meðferð-
arstofnunina Tinda á þessu ári,
eða um 70 prósent. Sjónvarpiö
skýrði ffá þessu.
Nýraðstoðarmaður
Margrét S. Björnsdóttir, endur-
menntunarsfjóri HÍ, hefur verið
ráðin aðstoðarmaður iðnaðar- og
viðskiptaráðherra,
Bændurtapa
Bændur í Skagafirði munu tapa
miUjónura króna vegna rekstrar-
erfiðleika Slátursaralags Skag-
firðinga. Slátursamlagiðleltar nú
nauðarsamnínga. Tíminn segir
erfiðleikana stafa af töpuðum
viðskiptakröftun.
Fjölmennsendisveit
Fiölmenn sendisveit frá íslandi
er nú í Washington vegna árs-
fundar Alþjóöabankans og Al-
þjóða gjaldeyrissjóðsins. Sam-
kvæmt Morgunblaðinu sitja 11
fulltrúar sfjómvalda og banka
sjálfan ársfundinn en tengda
fundi sitja enn fleiri. Ljóst er að
kostnaðurinn skiptir milfjónum
króna
Misjafnt i askana látið
Sfjómmálaflokkarnir á íslandi
fá 105 milljónir í framlög úr ríkis-
sjóði í ár. Samkvæmt úttekt
Morgunblaðsins fá Neytenda-
samtökin litlar 3 miHjónir á sama
tima og landbúnaðurinn fær
rúmlega 6,1 þúsimd milijónir,
Vilja veiða á bannsvæði
Skipstjórar islensku togaranna
í Smugunni vUja færa sig sunnar
til veiöa, meðal annars þangað
sem sjávarútvegsráðherra hefur
bannað veiðar. LÍÚ er þessu and-
vígt. RÚV greindi frá þessu.
Mótmæltáfyrstadegi
Þorsteinn Pálsson sjávarut-
vegsráðherra er nú í opinberri
heimsókn í Rússlandi. A fyrsta
degi heimsóknarinnar mótmæltu
Rússar veiðum íslendinga í
Smugunni og hóta að rifta sam-
starfssamningi um kolaveiðar.
MbL skýrði frá þessu.
Viljanýjaforystu
Sjálfstæðismenn í Kópavogi
vilja umtalsverðar breytingar á
forystu flokksins fyrir komandi
bæjarstjómarkosningar og
skipta út 4 af 5 bæjarfuUtrúm
flokksins. Þetta er niðm-staða
skoðanakönnunar sem fuUtrúa-
ráð flokksins stóð fyrir. Stöö tvö
greindifráþessu. -kaa
Fréttir
Fornminjavörður um hringina á Seltjamamesi:
Svæðið við Nesstofu
sjálf krafa friðlýst
„Svæðið við Nesstofu er í raun
sjálfkrafa friðlýst samkvæmt þjóð-
minjalögum vegna þess að mann-
virkin sem þama fundust era eldri
en 100 ára,“ segir Guðmundur Ólafs-
son fomminjavörður um hringina
við Nesstofu á Seltjamarnesi.
Guðmundur segir nauðsynlegt að
gera minjakort af svæðinu sem svo
þurfi að bera saman við skipulag.
Samkvæmt núverandi skipulagi er
ráðgert að útivistarsvæði veröi þar
sem hringirnir eru.
í dag verður væntanlega tekið jarð-
vegssýni úr rústunum og gerð á því
frjógreining. „Það hafa komið upp
hugmyndir um hvort þessi mann-
virki, sem við teljum vera frá því
snemma á miðöldum, geti tengst
komrækt. Ef svo væri gæti kornið
hafa verið ræktað inni í hringun-
um,“ segir Kristinn Magnússon, for-
stöðumaður Nesstofu, sem staðið
hefur að uppgreftrinum á Seltjarnar-
nesi. Hann bendir jafnframt á að ör-
nefni á Seltjarnarnesi eins og Bygg-
garður tengist akuryrkju.
Sáust fyrst
á Ijósmynd 1980
Hringirnir í túninu við Nesstofu
uppgötvuðst 1980 er tekin var loft-
mynd af svæðinu. „Sem betur fer
voru ekki til stórvirkar vinnuvélar
þegar túnið við Nesstofu var sléttað.
Annars hefðu hringirnir Hklega ekki
sést," segir Kristinn og bætir við að
það hafi ekki veriö fyrr en nú um
helgina sem hann frétti af því hve-
nær túnið var sléttað. „Þegar ég var
hér við rannsóknir kom tU mín maö-
ur sem kvaöst hafa tekið þátt í aö
slétta túnið 1935. Svæðið hér við hlið-
ina var sléttað mikiu seinna. Þar
sjást engir hringir. Á mörkum þess-
Hringirnir við Nesstofu eru átta til tíu. Túnið við Nesstofu var sléttað um 1935. Svæðið við hliðina var sléttað
seinna með stórvirkari vinnuvélum og þar sjást engir hringir. Á mörkum þessara svæða sést hins vegar hálfur
hringur þeim megin þar sem fyrr var sléttað. Þar sem hringirnir eru er fyrirhugað útivistarsvæði. Fornminjavörð-
ur leggur áherslu á að hringunum megi ekki raska. DV-mynd Garðar Guðmundsson
ara svæða sést hálfur hringur á Nes-
stofutúninu."
Guðmundur Ólafsson fomminja-
vörður segir niðurstöðuna, sem þeg-
ar er fengin, mjög spennandi.
„Áður en rannsókn fór fram viss-
um við ekki hvort þama voru mann-
virki eða náttúrulegar myndanir.
Þarna reyndust vera miklar minjar
og þeim má ekki raska,“ segir hann.
-IBS
Jóhanna flrekar f yrirvara
Jóhanna Sigurðardottir felags-
málaráðherra ítrekaði ýmsa fyrir-
vara sina við fjárlagafrumvarpið á
flokksstjórnarfundi Alþýðuflokks-
ins um helgina. Einkum leggst Jó-
hanna gegn áformum heUbrigöis-
ráðherra að innleiða heilsukort og
þá ætlan menntamálarðherra að
velta ýmsum kostnaði við skóla-
kerfið yfir á sveitarfélögin.
Á fundinum gagnrýndi Jóhanna
rikisstjómina fyrir hversu harka-
lega hún gengi fram i niðurskurði.
Efnahagsástandiö gæfi ekki tilefni
tíl sHks. Ekki skýrðist á fundinum
hvort Jóhanna mundi styöja fiár-
lagafrumvarp rikisstjórnarinnar
þegar það kæmi til afgreiðslu á
Alþingi.
-kaa